Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Síða 2
Óeining innan
Heimdallar
2 Fréttir 1. ágúst 2012 Miðvikudagur
A
lmenningur á Íslandi hef-
ur ekki farið varhluta af
átökum innan ungliða-
starfs Sjálfstæðisflokksins
undanfarin ár, og ekkert
lát virðist nú vera á bolabrögðum og
óheiðarleika í þeim röðum,“ er með-
al þess sem stendur í harðorðri yfir-
lýsingu Heimis Hannessonar vegna
formannskosninga í Heimdalli. Í
vikunni var tilkynnt að Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir væri sjálfkjörin
formaður Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, ann-
að árið í röð. Heimir, sem var mót-
frambjóðandi Áslaugar, hætti við
framboð sitt á síðustu stundu vegna
óánægju með þau vinnubrögð sem
viðhöfð voru í aðdraganda kosn-
inganna. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem mikið ósætti blossar upp vegna
kosninga á vegum ungliða Sjálfstæð-
isflokksins. Áslaug vísar öllum ásök-
unum Heimis á bug.
Aðstöðumunur frambjóðenda
Boðun aðalfundar og framkvæmd
formannskosninga Heimdallar er í
höndum sitjandi formanns. Áslaug
kaus að boða óvænt til fundarins í
lok júlí þótt hefð sé fyrir því að for-
mannskosningar fari fram að hausti.
Var það gert með viku fyrirvara.
Heimir er ekki sáttur við að kosn-
ingarnar fari fram á þessum tíma
vegna sumarleyfa í Valhöll og annars
staðar. Hann er jafnframt óánægður
með hve óvænt fundarboðið var og
fyrirvari skammur. „Þessi dagsetn-
ing var að sjálfsögðu sett mér og
mínu stóra framboði til höfuðs,“ seg-
ir Heimir í yfirlýsingu sinni.
Áslaug segir það af og frá og bend-
ir á að boðað hafi verið til fundar-
ins í samræmi við lög Heimdallar.
Þar er kveðið á um að boða skuli til
aðalfundar með minnst viku fyrir-
vara. „Ég ákvað þetta bara ekki fyrr.
Ég ákvað þetta með viku fyrirvara.“
Spurð að því hvers vegna hún hafi
boðað til fundarins svo snemma seg-
ir Áslaug: „Heimir hefur undirbú-
ið framboð sitt síðan snemma í vor.
Kosningabaráttan var í rauninni farin
af stað og það er langt síðan hann til-
kynnti mér framboð sitt. Ég má halda
aðalfund hvenær sem er, hann þarf
bara að vera fyrir 1. október. Hann
hefði þess vegna getað verið í maí.“
Í yfirlýsingu Heimis fullyrðir hann
að frambjóðendur hafi ekki setið
við sama borð. Til að mynda hafði
Heimir ekki aðgang að rafrænni fé-
lagaskrá flokksins en annað gilti
um Áslaugu sökum stöðu hennar
sem sitjandi formanns. „Það er með
þessum hætti sem kosningasvik eru
framin úti í hinum stóra heimi – ekki
er tryggt að framboð njóti sama rétt-
ar,“ segir Heimir.
Segir regluverkið handónýtt
„Þau brutu tæknilega séð engar regl-
ur. Regluverkið er bara handónýtt.
Það er gallað kerfi sem býður upp
á svona vinnubrögð og það virðist
vera orðið að reglu frekar en undan-
tekningu að svona vitleysisgangi sé
beitt gegn nýjum framboðum,“ seg-
ir Heimir í samtali við DV. Þá vísar
hann einnig til þess að margoft hafa
komið upp hatrammar deilur vegna
umdeildra vinnubragða við kosn-
ingar á vegum ungliða Sjálfstæðis-
flokksins.
Áslaug gefur lítið fyrir það en seg-
ir þó: „Það má auðvitað skoða þetta.
En þetta er bara eins og það er og við
fylgjum bara lögunum. Það var stofn-
uð lagabreytinganefnd í fyrra sem fór
yfir og er að fara yfir lög Heimdallar.
