Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Page 4
Leynd yfir gestalista
n Valitor býður samstarfsaðilum á Ólympíuleikana
V
alitor bauð 10 samstarfsaðil-
um á Ólympíuleikana sem nú
fara fram í Lundúnum. Stjórn-
endur Valitor vilja hins vegar
engar upplýsingar veita um það
hvaða fyrirtæki eiga í hlut og hverjir
boðsgestirnir eru. Samkvæmt heim-
ildum DV fer Björk Þórarinsdóttir,
stjórnarformaður Valitor og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá
Arion banka, í ferðina ásamt tveimur
öðrum starfsmönnum bankans. Ekki
hefur fengist staðfest hverjir hinir sjö
gestirnir eru.
Að sögn Kristjáns Harðarsonar,
sviðsstjóra markaðs- og þróunar-
sviðs Valitor, er ferðin skipulögð í
samstarfi við VISA EU sem er einn
helsti styrktaraðili Ólympíuleikanna
í London.
„Valitor er að innleiða svokallað
NFC-verkefni á Íslandi í haust. Til-
gangurinn er að hefja þráðlaus-
ar kreditgreiðslur með farsímum
til almennra nota hér á landi. VISA
EU leggur mikla áherslu á að kynna
þessa nýju NFC-tækni í kortamálum
samhliða Ólympíuleikunum,“ segir
Kristján og bætir því við að í kynn-
ingarferðinni gefist boðsgestum
tækifæri á að sækja keppnisviðburð
á Ólympíuleikunum. Hann segir að
ferðin sé fyrst og fremst farin vegna
þess að umrædd NFC-tækni hafi
verið innleidd í leigubíla, matsölu-
staði, lestarkerfi og matvöruverslan-
ir á Ólympíuleikunum. Rætt verði við
erlenda kaupmenn og aðra aðila sem
hafa reynslu af tækninni.
Valitor er einn af aðalstyrktaraðil-
um ÍSÍ, er í ólympíufjölskyldunni,
og gefst þar af leiðandi möguleiki á
að kaupa miða á viðburði ÓL. Með-
al annarra fyrirtækja í ólympíufjöl-
skyldunni eru Icelandair, Íslands-
banki og Sjóvá. johannp@dv.is
4 Fréttir 1. ágúst 2012 Miðvikudagur
Viðar Þorkelsson Viðar er forstjóri
Valitor sem boðið hefur 10 samstarfsaðilum
á Ólympíuleikana í London.
M
ýmörg dæmi eru um að
þjónustufyrirtæki úti
um allt land; vegasjopp-
ur, veitingastaðir og hót-
el, veiti leiðsögumönnum
frían mat og aðrar vörur gegn því að
þeir stoppi með ferðamenn hjá sér.
Að sögn eigenda þjónustufyrirtækja
sem DV talaði við gera sumir leið-
sögumenn miklar kröfur. Auk þess að
vilja fríar máltíðir vilja kröfuhörðustu
leiðsögumennirnir fá sígarettur að
launum fyrir stoppið.
„Kannast ekki allir við það?“
segir Hrefna Birkisdóttir, eigandi
vegasjoppunnar Vegamóta á Snæ-
fellsnesi, um þetta „samkomulag“.
„Okkur finnst allt í lagi að koma
til móts við þá sem sýna lit og versla
við okkur,“ segir Hrefna en bætir þó
við að henni finnist fyrirkomulagið
svolítið asnalegt. Hrefna tekur sér-
staklega fram að fararstjórar sem
koma með fámenna hópa séu frek-
astir. „Það eru þeir sem eru langfrek-
astir. Þeir vilja fá allt frítt þó að þeir
séu jafnvel bara með tvo ferðamenn
með sér – og hvorugur kaupi neitt.“
Aðspurð hvort leiðsögumennirnir
myndu hætta að stoppa hjá henni ef
hún yrði ekki við óskum þeirra segist
Hrefna að vísu ekki hafa fengið slíkar
hótanir, en tekur þó fram: „En maður
er sjálfur auðvitað hræddur um að sú
yrði raunin.“
Hrefna segir kröfur leiðsögu-
manna og bílstjóra oft æði skraut-
legar. „Þeir vildu meira að segja
stundum að við gæfum þeim sígar-
ettur – en við erum hætt að selja þær
núna.“
Mikið vald
Í ljósi þess að aðaltekjulind téðra
þjónustufyrirtækja er ferðamenn
er vald þeirra sem ákveða hvar þeir
stoppa mikið. „Já, já, þetta er alveg
þekkt í þessum geira,“ segir Bryndís
Kristjánsdóttir, sem situr í stjórn fé-
lags leiðsögumanna, um málið og
bætir við: „Við vitum að á ákveðnum
stöðum þykjum við afskaplega góður
viðskiptaaðili og viðmótið við okkur
er eftir því.“
Bryndís leggur áherslu á að það
viðmót sem þjónustuaðilinn sýni hafi
mikil áhrif á það hvar leiðsögumenn
ákveði að stoppa næst, ef þeir hafa
val milli tveggja eða fleiri staða: „Við
erum oft í þeirri stöðu að við verðum
að finna einhvern stað til að fara með
fólkið á – til dæmis í hádeginu. Auð-
vitað veljum við þá staði þar sem við
vitum að viðmótið er gott,“ segir hún.
