Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Side 23
11 ára laumufarþegi til Ítalíu
n Ungur drengur smyglaði sér um borð í flugvél til Rómar
R
annsókn er hafin á flugvellin-
um í Manchester eftir að ellefu
ára drengur, Liam Corcoran,
komst um borð í flugvél á leið
til Rómar á Ítalíu án þess að vera með
vegabréf eða farseðil. Litli laumufar-
þeginn virðist hafa smyglað sér með
annarri fjölskyldu meðan hans eigin
fjölskylda var að farast úr áhyggjum.
Að minnsta kosti fimm starfs-
menn Jet2.com á flugvellinum hafa
verið sendir í leyfi eftir atvikið sem
átti sér stað síðdegis á þriðjudag.
Liam er, samkvæmt frétt The Guar-
dian, sagður hafa strokið frá móð-
ur sinni meðan hún var að sinna
innkaupum í verslunarkjarna nærri
flugvellinum.
Liam litli rölti yfir á flugvöllinn og
á einhvern óskiljanlegan hátt tókst
honum að lauma sér með annarri
fjölskyldu sem var á leið í sumar-
frí án þess að nokkur tæki eftir því.
Hann fór í gegnum öryggishlið flug-
vallarins en starfsmenn öryggisgæsl-
unnar tóku ekki eftir því að hann var
einn síns liðs og hvorki með farseðil
né vegabréf.
Þar með var Liam kominn inn í
flugstöðina og gat valið sér hlið og
áfangastað. Hann fór að hliði flug-
félagsins Jet2.com sem var að undir-
búa brottför til Rómar. Enn á ný
komst Liam fram hjá öllu eftirliti og
gekk óáreittur um borð í vélina. Þar
tók enginn í áhöfninni eftir því að
drengurinn væri ekki með flugmiða
og var honum einfaldlega vísað til
sætis. Talning á fjölda flugfarþega
kom heldur ekki upp um hann. Vélin
fór í loftið og það var ekki fyrr en hún
var komin vel á veg sem grunsemd-
ir tóku að vakna meðal annarra far-
þega. Þeir létu áhöfnina vita, hún lét
flugmanninn vita sem hafði sam-
band við Manchester. Þá var orðið of
seint að bregðast við uppákomunni
og vélin lenti á Fiumicino-flugvellin-
um í Róm þar sem starfsfólk stöðvaði
drenginn. Hann flaug síðan með vél-
inni aftur til Manchester.
Málið er litið gríðarlega alvar-
legum augum og þykir heldur bet-
ur vandræðalegt fyrir alla sem að því
koma. Drengurinn er kominn aftur
til fjölskyldu sinnar en ljóst þykir að
einhverjir hausar muni fjúka í rann-
sókninni sem hafin er.
mikael@dv.is
á þre
nnu
tilb
oð
i
Fáðu Or
a as
pas
súp
u
Fylgstu með
á Facebook
Skoðaðu
ora.is
Sérlöguð
afm
ælis
síld
Or
a
framleid
d í ta
kmö
rku
ðu
ma
gni
cw120182_isam_ora_60áraafmæli_afmaelissild_auglblada4X30_25072012_end.indd 1 25.7.2012 10:48:22
Myrkraverk í Mexíkó
n Hrollvekjandi frásögn úr undirheimum Mexíkó n Frænkum rænt eftir tívolíferð
innsýn í undirheima mansals og
það umfangsmikla net glæpa-
manna sem ræna ungum stúlkum
og þvinga þær í vændi.
„Ríkissaksóknarinn einbeitti
sér að því að þrengja að fjármögn-
unar leiðum þessara glæpahópa.
Á endanum lokuðum við 600
stöðum,“ segir Carranca. „Margir
þeirra voru ekki aðeins ólögleg
vændishús heldur einnig fundar-
staðir skipulagðra glæpahópa.
Frænkurnar Maria og Lupe fá
nú sálfræði-, lögfræði- og fjárhags-
aðstoð hjá samtökunum Camino a
Casa sem sérhæfa sig í að aðstoða
fórnarlömb mansals. Samtökin
voru stofnuð árið 2005 af stjórn-
málakonunni Rosi Orozco sem um
árabil hefur barist gegn mansali. Í
júní síðastliðnum varð frumvarp
hennar um mansalsmál að lögum í
Mexíkó en í þeim er meðal annars
kveðið á um að þeir sem gerist sek-
ir um mansal eigi yfir höfði sér allt
að 40 ára fangelsi. Hún áætlar að
tugþúsundir ófullveðja stúlkna
séu fórnarlömb kynferðisglæpa í
Mexíkó á ári hverju. Baráttan er því
rétt að byrja.
Erlent 23Helgarblað 27.–29. júlí 2012
Þingkona berst Rosi Orozco stofnaði
samtökin Camino a Casa. Hún segir tug-
þúsundir stúlkna fórnarlömb kynferðis-
ofbeldis í Mexíkó. Mynd: SkjáSkot af vef Cnn