Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Qupperneq 2
2 Fréttir 2. júlí 2012 Mánudagur ANDSTÆTT ÞVÍ SEM ER BARNI FYRIR BESTU V ið erum bara gjörsamlega dofin hérna og vitum ekki hvað við getum gert, segir Hjördís Svan Aðalheiðar- dóttir sem staðið hefur í harðri forræðisdeilu við danskan barnsföður sinn. Þau eiga saman þrjár dætur en þegar þau skildu fyrir þremur árum síðan ákvað Hjördís að fara heim til Íslands með dæturnar. Þá hafði ekki verið dæmt í forsjár- máli þeirra úti í Danmörku. Hún hefur sakað barnsföður sinn um hafa beitt sig og börn sín andlegu og líkamlegu ofbeldi. Á föstudag voru dæturnar færðar með lögregluvaldi frá móðurinni. Það var gert til þess að framfylgja dómsúrskurði. Veit ekki hvar þær eru Danskur dómur dæmdi foreldr- unum sameiginlegt forræði og bæði Héraðsdómur Austurlands og Hæstiréttur hafa staðfest þann dóm. Hjördís er hins vegar ósátt við þann dóm og vill að málið sé tekið upp aftur á grundvelli nýrra gagna sem hún segir liggja fyrir í málinu. Á föstudaginn voru stúlkurnar teknar af móður sinni af lögreglu- mönnum á heimili hennar. Fjöl- mennt lið lögreglu mætti til þess að ná í stelpurnar og segja sjónarvott- ar að bílarnir hafi verið sjö talsins. Faðirinn mætti ekki á staðinn en yf- irvöld tóku börnin fyrir hans hönd. Barnaverndarnefnd kom þeim svo fyrir hjá vandalausum en faðirinn er talinn hafa komið til landsins á laugardag. Hjördís segist svo hafa fengið að vita það í gærkvöldi að dæturnar væru á leið til Dan merkur, þær hefðu verið færðar í fylgd lög- reglunnar um borð í flugvél. Forræði þeirra er sameiginlegt en vegna þess að málið var tekið fyrir í Danmörku þá er það úrskurð- að dvalarland þeirra og samkvæmt Haag samningum er öðru foreldr- inu óheimilt að fara með þær úr landi. „Dönsk yfirvöld dæma alltaf þeim í vil sem ætlar ekki að fara með barnið úr landi. Ég sagði allan tímann að við vildum búa á Íslandi því að hér viljum við búa og höfum alltaf búið. Mér er sagt að það hafi orðið mér að falli.“ Sagt hún fengi að heimsækja Stúlkurnar voru færðar á annað heimili. „Vaninn er sá í þessum aðfararbeiðnum að þegar ann- ar aðilinn mætir ekki á staðinn þá fara börnin heim með móður. En í þessu tilfelli fannst þeim betra að láta þær fara á ókunnugt heim- ili sem ég má ekki vita hvar er. Og þrátt fyrir að ég sé líka með forsjá yfir þeim. Mér var svo sagt að ég mætti heimsækja þær en það svo dregið til baka sökum þess að þær söknuðu mín svo mikið og það væri svo erfitt fyrir þær að kveðja. Þessi vinnubrögð hjá Barnaverndaryfir- völdum í Kópavogi er algjörlega til skammar,“ segir Hjördís. „Það var búið að lofa mér því þar að ef þetta yrði erfið afhending þá myndu þeir hætta við. En það var ekki gert. 15 ára gamall bróðir þeirra getur ekki trúað því að sama kona hjá Barnaverndarnefnd og hann sagði frá ofbeldi, hafi rifið Míu systur sína grát- andi úr höndunum á mér á meðan lögreglumaður hélt mér niðri. Þetta var skelfilegt. Hann gat ekki skil- ið hvernig hún gat gert það þar sem hann hafði sagt henni frá öllu sem maðurinn hefði gert okkur. Barna- verndarnefnd Kópavogs hefði getað kyrrsett börnin í nokkrar vikur með- an málið yrði rannsakað en ákváðu að gera það ekki.“ Skýringar móðurinnar hvers vegna hún vill ekki láta föðurinn fá dætur sínar verða ekki útskýrðar í smáatriðum hér. Móðirin greindi frá þeim í viðtali við DV árið 2011 en blaðamaður var dæmdur fyrir meiðyrði, fyrir að hafa þær lýsingar eftir henni. Grétu í símann Áður hafði verið reynt að taka stúlk- urnar með aðfararbeiðni en þá mætti faðir þeirra ekki á staðinn. „Þá kom hann ekki og þá hefði hún í raun átt að falla niður en þau mis- tök voru gerð hjá Sýslumanninum á Höfn að hún var bókuð aftur. Þarna var ég að framfylgja úrskurði Hæsta- réttar og þá á sýslumaður að bóka það. Hann gerði það ekki og þar var lagaleg glufa sem hægt var að nota til þess að hann fengi börnin.