Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 8
8 Fréttir 2. júlí 2012 Mánudagur
J
urtahúðflúr voru mjög vinsæl
fyrir um 10 til 12 árum og þóttu
alveg sérstaklega sniðug af því
að fólk gat fengið sér húðflúr
án þess að binda ákvörðun um
útlitið um alla framtíð.
Þessi húðflúr áttu að hverfa á 3–5
árum. Fólk flykktist í að fá sér alls-
konar myndir og tákn, í góðri trú um
að þessi yrði raunin. Staðreyndin er
aftur á móti sú, að mörg dæmi eru
um það að þessi húðflúr dofni hvorki
né hverfi með tímanum.
Ekkert dofnað
Haukur Árni Hjartarson er einn
þeirra sem hefur fengið sér jurta-
húðflúr. „Mig minnir að ég hafi
fengið mér stærra flúrið árið 1999 á
snyrtistofu í Seljahverfi, sem hætti
svo starfsemi hálfu ári síðar, en ég
fékk litla flúrið á fingurinn árið 2002
á Heilsudrekanum. Mér var sagt að
þetta myndi byrja að eyðast eftir 3–5
ár en ætti að vera farið eftir 7 ár.“
DV hafði samband við Heilsu-
drekann og sagði starfskona þar að
þau væru löngu hætt að húðflúra
svona. Konan sem gerði þessi húð-
flúr á stofunni hjá þeim hefði hætt
fyrir mörgum árum og væri flutt til
útlanda. Sagðist hún ennfremur vita
til þess að mörg húðflúranna hefðu
vissulega dofnað með tímanum.
Kona með Yin Yang flúr, sér eftir
því að hafa fengið sér húðflúrið, það
sé stórt og áberandi. Flúrið fékk hún
þegar hún var um tvítugt. Hún hef-
ur verið með það í 11 ár og hefur það
ekkert dofnað.
Varar viðskiptavinina við
Rósa Björk Hauksdóttir, kennari í
Nails&Art, hefur verið að framkvæma
jurtahúðflúr síðan 2001, „Þau húð-
flúr sem ég hef séð sett á líkamann
hafa ekki verið að fara af, en þau sem
eru sett á andlit, eins og í augabrúnir
og varir eru ýmist að dofna og fara en
sum halda sér þó.“
Rósa segir að það sé alveg greini-
legt að fólk viti ekki alltaf hvað það er
að kaupa því hún hafi fengið marga
til sín sem vildu láta fjarlægja svona
jurtahúðflúr með laser. „Það verður
að vera efni sem heitir Iron Oxide til
staðar í litunum sem notaðir eru til
þess að flúrið hverfi með tímanum.
Annars er laser eina leiðin til að taka
húðflúr af líkamanum.“
„Ég hef alltaf varað fólk við, sem
kemur til mín í húðflúr, að það sé
ekki öruggt að húðflúr fari alveg af.
Ég hef aldrei lent í neinum ágrein-
ingi vegna svona húðflúra því ég hef
sagt fólki að ég geti ekki ábyrgst að
þau muni fara þó svo að þau eigi að
gera það.“
Föst á til
frambúðar
n Jurtahúðflúr auglýst tímabundin n Áttu að hverfa á 3–5 árum en gera það ekki
Kidda Svarfdal
blaðamaður skrifar kidda@dv.is
Er með 2 jurtahúðflúr Hefur fengið sér 2 jurtahúðflúr og þau hafa ekki farið af. Haukur Árni „Mér var sagt að þetta myndi byrja að eyðast eftir 3–5 ár og ætti að vera horfið eftir 7 ár.“
11 ára gamalt Yin og Yang Þessi kona fékk sér þetta flúr á
bakið og segist sjá eftir því.
9 ára gamalt húðflúr Konan fékk sér þetta húðflúr árið
2003 og það átti að hverfa á 4–6 árum en það hefur ekki
einu sinni dofnað.
4 ára gamalt jurtahúðflúr Þetta húðflúr er ekkert
farið að dofna.
Óviðræðuhæfur
sökum ölvunar
Lögreglunni var á sunnudags-
morgun tilkynnt um mjög svo
rásandi aksturslag bifreiðar í aust-
urbæ Reykjavíkur. Skömmu síð-
ar fann lögreglan bifreiðina og
ræddi við ökumanninn sem ekki
reyndist vera með bílpróf. Í til-
kynningu frá lögreglunni vegna
málsins kemur fram að maður-
inn hafi sýnilega verið mjög ölv-
aður og óviðræðuhæfur af þeim
sökum. Hann var þá færður á lög-
reglustöðina við Hverfisgötu en
hann var einnig grunaður um að
vera undir áhrifum fíkniefna. Að
lokinni sýnatöku var hann settur
í fangaklefa þar sem honum var
leyft að sofa úr sér mestu áfengis-
vímuna.
Vill endurskoða
kosningakerfið
Steingrímur J. Sigfússon efnahags-
og viðskiptaráðherra telur það
umhugsunarefni hversu dræm
kjörsókn var í forsetakosningun-
um á laugardag. Um 70 prósenta
kjörsókn var á landinu öllu. „Það
sem mér finnst kannski mest um-
hugsunarefni er lítil kosninga-
þátttaka og sú staðreynd að það er
auðvitað mikill minnihluti kosn-
ingabærra manna á bak við þann
sem gegnir þessu embætti,“ sagði
Steingrímur í samtali við Stöð 2 á
sunnudag. Hann sagði að endur-
skoða þyrfti kosningalögin og gera
ráð fyrir tveggja umferða kosn-
ingum þegar fleiri en tveir væru í
framboði til embættis forseta.