Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Page 18
Þ
egar fólk eignast börn fara
hlutir oft að verða hættu-
legir sem voru það ekki
áður. Það á við um skúff-
ur, skápa, salerni, hreinsi-
efni og margt fleira. Eitt annað sem
getur verið varasamt fyrir börn eru
leikföng og það er mjög mikilvægt
að velja réttu leikföngin fyrir barnið
sitt, sem henta aldri þess og þroska.
Hér eru nokkur atriði sem vert
er að hafa í huga þegar verið er að
velja leikföng fyrir börn:
n Hentar þetta leikfang
barninu þínu?
Flest leikföng eru með límmiða
sem á stendur fyrir hvaða aldur
leikfangið er og það má taka þær
merkingar gildar. Ef leikfangið er til
dæmis ekki ætlað börnum sem eru
yngri en 3 ára, þá á alls ekki að leyfa
yngri börnum að leika sér með
þau því það getur einfaldlega verið
hættulegt, fyrir utan að það hentar
ekki þroskastigi barnsins.
n Hugsaðu stórt
Þangað til barnið er þriggja ára
eiga allir hlutar leikfangsins að vera
stærri en munnur þess.
n Er leikfangið of þungt?
Ef leikfangið er það þungt að það
myndi meiða barnið ef það lenti
á því þá ættirðu að sleppa því að
kaupa það.
n Vel samsett leikföng
Passaðu að leikföngin séu vel gerð
og ekki sé hægt að taka þau í sund-
ur í litla búta. Einnig að lakkhúð
eða málning sé ekki að flagna af og
ef um bangsa er að ræða að passa
að hann sé vel saumaður. Fyrir
minnstu börnin er líka gott að velja
bangsa sem eru ekki með slaufum,
hnöppum, bandi eða öðru slíku.
Hvað þýðir þetta?
Það eru margar merkingar á leik-
föngum sem hinn almenni neyt-
andi veit ekki hvað þýða. Það er
samt aldrei of varlega farið og þess
vegna er mjög gott að hafa það á
hreinu hverju maður er að leitast
eftir.
Öll leikföng sem eru úr taui eiga
að vera merkt „Flame resistant“
eða „Flame Retardant“ sem þýð-
ir að þau séu ekki eldfim. Bangs-
ar eiga að vera merktir „Washable“
sem merkir að það megi setja þá í
þvottavélina. Máluð leikföng eiga
að hafa merkinguna „Lead free
paint“ sem þýðir að málningin fer
ekki af þeim. Allt sem notað er til
listsköpunar á að vera merkt „Non
toxic“ en það þýðir að engin eitruð
efni séu í þeim.
Leikskólar þurfa að fylgjast með
Öll leikföng hér á landi eiga að vera
CE merkt og þeim eiga að fylgja
upplýsingar um hættu sem fylgir
tilteknu leikfangi og hvernig skal
bregðast við. Þessar upplýsingar
eiga að vera á íslensku og ann-
að hvort á leikfanginu sjálfu eða á
notkunarleiðbeiningum. ABC leik-
föng selja mikið af þroskandi leik-
föngum og segja þau á heimasíðu
sinni að þeim hafi ekki fundist
framboð af svoleiðis leikföngum
verið mikið á Íslandi til þessa. DV
ræddi við Kristínu Hlynsdóttur sem
starfar hjá ABC leikföngum „Það er
fylgst mjög vel með öllum merking-
um þegar verið er að kaupa leik-
föng inn hjá okkur, að allar vottanir
séu til staðar. Við leggjum sérstak-
lega mikla áherslu á þetta því við
erum að kaupa þroskaleikföng og
við verslum allt frá Bandaríkjunum
og Evrópu. Við bendum líka fólki á
réttu leikföngin sem henta aldurs-
skeiði viðkomandi barns.“
Kristín segist hafa farið með
kynningar á leikföngunum á leik-
skóla og hún segir að þar vanti
stundum upp á að fylgst sé með
aldursmerkingum á leikföngum.
„Ég hef oft séð þetta á leikskól-
um, til að mynda eru börn sem eru
alltof ung að leika sér með pinna og
annað smádót.“
Vandamálið er hjá þeim fullorðnu
Herdís Storgaard, verkefnisstjóri
Árvekni hjá Lýðheilsustöð, segir
að foreldrar verði að vera vakandi
fyrir því hvað börnin þeirra eru að
leika sér með. „Mér finnst lagaum-
gjörðin utan um þetta og þær regl-
ur sem hér gilda virka mjög vel.
