Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Qupperneq 25
U
ndanúrslitin í Borg-
unarbikar karla í
knattspyrnu hefjast
í kvöld þegar Stjarn-
an tekur á móti Þrótti
á heimavelli sínum í Garða-
bæ. Óhætt er að segja að gengi
þessara liða hafi verið ólíkt í
sumar. Stjarnan situr í þriðja
sæti Pepsi-deildarinnar á
meðan Þróttarar hafa verið að
ströggla í 1. deildinni í sum-
ar – sitja í 7. sæti og eru aðeins
tveimur stigum frá fallsæti.
Síðari undanúrslitaleik-
urinn er viðureign Grinda-
víkur og KR og fer hann fram
á heimavelli Grindavíkur á
fimmtudagskvöld. DV fékk
Tryggva Guðmundsson, leik-
mann ÍBV og markahæsta
leikmann Íslandsmótsins frá
upphafi, til að spá í spilin fyr-
ir leikina.
Stjarnan of stór biti
„Þetta er eitthvað sem gæti
kallast „no-brainer“,“ segir
Tryggvi þegar hann er spurður
út í leik Stjörnunnar og Þrótt-
ar. Hann segir að gera verði ráð
fyrir öruggum sigri Stjörnunn-
ar en Þróttarar séu þó sýnd
veiði en ekki gefin. „Þetta ætti
að vera frekar auðvelt fyrir
Stjörnuna á nýja teppinu.
Þróttarar eru samt komnir alla
þessa leið og þegar búnir að slá
út tvö úrvalsdeildarfélög,“ seg-
ir Tryggvi en Þróttarar lögðu
Valsmenn að velli í 16 liða úr-
slitum og unnu svo sannfær-
andi sigur á Selfyssingum, 3–0,
í 8 liða úrslitum. „Maður hef-
ur séð lið fara langt á stemn-
ingunni. Það hefur gengið illa
hjá þeim í deildinni og þeir sjá
glitta þarna í úrslitaleik og jafn-
vel einhverja Evrópukeppni.
Þetta er aðalleikur sumarsins
fyrir þá og þeir gætu alveg far-
ið langt á stemningunni. Ég
held samt að Stjörnumenn séu
of stór biti,“ segir Tryggvi sem
segist aðspurður búast við 3–1
sigri Stjörnunnar.
Framlenging og fjör
Í síðari undanúrslitaviður-
eigninni mætast sem fyrr seg-
ir Grindavík og KR sem eru
núverandi bikarmeistarar.
Tryggvi segir að þar gætu orðið
óvænt úrslit þó hann búist við
jöfnum leik. „Það er Bikar-Gaui
á móti syni sínum og félög-
um. Það er dálítið svipað upp
á teningnum hjá Grindavík og
Þrótti að því leyti að sumarið
er nokkurn veginn undir – þó
Grindvíkingar séu vissulega
deild ofar. Guðjón [Þórðarson,
þjálfari Grindavíkur: innsk.
blm.] er náttúrulega snilling-
ur í að mótívera menn og ég
hugsa að hann fái menn alveg
þvílíkt upp á tærnar fyrir þenn-
an leik. Það er nú bara þannig
hér á landi að það finnst öllum
gaman að vinna KR. Ég býst þó
að sjálfsögðu við mjög jöfnum
leik en mig langar að tippa á
Grindvíkinga. Þetta gæti farið
í framlengingu og fjör. Eigum
við ekki að segja 2–1 og ég held
að Pape Mamadou Faye skori
sigurmarkið. Ég veit ekki hvort
hann byrjar en ég held að hann
reddi þessu fyrir heimamenn,“
segir Tryggvi að lokum. n
Sport 25Miðvikudagur 1. ágúst 2012
Færði fótbrotnum Lennon gjafir
n Jón Jónsson miður sín eftir að hafa meitt andstæðing
Þ
etta var fallega gert af
honum. Takk, félagi,“
segir skoski framherj-
inn Steven Lennon á
Twitter-síðu sinni á þriðjudag
eftir að hafa fengið heimsókn
frá FH-ingnum Jóni Jónssyni
sem færði honum gjafir. For-
saga málsins er sú að Jón tækl-
aði Lennon í leik FH og Fram
á mánudagskvöld með þeim
afleiðingum að Lennon slas-
aðist illa, þríbrotnaði á rist og
leikur ekki meira með Fram
á tímabilinu. Meiðslin eru
Framliðinu mikið áfall enda er
Lennon einn þeirra besti leik-
maður, þrátt fyrir að hafa lent
upp á kant við forráðamenn fé-
lagsins á dögunum þegar þeir
höfnuðu tilboði KR í hann.
Fyrir brotið fékk Jón sitt
annað gula spjald í leiknum
og þar með rautt og þóttu við-
brögð hans er hann gekk til
búningsherbergir í Laugar-
dalnum ekki til fyrirmynd-
ar. Hann var þó fljótur til að
biðja Lennon afsökunar á því
að hafa meitt hann í viðtali eft-
ir leikinn í Pepsi-mörkunum
á Stöð 2 Sport. Þar ávarpaði
hann Lennon beint á ensku og
var einlægnin uppmáluð. Þá
mun hann einnig hafa rætt við
Lennon persónulega.
