Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Qupperneq 87

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Qupperneq 87
Sport 39Helgarblað 27.–29. júlí 2012 Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is N ú þegar félagaskipta­ glugginn í knatt­ spyrnu heiminum er opinn er ekki úr vegi að líta á félagaskipti sem voru mjög nálægt því að ganga í gegn en urðu þó aldrei. Vefmiðillinn Soccernet tók á dögunum saman athygl­ isverðan lista með nöfnum ellefu leikmanna sem hefðu getað endað allt annars stað­ ar en þeir að lokum gerðu. Líklegt verður að teljast að knattspyrnusagan væri tals­ vert öðruvísi ef Xavi Hernand­ ez hefði farið til AC Milan árið 1999, Zinedine Zidane hefði farið til Blackburn árið 1996 og Cristiano Ronaldo hefði farið til Arsenal árið 2003. n Ótrúleg félagaskipti sem hefðu getað orðið n Knattspyrnusagan væri líklega öðruvísi Zidane til BlackBurn og Xavi til ac Milan Giuseppe Meazza Úr áhugamannaliði til AC Milan, 1923–24 Líklega einn besti knattspyrnu- maður Ítala fyrr og síðar. Þegar Meazza var þrettán ára leikmaður hjá áhugamannaliði í Mílanó vildi AC Milan ekki fá hann til félagsins á þeim forsendum að hann væri of veikbyggður. Erkifjendurnir í Inter fengu hann til sín nokkru síðar – þó að Meazza væri stuðningsmaður Milan – þar sem hann blómstraði. Hann skoraði 241 mark í 348 leikjum með Inter og 33 mörk í 53 landsleikj- um með Ítalíu. Meazza fór til Milan árið 1940 en þá var hann búinn á því sem leikmaður. Eftir dauða hans árið 1979 var San Siro-leikvangur- inn, heimavöllur Milan og Inter, endurnefndur í höfuðið á þessum goðsagnakennda leikmanni. Alfredo Di Stefano Millionarios til Barcelona, 1953 Barcelona náði samkomulagi við Millionarios í Ungverjalandi um að fá Di Stefano til félagsins. Einhverra hluta vegna hætti Barcelona við að fá leik- manninn og fór hann til Real Madrid í staðinn þar sem hann setti nafn sitt á spjöld sögunnar sem einn besti leikmaður allra tíma. Di Stefano varð margfaldur Spánar- og Evrópumeistari með Madrid og skoraði 246 mörk í 302 leikjum fyrir félagið. Garrincha Botafogo til Inter Milan, 1963 Garrincha var ein helsta stjarna brasilíska landsliðsins á árunum 1956 til 1966. Árið 1963 stóð honum til boða að fara til Inter Milan. Félögin komust að samkomulagi um að Inter myndi greiða 400 þúsund pund sem hefði gert Garrincha, þá 28 ára, að dýrasta knattspyrnumanni sögunnar. Því miður varð aldrei að félagaskiptunum þar sem Garrincha varð fyrir slæmum hnémeiðslum um það leyti semja átti. Hann stóðst ekki læknisskoðun hjá Inter og var áfram hjá Botafogo. Diego Maradona Argentinos Juniors til Sheffield United, 1978 Harry Haslam, þáverandi knatt- spyrnustjóri Sheffield United, kom auga á hæfileikaríkan leikmann í ferð til Argentínu árið 1978 – Diego Armando Maradona sem þá var 17 ára. Haslam var fljótur að setja sig í samband við félag Maradona, Argentinos Juniors, og komust fé- lögin að samkomulagi um kaupverð – 600.000 pund. Á þeim tíma var Sheffield í annari deild og í fjárhags- erfiðleikum. Svo fór að ekki tókst að fjármagna kaupin og fór Maradona til Boca Juniors árið 1981. Johan Cruyff Á frjálsri sölu til Leicester, 1981 Eftir góð ár hjá Ajax og Barcelona sagðist Cruyff hafa áhuga á að spreyta sig á Englandi. Cruyff var á þeim tíma 33 ára og hafði Leicester komist að samkomulagi um að fá hann til félagsins. Ekkert varð af kaupunum því annað félag hafði einnig áhuga á kröftum Cruyffs, Levante. Cruyff ákvað að fara til Levante eftir að forsvarsmenn félags- ins buðu honum að fá 50 prósent af miðasölu á leikjum liðsins í vasann. Paul Gascoigne Newcastle til Manchester United, 1988 Árið 2008 lýsti Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, að mestu vonbrigði hans á félagaskiptamark- aðnum