Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Side 19
Neytendur 19Mánudagur 23. júlí 2012
Varið ykkur á vírburstunum
n Mikilvægt er að fylgjast með hvort vírar séu farnir að losna
V
írburstar sem notaðir eru
til að hreinsa grill geta verið
varasamir og valdið alvarleg-
um slysum á fólki. Þetta kem-
ur fram á heimasíðu Neytendastofu
en þar segir að þeim hafi borist
ábending um þetta frá Bandaríkjun-
um og víðar.
Vírburstarnir eru notaðir til að
hreinsa grillin en við það geta vírarn-
ir setið eftir á grindinni. Næst þegar
grillið er notað er hætta á að vírarn-
ir festist við matinn sem getur haft
alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Á heimasíðu Neytendastofu segir
að dæmi séu um að fólk hafi komið á
slysadeild með víra fasta í hálsinum,
maga, þörmum og öðrum líffærum
eftir að hafa borðað grillaðan mat
og hafi í einhverjum tilvikum þurft
skurðaðgerð til að fjarlægja vírana.
Neytendastofa hafi ekki fengið upp-
lýsingar um sambærileg atvik hér á
landi en telji það mikilvægt að fólk sé
meðvitað og skipti reglulega um vír-
bursta, sérstaklega þegar vírarnir eru
byrjaðir að losna af. Einnig sé ráðlagt
að hrista þá fyrir og eftir notkun. Þá
sé mikilvægt að hugsa vel um grill og
skoða yfirborð þess áður en matur
er settur á það aftur til að koma í veg
fyrir slys. Ekki sé talið að um eina
ákveðna tegund vírbursta sé að ræða
heldur eigi þetta við um vírbursta al-
mennt.
Varasamir burstar
Fólk hefur komið á slysadeild með
víra fasta í hálsi og maga.
n Símafyrirtækin skyldug til að setja þak á reikninga n Nær ekki yfir símtöl og SMS-sendingar
Í
slensk símafyrirtæki þurfa að fara
eftir reglugerð ESB sem skikk-
ar fyrirtækin til að setja þak á
gagnanotkun viðskiptavina sinna
sem nota farsímann á ferðalög-
um. Slíkt þak hefur verið til staðar
þegar fólk ferðast innan Evrópu en
nú bjóða flest símafyrirtækin upp á
þjónustuna um allan heim.
Þegar gagnanotkunin hefur náð
ákveðinni upphæð þá er lokað fyr-
ir hana og þannig komið í veg fyrir
að símaeigendur fái himinháa sím-
reikninga að fríi loknu. Vilji þeir eiga
þess kost á að hækka þakið geta þeir
haft samband við sitt símafyrirtæki
og látið opna fyrir gagnanotkunina
á ný.
Passið símtölin
Þessi nýja þjónusta nýtist vel þeim
sem nota tölvupóstinn og internetið
mikið á ferðalögum. Notendur geta
því verið öruggari hvað gagnanotk-
un varðar, hvar í heiminum sem
þeir ferðast, og verið vissir um að
reikningurinn fari ekki yfir ákveðin
mörk. Þakið virkar hins vegar
einungis á gagnanotkun sem kallast
einnig reikinotkun og símaeigendur
verða því að vera á varðbergi hvað
varðar símtöl og sms-sendingar. DV
hefur tekið saman upplýsingar um
hvað skal varast þegar kemur að
farsímanotkun á ferðalaginu erlend-
is. Upplýsingarnar voru fengnar af
heimasíðum símafyrirtækjanna og
úr grein á vef norska dagblaðsins
Verdens Gang, vg.no.
1 Notið Wi-Fi Stilltu símann á Wi-Fi en þannig er hægt að
fara ókeypis á netið. Á Wi-Fi-svæð-
um þarf ekki að greiða fyrir að fara
á netið til dæmis til að lesa dagblöð,
skoða veðurspá, opna tölvupóst eða
skoða landakort. Það má finna Wi-Fi
á mörgum stöðum svo
sem kaffihúsum.