Það er gert í þeim tilgangi að skýra
lögin svo það komi ekki upp deilu-
mál.“
Gagnrýni Heimis lýtur ekki að-
eins að regluverki flokksins held-
ur einnig starfsmönnum hans og
þá sérstaklega Jónmundi Guð-
marssyni, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins. „Ég gæti til dæmis
nefnt Jónmund Guðmarsson, fram-
„Hann
dregur þá
framboð sitt til
baka og lýgur um
fárán legustu hluti
n Heimir segir „bolabrögð og óheiðarleika“ einkenna kosningar í Heimdalli
Hörð gagnrýni Heimir Hannesson gagnrýnir harkalega aðstöðu-
mun frambjóðenda og segir regluverk flokksins handónýtt.
Formaðurinn Davíð Þorláksson, formaður SUS, brást harkalega við gagnrýni Heimis.
Mynd Sigtryggur Ari
Situr áfram Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var sjálfkjörin formaður
Heimdallar öðru sinni.
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Hert eftirlit með
vínmælingum
Neytendastofa mun á næstunni
herða eftirlit með tækjum sem
notuð eru á veitingahúsum til að
mæla vínskammta. Þetta kemur
fram á heimasíðu Neytendastofu.
Vínmál, sjússamæla, bjórglös
og fleira er skylt að löggilda eða
nota sérstaklega merkt glös. Vín-
mál sem ætluð eru til að mæla
áfenga vökva, sem seldir eru til
neytenda í lausri sölu, eiga að vera
í samræmi við reglur tilskipun-
ar Evrópuráðsins frá árinu 2004
sem var innleidd hér á landi árið
2007. Í undirbúningi er hjá Neyt-
endastofu ný reglugerð um vín-
mál enda nauðsynlegt að uppfæra
reglur um sölu á áfengum drykkj-
um.
Á veitingahúsum eiga að vera
merkt glös, til dæmis við sölu á
bjór og léttvíni.
Skilti hindra
vegfarendur
Nokkuð hefur borið á því að
undanförnu að auglýsingaskilti
á gangstéttum hindri vegfarend-
ur á ferð sinni og hafa ábendingar
þess efnis borist Reykjavíkurborg
í auknum mæli. Til að mæta þeim
réttmætu ábendingum og tryggja
greiðar gönguleiðir og draga úr
slysahættu verður gert átak á veg-
um byggingafulltrúans í Reykjavík
til að fjarlægja rangstæð skilti og
byrjar það í dag, miðvikudaginn
1. ágúst.
Blindrafélagið, samtök blindra
og sjónskertra, er meðal þeirra
sem bent hafa á hættuna sem illa
staðsett auglýsingaskilti geta haft
í för með sér. Í tilkynningu sem
Reykjavíkurborg sendi frá sér segir
Rósa María Hjörvar, aðgengisfull-
trúi Blindrafélagsins, að sérhvern
dag lendi félagsmenn í vandræð-
um að komast leiðar sinnar og
þar séu það auglýsingaskiltin sem
í orðsins fyllstu merkingu bregði
fæti fyrir þá.
Í samþykkt Reykjavíkurborgar
um skilti í lögsögu Reykjavíkur er
skýrt tekið fram að ekki er heimilt
að setja skilti á gangstéttir og ann-
að land í eigu Reykjavíkurborgar.
Fyrirtækjum sem vilji koma fyrir
þjónustuskiltum á eigin lóð eða í
starfstöð sinni er það heimilt að
settum skilyrðum í samþykktinni.
„Gangstéttar miðborgarinn-
ar eru land Reykjavíkurborgar og
þar má ekki setja skilti nema með
sérstöku leyfi. Reykjavíkurborg
hefur einnig gefið út leiðbeiningar
til rekstraraðila og dreift til þeirra.
Bæklingurinn heitir „Hvernig get
ég innréttað svæðið fyrir fram-
an veitingastaðinn eða verslun-
ina mína?” og verður að sjálf-
sögðu horft til þeirra leiðbeininga
um ákvörðun um hvort skilti eru
fjarlægð eða fá að vera. Eigend-
ur skilta sem verða fjarlægð geta
vitjað þeirra á hverfastöð þar sem
þau verða í vörslu í 30 daga áður
en þeim verður fargað,“ segir í til-
kynningunni.