Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Side 20
Passaðu hárið í sólinni
n Nokkur ráð til að fara vel með hárið í sumar
Þ
að er afar mikilvægt að vernda
hárið fyrir sólinni. Ef hár er
viðkvæmt eða mikið með-
höndlað með efnum þarf að
fara sérstaklega varlega. Ef sól skín
mikið á hárið þá er það mjög fljótt að
þorna upp og hægara sagt en gert að
laga það án þess að klippa það.
Hér eru nokkur ráð sem sniðugt er
að nýta sér
n Vertu helst með eitthvað yfir hárinu ef
þú ætlar að eyða miklum tíma í sólbaði. Þú
getur verið með buff, hárband eða annað
sambærilegt.
n Ef þú ert með fasta skiptingu í hárinu
vertu þá vakandi yfir því að þú getur brunnið
í skiptingunni. Breyttu reglulega um skipt-
ingu, slepptu henni með því að greiða hárið
beint aftur eða notaðu sólarvörn í hárið. Þú
getur keypt alls kyns sólarvörn fyrir hár í
úðaformi á hárgreiðslustofum.
n Það er ekki nóg að verja efsta hluta
hársins með því að nota hárband. Endar
hársins eru að sjálfsögðu elsta hárið og þess
vegna viðkvæmast. Ef þú ert í þeirri aðstöðu
að geta ekki hulið allt hárið reyndu þá að
verja frekar endana.
n Ef þú ætlar að eyða sólardegi í sund-
lauginni vertu þá með hárið í snúð eða
fléttu. Hárið þornar mikið í klórvatni, svo
ekki sé minnst á þegar sólin skín líka. Ef þú
hefur tök á settu þá einhverja góða næringu
í hárið og settu það svo í snúð eða fléttu.
n Þegar þú kaupir þér nýjar hárvörur talaðu
þá við fagfólk og fáðu ráð um hvað þú ættir
að kaupa fyrir þitt hár í sumar.
Gleðilegt hársumar!
Blásari á kremið
Ef þú hefur einhvern tímann horft
á kökuna sem þú varst að bera
krem á og hugsað að þú vildir geta
gert hana sléttari þá er hér hin
fullkomna lausn.
Þú berð kremið á eins og
vanalega, mjög gott að nota bara
pönnukökuspaða eða annað sam-
bærilegt áhald. Þegar búið er að
slétta eins vel og hægt er með því
áhaldi þá er sniðugt að ná í hár-
blásarann, stilla á minnsta blástur
og mesta hita. Blæstrinum er beint
yfir allt yfirborð kökunnar og öll
för hverfa með smá hita. Kakan
glansar meira og helst þannig þó
svo hún kólni aftur.
Náttúruleg
lýsing
Það er til náttúruleg aðferð til að
lýsa hár. Ef þig langar ekki að fara
í strípur eða láta efnavinna hárið
eða ert jafnvel bara að spara þér
pening þá er þetta gamla hús-
ráð alveg þess virði að prófa það.
Það eina sem þú þarft er sítróna
og vatn. Þú skerð tvær sneiðar
af sítrónunni og setur í pott með
með hálfum lítra af vatni. Leyfðu
þessu svo að sjóða í um það bil
klukkustund og ef vatnið fer að
verða eitthvað lítið í pottinum
bættu þá bara við. Leyfðu þessu
svo að kólna og settu í úðabrúsa.
Úðaðu svo í hárið þar sem þú vilt
fá smá lýsingu í það en mundu að
ef þú ferð í sól lýsist hárið ennþá
meira.
Sykurpúði í
púðursykur
Það kannast flestir við það að
þegar púðursykurinn á heimilinu
harðnar þá eigi maður að setja
smá brauðbita ofan í boxið/pok-
ann og þá mýkist púðursykurinn
upp. Vankantar þessa eru hins
vegar að oft vill þá fara brauð-
mylsna í púðursykurinn sem
mörgum hugnast ekki.
Annað frábært ráð til að mýkja
upp púðursykurinn er að setja
sykurpúða ofan í púðursykurílátið.
Þeir gera alveg sama gagn og það
fer líka miklu minna fyrir þeim.
Þeir molna ekki og koma í veg fyrir
að púðursykurinn verði harður. Hárið í sólinni Farðu
vel með hárið þitt í sumar.
fegrunarráð
Það þarf ekki að vera tímafrekt eða dýrt að líta vel út. Það er hægt að fara ýmsar leiðir til að líta vel út og hér
eru ráð frá nokkrum tískusérfræðingum sem vert er að tileinka sér.
20 Lífsstíll 23. júlí 2012 Mánudagur
1 Notaðu þurrsjampó
Notaðu þurrsjampó þegar þér finnst hárið vera farið að
detta niður. Settu það í rótina og þú munt fá ótrúlega
fyllingu.
4 Hættu að plokka Flestar
konur plokka of mikið af báðum endum af augabrúnum
sínum og þó sérstaklega plokka þær of mikið á milli þeirra.
Leggið frá ykkur plokkarann og látið fagfólk um þetta.
7 Blástu hárið rétt Blástu upp í
móti ef þú vilt fá fyllingu í hárið en niður á hárið ef þú vilt
minnka loftið í hárinu.
2 Glimmernaglalakk Settu
pínulítið glimmer í naglalakkið þitt og þá áttu allt í einu
alveg glænýtt naglalakk án þess að þurfa að kaupa þér nýtt.
5 Roði í kinnum Ímyndaðu þér að
andlit þitt sé eins og klukka þegar þú horfir í spegilinn. Settu
smá kinnalit á klukkan 10 og klukkan 2 og sjáðu hvað þú
virðist miklu frísklegri.
8 Nuddaðu andlitið Þegar þú
berð á þig andlitskrem, nuddaðu andlitið í leiðinni. Það
eykur blóðflæði og þú færð náttúrulega útgeislun.
3 Hvítara bros Kaffi gerir tennurnar
dekkri. Ef þú pantar þér kaffi, pantaðu þá kaffi með
léttmjólk, ekki af því hún er léttari heldur af því það fer betur
með tennurnar og þær verða síður dökkar.
6 Rakaðu mjúka húð Láttu
það vera þitt síðasta verk í sturtunni að raka þig undir
höndum eða á fótum. Húðin og hárin hafa þá fengið nægan
tíma til að mýkjast og það eru minni líkur á að þú skerir þig.
9 Mjúkar varir Settu þykkt lag af
varasalva á þig áður en þú ferð í sturtu. Þurrkaðu hann svo
af þegar þú kemur úr sturtu. Varirnar verða silkimjúkar.
9