Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 19
Neytendur 19Mánudagur 2. júlí 2012 Leitaðu uppi tilboðin 1 Leitaðu tilboðin uppi Það tekur smá tíma að setja sig inn í hvað er í boði á hverjum tíma en því fleiri tilboð sem þú finnur, því meira sparar þú. Skoðað því vel tilboðsbæklinga og notaðu netið og snjallsímaforrit til að fylgjast með. 2 Skipuleggðu innkaupin Það getur sparað þér heilmikið að skipuleggja innkaupin áður en þú leggur af stað. Búðu til innkaupalista og skoðaðu hvort og hvar tilboð eru á þeim vörum sem eru á listanum. Þegar í búð- ina er komið skaltu halda þig við listann og forðast skyndiákvarðanir. 3 Deildu með öðrum Ef þú sérð tilboð á vöru sem er í meira magni en þú þarft, deildu þá innkaupun- um með öðrum. 4 Athugaðu með aðra vöru Ef tilboðsvaran er uppseld skaltu athuga hvort þú getir fengið samsvar- andi vöru á sama verði. 5 Hugsaðu þig um Veltu því vel fyrir þér hvort tilboðið er eins gott og það hljómar og hvort þú þurfir nauðsynlega á vörunni að halda. 6 Skoðaðu aðrar búðir Hafðu auga með hvort aðrar búðir eru með tilboð á sömu vöru. 7 Reyndu að bregða út af vananum Farðu í aðra búð en þá sem þú ferð alltaf í, ef tilboð hjá henni eru betri. Skoðaðu hvort það borgi sig að fara í eina búð vegna tilboðs á einni vöru en í aðra búð fyrir önnur innkaup. 8 Nýttu þér tilboðin Rekist þú á gott tilboð skaltu íhuga hvort það borgi sig að kaupa meira magn af vörunni en þú ætlaðir. n Það er hægt að fá tilboð og afslætti á fjölda vara og þjónustu ef maður bara leitar að því Ertu sparibaukur eða eyðslukló? Nýtum okkur tilboðiN n Fáðu á hreint hve þefvís þú ert á góð tilboð D anir hafa löngum staðið okkur Íslendingum framar þegar kemur að neytenda- málum og eru duglegir við að nýta sér tilboð og afslætti. Á heimasíðu dönsku neytendasam- takanna er próf sem neytendur geta tekið og metur hve þefvísir þeir eru á góð tilboð. Taktu prófið! A Þú getur feng-ið upplýs- ingar um tilboð og afslætti í gegnum netið, símann eða sendar heim í pósti. Nýtir þú þér þetta? 1. Ég skoða þetta stundum. 2. Já ég skoða alltaf hvað er í boði. 3. Aldrei, ég nota tíma minn í annað. B Það er tilboð á klósett- pappírnum sem þú kaupir alltaf. Hvað gerir þú? 1. Ég kaupi hæfilegt magn. 2. Ég kaupa auka pakka. 3. Ég kaupi ekkert meira en ég þarf á að halda akkúrat núna. C Skoðar þú tilboð hjá sérstökum versl- unum 1. Ég les tilboðsbæklinga frá mörg- um verslunum og skipulegg inn- kaupin út frá því. 2. Ég fylgist einungis með tilboð- um í þeim verslunum sem ég versla mest í. 3. Ég fylgist ekkert sérstaklega með tilboðum. D Síðast þegar þú verslaðir, valdir þú búðina vegna þess að 1. Ég versla alltaf þar. 2. Ég hafði séð gott tilboð auglýst þar. 3. Það var önnur ástæða, til dæmis átti erindi í það hverfi. E Ertu með forrit (app) í síman- um eða spjaldtölv- unni sem lætur þig vita af tilboðum? 1. Já. 2. Nei, því ég á hvorki snjallsíma né spjaldtölvu. Ég mundi annars nota það. 3. Nei, ég vissi ekki að slíkt væri til. F Ísskápurinn er að tæmast og það er kominn tími á innkaup. Hvað gerir þú? 1. Ég bý til lista yfir það sem þarf og ef ég dett niður á gott tilboð, skipulegg ég mig út frá því. 2. Ég bý til lista og leita svo að til- boðum á vörunum áður en ég fer í búðir. 3. Ég bý til lista og fer svo og versla í minni búð. Ég læt tilboð í öðrum búðum ekki lokka mig þangað. G Reiknar þú út hve mikið sparast á magntil- boðum? 