Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Síða 17
Sjúkdómur sem
gengur í erfðir.
Við vildum greiða
10 prósenta arð
Ég hafði heyrt um að
það væri til
Róbert Marshall um sjúkdóm föður síns, alkóhólisma, í helgarviðtali við DV. – DV
Barátta transfólks
Spurningin
„Ég er mjög sátt við þetta og held
að hann geti ekki orðið of mikill“
Hulda Birna Vignisdóttir
21 árs nemi
„Mér finnst þetta fínt en mundi
vilja sjá þá meira í borginni“
Sigríður Baldvinsdóttir
52 ára lagerstarfsmaður
„Ég mundi ekki vilja hafa þá fleiri,
þetta er fínt eins og þetta er“
Anna, 48 ára atvinnuleitandi og
Tómas, 9 ára
„Já, það hljóta að vera einhver
efri mörk en það gæti orðið erfitt
að stoppa þetta“
Hulda Sigríður Ólafsdóttir
30 ára verkfræðingur
„Nei, þetta gæti ekki orðið of
mikið og við ættum að reyna að
fá fleiri hingað“
Sverrir Júlíusson
37 ára vefstjóri
Getur fjöldi ferða-
manna á Íslandi
orðið of mikill?
1 Flóttaplan Katie Holmes Leikkonan ákvað að skilja við Tom
Cruise
2 Danski faðirinn fer með dætur sínar frá landinu í dag
Börnin flutt af heimili sínu með
lögregluvaldi
3 „ Ég er orðin þreytt á þessu“ Líf útigangsmanna í Reykjavík er ekki
auðvelt
4 16 ára með hnífa og hnúajárn í herberginu sínu
Glímir við ýmiskonar raskanir en fær
ekki úrræði við hæfi
5 Hallgrímur: Þóra fékk há-marksfylgi kvennaframboðs
Telur að við þessar kringumstæður fái
kona ekki meira fylgi en Þóra fékk
6 Guðmundur Felix: „Auðvitað búið að taka á“
Bíður enn eftir nýjum höndum
7 „Þau virtust svo hamingju-söm þetta kvöld“
Skilnaður Tom Cruise og Katie Holmes
kom öllum í opna skjöldu
Mest lesið á DV.is
Lýðræðisbyltingin
E
ftir kosningasigurinn blasti ráð
gátan við. „Lýðræðisbylting,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson
forseti um forsetatíð sína í tilefni
af endurkjörinu.
Með kosningasigri sínum á laugar
daginn stefnir Ólafur Ragnar Gríms
son að lengstu valdasetu lýðræðislega
kjörins þjóðhöfðingja á Vesturlönd
um. Kambódía, Úganda, Búrkína Fasó,
Úsbekistan, Ísland. Allt lönd með
þjóðar leiðtoga sem hafa setið lengst
í heiminum. Aðeins þriðja heims ríki
eru með þjóðarleiðtoga sem hafa setið
í 20 ár. En lýðræðisbylting okkar felst í
því að eiga lýðræðislegasta þaulsetna
þjóðarleiðtoga heimsins.
Ef nýja stjórnarskráin verður tekin
í gagnið mun forsetinn reyndar hafa
lítið lýðræðishlutverk. Þetta er lík
lega ein lýðræðislegasta stjórnarskrá í
heimi – samin af fulltrúum þjóðarinn
ar sem voru kjörnir beint af almenn
ingi. Samkvæmt henni geta 10 prósent
landsmanna knúið fram þjóðarat
kvæðagreiðslu. En sjálfstæðismenn og
framsóknarmenn vilja alls ekki stjórn
arskrána. Þegar þeir komast til valda
fer stjórnarskráin líklega bara í papp
írstætarann.
Ungir sjálfstæðismenn fögnuðu
í Val höll þegar Ólafur Ragnar var
endur kjörinn, enda hefur hann valdið
vinstri stjórninni miklu tjóni. Það er
spurning hvar verður fagnað, þegar
gömlu valdhafarnir verða aftur teknir
við á næsta ári og Ólafur Ragnar held
ur áfram að dreifa valdinu til fólksins
frá ríkisstjórninni. Líklega ekki í Val
höll.
Í
Evrópu vilja menn gjarnan vita
hvernig samkynhneigðir fóru eigin
lega að í réttindabaráttu sinni á Ís
landi. Allt of lítið er til af skráðum
heimildum um það. Hvað varðar sögu
réttindabaráttu transfólks, langar mig
að bæta úr því með því að líta yfir far
inn veg og lýsa því sem blasir við. Að
viðbættum nokkrum sjálfsævisöguleg
um brotum sem ekki má þagga niður í
hjákátlegu lítillæti, því ég veit að næstu
kynslóðir munu vilja vita hvað við gerð
um og af hverju.
Meðan ég bjó í Danmörku hafði ég
tekið þátt í baráttu fyrir mannréttind
um transfólks og fólks sem ekki var
af dönskum uppruna, aðallega með
því að kæra til Umboðsmanns danska
þingsins. Þegar ég flutti til Íslands sum
arið 2005, sá ég tækifæri til að nota
sömu aðferðir.
Dræmar undirtektir
Hófst ég handa við að undirbúa kvörtun
vegna Björns Bjarnasonar, þáverandi
dómsmálaráðherra. Oft eftir langan
vinnudag sat ég langar nætur og skrif
aði og skipulagði. Eyðublöð til að sækja
um nafnbreytingu voru samin sérstak
lega fyrir transfólk sem ætlaði í aðgerð
til leiðréttingar á kyni, með viðeigandi
lagalegri röksemdafærslu. Samin voru
eyðublöð til að fylla út fyrir fjölskyldu,
vini og vinnufélaga til að skjalfesta að
umsækjandinn hefði lifað lengi í nýju
kynhlutverki. Þessi eyðublöð áttu að
fylgja umsókninni. Undirtektir trans
fólks voru ákaflega dræmar. Fólk var
hrætt við að umsókn um nýtt nafn
myndi hafa neikvæð áhrif á möguleika
þeirra til að fá aðgerð til leiðréttingar á
kyni, en að lokum lét ein vinkona mín
til leiðast að sækja um eftir, miklar for
tölur af minni hálfu.
