Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Qupperneq 18
18 Neytendur 2. júlí 2012 Mánudagur E ld sn ey ti Algengt verð 240,7 kr. 240,5 kr. Skeifunni 243,5 kr. 243,5 kr. Dalvegi 243,4 kr. 243,2 kr. Hæðarsmára 243,7 kr. 243,5 kr. Algengt verð 245,7 kr. 243,5 kr. Bæjarlind 243,5 kr. 243,3 kr. Fyrsta flokks Sportbúð n Byrjandi í fluguveiði gerði þau mistök að kaupa flugulínu í Sport- búðinni á Krókhálsi sem reyndist of stór fyrir veiðistöngina sem hann átti. Fyrir vikið sat hann uppi með línu sem hann gat ekki not- að í veiðinni. Hann deildi raunum sínum á spjallsvæði fyrir veiði- menn. Daginn eftir hafði eigandi Sportbúðarinnar og Veiðihorns- ins samband í þeirri viðleitni að leysa málið. Þrátt fyrir að verslun- in hefði línuna ekki lengur til sölu og veiðimaðurinn vissi hvorki hvað línan hét né ætti umbúðirnar af línunni, bauð eigandinn veiði- manninum óreynda að skipta á annarri (mjög góðri) línu. Skemmst er frá því að segja að viðskiptum sínum ætl- ar hann framvegis að beina þangað, og að- eins þangað. „Þetta er þjónusta í hæsta gæðaflokki,“ segir hann. Fengu ekki stimpil n Lastið fær Grillhúsið við Sprengisand en viðskiptavinur sendi inn eftirfarandi: „Við vorum fjögur sem fórum saman og vorum með stimpilkort. Fjórði stimpillinn átti að gefa okkur 2.000 króna af- slátt en þegar kom að því að greiða kom í ljós að ekki var stimplað fyrir barnamáltíðir en eitt barn var með í för. Það stendur á kortinu að ekki fáist stimpill fyrir forrétti eða til- boðsrétti en það stendur ekkert um barnamáltíðir. Þegar við kröfðumst skýringa á þessu var okkur tjáð að svona hefði þetta alltaf verið auk þess sem við værum með kort sem væru ekki lengur í notkun. Við höf- um áður farið á staðinn og alltaf fengið stimpil á barnamáltíðir og þar að auki var kortið greinilega enn í notkun þar sem starfsmaður- inn stimplaði á það örfáum mínút- um fyrr. Okkur fannst þetta skrýtið allt saman og engin liðlegheit.“ n Hjá Grillhúsinu fengust þær upp- lýsingar að reglurnar séu að ekki sé stimplað fyrir staka barnarétti en ef það eru tveir barna- réttir þá er stimpl- að. „Okkur þykir leitt að viðkomandi hafi orðið fyrir vonbrigð- um vegna þessa,“ segir fulltrúi Grillhússins. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Bensín Dísilolía Á netinu eru nokkrar síður sem hjálpa neytendum að finna og fylgjast með tilboðum sem eru í gangi hverju sinni. Því er hægt að gera góð kaup, til dæmis á fatnaði, afþreyingu, farar- tækjum, ferðalögum, heilsuvörum, matvælum, raftækjum og á veitinga- stöðum. Dæmi um slíkar síður eru Hópkaup, Kraftkaup og Aha en á þeim eru kynnt tilboð sem ann- að hvort gilda í ákveðinn tíma eða þurfa lágmarksfjölda kaupenda til að verða virk. Fyrirtækin eru að er- lendri fyrirmynd og má segja að síð- urnar snúist um að virkja kraft fjöld- ans en þar hópast fólk um að fá vöru á betra verði. Aðrar síður eins og 2fyrir1 og Útsölur taka saman upp- lýsingar um tilboð og hvar þau megi finna. Neytendur eru hvattir til að skoða þessar síður og reyna þannig að fá vörur og þjónustu á lægra verði. Það skal þó bent á að hafa ráðleggingar forbruger.dk í huga og velta því fyr- ir sér hvenær tilboðin henta og hvort þú þurfir í raun og veru á vörunni eða þjónustunni að halda. Hópkaup Fyrirtækið eða þjónustuaðilinn ákveð ur hve marga þarf til að virkja til boð ið og hve lengi það muni standa. Fjöldinn fer eftir því hve lágt fyrirtækin geta farið til þess að ná því sem þarf til að mæta kostnaði. Fólk skráir sig svo á það tilboð sem það hefur hug á og þegar lágmarks- fjölda hefur verið náð verður tilboð- ið