Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Blaðsíða 22
Frítt inn á tónleika All the Young
n Valin 12. besta hljómsveit Bretlands af XFM
Í
tilefni þess að sól fer
hækkandi og vorið á
næsta leiti vill Iceland
Airwaves hita upp fyrir
hátíðina í ár og bjóða upp á
fría tónleika á Nasa laugar-
dagskvöldið 31. mars. Fram
koma Sóley, Agent Fresco
og breska gítarrokksveitin
All The Young sem XFM-út-
varpsstöðin í London út-
nefndi eina af tólf bestu
hljómsveitunum fyrir árið
2012, auk þess sem þeir voru
tilnefndir til „the next big
thing“-verðlaunanna hjá
HMV.
Kamilla Ingibergsdóttir
hjá Iceland Airwaves segir
tónlistaráhugamenn sem
vilja sjá All The Young á
tónleikum verða að mæta
á Nasa um næstu helgi
því hún verður ekki meðal
þeirra sem mæta á hátíðina
í haust. „Þetta er eina tæki-
færið á landinu í ár því sveit-
in kemur ekki í haust.“
Athygli vekur að frítt er
inn á tónleikana. „Þetta eru
nokkurs konar kynningar-
tónleikar og við hitum upp
nokkuð snemma í ár, við
höfum verið að gefa ókeypis
miða á midi.is en við af-
hendum einnig með miða
við dyrnar á Nasa á sjálfu
tónleikakvöldinu.“
Kamilla segir þau bönd
sem mæta á hátíðina í haust
kynnt eftir páska og fram
eftir sumri. „Við kynnum 10
til 14 hljómsveitir eftir páska
og svo bætist í þann hóp
listamanna fram eftir sumri,
þetta verður verulega góð
hátíð,“ lofar hún.
Þess má geta að fyrstu 100
sem mæta fá glaðning frá
Tuborg og geta unnið miða
á Iceland Airwaves-tónlist-
arhátíðina sem fer fram dag-
ana 31. október til 4. nóvem-
ber en uppselt hefur verið á
hátíðina síðustu árin. Nánari
upplýsingar má finna á ice-
landairwaves.is.
22 Menning 26. mars 2012 Mánudagur
All the Young Bresk sveit sem
sló í gegn í heimalandi sínu í fyrra.
Hugrof Þórðar í
Dauðagalleríinu
Í Dauðagalleríinu á Lauga-
vegi 29 heldur Þórður Gríms-
son sýninguna Hugrof.
Sýningin samanstendur af
blekteikningum sem unnar
eru út frá aðferðafræði sem
nefnist „Paranoiac Critical
Method“ sem mætti þýða
sem gagnrýnin ofsóknarað-
ferð. Aðferðin er fólgin í að
láta hugann tengja á milli
óreiðukenndra hugmynda
og búa til form, fígúrur eða
landslag. Þórður Gríms-
son útskrifaðist úr Listahá-
skóla Íslands árið 2009 og er
búsettur í Reykjavík. Þetta er
þriðja einkasýning hans.
110 ára afmæli
Laxness
Út er komið yfirlitsrit um
Gljúfrasteinshjónin og heimili
þeirra í tilefni 110 ára afmæli
skáldsins í ár. Hér er spor-
um Nóbelsskáldsins fylgt frá
vöggu til grafar; heiman úr
Mosfellsdal og út í veröld-
ina, út á stræti stórborganna
vestanhafs og austan – og
aftur heim í dalinn. Skáldfer-
ill Halldórs er rakinn og sagt
frá ritverkum hans, pólitískri
baráttu og innri átökum, sorg-
um og sigrum. Einnig segir
frá störfum Auðar, sem færri
þekkja, og hversdagslífi jafnt
sem tyllidögum á menningar-
heimili þeirra hjóna. Aðrir
viðburðir eru á dagskrá í af-
mælisviku skáldsins, viku bók-
arinnar, í apríl. Má þar meðal
annars nefna Laxness-kvik-
myndaviku í Bíó Paradís og
sýningu til heiðurs afmælis-
barninu á Landsbókasafni.
Ókeypis
tæling
„Tælingarsöngvar“ – hádeg-
istónleikar Íslensku óper-
unnar verða í Norðurljós-
um, Hörpu,
þriðjudaginn
27. mars kl.
12.15.
