Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 20
Þ
ær Satu Ramo og Maarit
Kaipainen opnuðu nýverið
verslun á Laugavegi 2, Suomi
PRKL! Design, þar sem seld-
ur er ýmis hönnunarvarning-
ur frá Finnlandi en líka ýmislegt smá-
legt og skemmtilegt, svo sem sælgæti,
tannkrem og forvitnilegir smáhlutir.
Þær Satu og Maarit hafa báðar búið
á Íslandi í nokkur ár. Satu í sex ár og
Maarit í þrjú ár. Þær tala góða íslensku
og hafa mikinn áhuga á hönnun, bæði
íslenskri og finnskri. „Við elskum Ís-
land og íslenska hönnun. Íslendingar
eru líka hrifnir af finnskri hönnun og
þar sáum við okkur leik á borði,“ seg-
ir Satu.
Suomi PRKL! Design er með fjöl-
breytt úrval af hönnunarvörum frá fjöl-
mörgum finnskum hönnuðum. Flestar
vörurnar hafa þar til nú verið ófáan-
legar á Íslandi. Meðal vörumerkja eru
Iittala og Arabia auk annarra minna
þekktra vörumerkja hér á landi. „Við
vildum opna augu fólks fyrir finnskri
hönnun því hún er svo miklu meira og
margir þekktir finnskir hönnuðir eru
að gera það gott.“
Hvers manns hjól
Meðal þess sem í boði er í verslun-
inni eru finnsk borgarhjól. Jopo-hjólin
(án gíra) frá Helkama Velox eiga langa
sögu en saga þeirra hófst í kringum
1960. Jopo stendur fyrir „Jokaisen
Polkypyörä“ sem þýðir „hvers manns
hjól“. Jopo-hjólin eru hönnuð fyrir alla
því stærð þeirra er auðvelt að stilla.
Jopo er ekki aðeins hannað heldur
einnig framleitt í Finnlandi. „Þau eru
dýrasta varan í boði hjá okkur. Hjólin
kosta 99.900 og eru fáanleg í nokkrum
litum.“
Jákvæð viðbrögð
Af öðrum áhugaverðum varningi má
nefna SavetheC-töskur sem fram-
leiddar eru úr notuðu segli og hann-
aðar af hinum frægu finnsku hönnuð-
um Paola Suhonen og Harri Koskinen,
flotta gólfkodda frá Muovo, skondin
rúmföt, finnsk leikföng og tusku-
brúður, mikið úrval af múmínvörum,
skemmtilegan heimilistextíl, fylgihluti
og margt fleira. „Það er rík hefð fyrir
textíl í Finnlandi og það endurspegl-
ast í úrvalinu í verslun okkar. Við höf-
um fengið mjög jákvæð viðbrögð við
vörunum og úrvalinu en það er stutt
síðan við Maarit tókum ákvörðun um
rekstur, eða um fimm mánuðir.“
Þær Satu og Maarit kynntust fyrir
ári en hér á landi eru aðeins nokkur
hundruð Finnar. „Við fórum að ræða
saman, okkur langaði í tilbreytingu
í lífið og á sama tíma söknuðum við
ýmissa muna úr heimalandinu. Það
var þess vegna sem við réðumst í
þennan rekstur. Hingað koma líka
Finnar og kaupa sér ýmsan varning
sem þeir sakna; súkkulaði eða lakkrís,
sjampó eða sápur.“ n
Konur skammast sín fyrir bauga
n Nota hyljara og trúa ekki á lausnir
A
ugnsvæðið er nokkuð sem
flestir vilja að líti sem best út
og baugar og bólgur í kring-
um augu finnst mörgum lýti.
Þreyta, stress, aldur, gen, þurrkur,
bólgur og hæg efnaskipti geta ver-
ið þess valdandi að þroti og baugar
myndast.
Clinique hefur gert rannsóknir á
augnsvæðinu og á baugum og vís-
indamenn þeirra komust að því að
dökkir baugar stafa meðal annars
af aukinni uppsöfnun af melaníni á
augnsvæðinu.
