Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Blaðsíða 4
N
ei, engin áhrif,“ segir Lár-
us Ástmar Hannesson, for-
seti bæjarstjórnar í Stykk-
ishólmi, um það hvort
viðskiptasaga forsvars-
manna einkahlutafélagsins Gistivers
ehf., sem festi kaup á hinu sögufræga
Egilsen-húsi síðastliðið haust, hafi
haft áhrif á ákvörðun meirihluta bæj-
arstjórnar um að selja félaginu húsið.
Eins og fram kom í miðvikudagsblaði
DV festi einkahlutafélagið Gistiver
ehf. kaup á Egilsen-húsinu í Stykk-
ishólmi. Hreiðar Már Sigurðsson er
eini prókúruhafi félagsins og stjórn-
ar því í raun öllum gerningum þess,
en enginn situr í stjórn félagsins.
Gistiver ehf. keypti húsið með það að
augnamiði að starfrækja þar hótel.
Nýverið hóf svo Hótel Egilsen starf-
semi sína í húsinu. Hótelstjóri þar er
Gréta Sigurðardóttir, móðir Hreiðars
Más. Hún hafði því mikla hagsmuni
af því að bærinn ákvað að selja Gisti-
veri ehf. Egilsen-húsið. Gréta er
einnig stofnandi Gistivers ehf.
Náskyld
Svo vill til að Gréta og Lárus tengjast
nánum fjölskylduböndum. „Já, já, við
erum náskyld,“ segir Lárus í samtali
við DV en þau Gréta eru systkinabörn.
Lárus sá hins vegar ekki ástæðu til að
víkja sæti við afgreiðslu málsins á sín-
um tíma. „Nei, nei. Þetta er lítið samfé-
lag. Það kemur oft eitthvað svona upp.“
Aðspurður hvort hann hafi ekki horft
til stjórnsýslulaganna þegar hann tók
ákvörðun um að afgreiða málið í stað
þess að sitja hjá segir Lárus: „Af því
að við erum systkinabörn? Nei, nei,
það er orðið svolítið langt í burtu. Lít-
ill skyldleiki – þannig.“ Stjórnsýslulög-
in eru hins vegar alveg skýr um þetta
efni. Samkvæmt fyrstu grein þeirra
taka þau til bæði stjórnsýslu ríkis og
sveitarfélaga. Í þriðju grein er kveðið á
um að starfsmaður eða nefndarmað-
ur sé vanhæfur til meðferðar máls ef
hann er eða hefur verið maki aðila,
skyldur eða mægður aðila í beinan
legg eða annan lið til hliðar. Í orðun-
um „öðrum lið til hliðar“ felst með-
al annars að starfsmaður stjórnsýsl-
unnar er vanhæfur til að afgreiða mál
frændsystur sinnar. Í sveitarstjórn-
arlögunum eru hins vegar gerðar
vægari vanhæfiskröfur, þannig að ljóst
er að afgreiðsla málsins fer ekki í bága
við lög. Þeir starfsmenn bæjarins, sem
DV ræddi við, voru ekki sáttir við þá af-
greiðslu sem salan á húsinu fékk – sér-
staklega með tilliti til náskyldleika for-
manns bæjarstjórnar og hótelstjórans,
Grétu Sigurðardóttur.
Of lágt verð
Bæjarfulltrúar minnihlutans í Stykk-
ishólmi gagnrýndu söluferlið harð-
lega á sínum tíma. Þeir vilja meina
að málið hafi verið keyrt í gegn og
af þeim sökum hafi alltof lágt verð
fengist fyrir húsið. „Ég held að við
hefðum getað fengið hærra verð fyrir
húsið,“ segir Íris H. Sigurbjörnsdótt-
ir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Stykkishólmi. Hún, ásamt öllum
bæjarfulltrúum minnihlutans, gaf
út yfirlýsingu á fundi bæjarstjórnar
þann 29. ágúst í fyrra þess efnis að
ranglega hefði verið staðið að sölu-
ferli Egilsen-hússins. Í yfirlýsingunni
kom fram að minnihlutinn hefði ekki
fengið að taka þátt í ferlinu og hefði
ítrekað verið hunsaður þegar hann
reyndu að hafa áhrif á málið.
Leyndarhjúpur
Eins og fram kom í miðvikudags-
blaði DV vildi Gréta ekkert um það
segja hvernig uppbygging Hótel Eg-
ilsen var fjármögnuð. „Þér kemur
það bara ekki neitt við,“ sagði hún
við blaðamann. Við nánari eftir-
grennslan kom hins vegar í ljós að
Gistiver ehf. er í eigu annars einka-
hlutafélags, Valens ehf. Svo vill til að
Arna Jóna Sigurjónsdóttir, eiginkona
Hreiðars, á helmingshlut í því félagi
á móti helmingshlut systur Hreiðars,
Þórdísar.
