Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Page 3
Látinn faðir
gaf yfirLýsingu „Dæmi um
trassaskap“
Sumarið er ekki búið
n Siggi stormur spáir góðum ágústmánuði
S
umarið er fjarri því búið og
ég tel að við séum komin fyr-
ir vind hvað varðar lægðina
og ekki annað að sjá en að við
taki betri tíð á nýjan leik,“ segir Sig-
urður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur,
um veðrið sem gekk yfir landið um
helgina.
Hann er þess fullviss að sumarið
sé ekki búið og bindur miklar von-
ir við að áfram verði hægt að ferð-
ast. „Það styttir upp á þriðjudaginn
mjög víða og lægir á nýjan leik og þá
verður allt sumarlegt á ný hjá okkur.
Vikan verður svolítið köflótt en það
léttir til suðvestanlands um miðja
viku og þegar líður á vikuna verð-
ur orðið bjart á nýjan leik. Mér sýn-
ist á öllu að það verði komin brak-
andi blíða sunnan- og vestanlands
þegar líður að helgi,“ segir hann
en bætir við að erfiðara sé að segja
til um hitastig en það sé þó enginn
kuldi í kortunum. Þó megi segja að
það verði ekki sami bragur á hitan-
um og hefur verið hingað til í sum-
ar. „Það verður svona eðlilegra veð-
ur og hiti á bilinu 10 til 18 stig, bjart
og úrkomulítið veður.“
Aðspurður um veðrið í ágúst seg-
ir Siggi að spár sýni umhleypinga í
byrjun ágúst og að það verði lægða-
gangur og vætusamt um verslunar-
mannahelgina. „Það getur þó allt
saman breyst og ég er viss um að
veðurguðirnir verði góðir við okkur
þegar þeir fatta hvaða helgi er um
að ræða.“ Langtímaspár gefi í skyn
að mánuðurinn verði mjög góður og
engin ástæða sé til að halda að sum-
arið sé búið. Haustflíkurnar geti því
enn verið í geymslu og ekki tíma-
bært að ná í þær fyrr en seinnipart
ágústmánaðar. Sigurður segir að
það geti þó orðið kalt á nóttunni og
því vissara að hafa teppi með í úti-
leguna til að sveipa um sig á kvöldin.
gunnhildur@dv.is
Fréttir 3Mánudagur 23. júlí 2012
Þ
etta er dæmi um trassaskap
og vekur óhug hjá fólki að
sjá svona,“ segir Höskuld-
ur Einarsson, deildarstjóri
hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins, um þúsund lítra ker uppi
í Grafarvogi sem eru merkt eins og
þau innihaldi saltpéturssýru. Þegar
hann athugaði málið reyndist vatn
í kerunum. Á merkimiðunum eru
einnig lýsandi myndir af því hvern-
ig húðin getur brunnið komist hún í
snertingu við saltpéturssýruna.
Áhyggjufullur Grafarvogsbúi
DV fékk ábendingu frá áhyggjufull-
um Grafarvogsbúa um að í Gufunesi
í Grafarvogi séu ker sem innihéldu að
öllum líkindum saltpéturssýru. Á ker-
unum eru stórar merkingar þar sem
varað er við að þau innihaldi salt-
péturssýru og myndir sem sýna að
komist fólk í snertingu við hana geti
það brennt sig hættulega. „Ég var í
göngu um svæðið í júní og sá kerin
með merkingunum. Þegar um svona
merkingar er að ræða á það sem
merkt er að vera girt af. Mér fannst
mjög skrýtið að ker með saltpéturs-
sýru stæðu á opnu svæði. Síðan var
ég í bíltúr um sama svæði á fimmtu-
dag og sá að kerin stóðu þarna ennþá
og varð áhyggjufullur. Svo ákvað ég að
láta DV vita af þessu. Ég var hræddur
um að krakkar færu ef til vill að leika
sér þarna og gætu farið að fikta í þessu
þar sem mjög auðvelt er að opna ker-
in,“ segir íbúinn áhyggjufulli.