“ Síðan stúlkurnar voru teknar af henni á föstudag hefur hún feng- ið að tala við þær tvisvar í síma. „Ég heyrði ekki hvað þær sögðu því þær grétu svo mikið. Þær eru mjög hændar að mér eins og segir í danska dómnum enda hef ég alltaf verið miðpunktur í lífi þeirra. Þær sofna ekki nema ég lesi fyrir þær og haldi í höndina á þeim. Það var allt rifið í burtu frá þeim. Þetta er svo ill meðferð á börnum sem hafa upplif- að allt of mikið og kerfið er svo mik- ið að bregðast þeim,“ segir hún. Hjördís segist ekki vita hvenær hún fái að sjá dætur sínar á ný. „Ég veit ekki neitt og fæ ekkert að vita.“ Hún segist hafa rætt málið við umboðsmann barna. „Umboðs- maður barna sagði okkur að það hefði oft verið brotið á börnunum, það er fólk sem á að kalla sig fagfólk og á að passa upp á velferð barna en því miður er of mikið brotið á þeim. Af hverju mega börn ekki tjá sig? Það er ástæða fyrir því að ég ákvað að nota minn neyðarrétt til þess að bjarga börnunum og koma heim til Íslands.“ Svona aðferðir mjög ógeðfelldar Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnastofu, segist ekki geta tjáð sig um einstaka mál en sagði að það væri óskandi að lög kvæðu á um að innsetningaraðgerðir gætu verið framkvæmdar á annan veg. „Svona aðgerðir eru eðli málsins samkvæmt alltaf mjög ógeðfelld- ar og eru andstæða þess sem er barni fyrir bestu. Það væri ósk- andi að menn finndu aðrar að- ferðir til að sinna þessum málum. En þarna var verið að framfylgja ákvæðum Haag-samningsins um afhendingu barna sem hafa verið brottnumin, í samræmi við ákvörðun dómstóla. Þetta er ekki barnaverndarmál í skilningi barnaverndarlaga, það er að segja að Barnaverndarnefnd á Íslandi hefur engar valdheimildir til að grípa inn í vinnslu málsins. Þetta er sorglegra en tárum taki að málum skuli vera komið á þennan veg. Ég álít að það væri betra að lög kvæði á um aðrar að- ferðir heldur en þessar innsetn- ingaraðgerðir til að framfylgja málum. Það eru önnur lagaákvæði í Noregi og Frakklandi svo að dæmi séu tekin. “ Fluttar í burtu Hjördís segir stelpurnar hafa verið fluttar í burtu í lögreglufylgd á sunnudagskvöld. Ljósmyndari sem var á svæðinu sagði mikinn viðbúnað lögreglu hafa verið við Leifsstöð og lögreglubíll var við vél Iceland Express sem var að fara til Kaupmannahafnar. PRESSPHOTOS.BIZ n Hjördís Svan segir kerfið bregðast dætrum sínum sem voru færðar með valdi til föður síns fyrir helgi Hjördís og börnin Hjördís segir illa brotið á börnunum og ekki sé hlustað á raddir þeirra. Af vettvangi Þessar myndir voru teknar á vettvangi á föstudag Lögregluaðgerðin Tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn mættu í íbúð móðurinnar. Þegar þeir sáu að aðstandendur móðurinnar voru á staðnum til þess að sýna henni stuðning kölluðu þeir út allan tiltækan liðsauka, meðal annars sérsveitar- menn. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudag lýsti systir Hjördísar, Ragnheiður Rafnsdóttir, atburðarrásinni þannig: „Þær ríghéldu í móður sína, þar sem þær sátu beinlínis ofan á henni í sófanum. Það þurfti fílefldan lögreglumann til þess að halda systur minni til að annar lögreglumaður gæti náð börnunum af henni,“ sagði hún. „Að sjá börnin, við þessar aðstæður, það var svo skelfilegt að ég get eiginlega ekki lýst því.“ Ekki náðist í faðir stúlknanna við vinnslu fréttarinnar. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.