Þau mæðgin, Hreiðar og Gréta,
hafa bæði verið sökuð um um-
fangsmikla fjárglæpi. Gréta var á
sínum tíma dæmd fyrir fjárdrátt og
Hreiðar er til rannsóknar hjá sér-
stökum saksóknara, grunaður um
margs konar brot, meðal annars
markaðsmisnotkun. Lárus lét, eins
og fyrr segir, þessa viðskiptasögu
ekki hafa nein áhrif á ákvörðun
sína. „Þegar þú starfar fyrir bæj-
arstjórn, en ekki einhvern rann-
sóknaraðila, þá hefur þú engar
forsendur til þess að dæma um
það hvort einhver hafi gerst brot-
legur á einn eða annan hátt,“ segir
Lárus en bætir þó við: „Við vissum
alveg nákvæmlega hverjir voru að
kaupa þetta.“
Ögrar yfirvöldum
n Hyggst reykja kannabisefni fyrir framan lögreglu og forsetann
Ö
rvar Geir Geirsson, talsmað-
ur RVK Homegrown, samtaka
sem vilja „afglæpun“ kannabis-
neyslu, ætlar sér að mótmæla
íslenskri löggjöf í málaflokknum með
því að fasta í tíu daga frá og með næstu
mánaðamótum. Í samtali við DV seg-
ist Örvar vera að gera sig tilbúinn fyr-
ir hungurmótmælin þessa dagana. „Ég
er að undirbúa mig. Það er það sem
maður er að gera núna, borða nóg af
ávöxtum og annað slíkt. Með föstunni
mun ég náttúrulega drekka vatn og
síðan mun ég neyta hampfræja.“
Örvar ætlar að reykja 1/3 af grammi
af kannabis fyrir framan opinberar
byggingar í Reykjavík. „Ég mun byrja
fyrir framan lögreglustöðina. Þar mun
ég afhenda lögreglu- og blaðamönn-
um lista yfir opinberar byggingar, í
þeirri röð sem ég mun reykja fyrir
framan næstu 10 dagana frá og með
fyrsta.“
Örvar segist líklega enda við Bessa-
staði. „Annars verður það fyrir fram-
an Alþingishúsið eða í Alþingisgarðin-
um, ég ætlaði að kveikja mér í þar,
enda friðsamt og flott. Ég ætla einnig
að mótmæla fyrir utan velferðarráðu-
neytið, ríkissaksóknara og fleiri opin-
berar stofnanir sem mér finnst þetta
varða; réttindi, frelsi einstaklingsins og
þessi lög hvað varðar kannabis.“
RVK Homegrown stóð fyrir mót-
mælum bæði í ár og í fyrra þann 20.
apríl, eða 4/20, sem er alþjóðlegur
dagur kannabisreykinga. Fjölmenni
mætti til að reykja kannabis á Austur-
velli og segist Örvar gera ráð fyrir enn
fleirum á næsta ári. Hópurinn tekur
ekki afstöðu til annarra vímuefna en
markmið hópsins er að stuðla að „af-
glæpun“ kannabisefna.
4 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Jónína á
Beinni línu
Jónína Benediktsdóttir situr fyrir
svörum á Beinni línu í dag, föstu-
dag, klukkan 13. Þar ætlar Jónína
að ræða við lesendur um heilsu
og hvernig má byggja sig upp fyrir
veturinn auk annarra spurninga
sem kunna að brenna á lesend-
um DV.is. Jónína er menntaður
íþróttafræðingur og hefur unnið
mikið að heilsu landans og stað-
ið fyrir Detox-meðferðum sem
oft og tíðum hafa þótt umdeildar.
Jónína hefur ávallt svarað gagn-
rýnendum sínum fullum hálsi.
Hún hefur einnig tekið virkan þátt
í þjóðmálaumræðunni hérlendis
undanfarið og hefur verið óhrædd
við að gagnrýna það sem henni
hefur þótt miður fara. Jónína gekk
nýverið í Framsóknarflokkinn og
segist stefna á pólitíska framtíð
innan hans. Það ætti því að vera
fjörug Bein lína og enginn ætti að
missa af henni, en það eina sem
lesendur DV.is þurfa að gera til að
spyrja spurninga er að vera skráð-
ir inn á Facebook og fara svo inn á
dv.is/beinlina klukkan 13.
Ekki glæpur Örvar Geir
og RVK Homegrown líta
ekki á neyslu kannabis-
efna sem glæp.
MyNd: RóbERt REyNissON
Verðhækkanir
á bílastæðum
Bílastæðasjóður mun hækka verð
á gjaldsvæðum 1, 2 og 4 í Reykja-
vík mánudaginn 30. júlí. Að auki
verða breytingar á gjaldskyldu-
tíma á laugardögum á áðurnefnd-
um svæðum.
Eftir breytingarnar lengist
gjaldskyldutími á laugardög-
um úr klukkan 10–13 í klukkan
10–16. Verðhækkunin er umtals-
verð en hún réttlætt með því að
þetta sé fyrsta verðhækkunin frá
árinu 2000. Á gjaldsvæði 1 mun
klukkustundin kosta 225 krónur í
stað 150 króna. Á svæðum 2 og 4
hækkar verðið úr 80 krónum í 120.
Engin hækkun er á svæði 3 sem er
ætlað sem langtímastæði.
Frænkan fékk
Egilsen-húsið
n Söluferlið harðlega gagnrýnt n Segja húsið hafa farið á undirverði
„Ég held að við
hefðum getað
fengið hærra verð fyrir
húsið.
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
stjórnar ferðaþjónustuveldi Viðskiptasaga Hreiðars Más er skrautleg.
selur ættingjum hús Lárus Hannesson
er forstjóri bæjarstjórnar í Stykkishólmi.