Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Qupperneq 2
F
imm ný nöfn eru á lista yfir þá
tíu sem greiða hæstu skatta
á Íslandi. Tveir huldumenn
eru í öðru og þriðja sætinu
yfir skattakónga á Íslandi árið
2012. Þeir koma fast á hæla Þorsteini
Hjaltested sem er í fyrsta sæti listans
annað árið í röð og greiðir rúmlega
185 milljónir í skatt. Hann hefur ver-
ið mest í umræðunni vegna jarðar í
landi Vatnsenda sem má rekja auð
hans til. Jörðina erfði hann eftir föður
sinn Magnús Hjaltested sem lést árið
2009. Athygli vekur að í öðru og þriðja
sæti listans eru nöfn sem ekki hefur
farið mikið fyrir í íslensku samfélagi.
Eigandi dansskóla og ekkja
athafnamanns
Guðbjörg Astrid Skúladóttir er skatta-
drottning Íslands og er í öðru sæti
yfir þá sem greiða hæstu skattana.
Hún greiðir 139,7 milljónir í skatt.
Guðbjörg Astrid er fædd árið 1953.
Hún stofnaði Klassíska listdansskól-
ann árið 1993 og hefur rekið hann
síðan. Hún er einnig lærður dansari
og hefur dansað með ýmsum dans-
hópum víðs vegar um heiminn. Guð-
björg Astrid var gift Þórarni Kjartans-
syni sem lést árið 2007. Þórarinn var
athafnamaður og stofnaði meðal
annars flutningsmiðlunarfyrirtækið
Flugflutninga ehf. og síðan fragt-
flugfélagið Bláfugl hf. þar sem hann
starfaði sem framkvæmdastjóri. Árið
2005 keyptu Flugleiðir Flugflutninga
ehf. og Bláfugl hf. Kaupverð fyrir-
tækjanna nam samtals 3,8 milljörð-
um íslenskra króna. Guðbjörg Astrid
hefur ekki áhuga á að ræða skattamál
sín við fjölmiðla. „Ég vil ekki svara
neinum spurningum sem varða
skattamál. Ég hef engan áhuga á að
vera í blöðunum.“
Framkvæmdastjórinn Frímann
Sá sem er í þriðja sæti á listanum er
Frímann Elvar Guðjónsson, rúm-
lega fimmtugur viðskiptafræðing-
ur úr Hafnarfirði, en hann greiðir
rúmlega 92 milljónir í skatt. Hann
er framkvæmdastjóri í fyrirtæki
sem heitir Point Transaction Sy-
stems á Íslandi ehf. Það sérhæfir sig
í sölu á vélbúnaði (posum) til Va-
litor og Borgunar hf. ásamt útleigu
á GSM-posum og framleiðslu á hug-
búnaði tengdum rafrænum við-
skiptum, eins og segir á vefsíðu
þeirra.
Tveir ellilífeyrisþegar og læknir
Tveir af þeim fimm sem eru nýir á
listanum yfir topp tíu hæstu skatt-
greiðendur Íslands eru ellilífeyris-
þegar: Poul Jansen og Hermann Kr.
Sigurjónsson. Poul Jansen er tæp-
lega áttræður og starfaði bróður-
partinn af starfsævinni hjá Elding
Trading Company ehf. sem var stórt
innflutningsfyrirtæki. Hann greiðir
um 113 milljónir í skatt. Hermann
Kr. Sigurjónsson er skráður til heim-
ilis á Grundarfirði og er fyrrverandi
vélstjóri og borgar 92 milljónir. Sá
fimmti sem kom nýr inn á listann
er Arnór Víkingsson, læknir og sér-
fræðingur á gigtardeild LSH. Arnór
er einn af stofnendum greiningar-
og endurhæfingarstöðvarinnar
Þrautar ehf. og á hann þriðjungshlut
í henni. Hann greiðir 78 milljónir í
skatt.
Á eftir topp 10
Á meðal þeirra nafna sem koma ný
inn á topp 20 listann má nefna Ársæl
Valfells. Hann er framkvæmdastjóri
Hadron ehf. sem sérhæfir sig í kaup-
um og sölu á verðbréfum, fjármála-
starfsemi, umsýslu fasteigna og lána-
starfsemi. Ársæll er einnig lektor við
Háskóla Íslands og hefur verið mik-
ið í fjölmiðlum undanfarið vegna
þess að hann kom gögnum um við-
skipti þingmannsins Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar við Landsbankann árið
2003 frá forstjóra Fjármálaeftirlits-
ins til DV. Gögnin komu úr Lands-
bankanum og varð þetta til þess
að Gunnari Andersen var sagt upp
sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins.
