Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 22
22 Menning 2. júlí 2012 Mánudagur
Hvar er draumurinn?
n Hugleikur Dagsson gerir grimmt grín að íslenskum dægurlögum
H
ugleikur gerir grimmt
grín að íslenskum dæg-
urlögum. Fyrst í bók-
inni Íslensk dægurlög
og svo í bókinni Fleiri íslensk
dægurlög og núna í bókinni
Enn fleiri íslensk dægurlög.
Sem hann segir óhjákvæmi-
lega vera síðustu bókina í
flokknum því ekki séu til fleiri
íslensk dægurlög.
Samhliða útgáfu bókar-
innar opnar sýning á verkum
Hugleiks úr téðri bók og eldri
verkum í nýju galleríi í Bóka-
búð Máls og menningar. Ætl-
unin er að hið nýja gallerí
skapi vettvang fyrir samtíma-
list og lifandi rými fyrir hvers
konar uppákomur sem henni
fylgir. Hugleikur Dagsson mun
því vígja hið nýja gallerí með
sýningu sinni sem stendur yfir
næstu vikurnar.
Hugleikur Dagsson
Íslensk dægurlög er
nýjasta bók hans.
Íslensk dægurlög Myndskreytt að hætti Hugleiks.
Sigur Rós
snýr aftur
Sigur Rós mun snúa aftur
á Iceland Airwaves-hátíð-
ina en 11 ár eru liðin síð-
an hljómsveitin kom síðast
fram á tónlistarhátíðinni.
Tónleikar sveitarinnar verða
sunnudaginn 4. nóvember í
Nýju Laugardalshöllinni eða
á síðasta degi hátíðarinnar.
Sigur Rós mætir með nýju
plötuna, Valtara, í farteskinu
en sveitin mun halda tón-
leika um víða veröld á næstu
mánuðum til að kynna
nýju plötuna. Tónleikarn-
ir á Iceland Airwaves verða
fyrstu tónleikar sveitarinnar
á Íslandi í fjögur ár.
ABBA 40 ára
Í júní 1972 var lagið People
Need Love með hljóm-
sveitinni ABBA tekið upp.
Af því tilefni verða haldn-
ir 40 ára afmælistónleikar
til heiðurs hljómsveitinni í
Eldborgarsal Hörpu þann
25. ágúst. Þau Agnetha
Fältskog, Benny Anders-
son, Björn Ulvaeus og Anni-
Frid Lyngstad skipuðu
sveitina en hún var fyrsta
poppsveitin, sem ekki var
enskumælandi, til að slá í
gegn í enskumælandi lönd-
um. ABBA hætti árið 1983 og
þótt sveitin hafi aðeins starf-
að í tíu ár er sveitin gríðar-
lega vinsæl um allan heim.
Uppselt er á tónleikana en
aukatónleikar verða síðar
um kvöldið.
Tvöfalt af-
mæli Siggu
Söngkonan Sigríður Bein-
teinsdóttir verður fimmtug á
árinu og heldur einnig upp á
30 ára söngafmæli sitt. Af því
tilefni ætlar Sigga að halda
tónleika í Háskólabíói á af-
mælisdaginn sjálfan, 26. júlí.
Á tónleikunum verða vin-
sælustu lög Siggu í gegnum
tíðina flutt en Sigga á glæsi-
legan feril að baki. Sérstakir
gestir á tónleikunum verða
til að mynda Björgvin Hall-
dórsson, Grétar Örvarsson,
Friðrik Ómar Hjörleifsson,
Regína Ósk Óskarsdóttir,
Erna Hrönn Ólafsdóttir og
Páll Óskar Hjálmtýsson.
F
orlagið hefur gefið út
bókina The little book
of the Icelanders, eft-
ir Öldu Sigmunds-
dóttur. Bókin hef-
ur að geyma fimmtíu sögur
um háttalag og sérkenni Ís-
lendinga, óskrifaðar reglur í
samskiptum þeirra og hefðir
sem hafa skapast í kringum
ýmis tilefni.
