Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Qupperneq 22
22 Menning 23. júlí 2012 Mánudagur
Djass á Kex
n Djasstónleikaröðin á Kex Hostel heldur áfram
K
vartett dansk-íslensk-
færeyska kontrabassa-
leikarans Richards
G. Andersson kem-
ur fram á næstu tónleikum
í djasstónleikaröðinni á Kex
hostel. Auk Anderssons skipa
hljómsveitina þeir Kvartan
Valdemarsson á píanó, Ari
Bragi Kárason á trompet og
trommuleikarinn Einar Schev-
ing. Í tilkynningu vegna tón-
leikanna kemur fram að þeir
muni flytja „sígræn djasslög
úr ýmsum áttum“. Þar kem-
ur einnig fram að þetta verði
í fyrsta sinn sem hljómsveitin
komi fram á tónleikum hér á
landi.
Djasstónleikar hafa verið
haldnir á Kex hostel undan-
farnar vikur og hefur staðurinn
náð að koma sér ágætlega fyr-
ir í íslenskri dægurmenningu.
Staðurinn er meðal annars í
eigu knattspyrnumannanna
Eiðs Smára Guðjohnsen, Her-
manns Hreiðarssonar og
Péturs Hafliða Marteinsson-
ar auk handknattleiksþjálf-
arans Dags Sigurðssonar og
athafnamannsins Kristins Vil-
bergssonar. Kex er staðsett í
húsnæði sem eitt sinn hýsti
kexverksmiðjuna Frón við
Skúlagötu.
Tónleikarnir fara fram á Kex
hostel, Skúlagötu 28, þriðju-
daginn 17. júlí og hefjast þeir
klukkan 21.00. Gert er ráð fyr-
ir að tónleikarnir standi í um
tvær klukkustundir með hléi.
Aðgangur er ókeypis líkt og á
öðrum tónleikum í djasstón-
leikaröðinni og eru bar og eld-
hús staðarins opin.
Rokkjötnar
í Kaplakrika
Þann 8. september verða
haldnir risatónleikar í
íþróttahúsinu í Kaplakrika
þar sem áherslan verður
lögð á rokk í þyngri kantin-
um. Á tónleikunum, sem
hlotið hafa nafnið Rokkjötn-
ar 2012, koma fram átta af
stærstu rokksveitum lands-
ins. Þær rótgrónustu eiga
rætur sínar að rekja allt
til níunda áratugarins á
meðan aðrar eru nýrri af
nálinni, en allar eiga það
þó sameiginlegt að spila
ósvikna rokktónlist af sveitt-
ari gerðinni. Ekkert verður
til sparað, hljóð- og ljósa-
kerfi verður af stærðargráðu
sem fátítt er að prýði slíkar
samkomur og umgjörðin öll
hin glæsilegasta.
Hljóm sveitirnar sem
koma fram eru HAM,
Skálm öld, Sólstafir, Brain
Police, The Vintage
Caravan, Bootlegs, Endless
Dark og Momentum. Miða-
verð er 4.990 krónur.
Minnast Ellýjar
Fyrir þá sem hugsa fram í tí-
mann er vert að geta tónleik
sem haldnir verða þann 6.
október næstkomandi þar
sem rifjaður verður upp fer-
ill Ellýjar Vilhjálmsdóttur í
máli og myndum. Vitaskuld
verður einnig tónlistin í önd-
vegi. Ættingjar Ellýjar standa
að tónleikunum ásamt Senu,
en þeir verða í Laugardals-
höllinni. Á meðal staðfestra
tónlistarmanna eru þær
Andrea Gylfadóttir, Diddú,
Eivør, Ellen Kristjánsdótt-
ir, Guðrún Gunnarsdóttir,
Kristjana Stefánsdóttir, Lay
Low, Ragnhildur Gísladótt-
ir og Sigga Beinteins. Áætl-
að er að hefja miðasölu í lok
ágústmánaðar.
Nýdönsk
25 ára
Hljómsveitin Nýdönsk fagn-
ar í ár 25 ára afmæli sínu og
í tilefni af því er blásið til
stórtónleika í Eldborgar-
sal Hörpu, laugardaginn 22.
september og menningar-
húsinu Hofi Akureyri 29.
september.
Einvalalið tónlistarfólks
mun samfagna piltunum
og koma fram þetta kvöld.
Þetta eru þau Högni Egils-
son og Sigríður Thorlaci-
us úr Hjaltalín, KK, Bryndís
Halla Gylfadóttir, Samúel
Jón Samúelsson, Urður Há-
konardóttir úr Gus Gus auk
hinnar einstöku Svanhildar
Jakobsdóttur.
Endalok á
epískum þríleik
E
inum magnaðasta og
vinsælasta kvikmynda-
þríleik síðustu ára lýk-
ur með myndinni The
Dark Knight Rises sem
frumsýnd verður í kvikmynda-
húsum hér á landi á miðviku-
dag. Þar með lýkur sögunni
um endurreisn Batman sem
hófst árið 2005 með Batman
Begins og var fram haldið með
einni vinsælustu mynd allra
tíma, The Dark Knight, árið
2008.