Réttindastaða transfólks
Sigurlaug Fjóla Sveinsdóttir hafði sam
band við mig fyrir hönd hóps kvenna
(misserishópur W) í viðskiptalögfræði
á 2. ári við Háskólann á Bifröst. Þessi
hópur ákvað, haustið 2006, að skrifa um
réttarstöðu Íslendinga sem breyta vildu
kyni sínu, eftir að hafa séð sjónvarps
útsendingu þar sem ég lýsti þessari bar
áttu í stuttu máli. Ein vinkona mín hafði
þá lifað í nýju kynhlutverki í um áratug
en ekki fengið nafn til samræmis við
það né heldur aðgerð til leiðréttingar
á kyni. Hópurinn ræddi við okkur og
skrifaði síðan skýrslu um málið, þar
sem farið var gaumgæfilega yfir mann
réttindahlið málsins.
Í umsókninni var ítrekað bent á að
það væri íþyngjandi fyrir umsækjand
ann að þurfa að lifa í mörg ár sem kona
án möguleika á að fá viðurkennt kven
mannsnafn og vísað var í vissar greinar
stjórnarskrárinnar ásamt jafnræðis
reglu og einnig meðalhófsreglu. Nú vill
þannig til að stjórnarskráin hefur for
gang fram yfir önnur lög. Þetta virtist
ráðherra ekki vita. Þegar Björn Bjarna
son hundsaði þessar röksemdir með
vísun í nafnalög skrifaði ég kvörtun til
Umboðsmanns Alþingis vegna mann
réttindabrota Björns. Allur undirbún
ingur málsins hafði einmitt miðað að
þessu. Í kvörtuninni voru valdar rök
semdir í skýrslu viðskiptalögfræði
nemanna notaðar svo til beint. Einnig í
trúnaðarbréfi um málið sem ég afhenti
Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Röksemd
irnar voru ákaflega vel unnar af þess
um nemendum. Einnig skrifaði ég öll
skrifleg svör í þessu máli.
Afgerandi málamiðlun
Á sama tíma vann Mannréttindaskrif
stofa Íslands (MRSÍ) að skýrslu um rétt
arstöðu transfólks. Hafði skrifstofan
verið tekin af fjárlögum, en þáði framlög
frá dómsmálaráðherra á meðan mál
ið var í gangi hjá Umboðsmanni. Björn
hefði því hugsanlega getað lagt fjár
hagslegan þrýsting á MRSÍ til að kom
ast að hentugri niðurstöðu eða dregið
úr fjárframlögum til að refsa MRSÍ. Það
voru þessi hugsanlegu ítök dómsmála
ráðherra sem ollu því að ég vildi ekki
nýta mér aðstoð MRSÍ á neinn hátt.
Málinu lauk með ábendingum Um
boðsmanns Alþingis sem síðar urðu
grunnurinn að einu málefni í sam
starfssamningi ríkisstjórnarinnar. Þá
verandi Umboðsmaður Alþingis, Ró
bert Spanó, og Ragna Árnadóttir, þá
dómsmálaráðherra, leystu málið í sam
einingu þannig að nafnbreyting geti átt
sér stað og kynbreyting í þjóðskrá að
lokinni meðferð með kynhormónum í
eitt ár. Þetta var afgerandi málamiðlun
sem fól í sér töluverðar endurbætur.
Athyglisvert er að þarna voru engin
félagasamtök að verki, heldur einstak
lingar sem funduðu saman um sameig
inleg markmið.
Ný stefna dómsmálaráðherra, olli
straumhvörfum í stefnu teymis land
læknis varðandi málefni transfólks.
Einnig varð afstaða erlendra sérfræð
inga mun afslappaðri sem hafði síð
an áhrif á íslensku sérfræðingana.
Um sama leyti stofnuðum við fé
lagið Trans Ísland og stuttu seinna
samþykkti aðalfundur Samtakanna
‘78 undir formennsku Hrafnhildar
Gunnarsdóttur, að breyta lögum sín
um þannig að transfólk væri einnig
félagar og félagið breyttist úr að vera
félag samkynhneigðra í að vera félag
hinsegin fólks. Sem fyrsti formaður
Trans Íslands, kynnti ég stefnumál
félagsins fyrir fulltrúum stjórnmála
flokkanna í aðdraganda kosning
anna 2009. Á meðan allir aðrir töluðu
um meiri peninga, talaði ég ein
göngu um skort á mannréttindum
transfólks og að það skorti pólitískan
vilja til úrbóta. Eftir stjórnarmynd
un Samfylkingar og Vinstri Grænna,
tilkynnti Anna Kristjánsdóttir mér
sigri hrósandi, að málefni transfólks
væru komin í samstarfsyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar þar sem vísað var
beint í ábendingar Umboðsmanns
Alþingis.
Á götunni Þessi ungi listamaður tók að sér að spila fyrir gesti og gangandi í Austurstræti á dögunum. Mynd JGMyndin
Svarthöfði
Umræða 17Mánudagur 2. júlí 2012
Guðmundur Kristjánsson fékk arð úr Vinnslustöðinni. – DVÁgústa Sif Aðalsteinsdóttir í viðtali við DV um fæðingarþunglyndi sitt – DV
Kjallari
Anna Jonna
Ármannsdóttir