Á þriðjudag var svo ljóst að
meiðsl Lennons væru alvar-
leg. Jón ákvað að heimsækja
Lennon sem var miður sín yfir
því að tímabilinu væri lokið
vegna meiðslanna.
Jón færði Lennon DVD-
diska, tölvuleiki og eintak
af hljómplötunni hans. Og
Lennon kunni vel að meta
hugulsemina. Jón skildi þá
einnig eftir skilboð á Twitter-
síðu hans:
„Mér þykir þetta innilega
leitt. Ég vona að þú jafnir þig
eins skjótt og auðið er. Þá get-
ur þú hjálpað mér við að vinna
í að skora með vinstri.“
n Stjarnan–Grindavík í úrslit, segir Tryggvi Guðmundsson„Þetta gæti
farið í fram-
lengingu og fjör. Eigum
við ekki að segja 2–1.
Sumarið er undir
Meistarar Það voru leikmenn
KR sem unnu bikarkeppnina
í fyrra með sigri á Þórsurum.
Tryggvi Guðmundsson spáir því
að Grindvíkingar slái KR-inga úr
leik í undanúrslitum.
Spáir í spilin Tryggvi spáir því að
Stjarnan og Grindavík mætist í úr-
slitum bikarkeppninnar. Hvort sú spá
rætist verður tíminn að leiða í ljós.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
64 liða úrslit:
0 Léttir
5 Þróttur
32 liða úrslit:
4 Stjarnan
1 Grótta
32 liða úrslit:
1 Leiknir R.
2 Þróttur
32 liða úrslit:
0 Keflavík
1 Grindavík
32 liða úrslit:
1 ÍA
2 KR
16 liða úrslit:
1 Stjarnan
0 Reynir S.
16 liða úrslit:
2 Þróttur
1 Valur
16 liða úrslit:
2 KA
3 Grindavík
16 liða úrslit:
3 KR
0 Breiðablik
8 liða úrslit:
2 Stjarnan
1 Fram
8 liða úrslit:
3 Þróttur
0 Selfoss
8 liða úrslit:
0 Víkingur R.
3 Grindavík
8 liða úrslit:
1 ÍBV
2 KR
Undanúrslit:
Stjarnan
Þróttur
Undanúrslit:
Grindavík
KR
Úrslitaleikur
18. ágúst
Miður sín Jón Jónsson bað
Steven Lennon afsökunar á því
að hafa meitt hann í leik Fram
og FH á mánudag.
Mynd: SiGtRyGGuR ARi
Fergie treystir
á Chicharito
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, segir
að góðir tímar bíði fram-
herjans Javier Hernand-
ez, eða Chicharito, á næst-
unni. Hernandez kom eins
og stormsveipur inn í ensku
úrvalsdeildina haustið 2010
og skoraði 20 mörk á sínu
fyrsta tímabili. Hann átti
hins vegar erfitt uppdráttar á
síðustu leiktíð og var stóran
hluta tímabilsins einung-
is varaskeifa fyrir Wayne
Rooney og Danny Welbeck
fyrir utan að eiga við meiðsli
að stríða. Ferguson hefur
hins vegar tröllatrú á sínum
manni.
„Ég held að við munum
sjá betri leikmann í vetur.
Á undanförnum árum hef-
ur hann spilað allan ársins
hring og ekki fengið neitt frí.
Í sumar fékk hann loksins frí
og kom endurnærður til æf-
inga aftur. Ég held að hann
muni eiga frábært tímabil.“
Nálgast
Liverpool
Clint Dempsey, leikmaður
Fulham, færist nær því með
hverjum deginum að ganga
í raðir Liverpool. Demps-
ey dró sig út úr æfingahópi
Fulham á þriðjudag og sam-
kvæmt breskum fjölmiðlum
er ekki ólíklegt að það tengist
hugsanlegri brottför hans til
Liverpool. Dempsey, sem er
29 ára, er sagður vilja fara til
stærra félags. Hann átti frá-
bært tímabil með Fulham
síðasta vetur og var einn af
markahæstu mönnum ensku
úrvalsdeildarinnar. Hann á
aðeins eitt ár eftir af samn-
ingi sínum og af þeim sökum
eru forsvarsmenn Liverpool
aðeins sagðir vilja greiða
fimm milljónir punda fyrir
hann. Fulham vill hins vegar
fá mun hærri upphæð.
Pienaar aftur
til Everon
Suður-Afríkumaðurinn
Steven Pienaar er genginn
í raðir Everton á ný. Pi-
enaar flutti sig um set
til Tottenham fyrir átján
mánuðum en náði ekki að
festa sig í sessi. Hann var
lánaður aftur til Everton
í vetur og stóð sig vel. Nú
hefur Everton gengið frá
kaupum á honum og mun
félagið greiða Totten-
ham 4,5 milljónir punda.
„Hér er ég ánægður. Þetta
tók nokkrar vikur en ég
er ánægður með að vera
kominn aftur. Í lok leik-
tíðarinnar sagði ég þjálf-
aranum að hér vildi ég
vera,“ segir Pienaar. Hann
ætti að vera klár í slaginn
þegar Everton tekur á
móti Manchester United í
fyrstu umferð deildarinn-
ar þann 20. ágúst.