Ársæll hefur meðal annars starfað
sem verðbréfamiðlari og tekið að sér
verk efni fyrir Landsbanka Íslands.
Ársæll greiðir rúmlega 67 milljónir í
skatt.
Að lokum má nefna Kristínu Þ.
Flygenring sem er 12. hæsti skatt-
greiðandi Íslands og greiðir um
tæplega 74 milljónir. Hún stjórn-
aði markaðs- og skoðanakönnun-
um Hagvangs á níunda áratugnum
og vann síðan sem hagfræðingur
hjá Fiskifélagi Íslands og starfaði
sem hagfræðingur hjá Þjóðhags-
stofnun. Eiginmaður Kristínar er
Sigurður R. Helgason, forstjóri
Björgunar hf., fyrirtækis sem er
framleiðandi steinefna til mann-
virkjagerðar á Íslandi.
2 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Engin
hryðjuverk
„Bændur harma þau viðhorf
og upphrópanir sem fram hafa
komið í fjölmiðlum og víðar, á
þá vegu að þeir séu hryðjuverka-
menn, landníðingar o.s.frv. Það
er bændum, sem og öllum, hags-
munir að fara vel með eigur sínar
hverju nafni sem þær nefnast, það
þekkja bændur mæta vel,“ segir í
yfirlýsingu bænda undir Eyjafjöll-
um sem eiga afréttareign á Al-
menningum. DV hefur greint frá
skoðun Páls Ásgeirs Ásgeirsson-
ar leiðsögumanns sem á bloggi
sínu á DV.is sagði bændur fremja
hryðjuverk undir Eyjafjöllum með
því að hleypa sauðfé á svæðið þar
sem gróður hefur átt undir högg
að sækja.
Bændur segja það hafa gleymst
í umræðunni að það séu einmitt
þeir sem sinni uppgræðslu á
svæðinu með ærinni fyrirhöfn og
kostnaði.
Losaði tennur
með kjaftshöggi
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi
á miðvikudag tvítugan karlmann
í 45 daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að hafa gefið öðrum manni
hnefahögg með þeim afleiðing-
um að tvær tennur losnuðu og
gómbein brotnaði auk þess sem
fleiri áverkar voru eftir höggið, svo
sem sprungur í nokkrum tönnum.
Árásin var gerð í Vestmannaeyjum
í október í fyrra. Maðurinn játaði
brotið en hafnaði bótakröfu brota-
þolans sem vildi fá rúmlega tvær
milljónir í skaðabætur. Mannin-
um var gert að greiða 480 þúsund
krónur í sakarkostnað. Dómur-
inn dæmdi manninn til að greiða
fórnarlambinu tæplega 1,2 millj-
ónir króna í skaðabætur.
Engeyingar
missa tökin
1 Í mánudagsblaði DV var greint frá dvínandi áhrif-
um Engeyinga á
Íslandi. Fregnir
bárust af brott-
flutningum Einars
Sveinssonar til
Bretlands en hann
fór mikinn í við-
skiptalífinu á Ís-
landi árin fyrir
hrun. Hann byggði upp olíufyrir-
tækið N1 og móðurfélag þess BNT
og sat í stjórn félagsins. Fljótlega
eftir hrun misstu Engeyingarnir
tökin á fyrirtækinu vegna skulda-
stöðu og virðist máttur þeirra fara
þverrandi í íslensku samfélagi.
Jón Gnarr
umdeildur
3 „Mér finnst mjög gott að borg-arstjórinn komi í heimsókn en
mér líst ekki á það
að hann taki þátt
í þessari göngu,“
sagði Poul Mohr,
fyrrverandi ræðis-
maður Íslendinga
í Færeyjum, um
þátttöku Jóns
Gnarr, borgarstjóra
Reykjavíkur í Gay
Pride-göngu í Færeyjum. „Ég held að
Færeyingar séu ekki tilbúnir að sjá
borgarstjóra Reykvíkinga ganga um
borgina þeirra í drag-búningi,“ sagði
Birna Steingrímsdóttir um málið en
greint var frá þessu í miðvikudags-
blaði DV.