Allt of algengt
Blaðamaður DV hringdi í Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins og náði tali af
Höskuldi Einarssyni deildarstjóra og
lét hann vita af kerunum. Höskuldur
var þá staddur í Hafnarfirði og ók þá
strax af stað í Gufunes til að athuga
málið enda um stórhættulegt efni
að ræða sem getur valdið miklum
skaða. Þegar Höskuldur kom á stað-
inn og opnaði kerin reyndust þau full
af vatni. Hann segir alltof algengt að
fólk noti kerin til að geyma vatn eða
önnur skaðlaus efni í án þess að fjar-
lægja merkimiðana um sýruna af.
„Við sjáum svona ker víða. Oftast sér
heilbrigðiseftirlitið um að fara í út-
köll tengd kerjum með svona merki-
miðum. En ef okkur berst vísbending
um svona ker þá athugum við málið.
Okkur stendur síður en svo á sama
því saltpéturssýra er mjög hættulegt
efni.“
Saltpéturssýra mjög hættuleg
Það er kannski engin furða að
merkingar um saltpéturssýru á
kerum á víðavangi valdi óhug hjá
fólki. Fái fólk saltpéturssýru á sig
getur hún brennt sig í gegnum
föt og inn í húð. Þá þarf að skola
húðina mjög vel. Gufurnar valda
einnig miklum óþægindum í aug-
um og slímhúð. Það þarf ekki mik-
ið magn af sýrunni til að hún sé
hættuleg fólki sem og umhverfinu.
„Kerin þarf að hreinsa eftir að sýra
hefur verið í þeim þannig að þau
verði skaðlaus. Að því búnu þarf að
taka þessar merkingar af þeim svo
fólki álykti ekki að eitthvað hættu-
legt sé í þeim, þegar efnið er svo
ekkert hættulegt í raun og veru,“
segir Höskuldur.
Elín Ingimundardóttir
blaðamaður skrifar elin@dv.is
„Þetta er
dæmi um
trassaskap og
vekur óhug hjá
fólki að sjá svona
n Saltpéturssýran reyndist vera vatn n Íbúar áhyggjufullir
Merkingar vekja óhug Saltpéturssýran er mjög ætandi og hefur skaðleg áhrif á húð og
öndunarfæri. Sem betur fer reyndust kerin vera fullir af vatni.
Kerin Íbúinn sem DV ræddi
við hafði áhyggjur af að kerin
innihéldu saltpéturssýru.
Brakandi blíða Siggi stormur
segir að veðrið verði eðlilegra
það sem eftir er sumars.
Mynd Eyþór ÁrnASon
n Forsjárgögn vantar n Óvissa um andlát föður n Afsalaði sér forræði eftir andlát
fram að faðir hennar hafi aldrei
haft afskipti af dóttir sinni og að
Marilyn fari raunar ein með for-
ræði.
Þeir lögfræðingar sem DV
ræddi við töldu skjalið ekki full-
nægjandi né að það hefði gildi og
að Útlendingastofnun gæti ekki
tekið yfirlýsingar ættingja móður
gildar lægju önnur gögn ekki fyr-
ir. Í samtali við Ellert kom fram að
Útlendingastofnun og innanríkis-
ráðuneytið hefðu forsjárgögn und-
ir höndum. Eftir þeim yrði óskað
svo hægt væri að bera til baka yfir-
lýsingar Útlendingastofnunar um
ófullnægjandi gögn.
Ekki rætt við Patty
DV gafst ekki færi á að ræða við
Patty sjálfa við vinnslu fréttarinnar.
Gaf Ellert þá skýringu að hún væri
afar leið og gréti. Seinna kom fram
að hún hefði farið til vina sinna og
væri þar af ótta við að verða vís-
að úr landi. Það kom fram í máli
Ellerts að sama gilti um aðra fjöl-
miðla sem fjallað hafa um málefni
Patty. Enginn þeirra virðist hafa
fengið að hitta konuna sem þó er
21 árs. DV fékk þó vilyrði fyrir að fá
að taka ljósmynd af fjölskyldunni
ásamt Patty. Þegar kom að því að
taka ætti myndina var því hafn-
að og því meðal annars borið við
að óþarfi væri að hitta stúlkuna og
taka af henni mynd. n
Móðirin býr á Íslandi Marilyn,
móðir Patty, býr hér á landi með
Ellert Högna Jónssyni. Þau giftust
árið 2005 og hafa síðan þá búið hér á
landi. Saman eiga þau eina dóttur en
Patty er stjúpdóttir Ellerts.
Mynd Eyþór ÁrnASon