Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 15
Datt niður og Dó eftir að Dómur féll Nánast allir flúnir n Pesqueria í Mexíkó er draugabær F yrir tæpum þremur árum bjuggu meira en 15 þúsund manns í bænum Pesqueria í Mexíkó, við landamæri Texas. Í dag búa þar hins vegar aðeins nokkr­ ar hræður sem hafa enn ekki flúið bæinn vegna þess að þeir hafa ekki efni á því. Þegar gengið er um bæ­ inn sést yfirgefin bensínstöð, þar eru engir bílar á ferli en hins vegar má sjá sundurskotnar byggingar og bíla sem hafa verið sprengdir í loft upp. Pesqueria er einn af meira en 10 bæjum í norðurhluta Mexíkó sem er orðinn að draugabæ vegna þess að flestir íbúar hafa flúið undan nán­ ast stanslausri skothríð. Pesqueria og aðrir bæir í Norðurhluta Mexíkó eru meðal vígvalla stríðsins á milli fíkniefnahringja í Mexíkó sem hefur kostað um 50 þúsund manns lífið á síðustu fimm árum. Samkvæmt nýj­ um tölum hafa um 140 þúsund íbú­ ar flúið heimili sín í landinu í kjöl­ far stríðsins, en það er sami fjöldi og flúði heimili sín í stríðinu í Líbíu á síðasta ári þegar Gaddafi einræðis­ herra var steypt af stóli. Einn af örfáum íbúum sem eftir eru í Pesqueria, roskinn, fátækleg­ ur maður, sagði við CNN sjónvarps­ stöðina að hann myndi gjarnan vilja flýja bæinn. „Ég bý við stanslausan ótta og það er ástæðan fyrir því að flestir eru fluttir héðan. Skotbardagar eru nánast daglegir á þessu svæði og ég myndi flýja ef ég hefði efni á því.“ Flestir íbúa bæjarins hafa flúið yfir landamærin til Bandaríkjanna þar sem þeir telja sig vera öruggari eða til borgarinnar Monterrey sem er í um 30 kílómetra fjarlægð. Erlent 15Mánudagur 2. júlí 2012 Ofbeldi Lögreglan er ekki einu sinni í bænum lengur. L ögreglan í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum telur að Michael Marin, dæmdur brennu vargur, hafi framið sjálfsvíg í réttarsal með því að innbyrða eitur, aðeins nokkrum sek­ úndum eftir að kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að hann væri sekur. Myndavélar voru á Marin nær allan tímann sem hann var inni í rétt­ arsalnum á fimmtudaginn í síðustu viku og af upptökum af dæma má sjá örvæntingarfull viðbrögð hans við úrskurðinum. Hann sást setja hend­ ur fyrir andlit sitt og að því er virðist troða einhverju upp í sig. Nokkrum mínútum síðar, á meðan hann var enn í réttarsalnum, féll hann í gólf­ ið og lést. Gleypti eitthvað Málið er allt hið furðulegasta. Mar­ in var sakfelldur fyrir að kveikja í lúx­ usvillu í sinni eigu eftir að hann réð ekki lengur við afborganir af henni. Hann fannst ringlaður fyrir utan al­ elda húsið eftir að hafa tekist að flýja út úr því. Hann var klæddur í kafara­ búning þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Atburðarásin í dómshúsinu í Pho enix var nokkurn veginn svona: Marin kom inn í dómsal klukk­ an 12:43 á fimmtudaginn. Það eina sem hann virtist hafa í fórum sínum var flaska með drykkjarvatni. Hann fékk sér sopa áður en hann settist við borð til þess að hlusta á niður­ stöðu kviðdómsins. Tveimur mín­ útum síðar tilkynnti kviðdómur­ inn að hann væri sekur um það sem hann var ákærður fyrir. Á einu augabragði, án þess að mikið bæri á, virðist sem hann hafi troðið ein­ hverju upp í sig og kyngt. Hann hall­ aði sér síðan aftur í sætinu á meðan réttarhaldinu lauk og tóku viðstadd­ ir ekki eftir neinu óvenjulegu. Um það bil fimm mínútum síðar sást hann aftur setja hendurnar fram­ an í sig og svo virðist sem hann hafi þá einnig gleypt eitthvað. Hann fékk sér sopa af vatnsflöskunni klukkan 12:52 og sagði nokkur orð við kon­ una sem sat við hlið hans. Átti yfir höfði sér 16 ára fangelsi Skyndilega fékk hann flog og það byrjaði að freyða úr munnvikun­ um. Hann féll í gólfið í flogakastinu og viðstaddir reyndu að hjálpa hon­ um. Hann var fluttur með hraði í sjúkrabíl en 10 mínútum eftir að hann féll í gólfið var hann úrskurð­ aður látinn. „Við erum eðlilega þeirrar skoð­ unar að þetta hafi verið sjálfsvíg,“ seg­ ir talsmaður lögreglunnar í borginni um málið. „Við getum þó ekki stað­ fest það fyrr en að krufningu lokinni. Lögreglumenn hafa rætt við skyld­ menni Marins að undanförnu til þess að reyna að komast að því hvort hann hafi gefið eitthvað í skyn um að hann hygðist fyrirfara sér ef hann yrði sak­ felldur. Ekki var búið að ákveða refs­ ingu brennuvargsins en hann átti yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi. „Við erum eðlilega þeirrar skoðunar að þetta hafi verið sjálfsvíg n Talinn hafa gleypt eitur nokkrum sekúndum eftir að hann var fundinn sekur Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Michael Marin Nokkrum sekúndum eftir að kviðdómur úrskurðaði hann sekan, sást hann kyngja einhverju. Hann féll í gólfið og lést nokkrum mínútum síðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.