Barítón-
söngvarinn
Ágúst Ólafs-
son og píanó-
leikarinn Antonía Hevesi
freista þess að tæla áheyr-
endur sína en þá flytja þau
serenöður og mansöngva eftir
W.A. Mozart, Donizetti, Schu-
bert og Tsjækovskí undir yfir-
skriftinni „Tælingarsöngvar“.
Tónleikarnir fara fram í
Norðurljósum og taka um
hálftíma í flutningi. Líkt og
venja var á hinum margróm-
uðu hádegistónleikum Ís-
lensku óperunnar í fyrra hús-
næði sínu í Gamla bíói geta
tónleikagestir keypt sér hress-
ingu fyrir og eftir tónleika og
þannig nælt sér í andlega og
líkamlega næringu í einu og
sama hádegishléinu. Aðgang-
ur að tónleikunum er ókeypis.
H
ungurleikarnir, ein
þriggja bóka um
Katniss Everdeen og
ríkið Panem, eftir
Suzanne Collins, hef-
ur notið fádæma vinsælda síð-
asta ár. Nú virðist sigurganga
bókarinnar halda áfram á
hvíta tjaldinu. Frumsýningar-
helgin ytra er sögð sú sjöunda
stærsta frá upphafi. Væntingar
áhorfenda eru miklar og leik-
stjórinn Gary Ross, þarf að
búa sig undir samanburð bók-
ar og myndar.
Sagan um Hungurleikana er
grípandi og á þess utan mikið
erindi við ungt fólk. Hún fjallar
um réttlæti og misskiptingu
auðs í heiminum. Aðalsögu-
hetja Hungurleikanna, Katniss
Everdeen, leikin af Jennifer
Lawrence, býr í 12. umdæmi
ríkisins Panem. 12. umdæmi
er endastöð ríkisins og hung-
urdauði er þar ekki óalgeng
örlög. Þar eru skilyrði íbúa Pa-
nem verst. Best eru þau hins
vegar í Kapítól þar sem fólk býr
við allsnægtir og forréttindi.
Þar býr fólk sem er tilgerðarlegt
og ýkt. Það klæðist tískufatnaði
og er bæði litað og svo breytt
eftir skurðaðgerðir að það er
eins og skrípi. Höfundurinn
hefur í raun dregið upp ein-
faldaða mynd af samtímanum
þar sem íbúar vestrænna ríkja
lifa lífi friðþægingar í heimi
neyslu og afþreyingar á meðan
íbúar fátækra ríkja heims deyja
hungurdauða eða láta lífið
vegna stríðs og ofbeldis. Oft
vegna baráttu um auðlindir
sem vestræn ríki hagnast á.
Saga leikanna
Handan 12. umdæmis eru
óbyggðir, rústir 13. umdæmis
sem Kapítól tortímdi vegna
uppreisnar íbúanna. Það er
vegna þeirrar uppreisnar sem
Hungurleikarnir eru haldnir.
Á hverju ári senda yfirvöld
í Kapítól einn strák og eina
stelpu til að keppa á hungur-
leikum. Í 12. umdæmi er nafn
barnungrar systur Katniss
dregið og hún býður sig sjálf
fram í hennar stað. Strákurinn
sem dreginn er með henni í
förina er Peeta Mellark, leik-
inn af Josh Hutcherson. Kap-
ítólbúar þurfa ekki að taka
þátt í leikunum. Eða eins og
Katniss spyr Peeta eitt sinn:
Hvað gera þeir annað í Kap-
ítól en að skreyta líkama sinn
og bíða eftir nýjum farmi af
framlögum sem deyja þeim til
skemmtunar.
Fulltrúar tólfta umdæmis
eiga litla möguleika á sigri.
Þau eru vannærð og skort-
ir alla þjálfun og fá sjaldnast
styrktaraðila. Það eru styrkt-
araðilar sem hafa líf kepp-
enda oft í hendi sér. Þeir geta
sent lyf og mat þeim til bjargar.
Flestir styrktaraðilar eru hins
vegar gjarnir á að styrkja þá
sem eru líklegir til sigurs og
þannig halda halda fulltrúar
12. umdæmis til höfuðborgar-
innar, vonlitlir um sigur.
