Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Síða 8
SKÓLINN FÓR
EKKI Í ÚTBOÐ
8 Fréttir 23. júlí 2012 Mánudagur
M
argrét Pála Ólafsdóttir,
höfundur Hjallastefn-
unnar, var ráðin skóla-
stjóri Tálknafjarðarskóla
í vikunni. Hreppsnefnd
Tálknafjarðar skrifaði undir viljayf-
irlýsingu við Hjallastefnuna ehf. um
rekstur Tálknafjarðarskóla í maí en
viljayfirlýsingin hefur enga form-
lega þýðingu. Rekstrarformi skól-
ans verður ekki breytt án samþykkis
menntamálaráðuneytisins en sam-
kvæmt heimildum DV ríkir andstaða
við slíkar hugmyndir innan þess.
Ljóst er þó að Hjallastefnan verð-
ur innleidd í skólastarfið og verð-
ur það í fyrsta skipti sem stefnan er
tekin upp á unglingastigi. „Það verða
engar kollsteypur,“ segir Eyrún Ingi-
björg Sigþórsdóttir, oddviti sjálf-
stæðismanna og framkvæmdastjóri
Tálknafjarðarhrepps. Þá segir hún að
gjaldskráin verði óbreytt fyrir næsta
skólaár og ekki standi til að taka upp
skólagjöld á grunnskólastigi.
Ekkert útboð
Rekstur skólans var ekki boðinn út
áður en skrifað var undir viljayfir-
lýsinguna við Hjallastefnuna. „Við
töldum að ekki væri þörf á því,“ seg-
ir Eyrún. Það var hins vegar gert áður
en Hjallastefnan tók við rekstri barna-
skólanna í Garðabæ og Hafnarfirði. Í
umræðu um einkarekstur í skólakerf-
inu hér á landi hefur þeirri skoðun
oft verið haldið á lofti að brýnt sé að
rekstur grunnskóla sé boðinn út áður
en þjónustusamningar eru gerðir
við einkafyrirtæki. Þetta hefur meðal
annars komið fram í umræðum á Al-
þingi og í greinargerð frá landsfundi
Samfylkingarinnar árið 2004. Bæði í
Vestmannaeyjum og á Akureyri hafa
komið upp deilur í tengslum við útboð
á rekstri leikskóla þegar gengið var til
samninga við Hjallastefnuna ehf.
Tálknafjarðarskóli er eini skólinn
á Tálknafirði og því er ljóst að ef hug-
myndir sveitarstjórnarinnar ná fram
að ganga verður enginn valkostur fyr-
ir þá íbúa svæðisins sem vilja að börn-
in sín gangi í hefðbundinn grunn-
skóla. „Fólk hafði heldur ekkert val
áður, það varð bara að fara með börn-
in sín í þennan skóla,“ segir Eyrún.
Tálknafjarðarskóli er sameinaður
leik-, grunn- og tónlistarskóli Tálkna-
fjarðar og um 70 börn nema við skól-
ann. Eyrún segir að samstarfið við
Hjallastefnuna sé fyrst og fremst fag-
leg ákvörðun en fyrsti veturinn verð-
ur eins konar innleiðingarferli. „Við
erum að gera góðan skóla betri,“ full-
yrðir hún og bætir því við að almenn
ánægja sé með Hjallastefnuna og
ráðningu Margrétar Pálu í sveitarfé-
laginu. „Foreldrar og starfsfólk er 100
prósent með okkur í þessu.“
Eignarhald Hjallastefnunnar
Hjallastefnan rekur fjórtán skóla
á Íslandi en 12 þeirra eru á höfuð-
borgarsvæðinu. Fyrirtækið var stofn-
að af Margréti Pálu Ólafsdóttur árið
2000 en hún hafði þá verið leikskóla-
stjóri í áratug og þróað kenningar og
námskrá Hjallastefnunnar. Að sögn
Margrétar Pálu eru aðeins rukk-
uð skólagjöld í þeim grunnskólum
Hjallastefnunnar sem fá lægri fram-
lög frá sveitarfélögum en aðrir skól-
ar. Þá hefur einnig tíðkast að foreldrar
séu látnir greiða aukalega smávægileg
gjöld, svo sem fyrir vefsíður skólanna.
Hjallastefnan ehf. er í meirihluta-
eigu Margrétar Pálu Ólafsdóttur. Út-
gerðarmaðurinn Guðmundur Krist-
jánsson, oft kenndur við Brim hf., á
2,57 prósenta hlut í félaginu. Með-
al annarra hluthafa eru hjónin Inga
Lind Karlsdóttir sjónvarpskona og
Árni Hauksson fjárfestir, en Inga Lind
og Guðmundur sitja bæði í stjórn fé-
lagsins. Þar situr einnig Þór Sigfússon,
fyrrverandi forstjóri Sjóvár, en stutt
er síðan DV fjallaði um lánveitingar
hans út úr tryggingafélaginu. Hann
lánaði 67 prósent af bótasjóði þess til
dótturfélaga Milestone.
