Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Síða 12
F
járfestirinn Einar Sveinsson,
föðurbróðir Bjarna Benedikts-
sonar, er fluttur til Bretlands.
Einar hefur ekki gefið fjölmiðl-
um skýringar á búferlaflutn-
ingum sínum en ljóst er að viðskipta-
veldi hans á Íslandi er ekki svipur
hjá sjón miðað við það sem áður var.
Áður bjó hann á Bakkaflöt 10 en þar
eru skráð 12 einkahlutafélög, ýmist á
hann eða son hans Benedikt Einars-
son. Skil hafa verið vanrækt á árs-
reikningum nær allra þeirra til Ríkis-
endurskoðunar síðustu ár. Benedikt
hefur látið nokkuð að sér kveða í við-
skiptalífinu, meðal annars hjá bif-
reiðaskoðunarfélaginu Tékklandi, en
kona hans er poppsöngkonan Birgitta
Haukdal. Þau hafa nú flutt lögheim-
ili sitt að Bakkaflöt 10 þar sem Einar
bjó, en áður bjuggu þau á Bakkaflöt 3.
Nýlega kom fram í Viðskiptablaðinu
að Birgitta situr í varastjórn félags-
ins Leirlækjar ehf. sem eiginmaður
hennar stofnaði fyrir skömmu.
Veldi rís
Einar og Benedikt Sveinssynir voru
umsvifamiklir í íslensku viðskiptalífi
fyrir hrun. Einar Sveinsson var for-
stjóri tryggingarfélagsins Sjóvár-Al-
mennra um áratugaskeið og Benedikt
gegndi stöðu stjórnarformanns í fé-
laginu sem var að stórum hluta í eigu
þeirra bræðra. Í september árið 2003
seldu Einar og Benedikt hlut sinn í
tryggingarfélaginu til Íslandsbanka
fyrir 5,2 milljarða króna. Íslandsbanki
greiddi bræðrunum að hluta til með
hlutabréfum í bankanum og í kjöl-
far sölunnar gerði Íslandsbanki yfir-
tökutilboð í Sjóvá. Meðan á söluferl-
inu stóð var Einar bæði forstjóri Sjóvár
og stjórnarmaður í Íslandsbanka en
hann hafði setið í stjórn bankans frá
árinu 1991. Stuttu eftir kaupin var
hann gerður að stjórnarformanni
bankans. Þorgils Óttar Mathiesen,
fjármálastjóri Íslandsbanka, tók við
forstjórastarfinu í Sjóvá og Bjarni Ár-
mannsson, bankastjóri Íslandsbanka,
varð stjórnarformaður tryggingarfé-
lagsins.
Veldi fellur
Eftir Sjóvár-ævintýrið byggðu bræð-
urnir upp olíufyrirtækið N1 og móð-
urfélag þess, BNT. Þeir voru helstu
eigendur BNT um árabil og Einar sat í
stjórn félagsins. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, var
stjórnarformaður N1 og BNT á árun-
um 2005 til 2008 en eftir að hann var
kjörinn formaður flokksins tók Einar
Sveinsson við stjórnarformannsstöð-
unni. Þá settist jafnframt Benedikt Jó-
hannesson, frændi þeirra sem nú er
stjórnarformaður Nýherja, í stjórn N1
og BNT.
Á meðan Bjarni Benediktsson og
Einar Sveinsson gegndu stjórnarfor-
mennsku í N1 ruku skuldir félags-
ins upp úr öllu valdi. Það var tekið til
fjárhagslegrar endurskipulagningar
í fyrra en þá misstu Einar og Bene-
dikt Sveinssynir eignarhlut sinn og
kröfuhafar tóku N1 yfir. Félagið er nú
í meirihlutaeigu Framtakssjóðs Ís-
lands, Íslandsbanka og Lífeyrissjóðs
verslunarmanna. Hermann Guð-
mundsson starfaði sem forstjóri N1 á
meðan Einar og Benedikt áttu félagið
en í þarsíðustu viku var honum sagt
upp störfum.
