Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Blaðsíða 4
Til hamingju, Ólafur n Jóhanna Sigurðardóttir óskar Ólafi alls hins besta J óhanna Sigurðardóttir for­ sætisráðherra óskaði Ólafi Ragnari Grímssyni til ham­ ingju með endurkjörið í for­ setakosningunum í viðtali við fréttastofu RÚV um helgina. „Fólk­ ið hefur talað og þetta er lýð­ ræðisleg niðurstaða sem hér er fengin og hana ber auðvitað að virða og ég vona auðvitað að for­ setanum takist að sameina þjóð­ ina á bak við sig og ég óska honum bara til hamingju og alls góðs með endurkjörið.“ Hún hafnar því að úrslitin sýni óánægju með ríkisstjórnina „Ég skil ekki af hverju menn eru að blanda þessu saman. Það var nátt­ úrulega dræm kosningaþátttaka og ég held að menn verði nú að­ eins að horfa til þess og líta til þess að þarna er mjög léleg kosninga­ þátttaka, sennilega sú næst versta og menn verða auðvitað að horfa til þess. Ég held það sé mjög lang­ sótt að vera að teygja sig yfir í ríkis­ stjórnina í þessu efni.“ Steingrímur J. Sigfússon efna­ hagsráðherra gerði dræma kosn­ ingaþátttöku einnig að umtalsefni sínu. Hann sagði það umhugsun­ arefni að mjög lágt hlutfall kosn­ ingabærra mann í landinu hefði kosið þann sem gegnir embættinu. „Hitt gef ég mér ekki að verði neitt vandamál að ríkisstjórnin og Al­ þingi annarsvegar og forsetinn á Bessastöðum hins vegar, geti starfað í samræmi við stjórnskip­ un landsins og gert það vandræða­ laust.“ 4 Fréttir 2. júlí 2012 Mánudagur Kíktu á heimasíðu okkar og skoðaðu matseðilinn ! Einn vinsælasti Kebab staðurinn á höfuðborgarsvæðinu! www.alamir.is Hamraborg 14 a 200 Kópavogi Sími 5554885 Virkir dagar:11–21 Helgar:13–21 A rion banki hefur afskrif­ að rúmlega milljarð króna vegna gjaldþrots eignar­ halds félagsins AB fjárfest­ ingar sem var í eigu Spari­ sjóðs Mýrarsýslu og Kaupfélags Borg firð inga. Tilkynnt er um skipta­ lok félagsins í Lögbirtingablaðinu. Ekkert fékkst upp í tæplega 1.080 milljóna króna kröfur Arion banka. Félagið fjárfesti í hlutabréfum í fjárfestingarbankanum Saga Capi­ tal fyrir rúmlega 762 milljónir króna árið 2008. Sparisjóður Mýrarsýslu, sem var með höfuðstöðvar sínar í Borgarnesi, veitti félaginu lán fyr­ ir hlutabréfunum. Í ársreikningi AB fjárfestinga fyrir árið 2008 voru hlutabréfin bókfærð á 500 millj­ ónir króna. Eftir bankahrunið um haustið 2008, þegar Arion banki yfir­ tók Sparisjóð Mýrarsýslu, var spari­ sjóðurinn þá þegar búinn að taka AB fjárfestingar yfir vegna skulda­ stöðu félagsins og hrunsins á verð­ mætum eigna þess. Saga Capital var þá kominn að fótum fram þó hann hafi formlega lifað fram á þetta ár. Tóm skúffa Heimildarmaður DV um málefni AB fjárfestingar segir að lítið sé um fé­ lagið að segja. Að félagið hafi fjárfest í hlutabréfum í Saga Capital sem hafi hrunið í verði eftir bankahrunið 2008 og að félagið hafi verið dauðadæmt eftir það. „Þetta var bara tóm skúffa.“ Því var í reynd formsatriði að setja fé­ lagið í þrot og ljúka skiptum á því. Guðsteinn Einarsson, kaupfélags­ stjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, var framkvæmdastjóri félagsins en í árslok 2007 var félagið alfarið í eigu Kaupfélags Borgfirðinga. Sparisjóður Mýrarsýslu kom því inn í félagið árið 2008 og fjármagnaði viðskipti þess í kjölfarið. Á vakt sparisjóðsins Guðsteinn segir að Kaupfélag Borg­ firðinga hafi verið farið út úr fé­ laginu þegar hlutabréfin í Saga Capital voru keypt