Berðu V og W eins fram
þegar þú talar ensku? Gef-
ur þú stefnuljós? Setur þú
barnið út á svalir til að sofa?
Svör við þessum spurning-
um gætu gefið til kynna ís-
lenskt þjóðerni.
Þetta reddast
„Mér leið svolítið eins og
útlendingi í eigin landi þegar
ég kom heim eftir að hafa
búið erlendis mestan part
æskuáranna og hóf að rita
hjá mér ýmis sérkenni Ís-
lendinga. Bæði þau sem mér
fundust sérkennileg og þau
sem mér fundust skemmti-
leg og falleg,“ segir Alda um
tilurð bókarinnar.
„Ég reyni að útskýra
margt sem kemur útlending-
um á óvart. Næturlífið og
smábörnin sem sofa úti. Ís-
lendingar eru líka alltaf
seinir, þeir eru nefnilega
svo sérstakir. Þeir eru hvat-
vísastir allra Norðurlanda-
þjóða og oft eru þeir sagðir
Suður-Evrópubúar, Norður-
Evrópu,“segir hún og hlær.
„Umferðinni á Íslandi finnst
mörgum útlendingum svipa
til þeirrar í Suður-Evrópu,
engin stefnuljós og illa lagt í
stæði. Við segjum líka: Þetta
reddast, í tíma og ótíma.“
Bjartsýnir og blóðheitir
Einna merkilegast finnst
henni hve mörgum Ís-
lendingum gengur illa að
taka þátt í samræðum. „Án
þess að vilja vera neikvæðir,
þá eiga þeir í stökustu vand-
ræðum með að halda aftur af
sjálfum sér. Þeir hafa mikla
þörf fyrir að tala um sjálfa sig.
Samræðulistin er þannig að
þú hlustar og spyrð og svar-
ar, til skiptis. Íslendingarn-
ir eru meira fyrir að vera
bara spurðir, hlusta ekkert
og tala út í eitt.“ Bjartsýni og
glaðlyndi Íslendinga er mik-
ið, minnir Alda líka á. Enda
fjallar einn kafli bókarinnar
sérstaklega um bjartsýni þar
sem Alda telur bjartsýnina
vera eins konar sjálfsbjörg
vegna baráttu við veður- og
náttúruöfl. „Það er einmitt
þess vegna sem Íslendingar
virka blóðheitir, þeir eru full-
ir af lífi.“ Alda hefur nú búið
á Íslandi í nærri áratug. Hún
er rithöfundur, blaðamaður,
þýðandi og bloggari. Margir
kannast við blogg hennar
sem hún hélt úti um árabil:
The Iceland Weather Report.
Í dag lærir hún ensku og
þjóðfræði við Háskóla Ís-
lands. „Mig langaði að bæta
þessu við mig og auðsjáan-
lega finnst mér þjóðfræðin
spennandi fag.“
kristjana@dv.is
n Sérkenni Íslendinga mörg n Blóðheitir, hvatvísir og óstundvísir
Sérkenni
Íslendinga
Þeir eru...
n Óstundvísir
n Blóðheitir
n Hvatvísir
n Bjartsýnir
n Vinnusamir
n Framtakssamir
n Umferðardólgar
n Fjölskylduræknir
n Sjálfumglaðir
n Stoltir
n Haldnir minnimáttarkennd
n Heimakærir
n Sjálfstæðir
n Geta ekki borið fram W
n Ginkeyptir
n Hégómlegir
n Áfengissjúkir
n Partýglaðir
n Hörundssárir (Þeir eru allir
orðnir brjálaðir af því að lesa
þennan lista!)
„Íslend-
ingar
eru líka alltaf
seinir, þeir eru
nefnilega svo
sérstakir
„Leið eins og
útLendingi í eigin Landi“
Óskrifaðar reglur og sérkenni
Alda Sigmundsdóttir skrifaði bók
um háttalag Íslendinga.