Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 11
tali í tengslum við það. Auðvitað
mun því verða smurt á hann en ég
vil benda á að þetta var ákvörðun
þjóðarinnar.“
Ólafur Ragnar í erfiðri stöðu
Hallgrímur Helgason, rithöfund-
ur og stuðningsmaður Þóru, seg-
ir að Þóra hafi náð mesta fylgi sem
hún hafi getað náð. „Það er þetta
Vigdísarfylgi og nákvæmlega sama
og Vigdís fékk. Ég held að kona
sem kemur úr þessu samfélagi eigi
kannski bara ekkert meira inni hjá
þjóðinni,“ segir hann og bætir við
að honum finnist árangur Þóru
töluvert afrek miðað við að hún
hafi farið gegn sitjandi forseta.
Hann er ekki sammála Ólafi
um að kosningarnar hafi verið lýð-
ræðisbylting. „Ég held að þetta
hafi verið meira það að fólk er hrif-
ið af Ólafi og hann stendur fyrir
málskotsréttinum. Þetta hefur ver-
ið sambland af því og svo blandað-
ist inn í þetta óánægja með ríkis-
stjórnina. Þetta var engin sérstök
lýðræðisbylting heldur klassískar
kosningar. Það má frekar segja að
hverjar kosningar séu lýðræðis-
bylting.“ Hann telur að Ólafur sé
nú í erfiðri aðstöðu þar sem hann
hafi ekki komið fallega fram í kosn-
ingabaráttunni. „Hann var ekki
mjög forsetalegur og talaði niður
til stuðningsmanna annarra fram-
bjóðenda. Maður hélt að forseti
gerði það ekki, að tala illa um aðra
Íslendinga. Hann á því erfitt verk-
efni framundan að verða aftur for-
seti Íslands. Annars óska ég hon-
um til hamingju með sigurinn,“
segir Hallgrímur.
Það sem klikkaði hjá Þóru
Fréttir 11Mánudagur 2. júlí 2012
60
50
40
30
Ólafur stakk Þóru af
n Þóra Arnórsdóttir mældist með mesta fylgið í upphafi
kosningabaráttunnar. Seinni hluta maí, þegar forsetinn hóf sína
kosningabaráttu stakk hann Þóru af. Hann bætti síðan jafnt og
þétt við sig fylgi á meðan dró úr fylgi Þóru.
Apríl Fyrri hluti maí Seinni hluti maí Fyrri hluti júní Úrslit 30. júní
Þaulsætnir
þjóðarleið-
togar
Enginn lýðræðislega kjörinn þjóð-
höfðingi á Vesturlöndum hefur setið á
valdastóli í 20 ár. Í lok þessa kjörtímabils
kemst Ólafur Ragnar Grímsson í hóp
þjóðarleiðtoga sem hafa setið í 20 ár
eða lengur. Hér má sjá listann í heild
sinni:
1 Paul Biya Kamerún 36 ár
2 Mohamed Abdelaziz Vestur-
Sahara 35 ár
3 Teodoro Obiang Nguema Mba-
sogo Miðbaugs-Gínea 32 ár
4 José Eduardo dos Santos
Angóla 32 ár
5 Robert Mugabe Zimbabve 32 ár
6 Ali Khamenei Íran 30 ár
7 Hun Sen Kambódía 27 ár
8 Yoweri Museveni Úganda
26 ár
9 Blaise Compa-oré Búrkína Fasó
24 ár
10 Nursultan Naz-arbayev Kasakstan
22 ár
11 Islam Karimov Úsbekistan 22 ár
12 Omar al-Bashir Súdan 22 ár
13 Idriss Déby Tsjad 21 ár
14 Meles Zenawi Eþíópía 21 ár
15 Ólafur Ragnar Grímsson Ísland
20 ár
n Þórudagurinn snérist upp í grín n Var alltaf í vörninni n Réð ekki við Ólaf Ragnar n Fékk sama fylgi og Vigdís
Hér klikkaði Þóra:
n 1. Átti erfitt með að tjá sig óundirbúin
n 2. Var sein í gang í viðtölum og ekki
nógu vel undirbúin
n 3. Valdi ekki vel þau málefni sem
þurfti að ræða um
n 4. Var mikið í vörn
n 5. Hefði þurft að geta hrist ýmislegt
af sér eins og stjórnmálamenn þurfa
að geta
n 6. Náði ekki beintengingu við fólk
n 7. Var of prógrammeruð
n 8. Vantar meiri lífsreynslu
n 9. Hefði átt að bíða með framboð um
eitt kjörtímabil
n 10. Vildi eiga síðasta orðið í umræðu-
þætti á RÚV og það þurfti að stoppa
hana
n 11. Nokkur mál sem komu upp sem
hún þurfti að verja,svo sem fortíð
eiginmanns hennar og starf hennar hjá
Samfylkingunni
Kosningabarátta Ólafs Ragnars og Þóru Arnórsdóttur
6. júní Þóra útmáluð sem Barbí og á
Facebook gengu myndir af Þóru sem
Barbí-dúkku, pakkningum með heitinu
Bessastaða Barbí.
6. júní Þóra í Morgunútvarpinu á Rás 2 og
segir að það sé ekki í verkahring forsetans
að taka skýra pólitíska afstöðu.
7. júní Grein á mbl.is Ólafur Ragnar Gríms-
son gagnrýndi hugmyndir Þóru Arnórs-
dóttur um að beita málskotsréttinum
þegar þingið afgreiddi stór og umdeild mál
með minnsta mögulega þingmeirihluta.
Með þessu væri verið að gera forsetann
mun pólitískari en hann hafi verið.
7. júní Forsetaframbjóðendur voru í fyrsta
skipti allir saman í umræðuþætti en hann
var á RÚV. Þóra vildi eiga lokaorðið og var
stoppuð af.
10. júní Þóra gestur í Sprengisandi – Sagði
að forsetanum mætti ekki þykja vænt um
völd.
15. júní Alþjóðlegur veðbanki veðjar á ÓRG.
24. júní Þórudagurinn haldinn.
24. júní Þóra Arnórsdóttir upplýsti í kapp-
ræðum forsetaframbjóðenda á Stöð 2 og
Vísi í Hörpu að hún hefði eytt 1.740 þúsund
krónum í auglýsingar sem hafa birst meðal
annars í strætóskýlum víða á höfuðborgar-
svæðinu.
24. júní Stuðningsmenn Ara Trausta halda
því fram að stuðningsmenn Þóru hafi hvatt
hann til að hætta við framboð og lýsi yfir
stuðningi við Þóru.
25. júní Þóra upplýsir að hún hafi safnað
hátt í 12 milljónum króna. Ólafur segist
ætla að opna bókhald sitt eftir kosningar.
25. júní Þóra Arnórsdóttir er ekki kristinn-
ar trúar. Hún er ekki í þjóðkirkjunni og
stendur utan trúfélaga. Þetta kom fram í
umræðuþættinum Harmageddon á X-inu
þennan dag.
28. júní Þóra ritar grein í Fréttablaðið þar
sem hún skýtur föstum skotum að Ólafi
Ragnari Grímssyni sitjandi forseta í pistlin-
um og segir honum meðal annars tamt að
tala um sjálfan sig í þriðju persónu.
Þóra Arnórsdóttir Fékk fljúgandi start
í skoðanakönnunum en síðan hrundi fylgi
hennar eftir því sem nær dró.