Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Page 26
26 Fólk 2. júlí 2012 Mánudagur Ásdís kennir réttu trixin n Ísdrottningin býður upp á Beauty Camps Þ etta er tilkomið út af því að það hafa svo margar stúlkur haft samband við mig og langað í svona tök­ ur og beðið mig um hjálp eða leiðsögn hvernig þær geti komið sér á framfæri,“ seg­ ir athafnakonan og fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir sem heldur námskeiðið „Beauty Camps með Ásdísi Rán“ í sam­ vinnu við stjörnuljósmyndar­ ann Arnold. „Nú er ég að koma heim til Íslands í mánuð, þannig að ég ákvað að bjóða þetta tæki­ færi fyrir þær sem hafa áhuga á að láta drauminn rætast,“ seg­ ir Ásdís en námskeiðið er fyrir konur á aldrinum 18 til 30 ára. „Ég gerði samning við Play­ boy og Maxim um birtingu á myndum þannig, að þetta er ágætt tækifæri fyrir þær sem hafa áhuga á að koma sér á framfæri og ég á eflaust eftir að hjálpa þeim sem eru efnilegar, eitthvað meira í framtíðinni.“ Sjálf hefur Ásdís bæði prýtt síður Maxim og Playboy. Hún segir námskeiðið samanstanda af tilsögn í förðun, hárgreiðslu og pósum; myndatökum og lokapartý. „Það er alltaf gaman að eiga svona myndir í albúmi. Alveg sama þó að manneskjan stefni ekki á neinn sérstakan frama í módelstörfum. Oft hafa stelpur, sem vilja koma eigin­ mönnunum á óvart með fall­ egum myndum, líka haft sam­ band og þetta er ágæt leið til að pumpa aðeins upp egóið,“ segir Ásdís Rán og bætir við að allar stúlkur séu velkomnar að hafa samband á netfangið model@model.is indiana@dv.is Þaulvön Ásdís Rán hefur sjálf setið fyrir í Maxim og Playboy. Nú ætlar hún að aðstoða íslenskar konur að komast á síður þessara blaða. Kynþokkafull Ásdís ætlar að kenna íslenskum stúlkum að vera kynþokkafullar í myndatökum. Aftur í So You Think You Can Dance Svala Björgvins og félagar í Steed Lord verða aftur með lag í dansþættinum vinsæla So You Think You Can Dance sem sýndur er á Stöð 2. Vin­ kona Svölu, danshöfundur­ inn Sonya Tayeh, bað sér­ staklega um lag Steed Lord en Sonya hefur komið að vinnslu tveggja myndbanda með sveitinni. Um sérstaka útgáfu af laginu Precogn­ ition er að ræða en lagið kom út fyrir þremur mánuðum. Útgáfan heitir Steed Lord Machine Mix og var sérstak­ lega búið til fyrir Sonyu og þáttinn. Svala segir lagið hafa fengið góðar viðtökur. „Ótrú­ lega falleg dansrútína hjá Sonyu og þessir 10 strákar sem dönsuðu við lagið okkar, eru rosalega hæfileikaríkir.“ Hvenær kemur þú í golf? Eva María Jónsdóttir og Sig­ urpáll Jónsson búa við mikið barnalán. Eva María hefur alið fjórar dætur. Sú elsta er 12 ára og sú yngsta er 1 árs. Þrjár dætra sinna á hún með fyrrverandi eiginmanni sín­ um, Óskari Jónassyni leik­ stjóra. Og þá yngstu með núverandi sambýlismanni sínum, Sigurpáli Scheving. Sigurpáll á þrjú börn og því segir Eva María að hún sé svo sannarlega rík að fá að annast svo mörg börn. Ann­ ríkið er mikið hjá barnafjöl­ skyldunni en þau virðast hafa húmor fyrir því að sjaldan gefist tóm fyrir frístundir. Fyr­ ir helgi setti Eva María mynd af Sigurpáli með fimm börn­ um þeirra og sagði myndina heita: Hvenær kemurðu í golf, Sigurpáll Scheving? Hárið og skeggið farið Pétur Guðmundsson söngv­ ari, eða