Máttur þverr
Einar hefur átt hlutabréf í ótal fyr-
irtækjum og setið í stjórnum
þeirra bæði sem stjórnarformað-
ur og forstjóri. Eitt þessara félaga
er eignarhaldsfélagið Hrómund-
ur sem tapaði tæplega sex millj-
örðum króna árið 2008. Einar á
helmingshlut í félaginu og er fram-
kvæmdastjóri þess, en það átti stór-
an hlut í fjárfestingarfélaginu Mætti
ehf. þar sem Einar sjálfur gegndi
stöðu stjórnarformanns. Máttur
átti hlutabréf í Icelandair, BNT og
eignarhaldsfélaginu Vafningi en
framkvæmdastjóri Máttar var Gunn-
laugur Sigmundsson, faðir Sig-
mundar Davíðs, formanns Fram-
sóknarflokksins. Í stjórn Máttar sátu
Bjarni Benediktsson, Einar Sveins-
son, Karl Wernersson og Guðmund-
ur Ólafsson en félagið var úrskurðað
gjaldþrota árið 2010.
Ljós í myrkri
Bjarni Benediktsson, sonur Benedikts
Sveinssonar, er formaður Sjálfstæðis-
flokksins. Ef marka má skoðanakann-
anir er líklegt að Bjarni Benediktsson
verði forsætisráðherra Íslands eft-
ir næstu þingkosningar. Vel má vera
að litið sé á Bjarna sem vonarstjörnu
Engeyjarættarinnar og þess vænst að
hann feti í fótspor nafna síns heitins.
Samt sem áður hafa viðskiptagjörn-
ingar fortíðar flækst nokkuð fyr-
ir Bjarna og munu án efa halda því
áfram um ókomna tíð. Sjóvá tapaði
um þremur milljörðum á viðskiptum
sínum með Vafningi, en þau hófust
með fasteignaverkefni Bjarna og Karls
Wernerssonar í Makaó. Þá hefur verið
staðfest að Bjarni skrifaði undir fölsuð
skjöl þegar hlutabréf í Vafningi voru
veðsett hjá Glitni í febrúar 2008. Líf-
eyrissjóðir og bankar töpuðu gríðar-
legum fjármunum á hlutabréfaeign
í N1 meðan Bjarni var stjórnarfor-
maður félagsins og fram kom í DV í
febrúar síðastliðnum að fyrirtæki og
eignarhaldsfélög sem tengjast Bjarna
Benediktssyni skulda rúmlega 150
milljarða króna í bankakerfinu. Stór
hluti skuldanna hefur verið afskrifað-
ur en taka ber fram að hér er einung-
is átt við fyrirtæki sem Bjarni stjórnaði
auk félaga í eigu þeirra. n
12 Fréttir 23. júlí 2012 Mánudagur
EngEyingar
missa
tökin
Engeyjarveldið
Engeyjarætt er rakin til hjónanna Ólafar
Snorradóttur og Péturs Guðmundssonar
sem uppi voru á fyrri hluta 19. aldar.
Þau bjuggu á eyjunni Engey í Kollafirði
sem ættin er kennd við. Meðal þeirra
Engeyinga sem komist hafa til áhrifa í
íslensku viðskiptalífi eru Einar Sveinsson
og Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Einar
og Benedikt
eru synir Sveins
Benedikts-
sonar sem var
bróðir Bjarna
Benediktssonar
forsætisráð-
herra. Hann
var faðir Björns
Bjarnasonar,
fyrrverandi dómsmálaráðherra, og
Valgerðar Bjarnadóttur, þingkonu
Samfylkingarinnar. Hér á myndinni
má sjá Benedikt Sveinsson, langafa
Bjarna Benediktssonar og afa Björns
Bjarnasonar. Meðal annarra þekktra
Engeyinga eru Benedikt Jóhannesson,
stjórnarformaður Nýherja og fram-
kvæmdastjóri Talnakönnunar, Halldór
Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra,
og Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi
þingkona.
n Einar Sveinsson er fluttur af landi brott n Skuldsetti N1 úr hófi fram
Farinn til Bretlands Einar
Sveinsson var einn valdamesti
maður viðskiptalífsins.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Engeyjarprinsinn Benedikt, sonur Einars, og eiginkona hans, Birgitta Haukdal. Hún er
varamaður í stjórn Leirlækjar ehf.
Valdaætt í vanda Feðgar og frændur sem þekkja ekki annað en að vera í valdastöðum á Íslandi. Hér má sjá Benedikt Sveinsson, Bjarna
Benediktsson og Björn Bjarnason.