1. Já ég geri það til að sjá hvort það borgi sig að kaupa meira magn. 2. Nei, ég kaupi bara það sem ég þarf á að halda. 3. Stundum, en oft kaupi ég bara það magn sem mig vantar. A 1 = 1 stig 2 = 2 stig 3 = 0 stig B 1 = 3 stig 2 = 2 stig 3 = 1 stig C 1 = 2 stig 2 = 1 stig 3 = 0 stig D 1 = 0 stig 2 = 2 stig 3 = 1 stig E 1 = 2 stig 2 = 1 stig 3 = 0 stig 4 = 1 stig F 1 = 1 stig 2 = 2 stig 3 = 0 stig   G 1 = 2 stig 2 = 0 stig 3 = 1 stig  12–15 stig Þú ert sannkallaður sparibaukur. Þú lætur ekki gott tilboð fram hjá þér fara þó þú þurfir að skipuleggja tíma þinn betur og það borgar sig. Þú hefur gott auga fyrir tilboðum og hvað þú getur sparað á þeim. Haltu áfram að fylgjast með nýj- ungum eins og að fá upplýsingar um tilboð sendar til þín. 5–11 stig Þú mættir standa þig betur en þetta er þó ekki alslæmt. Þú skipuleggur ekki alltaf innkaupin út frá tilboð- um en ef þú sérð gott tilboð aug- lýst, slærðu stundum til. Ef þú legg- ur örlítið meira á þig þegar kemur að skipulagi getur þú sparað enn meira.   0–4 stig Þú stendur þig alls ekki nógu vel í að elta uppi tilboðin og nýta þér þau. Þú heldur kannski að það borgi sig ekki. Þú getur þó spar- að peninga, nánast án fyrirhafn- ar. Nýttu þér til dæmis þá þjónustu sem er í boði, svo sem bæklingana sem eru sendir heim, svo ekki sé minnst á tilboðin sem hægt er að fá send til sín rafrænt. Teldu stigin þín og sjáðu hvort þú nýtir þér góð tilboð Sparibaukur Það má spara töluvert á því að eltast við tilboð og afslætti. Mynd: PhotoS.coM Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Afslættir n Bankarnir bjóða einnig mismunandi debet- og kreditkort sem veita afslætti hjá ýmsum samstarfsaðilum. Kortin eru nokkur og mismunandi og neytendur eru hvattir til að skoða hvaða kort hentar hverjum og einum. Hér er einungis tekið saman hvaða afslætti og tilboð kortin veita en ekki önnur fríðindi sem kunna að fylgja kortunum. n Landsbankinn Debetkortin virka sem afsláttarkort hjá samstarfsaðilum Kreditkortin safna 4 aukakrónum af hverjum 1.000 kr. af allri innlendri versl- un kortsins. Auk þess veita þau afslátt hjá samstarfsaðilum. n Arionbanki E-kort Arionbanka eru kreditkort en korthafar fá endurgreiddan hluta af viðskiptum hjá söluaðilum sem hafa söluaðilasamning við Valitor og/ eða Borgun. Að auki veita yfir 200 samstarfsfyrirtæki e-kortsins 0,65 til 20 prósenta viðbótarendurgreiðslu. n Íslandsbanki Kreditkortin safna vildarpunktum sem svo er hægt að breyta í pening, sparnað, góðgerðarmál, ferðaávísun MasterCard eða Vildarpunkta Icelanda- ir. Stúdentakortin, sem eru debetkort, veita afslætti á vörum og þjónustu samstarfsaðila. Aðrir afslættir n Á heimasíðu Strætó má finna nokkur mismunandi strætókort. Þar má spara nokkrar strætóferðir. n Flestar líkamsræktarstöðvar bjóða upp á svokölluð nemakort sem veita námsmönnum afslátt. Sumar veita einnig sumarkort á lægra verði, svo sem Sporthúsið. Skoðið vel hvaða stöðvar bjóða afslátt og hve mikinn. n Verkalýðsfélög veita ýmsa afslætti svo sem í sjúkraþjálfun, gleraugnastyrki, líkamsræktarstyrki, tæknifrjóvgun og greiða hluta af sálfræðikostnaði svo fá dæmi séu tekin. Önnur bjóða afslætti hjá verslunum og þjónustuað- ilum. Kannið hvað ykkar verkalýðs- og stéttarfélag býður upp á þegar kemur að styrkjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.