Fyrirsæta frekar en
fyllibytta
Hvert umdæmi fær ráðgjafa
sér til halds og trausts. Ráð-
gjafi þeirra Katniss og Peeta,
Haymitch, er leikinn af Woody
Harrelson. Hann á að vera líf-
taug þeirra við umheiminn,
ráðleggja þeim og útvega þeim
styrktaraðila en er duglaus
fyllibytta sem vaknar ekki til
lífsins fyrr en hann sér von
um breytta tíma í hugrekki
Katniss. Leikur Woody er
ósannfærandi, hann er hvergi
nærri eins bilaður og sjúsk-
aður og frásögn Suzanne gefur
til kynna. Aldrei dettur hann
í volæði sínu í eigin ælupoll.
Nei, hann er sólbrúnn og
snyrtilegur til fara og frekar
eins og karlfyrirsæta á leiðinni
í myndatöku frekar en fylli-
bytta í ræsinu.
Tilfinningakaldar stelpur
og heitir strákar
Katniss verður stjarna leik-
anna. Frá því hún bauð sig
fram til að bjarga lífi systur
sinnar vekur hún eftirtekt og
aðdáun áhorfenda og breytir
gangi Hungurleikanna. Jenni-
fer Lawrence fer vel með hlut-
verk Katniss. Hún er sterk og
fim og ekki síst er hún barns-
leg. Hún minnir á kvenhetjur
myndanna Kick-Ass og Hanna.
Kaldar kvenhetjur sem láta
ekki deigan síga eru greinilega
málið í Hollywood í dag og er
það vel. Josh Hutch erson sem
fer með hlutverk Peeta sýnir
hjartnæman leik. Hann er til-
finningavera og það er hans
styrkur. Með góðsemd sinni
og tilfinningagreind nær hann
að halda sér á lífi. Þarna eru
komnar tvær aðalhetjur sem
strax brjóta allar steríótýpu-
reglur Hollywood sem er ágæt-
is rokk.
Of mikil mýkt
Það er leikstjórinn Gary Ross
sem heldur um taumana,
hann hefur áður leikstýrt
myndum svo sem Pleasant-
ville og Seabisquet. Hann er
að margra mati fremur mjúkur
leikstjóri og mýktin smitast á
þessa sögu ofbeldis. Myndin
er í alla staði góð og vel
heppnuð en það vekur stund-
um gremju hversu mikið er
dregið úr ofbeldi og grimmd
bókarinnar enda þjónar það
ákveðnum afhjúpandi til-
gangi. Á hinn bóginn er margt
í myndinni sem er vel gert.
Tilgerð Kapítólbúa er keyrð
upp í hæstu hæðir, áhorfenda-
pallarnir minna óþægilega á
tískuvikur stórborganna og
svipmyndir úr lífi borgarbúa
eru eins og skopmyndir af lífi
Vesturlandabúa. Eða kapítal-
ista. Þeirra sem sækjast aðeins
eftir ágóða sér til handa. Til
mótvægis sjá áhorfendur svip-
myndir af örbirgð þeirra sem
búa fyrir utan borgina.
Það var einnig vel til fund-
ið að lágmarka notkun tón-
listar í myndinni. Þögnin
var áhrifamikil í dramatísk-
ustu atriðunum og afhjúp-
aði reyndar áhorfendur sem
snöktu án afláts yfir grimmd-
inni Það var stútfullur salur í
Háskólabíó þegar undirrituð
fór að horfa á myndina. Lang-
stærstur hluti áhorfenda var
unglingar og myndin snerti þá
augljóslega og á að gera. Flest-
ir þeirra sem sjá hana ná að
yfirfæra boðskapinn yfir á lífið
almennt. Lífið er leikurinn. Og
við eigum langt því frá jafna
möguleika á að lifa af. Þessari
líkingu höfundarins nær Gay
Ross að koma til skila í þess-
ari áhrifamiklu mynd. Ef þessi
mynd snertir þig ekki, þá ertu
frá Kapítól.
Snöktandi
unglingar í bíó
n Ef þessi mynd snertir þig ekki, þá ertu frá Kapítól
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bíómynd
Hunger Games
IMDb 8,1 RottenTomatoes 86%
Leikstjóri: Gary Ross
Aðalhlutverk: Jennifer Lawrence, Josh
Hutcherson, Woody Harrelson, Donald
Sutherland.
Katniss og Peeta Það eru Jennifer Lawrence og Josh Hutcherson sem fara með aðalhlutverk.