Skoða skólabúninga
Aðspurð hvort til standi að taka upp
skólabúninga í Tálknafjarðarskóla
segir Eyrún að komið hafi upp sú
hugmynd að ákvörðun um það verði
tekin í samráði við nemendur á ung-
lingastigi. Þá gæti einnig hugsast að
nemendur hanni búningana sjálf-
ir að einhverju leyti. Hjallastefnan
nýtur nokkurrar virðingar og benda
kannanir til þess að nemendur við
skólana standi sig sérstaklega vel á
efri námsstigum.
n Hjallastefnan fékk Tálknafjarðarskóla n Margrét Pála skólastjóri„Fólk hafði heldur
ekkert val áður,
það varð bara að fara með
börnin sín í þennan skóla.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Eyrún Ingibjörg Oddviti sjálfstæðis-
manna á Tálknafirði vill að Tálknafjarðar-
skóli sé einkarekinn.
Margrét Pála Forsprakki Hjallastefnunnar hefur verið ráðinn skólastjóri Tálknafjarðarskóla.
Fangelsisstjóri í fangelsi
n Sakfelldur fyrir fjárdrátt
G
eirmundur Vilhjálmsson,
fyrrverandi fangelsisstjóri
á Kvíabryggju, var dæmdur
í átta mánaða fangelsi fyr-
ir helgi. Dóminn fékk hann fyr-
ir að draga sér fé að upphæð 1,7
milljónir króna og ýmis verðmæti
sem tilheyrðu fangelsinu. Héraðs-
dómur Vesturlands kvað dóminn
upp fyrir helgi og segir fangels-
isstjórann fyrrverandi hafa mis-
notað alvarlega þann trúnað sem
honum var sýndur sem forstöðu-
manni ríkisstofnunar. Geirmundur
gekkst við helmingi brotanna, sem
flest ganga út á að setja tilhæfu-
lausa reikninga í bókhald fangels-
isins, að nota greiðslukort þess til
kaupa á vörum og þjónustu í eig-
in þágu og draga sér fé af reikning-
um fangelsisins. Hann neitaði hins
vegar öðrum brotum, eins og að
hafa selt bifreið í eigu fangelsisins
og stungið söluhagnaðinum í eig-
in vasa. Hann var sakfelldur fyrir
öll þau brot sem hann var ákærð-
ur fyrir.
Í dóminum segir að Geirmund-
ur hafi ekki áður gerst sekur um
refsiverða háttsemi og að hann hafi
nú þegar endurgreitt um 900.000
krónur. Hæfileg refsing var því
talin vera 8 mánaða fangelsi en þar
af eru 5 mánuðir skilorðsbundnir.
Þó ekki sé hægt að fullyrða um
það að svo stöddu má gera ráð
fyrir því að kaldhæðni örlaganna
verði slík að fangelsisstjórinn fyrr-
verandi muni afplána dóm sinn í
fangelsinu á Kvíabryggju líkt og svo
margir aðrir sem gerst hafa sekir
um svokölluð hvítflibbabrot.
Sendur á Kvíabryggju? Ætla má að
Geirmundur afpláni dóm sinn á Kvíabryggju.
Leiðrétting
Í umfjöllun um málefni
Krossins í helgarblaði DV urðu
þau mistök að sagt var að fimm
konur hefðu sakað Gunnar
Þorsteinsson, fyrrverandi for-
stöðumann félagsins, um kyn-
ferðislegt áreiti árið 2010. Hið
rétta er að sjö konur stigu fram
og sökuðu hann um brotin. Þá
var röng systir sögð hafa orðið
fyrir áreiti eftir barnsburð. Í
blaðinu var sagt að það hefði
verið Sigríður Guðnadóttir, en
það var systir hennar Sólveig
sem varð fyrir því. Leiðréttist
það hér með.
Flug til Akureyrar
næsta sumar
Góð nýting hefur verið á sæt-
um í flugvélum Icelandair á milli
Keflavíkur og Akureyrar í sumar.
Nú þegar hefur verið ákveðið að
halda fluginu til Akureyrar áfram
næsta sumar. Icelandair bauð í
fyrsta skipti upp á slíkar ferðir í
sumar.
Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair, sagði í
samtali við Ríkisútvarpið að flogið
væri fjórum sinnum í viku út ágúst
og tvisvar í viku í september. Þetta
er hugsað fyrir farþega sem koma
hingað til lands og ætla sér beint
norður.
Krabbameins-
sjúkir sendir heim
RÚV greindi frá því um helgina
að bæði geislatækin sem notuð
eru til krabbameinsmeðferðar á
Landspítalanum biluðu í síðustu
viku. Því þurfti að senda krabba-
meinssjúklinga heim. Annað tæk-
ið er komið fimm ár yfir eðlilegan
nýtingartíma. Nýtt tæki kostar um
400 milljónir króna en ekki hef-
ur fengist fjárveiting til að kaupa
ný tæki. Björn Zoëga, forstjóri
Landspítalans, segir að þetta sé
mjög alvarlegt mál. Hann segir
einnig Landspítalann hafa varað
við því í tvö ár að slíkt gæti gerst
ef nýtt tæki yrði ekki keypt. Engin
formleg svör hafa borist frá hinu
opinbera um hvort peningar fáist
fyrir nýju geislatæki.