Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Qupperneq 82
Fegrandi og
nærandi olíur
Húð og hár verða líflaus ef lík-
amann skortir fitu og olíu. Undir-
staðan er í fæðunni og þá skiptir
máli hvernig fitu og olíua við neyt-
um. Undanfarið hefur kostum
ómega-3 olíunnar verið haldið
á lofti og þá talið að hún hafi já-
kvæð áhrif á andlega heilsu, hún
dragi úr liðverkjum og morgun-
stirðleika. Einnig þykir sannað að
ómega-3 fitusýrur hafi góð áhrif
á hjarta- og æðakerfi auk þess að
gegna mikilvægu hlutverki við
uppbyggingu heila-
og miðtaugakerfis.
Hárolía
Hárolíur eru orðnar mjög
vinsælar enda ekki furða
þar sem þær geta gert
kraftaverk fyrir líflaust
og þurrt hár. Varist þó að
bera olíu í allt hárið (olían
er best í endana) og ekki
nota of mikið af henni.
Mythic Oil frá L’oréal er
frábær hárolía á viðráðan-
legu verði.
Andlitsolía
Góð olía getur gert
kraftaverk fyrir þurra
húð. Þeir sem stunda
mikla útivist eða fara
oft í sund kannast vel
við mikinn þurrk. Black
Currant Complexion Oil
frá Ole Henriksen er olía
fyrir allar húðtegundir
og inniheldur E-vítamín
sem verndar og styrkir
húðina.
Líkamsolía
Eftir sundferðina eða
sturtuna er tilvalið að bera
olíu á líkamann. Sérstak-
lega á þurr svæði, svo sem
hné, kálfa og olnboga. Frá
Ole Henriksen má fá góða
lavenderolíu og Burts and
Bees er með nærandi olíu
með sítrónu og möndlum
sem gerir kraftaverk á
þreyttri og þurri húð.
Lou Doillon
Lou Doillon er tískufyrirmynd
margra. Hún er frönsk leikkona
og fyrirsæta, fædd árið 1982
og dóttir söngkonunnar frægu
Jane Birkin og leikstjórans
Jacques Doillon.
Í partí Lou klæddist þessum sam-
festingi í partý sem Kate Moss hélt
fyrr á árinu.
Í París Lou var í
smóking í París.
S
tjörnuflóðið til Íslands virðist
engan enda ætla að taka. Lík-
lega eru meiri líkur á því að
rekast á Hollywood-stjörnu
hér á okkar litla skeri á sum-
armánuðum en í sjálfri L.A. Stjörnu-
rnar virðast mun lagnari í að klæða
sig eftir veðri en landinn sjálfur og
vinsælt er að koma við í útivistar-
verslun áður en lagt er af stað í tök-
ur, oft við óblíð veðurskilyrði. Vöru-
merkið 66°Norður virðist hafa náð
hylli stjarnanna, að minnsta kosti er
listinn yfir þær stjörnur sem hafa fest
kaup á útivistarfatnaði frá merkinu
orðinn ansi langur.
Jennifer Connelly Jennifer kom
við í verslun 66°Norður í miðbænum
og meðal þess sem hún keypti var
dúnúlpan Þórsmörk og Snæfell
dömukápu.
Ben Stiller Hér má sjá Ben
Stiller í Vík peysu og Þórsmörk
dúnúlpu.
Tom Cruise Tom græjaði sig fyrir tökur með klæðnaði frá
66°Norður. Hann sást meðal annars með húfu frá merkinu (Kaldi)
og í jakka (Vík). Hér að ofan er mynd frá vefsíðunni TMZ þar sem
hann sést með húfuna. Tom keypti sér einnig Þórsmörk dúnúlpu,
rétt eins og Jennifer Connelly.
Stjörnurnar
klæða Sig
eftir veðri
n Stórar Hollywood-stjörnur í útivistarfatnaði frá 66°Norður
Frank og Casper
úr Klovn Íslands-
vinirnir úr Klovn eiga
þó nokkrar útivistar-
flíkur sem þeir hafa
keypt og þeim voru
gefnar er þeir dvöldu
hér á landi.
Mel Gibson Mel er enginn sérstakur
Íslandsvinur en hann hefur fest kaup á
útivistarflík frá 66°Norður.
Top Gear Jeremy
Clarkson og félagar
í Top Gear eru
miklir aðdáendur
66°Norður og
sjást reglulega í
þáttunum sínum í
fatnaði frá okkur.
Jon Bon Jovi Bon Jovi hefur birst í blöðum í USA í Lang-
jökull primaloft jakka.
Prinsessa Mary prinsessa og börnin
sjást reglulega í 66°Norður.
34 Lífsstíll 27.–29. júlí 2012 Helgarblað
Björn Borg Nýlega hafa sést
myndir af tennisstjörnunni
Björn Borg í nýju úlpunni
Snæfell úlpu, leikkonunni Lenu
Olin í Esju úlpu og sænsku stór-
leikurunum úr Milleninum-þrí-
leiknum, Lena Endre og Mikael
Nyqvist einnig í klæðnaði frá
66°Norður.
Scarlett Johansson Leik-
konan Scarlett Johansson á
nokkrar úlpur frá 66°Norður. Á
síðasta ári sást hún í einni slíkri
(Vatnajökull Primaloft-jakka)
í Los Angeles og þá klæddust
hún og fleiri leikarar myndar-
innar We bought a Zoo fatnaði
frá fyrirtækinu.
Jake Gyllenhal Gyllenhaal er hér myndaður árið 2008 og
klæðist svörtum öndunarjakka frá 66°Norður við hlið leikkon-
unnar Reese Witherspoon og til hliðar er mynd úr þáttunum
Man vs. Wild sem teknir voru upp hér á landi 2011. Jake klæddist
fatnaði frá 66°Norður á Eyjafjallajökli og var meðal annars
í Vatnajökull buxum og Langjökull hönskum sem sjást vel í
þættinum.