Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Side 3
Óeining innan
Heimdallar
Fréttir 3Miðvikudagur 1. ágúst 2012
Einkaþotuævintýri lendir á ríkinu
n Skiptum á þrotabúi Baugsfélagsins BG Aviation lokið
E
ngar eignir fundust í þrotabúi
Baugsfélagsins BG Aviation
ehf. og engar greiðslur feng-
ust upp í rúmlega 10 milljóna
króna kröfur í búið en skiptalok voru
á þriðjudag samkvæmt tilkynningu
í Lögbirtingablaðinu. Að sögn Vil-
hjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns
og skiptastjóra þrotabúsins, var
stærsti kröfuhafi félagsins hið opin-
bera, nánar tiltekið Tollstjórinn.
Ríkið þarf því að afskrifa allar
skuldir BG Aviation, sem kalla má
einkaþotufélag, en það var í eigu
Baugs Group og þeir félagar Jón Ás-
geir Jóhannesson, Stefán Hilmar
Hilmarsson og Skarphéðinn Berg
Steinarsson voru titlaðir sem stjórn-
arformaður og meðstjórnendur við
stofnun félagsins. Tilgangur félags-
ins, sem stofnað var 24. maí 2006,
var kaup og sala flugvéla, rekstur og
eignarhald flugvéla og annarra eigna
tengdra flugrekstri.
Félagið komst þó aldrei á flug
þrátt fyrir háleit góðærismarkmið sín
og sagði Jón Ásgeir aðspurður um
félagið í samtali við DV fyrr á þessu
ári að það hefði ekki verið í neinum
rekstri.
Tollstjóri gerði í október síðast-
liðnum kröfu um að BG Aviation
yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Með
úrskurði 23. nóvember var sú krafa
samþykkt og Vilhjálmur skipaður
skiptastjóri yfir búinu.
Síðasti ársreikningur félagsins er
fyrir árið 2007 en samkvæmt hon-
um voru skráðir í stjórn félagsins
Eiríkur S. Jóhannsson, fyrrverandi
stjórnandi hjá Baugi, og Stefán H.
Hilmarsson. Samkvæmt síðasta árs-
reikningi þessa huldufélags, sem
gerði upp í Bandaríkjadölum, tap-
aði það 719 þúsund dölum árið 2007,
eigið fé þess var neikvætt um 750
þúsund dali og stærsta eign félags-
ins 2,3 milljóna dala lán sem veitt var
BG Aviation Ltd. árið áður, frá öðru
dótturfélagi Baugs sem Jón Ásgeir
átti glæsilega Dassault Falcon-einka-
þotu sína í gegnum. Stærsta skuld fé-
lagsins samkvæmt þessum síðasta
ársreikningi var einmitt við móður-
félagið Baug sem hafði lánað því 3
milljónir dala. mikael@dv.is
T
itlinum útvarpsstjóri fylgir
ekki endilega hár launatékki.
Það kemur bersýnilega í
ljós þegar rýnt er í laun Páls
Magnússonar og Arnþrúðar
Karlsdóttur. Samkvæmt álagningar-
skrá ríkisskattstjóra var Páll, útvarps-
stjóri RÚV, með 1,5 milljónir króna á
mánuði á síðasta ári. Arnþrúður, út-
varpsstjóri á Útvarpi Sögu, var hins-
vegar með tekjur upp á 187 þúsund
krónur á mánuði.
Stjórnarformaðurinn betur
launaður
Arnþrúður rekur útvarpsstöðina
ásamt Pétri Guðlaugssyni, sem er
stjórnarformaður fyrirtækisins, en
hann er með talsvert betri laun en
hún. Samkvæmt álagningarskránni
var hann með 329 þúsund krónur á
mánuði á síðasta ári. Útskýringin á
því er væntanlega seta hans í stjórn-
lagaráði en ekki störf hans fyrir út-
varpsstöðina.
Hvorki Arnþrúður, Pétur né Páll
eru hins vegar með laun sem jafnast
á við það sem Ari Edwald, forstjóri
365 miðla, var með í mánaðarlaun
á síðasta ári. Samkvæmt álagningar-
skránni var hann með laun upp á 4,1
milljón á mánuði að jafnaði. Hann
var langlaunahæsti maðurinn sem
kom að stjórnun og rekstri fjölmiðla
á Íslandi á síðasta ári.
Næstur á eftir honum var Óskar
Magnússon, útgefandi Morgun-
blaðsins, með tekjur upp á 2,3 millj-
ónir á mánuði. Óskar er þó talsvert
ríkari en Ari samkvæmt greiddum
auðlegðarskatti en samkvæmt út-
reikningum DV á hann tæplega 245
milljónir umfram skuldir ásamt eig-
inkonu sinni.
Morgunblaðið borgar vel
Morgunblaðsritstjórarnir Davíð
Odds son og Haraldur Johannesson
eru síðan einir tekjuhæstu fjölmiðla-
mennirnir á landinu. Davíð var með
2,2 milljónir króna í mánaðarlaun
en Haraldur með 1,6 milljónir. Freyr
Einarsson, ritstjóri 365 miðla, kemur
svo á eftir þeim með 1,6 milljónir á
mánuði á síðasta ári.