Hreiðar snýr aftur
2 „Þér kemur það nú bara ekki neitt við,“ sagði Gréta Sig-
urðardóttir, móðir
Hreiðars Más Sig-
urðssonar, þegar
hún var spurð
hvernig upp-
bygging Hótel
Egilsen hefði verið
fjármögnuð. Son-
ur hennar, Hreiðar
Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er
á ný orðinn virkur þátttakandi í ís-
lensku atvinnulífi en fjallað var um
endurkomu hans á miðvikudag.
„Gistiver keypti húsið af bænum,“
sagði móðir Hreiðars Más og bætti
við að Gistiver sé fjölskyldufyrirtæki
og að Hreiðar Már komi hvorki ná-
lægt fjármögnun né rekstri hótels-
ins.
Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð
d a g b l a ð
23.–24. júlí 2012 mánudagur/þriðjudagu
r
8
4
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
valdaætt í vanda
26
EngEyingar
n Svona sparar þú símakostnað erlendis
n Misræmi í gögnum Patty n Hún fær frest
Fastur
í Perú
n Trausti Hraunfjörð án vegabréfs síðan 2009
Ingibjörg hin
andlega móðir
Stjórnin fylgir eiginkonunni fyrrverandi
Átökin í Krossinum
Fangelsis-
stjóri fer
í fangelsi
Geirmundur fékk átta mánuði
Leikkona í
yfirstærð í
Hollywood
Hanna Guðrún á framabraut
Ekki hringja í
ferðafélagana
Myrk
Mynd
Dómur um The Dark Knight Rises 22
8
4
2–3
6
19
Óljóst með
dauða föður
stúlkunnar
Missa
tökin
n Stórtap N1 dýrkeypt n Þeir réðu yfir Sjóvá og
Glitni n Lítil einka-
hlutafélög standa eftir n Bjarni Benediktsson
stærsta vonin 12
n Einar Sveinsson farinn af landinu
Fólk 27
Miðvikudagur 25. júlí 2012
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30
–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S
: 580-8900
TOYOTA AURIS TERRA DIESEL
11/2007, ekinn aðeins 82 Þ.km, dísel,
5 gíra. Verð 1.990.000. Raðnr. 103707 -
Smart og hagkvæmur á staðnum!
NISSAN X-TRAIL AUTO 09/2003, ek-
inn 113 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, leður,
glertoppur ofl. Verð 1.390.000. Raðnr.
192653 - Sumarjeppinn er á staðnum!
FORD FOCUS TREND 09/2004, ekinn
aðeins 59 Þ.km, 5 gíra. Verð 1.070.000.
Raðnr. 322393 - Ákaflega snyrtilegur
bílL!
SKODA OCTAVIA AMBIENTE
COMBI 4X4 12/2003, ekinn 163 Þ.KM,
bensín, 5 gíra. Verð 850.000. Raðnr.
310312 - Sjóðheitur á staðnum!
CHEVROLET LACETTI STATION
09/2007, ekinn AÐEINS 29 Þ.km, 5 gíra.
Verð 1.599.000. Raðnr. 290098 - Þessi
var að koma!
YAMAHA FZ6 NAKED 07/2008,
ekinn 12 Þ.km, flott útlit og ástand!
Verð 1.190.000. Raðnr. 310322 - Hjólið
er í salnum!
CHEVROLET SUBURBAN 1500
4X4 Árgerð 2000, ekinn 158 Þ.km,
bensín, sjálfskiptur, flott eintak! Verð
1.990.000. Raðnr. 284484 - Sá stóri er
á staðnum!
AUDI A6 1,8L TURBO QUATTRO
06/2000, ekinn 200 Þ.km, sjálfskiptur,
ný tímareim ofl. Verð 1.390.000. Raðnr.
322334 - Þýskur eðalfákur!
VW GOLF TRENDLINE 04/2005,
ekinn 90 Þ.km, sjálfskiptur. Verð
1.190.000. Raðnr. 284321- Bíllinn var að
koma í sölu!
Tek að mér að hreinsa
þakrennur, laga riðbletti á þökum,
gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að
mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í
síma 847-8704 eða á manninn@
hotmail.com
Funahöfða 1, 110 Reykjavík
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
Flutningar
Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti-
vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur
,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690
HUMMER H2. Árgerð 2005, ekinn
53 Þ.km, sjálfskiptur, leður og fullt af
flottu skrauti! Verð 5.300.000. Raðnr.