árið 2008. Guð­ steinn kom af fjöllum þegar blaða­ maður DV sagði honum að AB fjár­ festing hefði keypt hlutabréf í Saga Capital. „Það var ekki á mínum veg­ um, það get ég sagt þér. Ég kannast ekkert við að hafa keypt í Saga Capi­ tal fyrir 760 milljónir. Það hefur ver­ ið sparisjóðurinn sem gerði það, án þess að ég viti það. Þannig að þetta getur þú ekki rætt við mig,“ segir Guðsteinn. Kaupfélagsstjórinn segir að upp hafi komið ágreiningur um fram­ tíðarstefnu félagsins, fjárfestingar þess og fleira í þeim dúr, og þess vegna hafi kaupfélagið á endanum selt sparisjóðnum hlut sinn í fjár­ festingarfélaginu. „Það endaði með því að þeir keyptu hlutinn í félaginu af okkur á eina krónu,“ segir Guð­ steinn. Guðsteinn var þó stjórnarfor­ maður AB fjárfestingar fram á árið 2009 en hann segir að hann hefði átt að fara út úr félaginu löngu fyrir þann tíma. „Ég hefði átt að vera far­ inn út úr félaginu löngu áður en það dróst að ganga frá því.“ Gísli Kjartansson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrar­ sýslu, segist ekki muna nákvæm­ lega af hverju sjóðurinn fjárfesti í hlutabréfunum í Saga Capital en bætir þó við að líklega hafi þau þótt góð fjárfesting á þeim tíma. „Lík­ lega töldum við þetta álitlegan fjár­ festingarkost.“ „Líklega töldum við þetta álitlegan fjárfestingarkost Afskrifa milljarð út af braski sparisjóðsins n Sparisjóðurinn keypti í Saga Capital fyrir 762 milljónir Sparisjóðsstjórinn Gísli Kjartansson var sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Mýrarsýslu. Sparisjóðurinn tók ákvörðun um að kaupa hlutabréf í Saga Capital fyrir 762 milljónir króna árið 2008. Bréfin voru fjármögnuð með láni frá sjóðnum. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Forsætisráðherra Óskaði Ólafi Ragnari til hamingju með endurkjörið. Laundromat með besta morgunmatinn Morgunmaturinn á íslenska kaffihúsinu Laundromat Café í Frederiksberg í Danmörku var á dögunum valinn sá besti í Kaupmannahöfn. Það voru lesendur Alt om København, eða Allt um Kaupmannahöfn, sem völdu staðinn. Í umsögn blaðsins um Laundromat segir að mikið úrval sé á matseðlin­ um, að börn séu sérstaklega velkomin. Arðsemi bæjarhátíða umdeilanleg Ekki er sjálfgefið að bæjarhátíðir séu arðbærar. Þetta segir Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rann­ sóknarmiðstöðvar ferðamála, í samtali við Akureyri vikublað. „Mín kenning er sú að hátíðir sem þessar þegar allt er talið, séu í raun mest í boði heimamanna sjálfra. Það er að með ómældri sjálfboða­ vinnu og styrkjum sveitarfélagsins sjálfs í allskyns innviði og annað sem nauðsynlegt er svona hátíð, sé arðsemi þeirra ekki uppá marga fiska,“ segir Edward. Hann segir að það sé gegnumgangandi röksemd fyrir bæjarhátíðum að þær muni skapa tekjur fyrir samfélagið en hann segir að það sé ekki byggt á rannsóknum þar sem erfitt sé að rannsaka forsendur slíkra hátíða. Júní einn heit- asti mánuður áratugarins Nýliðinn júnímánuður er einn af fjórtán hlýjustu mánuðum síðan árið 1984. Aðeins fjórir af þessum fjórtán mánuðum hafa verið á síð­ asta áratug, samkvæmt Páli Berg­ þórssyni, fyrrverandi Veðurstofu­ stjóra. Greint var frá þessu á vef Ríkisútvarpsins. Þar kom fram að meðalhitastigið í júní hafi verið 9,7 gráður. Það þýðir að meðalhiti hafi hækkað um heila gráðu mið­ að við meðalhita í Reykjavík síð­ astliðin sextíu og fimm ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.