Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Qupperneq 10
V
ið erum mjög fegin, en
hann er ekki laus úr prís-
undinni ennþá. Þeir ætla
að áfrýja þessu og við vitum
ekki enn hvernig þetta fer,“
segir Borghildur Antonsdóttir móð-
ir Brynjars Mettinissonar sem var
sýknaður fyrir taílenskum dómstól á
þriðjudag. Brynjar hefur setið í rúmt
ár í fangelsi. Baráttunni er þó hvergi
nærri lokið því Brynjar þarf að bíða
í mánuð þar sem saksóknarar hafa
tekið ákvörðun um að áfrýja málinu.
Brynjar fær því ekki að fara heim fyrr
en í fyrsta lagi þegar niðurstaða áfrýj-
unarinnar liggur fyrir. „Þetta er mik-
ill léttir og þó að það sé smá skuggi
framundan þá er það samt léttir að
hann hafi verið sýknaður,“ segir hún.
Í atvinnuleit
Líkt og DV hefur áður greint frá hef-
ur Brynjar setið í taílensku fang-
elsi síðan í júní í fyrra grunaður um
vörslu fíkniefna. Hann var handtek-
inn á heimili annars manns í Bang-
kok sem hafði sagt Brynjari að hann
gæti aðstoðað hann við atvinnuleit.
Lögreglan hafði fylgst með mannin-
um um nokkra hríð og gerði húsleit
í íbúðinni þegar Brynjar var um það
bil að ganga út úr henni. Þeir voru svo
báðir handteknir fyrir vörslu metam-
fetamíns. Það var þó ekki Brynjar
sem var með fíkniefni á sér og þver-
tekur móðir hans fyrir að Brynjar
neyti fíkniefna. Að sögn hennar hef-
ur maðurinn játað að dópið hafi ver-
ið hans og Brynjar hafi hvergi komið
þar nálægt. Hins vegar hafa taílensk
stjórnvöld tekið hart á málinu og
Brynjar verið sóttur til saka af mikl-
um þunga. Fíkniefnamál eru litin
afar alvarlegum augum í Taílandi,
sérstaklega ef um útlendinga er að
ræða. „Hann var hvorki með þau á
sér, né vissi af þeim,“ segir Borghild-
ur, „enda viðurkenndi hinn strák-
urinn það fyrir rétti.“
Þarf að kaupa klósettpappír
Vera Brynjars í fangelsinu hefur ver-
ið afar kostnaðarsöm og hafa þau
þurft að leita til vina, vandamanna
og ókunnugra eftir aðstoð. Kaupa
þarf allar nauðsynjar fyrir hann og
á þriggja mánaða fresti millifærir
móðir hans peninga til hans svo að
hann geti meðal annars keypt sér
vatn og salernispappír. Borghild-
ur hefur sjálf ekki rætt við hann í
síma í rúmt ár og í langan tíma hef-
ur enginn fjölskyldumeðlimur get-
að hitt Brynjar. Hún hitti hann síðast
mánuði eftir að hann var handtek-
inn. „Það er ekki hægt að hringja í
hann. Guð minn góður, ég held að ég
hafi talað við hann einu sinni í síma
fyrir rúmu ári,“ segir Borghildur. Þrátt
fyrir sýknuna verður Brynjar áfram í
varðhaldi næsta mánuðinn þangað
til áfrýjunin verður tekin fyrir. „Hann
getur fengið að koma út fyrr, en þá
verðum við að borga tvær milljón-
ir baht fyrir frelsið,“ segir mamma
hans, en það eru tæplega átta millj-
ónir íslenskra króna. Hún fer til hans
í lok ágúst og hennar heitasta ósk er
að geta tekið Brynjar með sér heim.
Óhugnanleg fangelsi
„Þau eru náttúrulega ekki til sóma,“
segir Borghildur um fangelsin í Bang-
kok. „Þeir eru milli sjötíu og áttatíu í
einu herbergi – sem er kannski tutt-
ugu eða þrjátíu fermetrar. Þeir sofa
bara hlið við hlið á steingólfi. Það er
eitt klósett í miðju herberginu sem
þeir hafa. Þetta er alveg ótrúlegt,“
segir hún. Áður hafði komið fram að
Brynjar hafi orðið fyrir ofbeldi í fang-
elsinu en Borghildur vill ekki ræða
það og segir að það viti enginn hver
komi til með að lesa viðtalið. Hún
óttast að umfjöllun um slíkt geti jafn-
vel gert hlutina enn verri fyrir hann.