Aðspurð hvort það væri ekki ólíklegt
að hún færi með ferðamenn á stað,
sem hún vissi að gæfi leiðsögumönn-
um ekki fríar vörur segir Bryndís:
„Nei – kannski ekki. Stundum höf-
um við engra kosta völ. En auðvitað
erum við mjög þakklát þegar málum
er þannig háttað. Ef við vitum að við
erum aufúsugestir á einum stað en
ekki öðrum – þá veljum við að sjálf-
sögðu þann stað.“
Að endingu segist Bryndís ekki
vita hvernig aðrir leiðsögumenn hagi
sínum málum en hjá henni séu hags-
munir ferðamannanna alltaf lykil-
atriði.
Hótanir
DV talaði við fjölmarga veitingamenn
um allt land. Margir kvörtuðu, eins
og Hrefna, yfir mikilli frekju leiðsögu-
manna og bílstjóra. Veitingamaður,
sem vill ekki láta nafns síns getið af
ótta við sniðgöngu, fullyrti að bílstjóri
hefði haft í hótunum við sig. Þegar
veitingamaðurinn ætlaði að rukka
hann fyrir fiskmáltíð brást bílstjórinn
ókvæða við og sagðist myndu segja
öllum vinum sínum, sem störfuðu
sem bílstjórar, að stoppa aldrei aftur á
veitingastaðnum. Guðmundur Vignir
Steinsson er eigandi Skaftárskála á
Kirkjubæjarklaustri. Hann fullyrðir að
þetta fyrirkomulag tíðkist úti um allt
land – alls staðar. „Þeir myndu nátt-
úrlega sniðganga mann,“ segir Guð-
mundur, aðspurður um afleiðingar
þess að hann myndi rukka leiðsögu-
menn og bílstjóra fyrir matinn.
Óttast ekki óttann
„Mér finnst þetta bara skelfilegur
ósiður,“ segir Þórður Stefánsson, eig-
andi ÓK söluskálans í Ólafsvík. Hann
segist hafa tekið fyrir þetta fyrir mörg-
um árum. „Leiðsögumennirnir komu
til mín og vildu frían mat vegna þess
að þeir væru að koma með viðskipta-
vini. Ég sagði bara nei takk – hingað
og ekki lengra!“ Þórður segir að í sölu-
skálanum séu allir jafnir. Aðspurður
hvort hann óttist að leiðsögumenn
sniðgangi söluskálann af þessum
sökum segir Þórður: „Þetta er eins og
með handrukkarana; ótti skelfir – en
hann skelfir mig ekki. Þetta eru bara
viðskipti og viðskipti eiga að vera
uppi á borðinu. Punktur.“
n Nýta sér ferðamenn til að fá vörur ókeypis n Þjónustuaðilar ósáttir
„Leiðsögumennirn-
ir komu til mín og
vildu frían mat vegna
þess að þeir væru að
koma með viðskiptavini.
Ég sagði bara nei takk –
hingað og ekki lengra!
Stoppa þar Sem
þeir fá frían mat
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Svangir ferðamenn Þjónustufyrirtæki um allt land hafa mikla hagsmuni af því að rútur fullar af ferðamönnum stoppi hjá þeim. Leið-
sögumenn ráða oft hvar rúturnar stoppa.
Hrefna Birkisdóttir Eigandi
vegasjoppunnar Vegamóta.
Skóeftirlit
til skoðunar
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra hyggst skoða hvort
reglur um eftirlit á flugvöllum
hér á landi séu of strangar. Frá
þessu er greint á vef Túrista.
Skór allra farþega á Keflavíkur-
flugvelli eru skannaðir ólíkt því
sem gerist og gengur í löndun-
um í kringum okkur og í
Bandaríkjunum. Túristi hefur
fjallað reglulega um þessar
ströngu reglur síðastliðið ár.
Ögmundur sagði í samtali
við Túrista að hann ætli að fara
yfir þetta mál með Flugmála-
stjórn og Isavia, rekstraraðila
Keflavíkurflugvallar. Málið
verður tekið til skoðunar með
haustinu samkvæmt upplýsing-
um frá ráðuneytinu. Farið
verður yfir reglur og verklag,
skoðað hvernig aðrar þjóðir
framkvæma þetta og metið
hvort breyta þurfi leitarskilyrð-
um hér.
Óværa lokaði
vef borgarinnar
Óværa lokaði vef Reykjavíkur-
borgar, reykjavik.is, í nokkrar
klukkustundir á þriðjudag með
þeim afleiðingum að ekki var
hægt að komast inn á hann.
Hjörtur Grétarsson, upplýsinga-
tæknistjóri Reykjavíkurborgar,
sagði í fréttum RÚV að sennileg-
ast væri klaufaskap starfsmanns
um að kenna. Málið væri ekki
þannig vaxið að hakkarar hefðu
ráðist á vefinn. Hjörtur bætti þó
við að mál af þessu tagi komi
nánast aldrei upp og tjón af
þessari tímabundnu lokun verði
ekkert.