Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 24
24 Sport 2. júlí 2012 Mánudagur Þögull um Persie Roberto Mancini, þjálfari Manchester City, hefur lengi haft augastað á Robin van Persie framherja Arsenal og ítrekaði áhuga sinn nokk­ uð reglulega í fjölmiðlum síðastliðinn vetur. Nú horf­ ir hins vegar svo við að karl er þögull um hvort hann hyggist gera tilboð í Holl­ endinginn sem sagður er vilja breyta til. Hefur Persie enn ekki skrifað undir fram­ lengingu á samningi sínum sem rennur út næsta sum­ ar. Sé hann ákveðinn í að fara og Arsenal vilji fá eitt­ hvað fyrir hann þarf að selja kappann eigi síðar en um jólin en helst sem fyrst. Tevez fer ekkert Mancini hefur hins vegar vísað til föðurhúsanna öll­ um sögusögnum þess efn­ is að hann vilji losna við þá Carlos Tevez og Edin Dzeko fyrir næstu leiktíð. Þvert á móti vill Ítalinn halda þeim báðum sem kemur líklega einhverjum á óvart sér­ staklega hvað varðar Tevez. Sá hefur ekki beint verið draumaleikmaður City hing­ að til og dramatík fylgt hon­ um utan vallar sem innan. En Mancini fyrirgefur margt og segir ekkert kalt milli þeirra tveggja lengur eins og var hér síðasta vetur þegar Tevez tók sér leyfi og sór að snúa aldrei aftur til að spila fyrir Mancini eða hans lið. Næsti gjörðu svo vel Franska knattspyrnusam­ bandið leyfði þjálfara Frakka í Evrópukeppninni, Laurent Blanc, að hætta með liðið þrátt fyrir að þeim hafi fund­ ist hann gera kraftaverk með ósamstilltan hóp leik­ manna. Sá sem helst kemur til greina, samkvæmt frönsk­ um fjölmiðlum, nú er annar fyrrum leikmaður lands­ liðsins, Didier Deschamps sem þykir hafa gert fína hluti sem þjálfari Marseille. Til Brasilíu Clarence Seedorf hinn 36 ára gamli Hollendingur sem kláraði samning sinn með AC Milan fyrr í vor er ekk­ ert á því að setjast í helgan stein. Hann spilar næstu tvö árin með Botafogo í Brasilíu. Þ að er æði oft þannig að hástemmdar yf­ irlýsingar vinna ekki knattspyrnuleiki og því fékk þjálfari Ítal­ íu, Cesare Prandelli, að kynn­ ast. Hann hélt því fram fyrir úrslitaleikinn gegn Spánverj­ um að sínir menn gætu vel truflað eitraðar og eldsnöggar sendingar þeirra spænsku og jafnvel haft sigur. Leikurinn endaði 4–0 fyrir Spán með mörkum David Silva, Jordi Alba, Fernando Torres og Juan Mata en aldrei áður hefur úr­ slitaleikur á EM unnist með jafn miklum mun. Ekki bólaði neitt á því að ítölsku leikmennirnir trufluðu þá spænsku ýkja mikið, held­ ur þvert á móti voru það Ítalir sem voru með bakið fast upp við vegginn nánast frá upp­ hafi til enda. Hvorki þjálfar­ inn né leikmenn liðsins höfðu nein svör við ofurspili Spán­ verja frekar en önnur lið á Evrópumótinu nú. Spánn hef­ ur nú sigrað á þremur síðustu stórmótum sem landsliðið hef­ ur tekið þátt í en þeir spænsku eru ríkjandi Heimsmeistarar. Leikurinn var engu að síð­ ur fjörugur og skemmtileg­ ur og því fínn endapunktur á frábæru Evrópumóti. Móti þar sem mörk voru skoruð í langflestum leikjum og nokk­ ur óvænt úrslit litu dagsins ljós. Enginn átti von á Ítölum í úrslitaleiknum og sömuleiðis bjuggust fáir við að þeir hefðu betur gegn Þjóðverjum í und­ anúrslitaleiknum. Slakir Enginn bjóst við miklu af enska landsliðinu nú fremur en síð­ ustu ár. Liðið komst lengra en flestir veðbankar gerðu ráð fyrir. Svekktur Mörgum þótti Andres Iniesta spila sérstaklega vel á þessu móti og setja sjálfan Xavi í skuggann. Hann klúðraði þó nokkrum góðum tækifær­ um fyrir Spán. Áhorfendur Sem fyrr voru það áhangendur hinna ýmsu landsliða sem settu mestan og bestan svip á Evrópumótið. Sorgmæddir Þjóðverjar Þeir þóttu jafnvel sigurstranglegri en Spánverjar af mörgum fyrir mótið. Stórstjarnan Cristiano Ron­ aldo brást ekki vel við tapinu gegn Spánverjum. Besta lið sögunnar n Spánverjar fyrsta liðið til að vinna þrjú stórmót í röð n Tóku Ítali í nefið Sigurvegarar Spánverjar eru besta landslið sögunnar. Þeir unnu Ítali 4–0.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.