virkt. Í kjölfarið fær kaupandinn senda kvittun þar sem kemur fram gildistími tilboðsins. Hópkaup bíður upp á tvo greiðslumöguleika en það er með greiðslukorti annars vegar og með því að millifæra annars vegar. Komi til þess að tilboð sem þú hefur skráð þig á, virkist ekki vegna ónógr- ar þátttöku, er það ekki gjaldfært af korti þínu. Verði það hins vegar virkt er tekið út af kortinu eða þú beðinn um að millifæra. Á heimasíðunni hopkaup.is segir að komi sú staða upp að fyrirtæki sem geri tilboð- ið verði gjaldþrota, muni Hópkaup endurgreiða allan kostnað. Í skilmál- um segir að greiðsla með kreditkorti fari fram í gegnum örugga greiðslu- gátt. Kraftkaup Kraftkaup gengur út á sömu hug- mynd og Hópkaup nema að þar þarf ekki lágmarksfjölda til að virkja til- boðið. Tilboðin gilda hins vegar í takmarkaðan tíma en sjá má tím- ann sem er eftir við hvert tilboð. Yf- irleitt gilda tilboðin í 3 til 6 mánuði eftir kaup en upplýsingar um gild- istíma inneignarbréfs kemur fram í texta með hverju tilboði sem og á inneignarbréfinu sjálfu, en það er sent með tölvupósti til kaupanda þegar greiðsla hefur borist til Kraft- kaupa. Viðskipavinur getur annað hvort kosið að greiða með greiðslu- korti eða með millifærslu. Í skilmál- um á síðunni segir að greiðslur fari í gegnum örugga greiðslugátt Borgun- ar. Fái viðskiptavinur ekki afgreidda vöru eða þjónustu vegna vanefnda söluaðila áður en frestur til framvís- unar rennur út á viðskiptavinur rétt á endurgreiðslu. Aha Aha.is er samskonar síða og Hóp- kaup og Kraftkaup. Þar gilda sömu reglur og hjá Hópkaupum um að til- boð verða einungis virk ef lágmarks- fjöldi kaupenda næst og ekki er tek- in greiðsla af kreditkorti fyrr. Og ef greitt hefur verið með millifærslu er sá peningur lagður aftur inn á reikn- ing viðskiptavinar. Allar greiðslur af kreditkorti fara fram í gegnum ör- ugga vefsíðu Kortaþjónustunnar. Á heimasíðunni aha.is segir að komi sú staða upp að fyrirtæki sem gerir tilboðið verði gjaldþrota muni aha.is endurgreiða allan kostnað. Útsölur Á síðunni utsolur.is má finna hin ýmsu tilboð og afslætti og er hún hugsuð til að auðvelda neytendum að nálgast upplýsingar um útsöl- ur og tilboð. Um 20 fyrirtæki eru nú skráð sem notendur vefsins og setja þar inn tilboð. Tilboðin eru mismun- andi en sum fyrirtæki bjóða vörur á afslætti á meðan aðrar veita 2 fyrir 1. Einnig er þar tekinn saman listi yfir áhugaverðar auglýsingar um tilboð. 2fyrir1 2fyrir1.is er afsláttarklúbbur sem eingöngu er á internetinu. Sam- starfsaðilar geta sjálfir stjórnað eig- in skráningum og sett inn ný tilboð fyrirvaralaust. Það kostar ekkert fyr- ir einstaklinga að gerast klúbbmeð- limur á 2fyrir1.is en með því að skrá sig fær neytandinn sendan tölvupóst þegar ný tilboð berast. Auk þess get- ur væntanlegur kaupandi fylgst með tilboðum á síðunni. Vilji hann nýta sér tilboð, prentar hann það út og tekur með sér í verslunina, fyrirtæk- ið eða veitingastaðinn. Um 40 versl- anir og fyrirtæki á höfuðborgarsvæð- inu eru samstarfsaðilar 2fyrir1 og veita hin ýmsu tilboð og afslætti. Auk þeirra eru nokkur á landsbyggðinni. n Það er hægt að fá tilboð og afslætti á fjölda vara og þjónustu ef maður bara leitar að því Nýtum okkur tilboðiN Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Tilboð og afslættir Það getur komið skemmtilega á óvart hvað það er hægt að gera góð kaup. MYND: PHOTOS.cOM Góð kaup Ef þú verslar á netinu getur þú gert mjög góð kaup eftir þú hittir á rétt tilboð. Hópkaupssíður hafa sprottið upp hér á landi að undanförnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.