The Dark Knight Rises hefst
átta árum eftir að síðustu mynd
lauk. En þá hafði vonarstjarna
Gotham-borgar, Harvey Dent,
gengið af göflunum. Batman,
sem líkt og áður er leikinn af
Christian Bale, tók á sig sökina
á dauða hans til þess að halda
uppi glansmyndinni. Á henni
voru byggð lög sem gerðu að
verkum að yfirvöldum tókst
að útrýma skipulagðri glæpa-
starfsemi.
En fljótlega kemur í ljós að
undir niðri grasserar hið illa í
bókstaflegri merkingu undir
forystu illmennisins Bane, sem
leikinn er af Tom Hardy, bráð-
gáfuðum og siðblindum tarfi
sem stýrir aðgerðum gegn Bat-
man og hans fólki.
Til að gera langa sögu stutta
eru íbúar Gotham enn og aftur
í hættu en Batman hefur ver-
ið í felum í átta ár. Skakkur og
skældur eftir að hafa brennt
kertið í báða enda of lengi.
Hann þarf að taka á honum
stóra sínum til að komast aftur
af stað. Í leit sinni að Bane hitt-
ir hann fyrir Kattarkonuna sem
leikin er af Anne Hathaway.
Það er allt til staðar í The
Dark Knight Rises. Persónurn-
ar, beygjur og sveigjur í sögu-
þræðinum, mikilfengleikinn og
hasarinn. Samt sem áður gat ég
ekki hrist af mér þá tilfinningu
meðan á myndinni stóð að eitt-
hvað vantaði upp á. Það kom
ekkert í myndinni beint á óvart
og þó Tom Hardy hafi túlkað
hinn geðsjúka Bane frábærlega
þá verður að segjast að hann
stóðst Jókernum ekki snún-
ing sem hið hreina illmenni.
Kannski ósanngjarn saman-
burður en það er ekki annað
hægt en að dæma þessa þriðju
og síðustu mynd út frá þeim
tveimur sem á undan komu.
Það sem heillaði marga við
þessa upprisu Batman sem
Nolan hefur boðið upp er
hversu myrkar og temmilega
raunsæjar myndirnar hafa ver-
ið – af ofurhetjumyndum að
vera. Það vantar ekkert upp á
myrkrið en á nokkrum stöð-
um fannst mér raunsæið tap-
ast. Eins og þegar Batman slas-
ast og hversu fljótur hann er
að jafna sig. Vissulega er þetta
skírskotun í samskipti Bat-
man og Bane úr teiknimynda-
sögunum en óraunverulegt
engu að síður. Þá er enn eitt at-
riði sem mér þótti sérkennilegt
með meiru. Þar sem fylkingar
skæruliða og lögreglumanna
mætast. Einhvern veginn enda
átök þessara fylkinga sem eru
vopnaðar frá toppi til táar í
handalögmálum.
Engu að síður er The Dark
Knight Rises alltaf góð mynd.
Það er allt til alls þó mér finn-
ist hún ekki jafn sannfærandi
og fyrri tvær. Enda frábærar
myndir þar á ferð. Ég gaf Bat-
man Begins fjórar stjörnur á
sínum tíma og ég gaf The Dark
Knight fjórar og hálfa. Í þeim
samanburði finnst mér sann-
gjarnt að gefa The Dark Knight
Rises þrjár og hálfa þó reyndar
vildi ég geta skellt á hana fjórð-
ung úr stjörnu til viðbótar. Það
væri 75 af 100. En engu að síð-
ur epísk endalok á epískum
þríleik.
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Bíómynd
The Dark
Knight Rises
IMDb 9,2 RottenTomatoes 87% Metacritic 78
Leikstjórn: Christopher Nolan
Handrit: Christopher Nolan, Jonathan
Nolan
Aðalhlutverk: Christian Bale, Tom
Hardy, Anne Hathaway, Marion
Cotillard, Joseph Gordon-Levitt, Gary
Oldman, Morgan Freeman, Michael
Caine.
164 mínútur
Batman Begins – fjórar stjörnur
„Ég gaf Batman Begins fjórar stjörnur á
sínum tíma og ég gaf The Dark Knight
fjórar og hálfa. Í þeim samanburði
finnst mér sanngjarnt að gefa The
Dark Knight Rises þrjár og hálfa.“
Kex hostel
Aðgangur er ókeypis
líkt og á öðrum tón-
leikum í djasstónleika-
röðinni og eru bar og
eldhús staðarins opin.
MynD SIgTRygguR ARI
„Það vantar
ekkert upp á
myrkrið en á nokkrum
stöðum fannst mér
raunsæið tapast.
Bane Er
hrottalegur
í myndinni.