Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Side 25
Evrópumótið 2020 haldið um alla álfuna n Næsta EM haldið í Frakklandi að fjórum árum liðnum en 2020 gætu orðið breytingar S vo gæti farið að þar­ næsta Evrópumót í knatt spyrnu fari fram um gervalla álfuna. Það er að segja ef draumur Michel Platini, yfirmanns evrópska knattspyrnusambandsins, verður að veruleika. Frakkinn hefur þegar viðr­ að hugmynd sína meðal stjórnarmanna í knattspyrnu­ sambandinu en ákvörðun­ in verður tekin strax í janúar á næsta ári. Þegar hafa fjór­ ar þjóðir óskað eftir að fá að halda Evrópumótið 2020 en fái hugmynd Platinis brautar­ gengi munu leikir á EM það árið fara fram í tólf eða þrett­ án mismunandi löndum eða á 12–13 völlum í einu landi. „Þetta er aðeins á hug­ myndastiginu,“ segir Platini vegna málsins. „Við höfum talað um tólf til þrettán lönd eða leikvanga en þeir gætu eins orðið 24 þegar upp verð­ ur staðið. Þetta er mál sem mér finnst afar mikilvægt. Bæði er þetta jákvætt frá fjár­ hagslegu sjónarmiði en ekki síður vegna aðdáenda. Það er auðveldara að fara milli London og Parísar heldur en ferðast frá Cardiff til Gdansk.“ Platini bendir á að með því að deila keppninni niður á fleiri leikvanga eða lönd sé auðveldara að halda keppn­ ina. Ekki þyrfti að byggja dýra leikvanga heldur yrðu þeir notaðir sem til eru og held­ ur þyrfti eitt og sama landið ekki að leggja út í gríðarlegan kostnað við samgöngur, nýja eða uppfærða flugvelli og annað sem slík keppni hefur í för með sér. Líklega hefur Frakkinn einn ig í huga að töluverð ó ánægja hefur verið með keppnishaldið að þessu sinni. Í öllum borgum þar sem leik­ ið var jókst gistikostnaður fyrir ferðafólk mikið á síð­ ustu vikunum fyrir keppn­ ina og sérstaklega þóttu hót­ eleigendur í Úkraínu graðir í verðlagningu. Meðalkostn­ aður á gistingu þar meðan á mótinu stóð hækkaði um hundruð prós enta miðað við venjulegt verð. Marklínutækni engu breytt á eM n Gylfi Þór segir dómgæsluna á EM mjög góða þrátt fyrir vafasöm atvik E ins og þetta lítur út núna eru töluverð­ ar líkur á að marklínu­ tæknin verði reynd fyrir alvöru í ensku úrvals­ deildinni strax næsta vetur,“ segir Gylfi Þór Orrason, fyrr­ um milliríkjadómari og vara­ formaður Knattspyrnusam­ bands Íslands, en samkvæmt hans heimildum á að reyna að koma slíkum búnaði fyrir sem víðast áður en fyrsta umferðin í Englandi hefst í ágústmánuði. Afar skiptar skoðanir eru um hina svokölluðu marklínu­ tækni í knattspyrnuleikjum en fjölmörg slík vafatilfelli koma árlega upp og hafa oft æði mik­ il áhrif á viðkomandi leiki. Þó enska knattspyrnusambandið hafi enn ekki gefið það út formlega að marklínutæknin verði reynd fyrir alvöru í vetur liggur fyrir að slíkt á að reyna og koma búnaði fyrir á öllum völlum í úrvalsdeildinni eigi síðar en um áramótin. Fimm dómarar sáu ekki markið Aðspurður segir Gylfi að mark­ línutæknin sem slík hefði að líkindum engu breytt á Evrópumótinu í knattspyrnu þar sem dómarar hafa verið fimm talsins. Þrír hefðbundn­ ir og tveir að auki við mark hvors liðs en þeir síðarnefndu eiga meðal annars að ganga úr skugga um að mark sé mark þegar boltinn fer sannarlega yfir marklínu. Tiltækið tókst ekki betur en svo að fimmti dómari leiks Úkraínu og Eng­ lands tók ekki eftir neinu þegar Úkraínumenn skor­ uðu mark sem allir sáu stað­ fest í sjónvarpsútsendingu. Er alls ómögulegt að segja til um hvernig sá leikur hefði þróast hefði markið verið dæmt gott og gilt fremur en aðrir leikir þar sem slíkt gerist. Mark til eða frá er oftar en ekki púslið sem öllu skiptir hjá liðum sem eru undir í leikjum eins og í tilfelli Úkra­ ínu gegn