310305 - Surturinn er á staðnum!
SUBARU LEGACY SPORT WAGON
06/2008, ekinn 99 Þ.km, sjálfskiptur,
álfelgur ofl. Verð 2.650.000. Raðnr.
310324 - Þessi flotti var að koma!
BMW Z4 M COUPE 07/2007, ekinn
49 Þ.km, 6 gíra, leður, umboðsbíll.
Verð 10.300.000. Raðnr. 310298 Sá
geggjaði er í salnum!
Tilboð
Nokia E51
Óska eftir notuðum Symbian
Nokia E51 síma í nothæfu ástandi.
Upplýsingar í síma 864-6223.
Til sölu vegna
flutninga Vandað
hjónarúm 160 cm breitt. Er frá
Svefni og heilsu. Chiropractor dýna.
Til afhendingar frá þriðjud. 24. Júlí
nk. Verð 60.000 kr Upplýsingar hjá
doriogmunda@gmail.com
Skartgripaverk-
stæði í eldhúsinu Ekki tilbúnir
fyrir Jón Gnarr
B
orgarstjórinn í Reykja-
vík er í opinberri
heimsókn í Færeyj-
um og notar tækifærið
til að taka þátt í gleði-
göngunni Faroe Pride sem
fram fer á föstudaginn. Borg-
arstjórinn vill þannig styðja
réttindabaráttu hinsegin fólks
í Færeyjum.
Í Færeyjum er umburðar-
lyndi gagnvart samkynhneigð
minna en hér á landi. Árni
Grétar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samtakanna 78,
segir illa komið fyrir mann-
réttindum samkynhneigðra
Færeyinga og að hingað til hafi
þeir í flestum tilfellum flúið til
Danmerkur eða kosið að lifa í
leynd með sína samkynhneigð.
Heimsókn Jóns Gnarr skipti
því miklu máli. „Þjóðin virð-
ist skipt í sinni afstöðu og það
endurspeglast mjög á þinginu.
Réttindamál til að bæta stöðu
samkynhneigðra tapast með
naumum meirihluta,“ segir
Árni Grétar.
„Við höfum boðið Fær-
eyingum aðstoð. Félag hinseg-
in fólks í Færeyjum heitir LGBT
Føroyar og starf þess verið öfl-
ugt og borið árangur.
Færeyingar eru sú þjóð sem
er okkur næst, þetta eru bræð-
ur okkar og systur. Það skipt-
ir máli fyrir samkynhneigða
að vita af stuðningi okkar. Það
hefur vakið heimsathygli að
gagnkynhneigður karlmaður í
áberandi valdastöðu tekur þátt
í gleðigöngu hinsegin daga.
Þátttaka Jóns Gnarr komst í
fjölmiðla um allan heim og
auðvitað skiptir það miklu
máli í litlu samfélagi eins og
Færeyjum að hann taki einnig
þátt þar.“
n Réttindum samkynhneigðra í Færeyjum ábó
tavant
Hvað finnst Færeyingum?
„Skil ekki af
hverju hann
gerir þetta“
Poul Mohr, fyrrverandi
ræðismaður Íslendinga
„Mér finnst mjög gott að borgar-
stjórinn kemur í heimsókn en mér
líst ekki á það að hann taki þátt í
þessari göngu. Samkynhneigðir
hafa rétt á því að lifa sínu lífi í
friði, það er allt í lagi í mínum
heimi, en þeir eiga ekki að vera
að auglýsa það. Ég er á móti því.
Ég skil ekki af hverju hann gerir
þetta.“
Poul, sem var ræðismaður á
Íslandi í 24 ár, sagðist biðja að
heilsa Íslendingum. „Ég kann
mjög vel við Íslendinga og vil
biðja að heilsa þeim öllum, ég
hef unnið með þeim í mörg ár.
Borgarstjórinn er ágætur líka
en ég skil ekki hvers vegna hann
tekur upp á þessu.“
Hann segist finna fyrir almennri
andstöðu gegn þátttöku Jóns
Gnarr. „Ég finn fyrir því að fólk er
andsnúið því að hann nýti heim-
sókn sína til þess að taka þátt í
mótmælafundi. En unga fólkið,
það vill taka þátt, því það er lífleg
tónlist og skemmtiatriði.“
Mohr tekur fram að þrátt
fyrir að hann vilji ekki styðja við
gleðigönguna þá styðji hann í
sjálfu sér rétt samkynhneigðra.
