Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Side 10
M
ér fannst Þórudagurinn
allt í lagi og ágætis hug-
mynd en það hefði þurft
að vera annað nafn á
honum. Þetta snerist upp
í svolítið grín á milli fólks,“ segir Jón
Hákon Magnússon, stofnandi KOM
almannatengsla um kosningabar-
áttu Þóru. „Hún er þekkt sjónvarps-
kona en hafði aldrei tjáð sig um
önnur mál. Maður fékk það stund-
um á tilfinninguna að það væri erfitt
fyrir hana að tjá sig nema að hafa
skrifað það fyrirfram,“ segir Jón Há-
kon. Hann segir það hafa háð henni
í kosningarbaráttunni auk þess
sem hún hafi verið sein í gang og
ekki nógu vel undirbúin. Þóra komi
vel fyrir en það hafi vantað þunga-
vigtina hjá henni. „Hún valdi ekki
nógu vel þau málefni sem þurfti að
ræða og lét halda sér alltof lengi í
málum eins og stjórnarskránni. Það
var ekki fyrr en í lokin sem hún fór
að vinna á.“ Hann gagnrýnir einnig
að frambjóðendur hafi lítið talað
um það hvernig þeir sæju fyrir sér
framtíðina og sjálf sig sem samein-
ingartákn. „Það vantaði hjá þeim
öllum.“
Hann bendir auk þess á að Þóra
hafi allt of auðveldlega látið æsa sig
upp í vörn. Hún hafi þurft að verja
hjónabandið, eiginmann sinn og
þann pening sem hún hafði safnað.
„Hún lét alltaf halda sér í vörninni
og passaði sig ekki á því að hrista
þetta af sér, eins og stjórnmálamenn
verða að geta gert.“
Aðspurður um hvort
ímyndarherferðin hafi eyðilagt fyr-
ir Þóru undir lokin segist hann telja
svo vera. „Einhvern veginn náði
hún ekki þessari beintengingu við
fólk. Það var kannski ein af ástæð-
unum, hún var of prógrammeruð.“
Auk þess hafi hún einfaldlega ekki
ráðið við Ólaf. „Hann kom seint inn
en þegar hann kom var hann eins og
jarðýta og stoppaði ekkert eftir það.
Það var það sem var svo erfitt fyrir
Þóra að verjast. Hann lék sér eig-
inlega að þessu. Það er ekkert auð-
velt að sigra hann. Hann er óend-
anlega klókur með áratugareynslu í
pólitískum klókindum. Það er ekk-
ert auðvelt að hjóla í hann og síst
af öllu fyrir fólk með enga reynslu í
pólitík,“ segir hann og bætir við að
Þóra sé vel menntuð og klár kona.
Hún hafi hins vegar átt að bíða með
framboð um að minnsta kosti eitt
kjörtímabil og sækja sér meiri lífs-
reynslu.
Notaði sín tæki og klæki
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
í stjórnmála- og aðferðafræði við
Háskólann á Akureyri, segist ekki
líta svo á að eitthvað hafi farið úr-
skeiðis í kosningabaráttu Þóru
Arnórsdóttur. „Árangur hennar er
góður en hún fékk einn þriðja at-
kvæða gegn sitjandi forseta. Ég tel
þetta vera ágætis árangur,“ segir
hann og bendir á að barátta Ólafs
hafi í raun ekki verið hafin þegar
Þóra mældist með meira fylgi.
Hann telur að það fylgi sem Þóra
mældist með í upphafi hafi ver-
ið meira yfirlýsing frá fólki um að
því litist vel á hana. „Ólafur byrjaði
svo sína baráttu um miðjan maí og
notaði sín tæki og klæki. Hann vís-
aði mjög ákveðið í utanríkismál-
in og lýsti því hreint yfir að hann
sé andvígur ESB. Þar náði hann
tangarhaldi á þessari baráttu og
það snerist allt. Þegar hann fór að
skilgreina kosningabaráttuna inn
á svið utanríkismála höfðaði hann
um leið til hinnar sterku þjóðern-
ishyggju á Íslandi um þessar undir.
Afstaðan til ESB og Icesave eiga sér
rætur í þessar þjóðernishyggju og
það veit Ólafur manna best. Hann
notaði fræðin og var klókur.“
Hann vill ekki nota svo stórt orð
sem lýðræðisbylting er um sigur
Ólafs og bendir á að það sé búið að
vera aukin umræða og þrýsting-
ur um að fólk hafi meira að segja
um ákvarðanir á milli kosninga
í löndunum í kringum okkur.
„Þannig að þetta er raunverulega
kall tímans og almenn þróun. Það
var engin bylting sem hann gerði
persónulega, ég hafna því algjör-
lega.“
Aðspurður hvort Ólafur muni
lenda í erfiðri aðstöðu ef dóm-
ur EFTA um Icesave falli Íslandi í
óhag, segir Grétar Þór að ábyrgðin
liggi í raun hjá þjóðinni. „Þótt Ólaf-
ur hafi nýtt sér málskotsréttinn þá
var það þjóðin sem hafnaði samn-
ingnum. Hann mun verða fljót-
ur að hrista það af sér. Hann mun
þó væntanlega lenda í einhverj-
um vandræðum og neikvæðu um-
Það sem klikkaði hjá Þóru
Spurningin
„Nei, ég hefði viljað sjá annan á
Bessastaði“
Hjördís Alda Hreiðarsdóttir,
26 ára nemi
Ertu sátt/ur við
úrslit forseta-
kosninganna?
„Nei, ég er ekki sátt“
Auður Hreiðarsdóttir,
24 ára og vinnur á skipulags- og byggingasviði
Reykjavíkur
„Já, ég er sáttur. Ólafur er góður“
Sindri Már Jónasson,
18 ára málari
„Já, er ég sátt með Ólaf“
Erna Rán Jónasdóttir,
22 ára nemi
„Já, ég held það bara“
Helga Bjarney Bjarnadóttir,
17 ára þjónn
n Þórudagurinn snérist upp í grín n Var alltaf í vörninni n Réð ekki við Ólaf Ragnar n Fékk sama fylgi og Vigdís„Hún hélt sig alltaf
í vörninni og pass-
aði sig ekki á því að hrista
þetta af sér, eins og
stjórnmálamenn verða
að geta gert.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
13. maí Ólafur Ragnar mætir í
Sprengisand, segir að hann gæti hugsað
sér að setja kvótafrumvarpið í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
14. maí Þóra hafnar tíu ára gamalli frétt
um að hafa starfað fyrir Samfylkinguna.
15. maí Ólafur segir að Jóhanna Sig-
urðardóttir hafi síðasta árið leitað eftir
frambjóðanda gegn honum. Niðurstaðan
hafi verið Þóra.
18. maí Þóra eignast dóttur.
30. maí Þóra skorar á Stöð 2 að endur-
skoða ákvörðunina um að bjóða einungis
sér og Ólafi í kappræður.
30. maí Ólafur lýsir yfir andstöðu sinni við
aðild Íslands að ESB.
2. júní Þóra afþakkar boð Stöðvar 2.
2. júní Þóra segist mæta þar sem hinum
var einnig boðið.
3. júní Kappræður á Stöð 2. Þrír frambjóð-
endur ganga út.
Kosningabarátta Ólafs Ragnars og Þóru Arnórsdóttur
10 Fréttir 2. júlí 2012 Mánudagur