2 Láttu hringja í þig Þegar þú
ert í útlöndum er í
flestum tilfellum ódýrara
að taka á móti símtölum að heiman
en að hringja heim. Þótt þú greiðir
fyrir móttekið símtal erlendis þá er
gjaldið lægra en þegar þú hringir
heim. Mikilvægt er að kynna sér
hvort viðbótargjald bætist við
móttekin símtöl hjá viðkomandi
fjarskiptafyrirtæki.
3 Ekki hringja í ferðafélag-ana Reyndu að komast hjá því
að hringja í þá sem þú ferðast með
því þú borgar fyrir símtal til Íslands
og ferðafélaginn borgar fyrir að taka
við símtali frá Íslandi.
4 Skype Það er hægt að hringja
frítt með Skype-
forritinu og öðrum
forritum, eins og
Viber. Það verður þó
að hafa í huga að til þess að hringja
frítt verður viðtakandi símtalsins
einnig að vera með sama forrit.
5 Talhólf Gott sparnaðarráð er að aftengja talhólfið áður en
þú ferð til útlanda. Ástæðan er sú
að þú greiðir fyrir símtöl sem enda í
talhólfinu þínu eins og um móttek-
in símtöl sé að ræða þegar þú ert
erlendis.
6 SMS-sendingar Það getur verið góður kostur að nota
SMS en hafa skal þó í huga að kostn-
aður við að senda SMS frá útlöndum
er meiri en á Íslandi og því gæti
verið hagkvæmara að hringja en að
senda mörg SMS.
7 Ekki nota íslenska stafi Þegar sent er sms með sér-
íslenskum stöfum fækkar stöfum á
hvert sms úr 160 í 70. Þannig gæti
þurft tvö til þrjú SMS-skilaboð með
séríslenskum stöfum til að senda
skilaboð sem annars myndu passa í
eina sendingu án íslensku stafanna.
8 Notaðu spjallið Spjallið er enn
ódýrara en sms
og í því sambandi
má nefna MSN,
Google Talk og iPhone
iMessage.
9 MMS notkun Þegar mms-skilaboð eru send erlendis þá
er um gagnanotkun að ræða og slíkt
getur verið kostnaðarsamt ef skeytin
eru stór. Hægt er að senda mms-
skilaboð til útlanda ef móttakandinn
er með íslenskt númer. Ekki er
hins vegar hægt að senda mms úr
íslensku númeri í erlend farsíma-
númer.
10 Langt frí Sértu á leið í langt ferðalag er gott ráð að taka
SIM-kortið úr símanum og fá
sér símakort í viðkomandi landi.
Mundu þó að láta vini og fjölskyldu
heima fá nýja númerið.
11 Passaðu þig á leikjunum njallsímaleikir geta halað nið-
ur upplýsingum sem eru oft dýrar.
Þótt leikurinn sjálfur þurfi ekki á
upplýsingunum að halda þá koma
oft upp auglýsingar og aðrar tilkynn-
ingar sem þýðir að síminn eða forrit
í honum er að sækja gögn. Slíkar
gagnasendingar um farsímanetið
geta verið mjög kostnaðarsamar
þegar ferðast er erlendis.
12 Slökktu á gagna-
sendingum Það
er best að slökkva
á gagnasendingum
farsíma áður en farið
er til útlanda. Alla snjallsíma má
stilla þannig að þeir sendi ekki
gögn þegar þeir eru í reikisambandi
erlendis. Með þessu kemur þú í veg
fyrir að síminn eða forrit í honum
sæki gögn að óþörfu og safni þar
með aukakostnaði.
Þak hjá íslenskum
símafyrirtækjum
Tal 10.000 kr.
Vodafone 50 evrur
Síminn 50 evrur
Hringdu 50 evrur*
Alterna 50 evrur
Nova 50 evrur
* Viðskiptavinir sem eru í ESB-landi fá sms þegar reikningur hefur
náð 50 evrum
Forðastu háan símareikning
Hár símareikningur
Það getur margborgað
sig að fara varlega í síma-
notkunina erlendis.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is