Pétur Jesú eins og hann hefur oft verið kallaður, hefur klippt bæði skegg sitt og hár. Hann hefur í þó nokkurn tíma verið með mikið sítt hár og sítt og mikið skegg en hef­ ur núna breytt alveg um stíl. Pétur hefur verið í mörg­ um hljómsveitum og er sannkallaður reynslubolti í söngnum en hann hefur til að mynda verið í hljómsveitun­ um Buff og Dúndurfrétt­ um. Hann hefur einnig farið nokkrum sinnum erlendis með Eurovision­förum okkar Íslendinga þar sem hann hef­ ur sungið bakraddir af sinnu alkunnu snilld. Laxinn fram yfir Madonnu H ún hafði aldrei far­ ið á tónleika með Madonnu en alltaf verið mikill aðdáandi og varð þess vegna mjög ánægð,“ segir tónlistar­ maðurinn Jógvan Hansen sem gaf kærustunni sinni, Hrafn­ hildi Jóhannesdóttur, miða á tónleika stórstjörnunnar í Kaupmannahöfn í þrítugs­ afmælisgjöf. Jógvan lét ekki þar við sitja heldur fékk hann vin sinn, tónlistarmanninn Friðrik Ómar, til að fá söngkon­ una Regínu Ósk til að syngja nokkur Madonnu­lög í afmæli Hrafnhildar. „Þetta var bara ótrú lega skemmtilegt. Ég vissi að ef ég myndi kaupa miða handa henni þá færi boltinn að rúlla og ég held að þær hafi farið níu saman vinkonurnar,“ segir Jógvan sem sjálfur hef­ ur takmarkaðan áhuga á stór­ stjörnunni. „Ég var bara hér heima með soninn. Það var mjög gaman og passaði vel þar sem ég var með gesti frá Fær­ eyjum.“ Jógvan spilar minna á sumrin en eyðir því meiri tíma í veiði. „Laxveiði er mitt áhuga­ mál. Það er hægt að veiða lax í Færeyjum en þetta áhugamál mitt vaknaði eftir að ég kom til Íslands,“ segir Jógvan sem hef­ ur veitt í Langá, Veiðivötnum, Selá, Soginu og ýmsum öðrum stöðum. „Maríulaxinn minn kom á svæði 111 í Langá,“ segir hann stoltur en bætir aðspurð­ ur við að Hrafnhildur deili ekki þessum veiðiáhuga með hon­ um. „Hún nennir að koma með ef hún er með góða bók. Mér finnst þetta hins vegar svo skemmtilegt. Það skiptir ekki öllu máli hvort maður fái lax eða ekki. Aðalmálið er að vera úti í náttúrunni. Úti í ánni hugsar maður ekki um neitt annað en að kasta og fylgjast með flugunni. Það er ekki hægt að vera að pæla í tónlist eða vandamálum heimsins á með­ an. Þess vegna er þetta svo góð aðferð til að hreinsa hugann og safna orku. Ég viss um að flest­ ir veiðimenn eru mér sammála um þetta.“ Jógvan ætlar að skella sér með fjölskylduna á Ólafsvöku í lok júlí. Í þetta skiptið mun hann ekki spila á hátíðinni heldur njóta henn­ ar með fólkinu sínu. „Margir halda að Ólafsvaka sé eitt­ hvað lík Þjóðhátíð en svo er ekki. Þetta er miklu þjóðlegri hátíð. Á Ólafsvöku klæð­ ir fólk sig í sín bestu föt og dansar þjóðdansa. Þetta er ekkert fyllerí – þótt það geti verið gaman að ganga um göturnar með pínulítinn pela – svona rétt til að kæla sig niður,“ segir hann hlæjandi og bætir við að fæstir gisti í tjaldi á Ólafsvöku. „Gestrisni Færeyinga er í toppi á þess­ um dögum. Á Ólafsvöku er enginn maður þyrstur, svang­ ur né þreyttur.“ indiana@dv.is n Söngvarinn Jógvan Hansen og kærastan eiga sitthvort áhugamálið Flott fjölskylda Feðgarnir nutu þess að eyða tímanum saman á meðan mamman fór til Kaupmannahafnar með vinkonunum til að berja stórstjörnuna Madonnu augum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.