Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Síða 4
„Andleg móðir“
stjórnArinnAr
Slitastjórn stefnir Eyjamönnum
n Fer fram á að bærinn endurgreiði milljarð króna
S
litastjórn Kaupþings stefndi
Vestmannaeyjabæ í þarsíð-
ustu viku. Hún fer fram á
að bærinn endurgreiði einn
milljarð króna. Bærinn tók rúman
milljarð króna úr peningamark-
aðssjóði hjá Kaupþingi um mánuði
fyrir bankahrun árið 2008. Þá tel-
ur slitastjórnin að bænum hafi
ekki verið heimilt að taka pening-
ana út á þessum tíma þar sem þeir
hafi verið bundnir til lengri tíma. Í
stefnunni er vísað til lagaákvæðis er
varðar gjaldþrotaskipti. Þar er sagt
að fara megi fram á riftun á greiðsl-
um síðustu sex mánuði fyrir gjald-
þrot ef greitt var fyrr en eðlilegt er.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, er á öðru máli
og segir að Vestmannaeyjabær sé í
fullum rétti: „Maður spyr sig: hvað
þýða orðin að þeir hafi verið tekn-
ir út of snemma? Þýðir það að við
hefðum átt að bíða þangað til eft-
ir hrun og ekki getað tekið þá út?“
Hann segir ráðamenn Vestmanna-
eyjabæjar hafa orðið hrædda við
stöðu fjármálastofnana því bærinn
hafi verið með fjóra milljarða inni í
bankakerfinu í aðdraganda banka-
hrunsins. Því hafi þeir ákveðið að
taka fjármagnið út og flytja það.
Það hafi orðið til þess að Vest-
mannaeyjabær hafi ekki tapað fé
í bankahruninu. Þungt högg væri
fyrir bæinn ef honum yrði gert að
greiða þessa upphæð. Spurðaur
hvort bærinn hafi búið yfir upplýs-
ingum sem ollu því að fjármagnið
var tekið út svarar hann neitandi.
Ríkisútvarpið greindi frá þessu um
helgina.
4 Fréttir 23. júlí 2012 Mánudagur
n Ingibjörg Guðnadóttir sögð sjá illa anda í Krossinum
Þ
etta var ekki Guð sem talaði
þarna; þetta var illska og við-
bjóður.“ Svona lýsir Sigur-
vin Hreinsson, fráfarandi
meðlimur Krossins, upp-
lifun sinni á síðasta safnaðarfundi
Krossins, sem fjallað var ítarlega um
í helgarblaði DV. Sigurvin er einn
nokkurra safnaðarmeðlima Krossins,
fyrrverandi og núverandi, sem haft
hafa samband við DV eftir að hafa
lesið umfjöllun helgarblaðsins.
Í umfjöllun DV kom fram að
Gunnar Þorsteinsson hefði á fund-
inum reynt að komast til áhrifa á
ný innan trúfélagsins, en hlaut ekki
brautargengi í kosningum til stjórnar.
Á fundinum snerist Sigurbjörg, dóttir
Gunnars, gegn föður sínum og varaði
fundarmenn við því að greiða hon-
um atkvæði. Ingibjörg Guðnadóttir,
fyrrverandi eiginkona Gunnars, gerði
slíkt hið sama og lét að auki þung orð
falla í garð Gunnars og Jónínu Bene-
diktsdóttur. Aukinheldur sá hún illa
anda í ýmsum fundarmönnum.
Skammast sín
„Ég fór á þennan aðalfund. Þetta er
í fyrsta skipti – þrátt fyrir allar þessar
ásakanir og allt það sem gengið hefur
á í Krossinum – sem ég hef skammast
mín fyrir að vera safnaðarmeðlimur.