Clinique gerði einnig athuganir
á líðan kvenna með bauga og komst
að því að flestar þeirra höfðu enga
trú á því að það væri hægt að draga
úr þeim og best væri að hylja þá ein-
faldlega með baugahyljara. Mörgum
konum finnast baugar reyndar fegr-
andi. Gott dæmi um þetta er Isabella
Rosselini sem sagði bauga og hrukk-
ur reynslumerki. Með brosi og hlýju
augna væri slíkt margfalt fegurra en
„reynslulaus“ húð.
Flestar konur vilja þó endi-
lega losna við baugana. Nýlega
setti Clinique á markað Even
better eyes, augnkrem með
lit, og lofa því að baugar
dofni um allt að 30 pró-
sent á 12 vikum. Kremið er
selt í litlum túpum og hefur
kælandi og frískandi áhrif. Í
því eru C-vítamín, mulberry-
rót, kaffeín, grænt te, mysu-
prótein og kólesteról.
Augnkremið skal notast allt að
tvisvar á dag, það er létt og rennur
vel og er gott undir farða. Ofnæm-
isprófað og án ilmefna.
20 Lífstíll 2. júlí 2012 Mánudagur
Ekki einmana
á vefnum
Nýbakaðar mæður sem lesa og
skrifa blogg eiga síður á hættu að
finna til einmanaleika en aðrar
mæður. Þetta kemur fram í ný-
legri rannsókn sem Penn State og
Brigham Young háskólarnir fram-
kvæmdu.
„Blogg og þátttaka í umræðu-
vefjum gæti hjálpað mæðrum við
umskiptin sem fylgja því að verða
móðir. Þær finna frekar til tengsla
við fjölskyldu og vini og af því leið-
ir að þær fá tilfinningu fyrir stuðn-
ingi, segir Brandon T. McDaniel
hjá Penn State.
„Þessi tilfinning gæti haft já-
kvæð áhrif á líf þeirra, til að
mynda samband við barnsföður,
það hvernig þær glíma við streitu
og hvort þær séu líklegar til að
þróa með sér þunglyndi.
Í rannsókninni var fylgst með
nýbökuðum mæðrum, heilsu
þeirra og líðan og því hvernig
samskiptum þeirra var háttað á
vefnum.
Leiktu þér
Streita foreldra var rannsökuð í
háskólanum í Kansas í Banda-
ríkjunum og niðurstöðurnar eru
áhugaverðar. Feður og mæð-
ur sem leika við börn sín finna
síður til streitu en aðrir foreldr-
ar. Einstæðar mæður finna helst
til streitu og leiðir streitan oftar
til kvíða hjá þeim en hjá öðrum
foreldrum. Niðurstöður þessara
rannsókna eru nú nýttar sem
meðferðarúrræði við streitu. Af
þessu má draga þá ályktun að
brýnt sé fyrir einstæðar mæður að
leika sem mest við börn sín.
Baugar minnka um 30
prósent Clinique hefur sett
á markað nýtt augnkrem.
Svala söknuðinum
n Tvær finnskar konur, Satu og Maarit, reka finnska verslun á Laugavegi
Falleg plaköt Mikið af fallegum
plakötum eru fáanleg í versluninni.
Kraftakarl og hafmeyja
Skondinn rúmfatnaður.
Sætar dúkkur Mikið úrval af barnaleik-
föngum og þessum sætu tuskudúkkum.
Söknuðu varnings frá heima-
landinu Satu þyrsti í tilbreytingu
og stofnaði verslun með vörur frá
Finnlandi með vinkonu sinni Maarit.
Neon-litir
í sumar
Neon-litir eru alltaf að koma ann-
að slagið í tísku og nú er sá tími
kominn aftur. Sumir klæða sig
kannski í neon frá toppi til táar
en aðrir eru kannski hógværari
og vilja bara eitthvað smá neon
með, það lífgar svo mikið upp á
klæðnaðinn og heildarútlitið. Í
tískuvöruverslunum hér heima og
erlendis eru sumarlínurnar allar
í neon, hvort sem það eru kjólar,
peysur, buxur, hlýrabolir, veski,
bikini, belti, sólgleraugu, sandalar,
stuttbuxur, armbönd, eyrnalokkar
eða aðrir aukahlutir.