Ritstjórar annarra blaða eru með
á bilinu hálfa milljón til einnar og
hálfrar milljónar króna og komast því
ekki nálægt því sem Davíð Oddsson,
launahæsti ritstjóri landsins, hefur í
mánaðartekjur. Gera má þó ráð fyr-
ir því að hann hafi ekki bara tekjur af
Morgunblaðinu en hann á umtals-
verð eftirlaunaréttinda inni hjá rík-
inu vegna starfa sinna sem þingmað-
ur og ráðherra.
Tveir borga auðlegðarskatt
Davíð er eini maðurinn auk Óskars
á listanum sem greiddi auðlegðar-
skatt. Hann borgaði 896 þúsund
krónur í auðlegðarskatt sem þýð-
ir, samkvæmt útreikningum DV, að
hann og eiginkona hans eiga tæpar
215 milljónir króna umfram skuldir.
Í útreikningunum um laun er
miðast við greitt útsvar og ná því
tölurnar ekki til verktakatekna eða
fjármagnstekna. Listinn er því ekki
tæmandi þegar kemur að tekjum
þeirra einstaklinga sem á honum
eru.
n Forstjóri 365 með tæplega þreföld laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra
Ari launahæstur
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Launahæstur ritstjóra Davíð er launahæsti ritstjóri landsins með 2,2 milljónir á mánuði.
Mynd Eyþór ÁrnASon
Vel launaður Ari
stjórnar 365 miðlum
fyrir rúmar fjórar millj-
ónir á mánuði.
Mynd GunnAr GunnArSSon
n Heimir segir „bolabrögð og óheiðarleika“ einkenna kosningar í Heimdalli
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins, sem sýnt hefur það í þessu og
öðrum verkum, að maðurinn er
ekki starfi sínu vaxinn, en hann
gerði okkur meðal annars erfitt
fyrir að fá eðlileg kjörgögn afhent,“
segir Heimir í yfirlýsingunni. Jón-
mundur brást snarlega við gagn-
rýni Heimis, hafnaði henni og
krafðist þess að hann drægi orð
sín til baka.
„Lýgur um fáránlegustu hluti“
Í nokkur ár hefur verið greini-
leg flokkaskipting innan ungliða-
hreyfingar Sjálfstæðisflokksins.
Þar hefur annar armurinn, sem
nefndur hefur verið „skrímsla-
deildin“ af óvildarmönnum, náð
ótvíræðum undirtökum. Er það
armur sitjandi formanns Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna,
Davíðs Þorlákssonar, en Ás-
laug er sögð tilheyra þeim hópi.
Að minnsta kosti er ljóst að
Davíð stóð dyggilega við bak Ás-
laugar og í samtali við DV sakaði
hann Heimi um fáránlegar lygar.
„Heimir hefur séð að hann var
búinn að tapa, og það vill hann
ekki. Hann dregur þá framboð sitt
til baka og lýgur um fáránlegustu
hluti,“ segir hann.
„Á laugardaginn var haldinn
fundur þar sem fulltrúar fram-
bjóðenda ræddu framkvæmd
kosninganna. Á þeim fundi
komu engar athugasemdir fram
frá Heimi,“ segir Áslaug sem er
afar ósátt við ásakanirnar. „Í stað
þess að taka því eins og maður að
framboð mitt virtist sterkara og
að hann hefur hætt við þá ræðst
hann með svona ómálefnaleg-
um hætti á flokkinn og starf ungra
sjálfstæðismanna. Það er engum
til framdráttar að ráðast svona
með lygum að ungum sjálfstæðis-
mönnum sem virkilega vilja vinna
gott starf.“
Sjálfstæðisblóð í æðum
Áslaug starfar nú sem blaðamað-
ur hjá Morgunblaðinu en starfaði
áður hjá lögmannsstofunni Juris.
Segja má að Áslaug Arna sé með
sjálfstæðisblóð í æðum. Hún er
dóttir Sigurbjörns Magnússonar
lögmanns sem var sjálfur formað-
ur Heimdallar árin 1983–1985.
Einnig var hann um árabil fram-
kvæmdastjóri þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins. Í dag er Sigur-
björn formaður stjórnar Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins, auk
þess að reka lögmannsstofuna
Juris.
Heimir er stjórnmálafræði-
nemi við Háskóla Íslands. Hann
segir að þátttöku sinni í starfi
Sjálfstæðisflokksins sé hvergi
nærri lokið „þó starf á vettvangi
SUS og Heimdallar verði líklega
látið eiga sig“. Þó vildi Heimir óska
Áslaugu til hamingju með emb-
ættið og vonar að henni farnist vel
í starfi á komandi ári. n
þotufélag sem náði ekki flugi BG Aviation ehf. skilur eftir sig rúmlega 10 milljóna
króna skuld sem fellur á ríkið.