Margar andvökunætur
Fæstir geta gert sér í hugarlund
hversu erfitt það er að standa í sömu
sporum og Brynjar og fjölskylda
hans. Þau hafa þó fengið mikinn
stuðning frá fjölskyldu og vinum,
sem og ókunnugum, sem hefur veitt
þeim aukinn styrk. „Þetta er búið að
reyna mikið á okkur og hefur verið
alveg hræðilegt. Þetta er búið að vera
mjög erfitt og margar andvökunæt-
ur,“ segir Borghildur. „Stundum hef-
ur maður alveg verið að guggna.“
Aukinn styrkur
Þegar hún fékk fregnir af því að
Brynjar hefði verið sýknaður segist
hún hafa fyllst auknum styrk. „Já, það
má nú bara segja það. Ég var orðin
alveg tóm. En í nótt þegar ég fékk að
vita þetta, var eins og ég fengi auka
kraft. Nú vil ég bara halda áfram að
berjast fyrir þessu. Það versta er pen-
ingahliðin. Ég veit ekki hvort lög-
fræðingurinn þarf að fá meira greitt
eða ekki.“ Íslenska utanríkisþjónust-
an hefur verið fjölskyldunni innan
handar með ýmislegt, en ekki getað
aðstoðað þau fjárhagslega. Þau hafa
þó getað borið skilaboð á milli og
hefur ræðismaður Íslands í Taílandi
getað fylgst með Brynjari í fangelsinu
og reynst þeim vel.
Dýrmætur stuðningur
Sett var af stað söfnun fyrir Brynj-
ar til að létta undir með kostnaðinn
í tengslum við fangavistina. Andleg-
ur stuðningur hefur einnig reynst
fjölskyldunni dýrmætur. „Allt þetta
fólk, vinir og vandamenn; stuðn-
ingsmenn sem hafa stutt rækilega
við bakið á okkur – ég veit ekki hvað
við hefðum gert án þeirra. Það hef-
ur verið mikill andlegur stuðningur
og hann hefur aðstoðað mig við að
halda áfram að berjast; trúa á guð og
trúa því að þetta muni allt blessast.
Ég treysti því að sannleikurinn verði
ofan á að lokum. Saga Brynjar hef-
ur ekkert breyst og hann segir alltaf
bara sannleikann.“
Heimspekingur
Borghildur sparar ekki falleg orð
um son sinn. „Hann er yndisleg-
ur drengur. Hann er þolinmóður
og hann er mömmustrákur,“ segir
hún. „Hann er svo yndislegur að ég
veit varla hvernig ég á lýsa honum.
Hann er mjög andlega þenkjandi og
ég held að það hafi hjálpað honum
rosalega mikið,“ segir hún en Brynj-
ar hefur stundað mikið jóga og hef-
ur meðal annars heimsótt Taíland
til þess að læra hugleiðslu og jóga
í munkaklaustri. Í fyrsta skipti sem
hann fór til Taílands lærði hann
kickbox. Í annað skipti heimsótti
hann munkaklaustrið en þar fór
hann í gegnum námskeið þar sem
hann sór þagnareið og þagði í tíu
daga. „Hann er svona lítill heim-
spekingur,“ segir hún og segist telja
að það hafi hjálpað honum að hann
hafi lært hugleiðslu. Það hafi veitt
honum styrk við erfiðar aðstæð-
ur og gert honum kleift að halda
sönsum í fangelsinu. Brynjar dvaldi
einnig á sveitabæ í Taílandi og starf-
aði á hrísgrjónaakri. Í staðinn fyr-
ir vinnuna sem hann innti af hendi
fékk hann hengirúm og mat. „Hann
er voðalega mikið fyrir að reyna
hluti sem aðrir myndu ekki hugsa
um að gera,“ segir mamma hans.
Heillaður af Taílandi
Í þessari ferð var Brynjar þó aðeins
að heimsækja Taíland þar sem
hann var yfir sig numinn af fegurð
landsins. Hafði hann kynnst stúlku
sem hann átti í ástarsambandi við
þegar hann var handtekinn. Borg-
hildur veit ekki hvort stúlkan bíð-
ur enn eftir Brynjari. Hún segir að
ár án nokkurra samskipta sé bæði
langur og erfiður tími fyrir ungt
samband og tíminn verði bara að
leiða í ljós hvað verði. „Ég fer til
hans 22. ágúst,“ segir Borghildur
og þegar blaðamaður spyr hvort
hún vonist til að geta tekið Brynj-
ar með sér heim þá segir hún: „Ég
vildi óska þess – svo sannarlega.“
1. ágúst 2012 Miðvikudagur
SÝKNAÐUR EN FÆR
EKKI AÐ FARA HEIM
„Þetta er mikill
léttir og þó að það
sé smá skuggi fram und-
an þá er samt léttir að
hann hafi verið sýknaður.
n Brynjar sýknaður en þarf að bíða eftir að áfrýjun verði tekin fyrir n Í haldi í ár vegna meints fíkniefnabrots
Styrktarreikningur fyrir Brynjar
Reikningsnúmer: 0537-26-494949
Kennitala: 060549-4949.
Sýknaður Brynjar
var sýknaður en fær
ekki að fara heim.
Saknar hans Borghildur Antonsdóttir segist vonast til að geta sótt Brynjar í lok ágúst.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
10 Fréttir