hefði verið þegar honum mistókst að fá Paul Gascoigne til liðsins. Gascoigne, sem þá var 21 árs leikmaður Newcastle, hafði gert munnlegt samkomulag um að hann gengi í raðir félagsins. Til stóð að ganga frá málunum þegar Ferguson væri kominn úr sumarfríi en í millitíð- inni kom Tottenham til sögunnar og gerði Gascoigne tilboð sem hann gat ekki hafnað – 2.500 pund á viku og hús fyrir föður hans. Eric Cantona Nimes til Sheffield Wednesday, 1992 Cantona lenti í erfiðleikum í Frakklandi í desember 1991 þegar hann var dæmdur í mánaðarlangt keppnisbann fyrir að kasta bolta í dómara. Cantona vildi fara frá félagi sínu, Nimes, og fékk Trevor Francis, þáverandi stjóri Sheffield Wednesday, hann til reynslu snemma árs 1992. Cantona æfði með liðinu í viku en vegna veðuraðstæðna náði félagið ekki að æfa á grasi þá vikuna. Francis vildi skoða Cantona betur og bað hann að framlengja reynslutíma sinn um viku. Cantona tók það ekki í mál og gekk burt. Howard Wilkinson, stjóri Leeds, sá sér leik á borði og fékk Cantona til félagsins. Zinedine Zidane Bordeaux til Blackburn Rovers, 1996 „Af hverju viltu fá Zidane þegar við höfum Tim Sherwood,“ er fyrrverandi eigandi Blackburn, Jack Walker, sagður hafa spurt Ray Harford, stjóra liðsins, þegar hann lýsti yfir áhuga sínum á að fá Zinedine Zidane til félagsins árið 1996. Harford hafði áhuga á að fá bæði Zidane og Christoph Dugarry til félagsins. Á þeim tíma var Blackburn Englandsmeistari í knattspyrnu og stóð liðinu til boða að fá Zidane sem síðar átti eftir að verða einn besti knattspyrnumaður heims. Eigandi Blackburn var því mótfallinn og fór Zidane til Juventus skömmu síðar. Xavi Hernandez Barcelona til AC Milan, 1999 Adriano Galliani, varaforseti Milan, var mjög nálægt því að fá Xavi til félagsins árið 1999. Á þeim tíma var Xavi ungur og efnilegur leikmaður en átti í erfiðleikum með að brjótast inn í aðallið Börsunga. Xavi lýsti því síðar yfir að forsvarsmenn Barcelona hafi sannfært hann um að vera áfram og þeir sjá væntanlega ekki eftir því í dag. Móðir Xavi, Maria, lýsti því yfir í viðtali að Milan hafi boðið syni sínum og raunar allri fjölskyldunni gull og græna skóga fyrir að færa sig um set til Ítalíu. Á endanum var það Xavi sem ákvað að sanna sig hjá Barcelona. Ronaldinho Gremio til St. Mirren, 2001 Í mars 2001 var skoska félagið St. Mirren, sem þá var á botni skosku úrvalsdeildarinnar, nálægt því að fá Brasilíumanninn Ronaldinho. Paris St. Germain hafði komist að samkomu- lagi við Gremio um að fá hann til félagsins um sumarið. Í kjölfarið var Ronaldinho skilinn eftir í kuldanum hjá Gremio og fékk ekki að spila. Þá kom til tals að hann yrði lánaður til Skotlands til að fá reynslu úr Evrópu- boltanum. Félagaskiptin duttu upp fyrir þegar vandamál með vegabréf leikmannsins kom upp. Ronaldinho fór svo til Parísar um sumarið og söguna eftir það þekkja eflaust allir. Cristiano Ronaldo Sporting til Arsenal, 2003 Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur ávallt haft auga fyrir góðum ungum leikmönnum. Árið 2003 kom Wenger auga á Ronaldo þegar Arsenal tók þátt í Toulon-æfingamótinu. Ronaldo hafði áhuga á að ganga í raðir Arsenal en Wenger vildi ekki borga meira en fjórar milljónir punda fyrir hann. Í ágúst sama ár skrifaði Ronaldo undir samning við Manche- ster United og var kaupverðið 12,25 milljónir punda. Wenger lýsti því síð- ar yfir að Ronaldo hafi verið mættur á æfingasvæði Arsenal þar sem fékk að skoða aðstæður hjá félaginu og litist vel á. „Við sáum að hann hafði gríðarlega mikla hæfileika en við gátum ekki metið hvernig leikmaður hann yrði.“ „Ég hitti Wenger í þrí- gang, þar af einu sinni með móður minni. Það munaði litlu að úr þessu yrði,“ sagði Ronaldo um málið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.