Englandi. „Ég er ekki viss um að mark­ línutækni hefði breytt ein­ hverju til eða frá í því tilfelli,“ segir Gylfi Þór. „Sú tækni, þó hún lofi góðu, hefur ekki reynst vera góð og gilt nema í 60 til 70 prósent tilvika, og því alls ekki víst að sá búnaður hefði neitt frekar dæmt Úkraínumönnum markið í þessu ákveðna tilfelli. En þar var reyndar um tvenns konar mistök að ræða því við­ komandi leikmaður var rang­ stæður áður en markið var skorað. Það var ekki gæfulegt en þess utan hefur dómgæslan á Evrópumótinu almennt ver­ ið góð að mínu viti og áberandi mistök dómara eða línavarða sjaldséð.“ Aldrei betri en dómararnir Aðspurður um notkun á tækj­ um sem ekki virðast virka rétt nema í 60 til 70 prósent tilvika segir Gylfi að vissulega sé vafa­ samt að nota slíkan búnað. „Persónulega hefði ég ekki vilj­ að sjá slíkt nema búið væri að ganga úr skugga um að hann virkaði í hundrað prósent til­ vika. Að öðru leyti getur hann aldrei orðið betri en þeir dóm­ arar sem nú reyna að taka af allan vafa.“ Vafasamt Það er ómögulegt að geta sér til um hvernig landsleikur Englands og Úkraínu hefði endað hefði gott og gilt mark þeirra síðarnefndu fengið að standa. Markið, sem allir sáu í sjónvarpsútsendingu, fór alveg fram hjá fimmta dómara leiksins en Gylfi Þór Orrason segir ekki endilega víst að marklínutækni hefði breytt einhverju í þessu tilfelli. Inni eða úti? Marklínutæknin mun verða reynd í Englandi á næstu leiktíð en óljóst er hvort það næst að setja slíkan búnað alls staðar upp áður en vertíðin hefst í ágúst. Sport 25Mánudagur 2. júlí 2012 Samevrópskt Rætt er um það í alvöru að Evrópukeppnin 2020 fari fram í hinum og þessum löndum álfunnar. Sitt sýnist hverjum um það en það minnkar sannarlega allan kostnað við mótshald. Mistök að reka Red- knapp Aðstoðarþjálfari Harry Red­ knapp, sem óvænt var sagt upp störfum sem stjóri Tottenham eftir síðustu leik­ tíð í ensku úrvalsdeildinni, segir að með þá leikmenn sem Redknapp hafði áætlað að fá til liðsins fyrir næstu leiktíð yrði Tottenham mun sterkara og betra lið en það var í vetur. Stjórnin hafi gert mikil mistök að láta karl­ inn fjúka og hreint fáránlegt miðað við það afrek Red­ knapp að taka við liðinu í botnsæti með tvö stig eftir átta leiki. Til varnar Rooney Roy Hodgson, landsliðs­ þjálfari Englands, vísar gagnrýni fyrrum landsliðs­ þjálfara, Fabio Capello, þess efnis að Wayne Rooney hafi aldrei spilað vel fyrir enska landsliðið til föðurhúsanna. Capello sagði það hafa ver­ ið mistök að nota Roon­ ey í landsliðinu enda sýndi sagan það að hann leiki bara vel með Manchester United. Hodgson gaf lítið fyrir álit forvera síns og sagði Roon­ ey hafa spilað fumlaust og af öryggi þá leiki sem hann spilaði fyrir Englands hönd á EM að þessu sinni. Lloris til Arsenal? Franskir fjölmiðlar fullyrða að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafi hug á að kaupa markvörðinn Hugo Llor­ is frá Lyon en Lloris þessi er talinn besti markvörður Frakklands þó frammistaða hans á nýliðnu Evrópumóti fari ekki í neinar metabækur. Hvort það sé ástæða þess að stjórnarformaður Lyon hef­ ur nú lýst því yfir að mark­ vörðurinn sé falur fyrir rétt verð skal ósagt látið en Wen­ ger hefur vissulega hrifist af löndum sínum þegar hann kaupir í lið sitt. Stórleikur 8. ágúst Stórliðin Manchester United og Barcelóna munu etja kappi í æfingaleik í Gauta­ borg í Svíþjóð þann 8. ágúst næstkomandi en leikurinn er liður í undirbúningi þessara félaga fyrir komandi vertíð í boltanum. Leikurinn verður þannig fyrsta próf­ raun nýs þjálfara spænska liðsins gegn alvöru and­ stæðingi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.