Flestir innflytjendur hér á landi eru
líka að passa upp á að versla örugg
leikföng og ég tel að vandamálið sé
frekar þegar kemur að þeim full-
orðnu, hvort sem það eru foreldr-
ar eða afi eða amma eða aðrir, þá
er allt of algengt að fólk sé ekki að
virða aldursmerkingarnar. Merk-
ingarnar eru þarna af ástæðu og
það þarf að fara eftir þeim, leikföng
sem eru bönnuð frá 0–3 ára eru
ekki hættulaus. Það koma fjölda-
margar kvartanir vegna leikfanga
sem fólk segir að séu gölluð en svo
kemur í ljós að barnið er ekki nógu
þroskað fyrir leikfangið,“ segir Her-
dís.
Sum leikföng eru slysagildrur
fyrir lítil börn eins og Herdís segir
okkur: „Það má rekja nokkur alvar-
leg slys til þess að barn fær gefins
leikfang sem ekki hæfir aldri þess.
Ég man til dæmis eftir nokkrum
tilfellum þar sem börnum hefur
verið gefin leikfangabíll sem það
getur setið á og ýtt sér áfram. Þar
hafa orðið alvarleg höfuðkúpubrot
því að barnið hefur ekki ráðið al-
mennilega við það að ýta sér áfram
og halda jafnvæginu og dottið illa
af bílnum. Svo ég segi að númer
eitt, tvö og þrjú er að fullorðna fólk-
ið sé meðvitað um þetta.“
18 Neytendur 1. ágúst 2012 Miðvikudagur
Fyrirmyndar-
strætófarþegi
n Lofið hlýtur heiðursborgar-
inn sem fann strætókort við
stoppistöðina á Laugarnesvegi
við Kirkjusand á þriðju-
dagsmorgun. Sá hefði
auðveldlega getað hirt
kortið og notað óá-
reittur til loka
október en þessi
ágæti borgari kaus
þess í stað að skila
því inn til Strætó bs.
þar sem eigandinn
hafði af rælni spurst fyrir um hið
verðmæta kort. Það kom honum
skemmtilega á óvart að þar biði
það hans og lét hann hafa eftir
sér: „Svona heiðarleika kann ég
að meta!“
Kolröng
greining
n Viðskiptavinur keypti Sony
Ericsson-síma fyrir ári hjá Sím-
anum en það hefur verið vesen
með hann alveg síðan þá. Sím-
inn hefur þrisvar þurft á viðgerð
að halda vegna hugbúnaðarvillu
en síðast var síminn líka hættur
að taka hleðslu. Greiningin sem
viðskiptavinurinn fékk þá var að
inntengi fyrir hleðslutæki væri
brotið, skipta þyrfti um móð-
urborð og það væri of kostnað-
arsamt til þess að vert væri að
leggja í svoleiðis viðgerð. Við-
skiptavinurinn komst svo að því
fyrir tilviljun að hleðslutækið
hans var ónýtt og ekkert að inn-
tenginu í símanum. Viðskipta-
vinur hafði sem sagt fengið kol-
rangar upplýsingar og síminn
verið ranglega greindur. Þegar
haft var samband við þjónustu-
deild Símans vegna þessa sagði
starfsmaðurinn að alltaf væri
reynt að bregðast við svona lög-
uðu með því að hafa samband
við heildsöluaðilana
en til þess þurfi við-
skiptavinurinn að
hafa samband og
það sér meira en
sjálfsagt að reyna
að bæta fyrir þetta.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
lEIKFÖNG SEM
bÖrN SlASA SIG á
n Foreldrar og leikskólar verða að fylgjast grannt með merkingum
„Það má rekja nokkur
alvarleg slys til þess
að barn fær gefins leikfang
sem ekki hæfir aldri þess.
Örugg leikföng Passaðu að leikföngin
séu vel gerð og ekki sé hægt að taka þau
í sundur í litla búta.
Barnaleikföng Þangað
til börn eru orðin þriggja
ára eiga allir hlutar leik-
fangsins að vera stærra en
munnur þess.
CE merking
Öll leikföng hér
á landi eiga að
vera CE merkt.
Ekki fyrir börn
yngri en 3 ára
Leikföng sem
kunna að vera
hættuleg börnum
yngri en þriggja
ára skulu vera með
svona viðvörun.
E
ld
sn
ey
ti
Algengt verð 246,8 kr. 249,8 kr.
Algengt verð 246,6 kr. 249,6 kr.
Algengt verð 246,5 kr. 249,6 kr.
Algengt verð 246,8 kr. 249,8 kr.
Algengt verð 248,6 kr. 249,9 kr.
Melabraut 246,6 kr. 249,6 kr.
Bensín Dísilolía