Tengdasonur Gunnars, Rúnar Ólafs-
son, stóð upp og lýsti yfir eindregn-
um stuðningi við Gunnar og þá hló
Inga upp í opið geðið á honum,“ seg-
ir Sigurvin og heldur áfram: „Svo stóð
Inga upp og drullaði yfir allt og alla og
kallaði Jónínu strengjabrúðu. Þegar
fundarmenn báðu svo um orðið til að
fá að svara Ingu var málfrelsi fundar-
manna takmarkað – þvert gegn lög-
um og venjum safnaðarins.“
Andleg móðir stjórnarinnar
Eftir fundinn gekk Sigurvin að Sig-
urbjörgu og tjáði henni hug sinn; að
honum hefði blöskrað framkoma
hennar. Sigurbjörg bað hann þá um
að „láta ekki svona“ og spurði hvort
hann vildi ekki biðja með henni
stutta bæn. Í sömu andrá gekk Ingi-
björg að þeim og vildi fá að biðja með
þeim. „Hún sagði orðrétt í bæninni:
„Elsku Guð, ef ég hef eitthvað hlaup-
ið á mig og sært einhvern þá biðst ég
afsökunar en ég lít á mig sem andlega
móður stjórnarinnar,““ segir Sig-
urvin. Eftir að Ingibjörg lét þau orð
falla fékk Sigurvin nóg. „Þá sleppti ég
hendinni og sagði: Ég skammast mín
fyrir að þekkja þig. Svo labbaði ég
þaðan út og hef ekki stigið fæti þarna
inn aftur.“
Sér djöfulinn
Aðspurður hvort satt sé að Ingibjörg
sjái djöfulinn í sumum safnaðarmeð-
limum segir Sigurvin: „Hún sagð-
ist sjá illa anda í ákveðnum aðilum á
þessum fundi.“ Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Ingibjörg sér djöfulinn lík-
amnast í safnaðarmeðlimum. „Hún
hefur alveg misst svona út úr sér
áður. Hún virðist fá miklar sýnir. Hún
er samt kærleiksrík kona að upplagi.“
Gunnar yngri rödd skynseminnar
Sigurvin segir að þegar lætin voru
sem mest á fundinum hafi það ver-
ið Gunnar Ingi Gunnarsson, sonur
Gunnars Þorsteinssonar, sem hafi
verið rödd skynseminnar. Gunnar er,
að sögn Sigurvins, gífurlega efnileg-
ur guðsmaður. „Þegar Inga var búin
að drulla yfir alla og margir höfðu
látið þung orð og ósæmileg falla
rauk Gunnar upp og öskraði á fólkið:
„Hvar er Guð í þessu? Hvar er kær-
leikurinn? Ekki get ég séð hann hér.“
Gunnar er magnaður guðsmaður.“
Breyttist eftir skilnaðinn
Sigurvin segir Ingibjörgu hafa stökk-
breyst eftir skilnaðinn við Gunnar.
„Samt vildi hún skilnaðinn,“ segir
hann. Sigurvin segir markmið Ingi-
bjargar nú vera að öfgavæða Kross-
inn. Fram kom í umfjöllun DV að
Ingibjörg hefði dvalið í Bandaríkjun-
um um hríð, áður en hún sneri aft-
ur til Íslands í fyrra. Þar tilheyrði hún
Christ Gospel-söfnuðinum. „Hún er
að koma með þær áherslur sem þar
eru inn í Krossinn. Ef fram fer sem
horfir fer starfið brátt að snúast um
öfgar og rugl.“ Í helgarblaði DV var
einnig sagt frá því að Krossinn hefði
stuttu eftir stofnun tekið upp sam-
starf við Christ Gospel-söfnuðinn í
Bandaríkjunum, sem aðhyllist bók-
stafstrú og íhaldssemi í kynferðis-
málum. Á síðustu árum hefur Kross-
inn verið að fjarlægjast áherslur
bandaríska safnaðarins. Nú vill Ingi-
björg, sem álítur sig andlega móð-
ur stjórnar Krossins, innleiða þær
áherslur á ný.
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Andleg móðir
Ingibjörg er kærleiksrík
kona að upplagi.
Sigurvin Hreinsson Skammaðist sín fyrir
að vera í Krossinum eftir fundinn örlagaríka.„Hvar er Guð
í þessu? Hvar
er kærleikurinn? Ekki
get ég séð hann hér.
Erlend skúta
eldsneytislaus
Um miðnætti á laugardag barst
hjálparbeiðni frá erlendri skútu
sem hafði orðið eldsneytis-
laus á siglingu á sundunum við
Reykjavík. Hana rak hratt að
landi.
Þórður, einn af björgunar-
bátum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar í Reykjavík var
kallaður út og náði hann fljótt
til skútunnar og aðstoðaði
áhöfn hennar til lands.
Tjöld fuku ofan
af ungmennum
Ferðamaður fauk við Álftavatn
að Fjallabaki á laugardagskvöld
í ofsaveðri. Þar var vindur um 30
metrar á sekúndu en ferðamaður-
inn slasaðist illa á mjöðm. Björg-
unarmenn óku með manninn til
móts við sjúkrabíl og var hann svo
fluttur á sjúkrahús í kjölfarið.
Þá fuku og brotnuðu tjöld í
Landmannalaugum en samkvæmt
upplýsingum frá Landsbjörgu
voru þar rúmlega 20 ungmenni á
aldrinum 15–17 ára.
Bæjarstjórinn segir bæinn í fullum
rétti Slitastjórn Kaupþings fer fram á að
bærinn greiði einn milljarð króna sem hann
tók úr peningamarkaðssjóði hjá Kaupþingi.
Wikileaks-
maður á
Beinni línu
Kristinn Hrafnsson, talsmaður
uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks,
verður á Beinni línu á DV.is í dag,
mánudag, klukkan 14. Kristinn
og Wikileaks hafa staðið í ströngu
undanfarin misseri og nú síð-
ast í baráttu sinni við alþjóðlega
greiðslukortarisa sem hafa viljað
þagga niður í þeim. Kristinn hefur
verið hægri hönd Julians Assange,
forsprakka Wikileaks, síðan hann
hóf störf sem talsmaður síðunn-
ar og verið mjög í sviðsljósi fjöl-
miðla um allan heim. Kristinn
mun svara spurningum lesenda
DV.is og hefur vafalaust frá mörgu
áhugaverðu að segja.