„Allir eiga að gera eins og þeir
vilja sjálfir. Þetta er þeirra líf ekki
mitt líf.“
Færeyingar
ekki tilbúnir
Ónafngreind kona í Færeyjum
„Ég held að Færeyingar séu ekki
tilbúnir að sjá borgarstjóra Reyk-
víkinga ganga um borgina þeirra í
drag-búningi. Stór partur af ungu
fólki elst upp í kristnu samfélagi, er í
sértrúarsöfnuðum og þannig háttar.
Færeyingar eru ekki eins neikvæðir
og áður en þeir eru öðruvísi en
Íslendingar.
Ég held ekki að uppátækið eigi eftir
að vekja mikla athygli. Færeyingar
vita ekki hver hann er, hann hefur
ekki verið áberandi í umræðunni.“
Viðmælandi DV vildi ekki koma fram undir na
fni af
ótta við að verða fyrir aðkasti
Finnst þetta
hressilegt
uppátæki
Jóhanna Nilsen
„Færeyingar eru svo langt á eftir
í þessari þróun. Það er ekki hægt
að bera þetta saman við stöðuna
á Íslandi. Maður hefur fylgst með
þessum í blöðunum. Gangan verður
ekki fjölmenn, hún hefur ekki
verið það síðustu ár. Það eru helst
samkynhneigðir og ættingjar þeirra
sem taka þátt. Mér finnst þetta
hressilegt uppátæki en því miður á
Færeyingum líkast til ekki eftir að
finnast það sama.“
Flott
framtak
Þóra Þóroddsdóttir
„Mér finnst þetta flott framtak.
Samkynhneigðir í Færeyjum fá
lítinn stuðning framámanna.
Ég veit að mér og þeim sem ég
umgengst finnst þetta í lagi og
þorra Færeyinga. Það eru helst
stjórnmálamenn sem setja sig
upp á móti samkynhneigðum og
þeir eru þá alltaf að hugsa um
næstu kosningar.“
„Það eru helst stjórnmála-
menn sem setja
sig upp á móti
samkynhneigðum
Jón Gnarr Brá sér í drag
á Gay Pride á fyrsta emb-
ættisári sínu í Reykjavík til
að sýna stuðning sinn við
samkynhneigða í verki.
Réttindabarátta samkyn-
hneigðra Ástandið í Færeyjum
er líkt og það var hér á landi fyrir
40 árum þegar Kaupmannahöfn
var full af landflótta Íslendingum.
Fréttir vikunnar
w
w
w
. d
v
. i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
25.–26. júlí 2012 miðvikudagur/fimmtudagur
Hreiðar
kaupir
Hótel
Útrásarvíkingur snýr aftur
„Þér
kemur
það nú bara
ekki neitt við
Hrói Höttur í
kennitöluhoppi
„Pítsurnar
halda
áfram að bakast
Heimsókn Jóns
Gnarr er umdeild
n Færeyingar mishrifnir af þátttöku borgarstjórans í Gay Pride
27
10
Elliheimili
en ekki krá
Skiptar skoðanir á Hrafnistu n Ferðaveldi
í Stykkishólmi
n Móðir hans
í forsvari
n Hreiðar Már
með prókúru
13
Sauðfé hleypt
að Þórsmörk
Ólga vegna ákvörðunarz sveitarstjórn-
8
5
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
17 ára starfsmaður samtakanna 6–7
Íslendingur
sagður stela
frá WikiLeaks
8
Börn á
Íslandi
með fölsuð
fæðingarvottorð
12–13
n Útlendingastofnun vill DNA-próf
11
20
Köngulær
nema land
á Íslandi
84 tegundir á landinu
Hinir óþekktu
skattakóngar
Elín Ingimundardóttir
blaðamaður skrifar elin@dv.is
n Fimm ný nöfn á lista tíu þeirra sem greiða hæstu skatta á Íslandi
Í öðru sæti á listanum Guðbjörg Astrid Skúladóttir greiðir um 140 milljónir í skatt. Hún á Klassíska listdansskólann og er ekkja Þórarins
Kjartanssonar. SamSETT mynd dv/BaLLETT.IS