Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Qupperneq 24
D
ramatík og Opna breska
meistaramótið í golfi fara
saman eins og flís við rass og
mótið þetta árið var engin
undantekning. Nákvæm-
lega ekkert benti til annars þegar
fjórar brautir voru eftir hjá Ástralan-
um Adam Scott en að hann myndi
hampa Silfurkönnunni og það án
þess að hafa mikið fyrir því eftir frá-
bæra spilamennsku fyrstu þrjá dag-
ana. En fjórir skollar í röð á fjórum
síðustu brautunum á Royal Lytham
gerðu það að verkum að Ernie Els
stóð uppi sem sigurvegari í lokin.
Klassík sem endranær
Opna breska var afar skemmtilegt
sem endranær enda sjaldgæfara en
hitt að bestu kylfingar heims þurfi að
kljást við aðstæður eins og þar eru.
Setti það aðeins svip á lokadaginn að
vindur var meiri en verið hafði fram
að því og hafði það vitaskuld áhrif á
spilamennskuna hjá flestum ef frá
er talin spilamennska Ernie Els sem
þokaði sér upp töfluna hægt og bít-
andi allan daginn.
Engin samkeppni
Fyrir lokadaginn voru þeir Greame
McDowell, Brandt Snedeker og Ti-
ger Woods taldir geta veitt Scott
keppni en enginn þeirra gerði alvar-
lega atlögu að Scott. Hélt hann for-
skoti sínu meira og minna fram á
sextándu braut þegar honum fatað-
ist loks flugið og það svo um mun-
aði. Taugarnar hafa haft sitt að segja
í kjölfarið og fékk hann skolla á öll-
um næstu brautum og tapaði doll-
unni til Els. Suður-Afríkumaðurinn
hífði sig upp töfluna hægt og rólega
allan lokadaginn en komst sífellt ofar
þegar kylfngarnir fyrir ofan hann
töpuðu höggum hver af öðrum.
Harður og miskunnarlaus völlur
Kylfingarnir voru misánægðir með
völlinn sem keppt var á. Royal Lyt-
ham & St. Annes refsaði óvenju mik-
ið og höfðu nokkrir kylfingar á orði
að karginn á vellinum væri allt of
erfiður. Tiger Woods vildi meina að
hann hefði aldrei séð svo djúpan
karga meðfram brautunum og hann
væri svo slæmur að þaðan kæmist
varla nokkur út sem þar lenti.
Var það ekki stórvandamál síð-
asta daginn og lenti enginn af þeim
kylfingum sem um Silfurkönnuna
slógust í stórkostlegum vandræðum
vegna karga. Hins vegar voru rúm-
lega 200 sandglompur á vellinum
töluvert vinsælar meðal kylfinganna.
Clarke sá aldrei til sólar
Strax varð ljóst á föstudeginum að
nýr meistari yrði krýndur því meist-
ari síðasta árs, hinn bjartsýni og lit-
ríki Darren Clarke, komst ekki gegn-
um niðurskurðinn. Lék hann fyrri
hringinn á 76 höggum og þann seinni
á 71 og var heilum fjórum höggum
frá því að ná í gegn. Fleiri afbragðs-
góðir kylfingar eins og Phil Mickel-
son, Sergio Garcia, David Love III og
Martin Kaymer duttu sömuleiðis út
þann dag.
Tiger meiddur á ný?
Tiger Woods sýndi fína takta á köfl-
um í mótinu en ógnaði þó aldrei
efsta manni alvarlega. Hann, eins
og velflestir aðrir, átti í erfiðleikum á
síðasta hringnum sérstaklega. Þótt-
ust spekingar sjá á Woods þegar líða
fór á síðasta hringinn að hnémeiðsli
þau er hann hefur þjáðst af um tíma
væru enn að angra hann. Haltr-
aði hann lítið eitt á köflum. Spilaði
kappinn sjöttu brautina í gær á þre-
földum skolla en það hefur hann
ekki gert á stórmóti í golfi hingað til
á ferlinum.
Carlos Tevez hafði slæm áhrif
Athygli vakti að knattspyrnustjarnan
Carlos Tevez var kylfuberi fyrir landa
sinn Angel Romero á lokahringnum.
Þekkjast þeir frá fornu fari en ekki er
vitað til að Tevez sé ýkja mikið fyrir
golfið. Í öllu falli reyndist hann ekki
hafa góð áhrif því Romero spilaði
eins og álfur út úr hól og endaði loka-
hringinn á 82 höggum. n
24 Sport 23. júlí 2012 Mánudagur
Gamli seigur
hafði það af
n Óvænt dramatík á Opna breska n Ernie Els sigurvegari
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritstjorn@dv.is
Ernie Els Vissi ekki hvað-
an á sig stóð veðrið þegar
hann öllum að óvörum
stóð uppi sem sigurvegari.
Grátlegur endir hjá Adam Scott Taugarnar gáfu sig á fjórum síðustu brautunum á
Opna breska og það kostaði Ástralann titilinn.
Líf eftir
Ferguson
Alex Ferguson, stjóri Manche-
ster United, segir það fjarri lagi
að vonlaust sé fyrir hvern þann
sem við starfinu tekur eftir hans
dag að halda áfram góðu gengi
liðsins. Þvert á móti vill Ferguson
meina að það sé tiltölulega auð-
velt. Klúbburinn standi vel, eigi
frábæran og tryggan stuðnings-
mannahóp og síðast en ekki síst
sé mikill fjöldi góðra ungra leik-
manna í hópnum. Það þýði að sá
sem tekur við af Ferguson muni
eiga auðvelt um vik fremur en
hitt. Þá segir Ferguson enn frem-
ur að United geti valið úr fjölda
hæfra þjálfara í sinn stað. Enginn
segi nei við starfi stjóra þess liðs.
Ferguson hafnar einnig allri gagn-
rýni sem beinst hefur að eigend-
um Manchester United. Segir
hann Glazer-fólkið hafa staðið sig
vel og standa ekki í vegi fyrir neinu
sem hann hafi viljað. Þvert á móti
hafi hann fengið þann stuðning
sem hann hefur þurft.
37 milljónir
á viku
David Silva hjá Manchester City
hefur fengið launahækkun til jafns
við aðra tekjuháa í meistaraliðinu.
Eftirleiðis fær 37 milljónir á viku
eða 148 milljónir á mánuði. Nýi
samningurinn sker endanlega
úr um að kappinn verði áfram í
Manchester en sögusagnir hafa
verið um að Real Madrid hyggist
bjóða í Silva og þar eru peningar
ekki ýkja mikið vandamál heldur.
Silva mun skrifa undir nýja samn-
inginn í þessari viku en hefur sam-
þykkt hann munnlega.
Ekki nýr Messi
Eden Hazard, nýr leikmaður
Chelsea, hafnar því alfarið að vera
líkt við Lionel Messi hjá Barcelona
eins og sumir spekingar gera. Báð-
ir séu skotvissir markahrókar sem
eigi afar létt með að riðla bestu
vörnum andstæðinga. Hazard
segist bera virðingu fyrir Argent-
ínumanninum en að bera þá tvo
saman sé kjánalegt.