Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Blaðsíða 11
Fréttir 11Mánudagur 23. júlí 2012
Birkir eftir slysið
Mun missa mikið úr vinnu
og af fitnessmóti.
Mynd Eyþór Árnason
Þ
að mun líða töluverð-
ur tími þangað til ég get
stundað vinnu aftur,“ seg-
ir Birkir Arnar Jónsson, 26
ára bifhjólamaður, sem
lenti í alvarlegu bifhjólaslysi fyr-
ir einni og hálfri viku. Hann missti
stjórn á hjóli sínu þegar framhjól
þess fór ofan í skemmd í malbik-
inu á Reykjanesbraut. Birkir er
allt annað en sáttur enda slasaðist
hann illa í slysinu.
Missti stjórn á hjólinu
Föstudeginum 13. fylgir oft sú hjá-
trú að óhöpp séu í vændum. Birkir
leiddi hugann ekki að því áður en
hann lagði af stað til vinnu klukkan
níu að morgni föstudagsins 13. júlí
síðastliðins. Hann lenti í alvarlegu
slysi skömmu síðar. Birkir ók bif-
hjóli sínu eftir Miklubrautinni og
beygði svo inn á Reykjanesbraut-
ina. Í miðri beygjunni fór fram-
hjólið ofan í skemmd á veginum og
missti Birkir þar af leiðandi stjórn á
hjólinu sem valt á hliðina. Í sömu
andrá datt hann af hjólinu og rann
um þrjá metra eftir Reykjanes-
brautinni og lenti með höfuð og
öxl í vegkantinum.
Lán í óláni
Birkir kveðst heppinn að slysið átti
sér stað svo árla morguns. „Bílarnir
höfðu verið stopp á rauðu ljósi ofar
á Reykjanesbrautinni og umferðin
var lítil svo snemma um morgun-
inn. Hefði slysið átt sér stað tíu
sekúndum síðar hefði ég líklegast
kastast inn í umferðina því bílarn-
ir sem höfðu verið stopp á rauða
ljósinu voru þá aðeins nokkrum
sekúndum frá mér.“ Hann náði
með naumindum að koma sér af
veginum.
nær sér aldrei að fullu
Birkir stórslasaðist við fallið. Hann
braut viðbein og þarf að gangast
undir aðgerð vegna þess. Þar að
auki tognaði hann á hálsi, ökkla,
nára og neðra baki og skrap-
aði stóran hluta húðarinnar af
á neðanverðum vinstri fæti og
hægri rasskinn. „Ég hef ekkert get-
að unnið frá því að slysið átti sér
stað. Læknarnir segja að ég geti
svo ekkert unnið í að minnsta kosti
6–8 vikur eftir aðgerðina á öxlinni.
Þeir segja einnig að ég muni ekki
ná mér að fullu aftur þar sem við-
beinsbrot grær aldrei alveg saman
aftur.“
Áform Birkis um að taka þátt
í fitnessmóti í nóvember verða
heldur ekki að veruleika þar sem
hann getur ekki stundað líkams-
rækt lengur. Hann mætir daglega á
slysadeild Landspítalans til að láta
skipta um umbúðir á öðrum fæti
og rasskinninni þar sem mikil húð
skrapaðist af þegar Birkir rann eftir
Reykjanesbrautinni.
Úða ætti skemmdina rauða
„Það versta við skemmdina sem
olli slysinu er að hún er í beygju
og þá er auðvelt að missa veggrip.
Engin aðvörun er um skemmdina
á veginum. Hefði hún verið á bein-
um vegi hefði ég aldrei lent í þessu
slysi.“ Spurður hvort aðvörunar-
skilti hefðu hugsanlega getað kom-
ið í veg fyrir slysið telur hann það
ólíklegt. „Hins vegar hefði getað
skipt sköpum ef skemmdin hefði
verið úðuð rauð. Það er oft gert og
ég skil ekki hvers vegna það er ekki
gert á þessum vegi þar sem ég slas-
aðist. Maður tekur mun betur eftir
rauðum úða en skiltum.“
Elín Ingimundardóttir
blaðamaður skrifar elin@dv.is
Fótur Birkis Húðin skrapaðist af á stórum
svæðum í slysinu.
n Ekki varað við hættulegum skemmdum á vegi n Nær sér aldrei að fullu
SlaSaðiSt á
varaSömum
vegarkafla
„Hefði slysið átt sér
stað tíu sekúndum
síðar hefði ég líklegast
kastast inn í umferðina
Sólheimar veita
engar skýringar
n Úlfhildi og Magnúsi haldið hvoru frá öðru n Olís-kortið ekki ástæðan