Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Qupperneq 2
2 Fréttir 8. ágúst 2012 Miðvikudagur
n Mikill fjöldi kanína í Elliðaárdalnum n Íbúar hafa komið fyrir vörnum fyrir kanínurnar
M
ávarnir drepa þrjá til
fjóra unga á dag og svo
eru það kettirnir á nótt
unni. Við reynum að fylgj
ast með þeim og passa
upp á þá. Mávarnir eru fljótir að ná
þeim og fljúga með þá upp í loft og
láta þá svo detta niður á jörðina og
rota þá þannig. Stundum náum við
þeim þegar þeir gera það og getum
hjálpað þeim. Kettirnir koma meira
á nóttunni og taka þá ungana og
hlaupa með þá í burtu í kjaftinum
eins og þeir séu með kettling í kjaft
inum,“ segir Jón Þorgeir Ragnars
son íbúi í Elliðaárdal. Þar býr hann
ásamt Heiðari Hallssyni innan um
mikið af frjálsum kanínum og fugl
um. Þeir segja algengt að bæði kett
ir og mávar drepi kanínuunga þar en
gífurlegur fjöldi kanína er á svæðinu.
Eiga helling af aðdáendum
Þeir Jón Þorgeir og Heiðar hafa kom
ið fyrir brettum, spýtum, trjágreinum
og ýmsu öðru á svæðinu til verndar
kanínunum. Þar geta þær leitað sér
skjóls og varið sig fyrir ágangi máv
anna. „Mávurinn flýgur bara og veð
ur í þær. Við höfum sett þetta yfir
holurnar svo að krakkar séu ekki að
hoppa ofan í þær eða troða spýtum
og drasli í þær því að ungarnir eru
ofan í þeim,“ segir Jón Þorgeir,
Fjölmargir gera sér ferð í dalinn
til þess að bera kanínurnar augum
og margir fóðra þær, líkt og þeir Jón
Þorgeir og Heiðar gera. Þeir segja
kanínurnar fyrst hafa farið að sjást
fyrir 12–14 árum síðan en þeim hafi
fjölgað töluvert eftir að veginum fyr
ir ofan dalinn var breytt. „Kanínurn
ar eiga alveg helling af aðdáendum,
fólki þykir vænt um þær og meira
segja útlendingar eru farnir að koma
hingað og skoða þær og finnst al
veg sérstakt hvað þær koma nálægt
manni. Þeir hafa ekki kynnst þessu.
Svo koma hingað heilu barnaheimil
in til þess að skoða þær. Þegar börn
in á barnaheimilunum eru spurð
hvert þau vilji fara þá segjast þau
vilja fara hingað og skoða kanínurn
ar. Þær heilla ekki bara okkur heldur
líka aðra,“ segir hann og tekur fram
að þeim finnist ekki vera ónæði af
fólkinu því mávarnir eru ekki óá
reittir meðan fólk er á staðnum.
Losa sig við kanínur
Jón Þorgeir segir þá líka taka eftir því
að fólk komi til þess að losa sig við
kanínur og svo komi sumir til þess
að ná sér í gæludýr á heimilið. „Þess
ar kanínur sem eru hér eru þó flestar
skógarkanínur en ég hef stundum
bent fólki á að þær sem eru með síðu
eyrun séu betri sem gæludýr,“ segir
hann og segist hafa tekið eftir því að
í síðustu viku hafi afar margir komið
til þess að losa sig við kanínur. „Það
er nú skrýtið að segja það en ég held
að nú í síðustu viku hafi komið tvær
á dag. Þá kemur fólk með kanínur og
skilur þær eftir hérna, er kannski að
fara í ferðalag og veit ekki hvað það á
að gera við þær á meðan.“
Kanínurnar ekki meindýr
Þrátt fyrir að þeir Jón Þorgeir og
Heiðar gefi kanínunum að borða, þá
segir Jón að þeir reyni að gera þær
ekki of gæfar. „Við erum hættir að
klappa þeim og svoleiðis því ef þær
verða of gæfar þá eru þær svo auð
Kettir og mávar
drepa ungana
„Þá kemur fólk
með kanínur og
skilur þær eftir hérna, er
kannski að fara í ferðalag
og veit ekki hvað það á
að gera við þær á meðan.
Gæfar kanínur
Jón Ragnar gefur
kanínunum að borða.
Mynd: Eyþór Árnasson
Kanínur og gæsir Bæði gæsir og
kanínur eru í kringum hús þeirra Jóns
Ragnars og Halls í Elliðaárdalnum.
Mynd: Eyþór Árnasson
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Ævintýraskúta við
Reykjavíkurhöfn
Hin þrjátíu metra langa
seglskúta Scorpius hafði við
komu í Reykjavíkurhöfn, á bak
við Hörpu, á þriðjudag. Bíll frá
Atlantsolíu dældi á tanka skips
ins en til viðbótar við hefð
bundna eldsneytisgeyma hefur
verið komið fyrir appelsínugul
um eldsneytispokum á dekki
skútunnar.
Áhöfnina skipa Rússar og
Úkraínumenn. Skútan hefur
siglt um pólana en í apríl síðast
liðnum voru áhafnarmeðlimir
hætt komnir er ekkert spurðist
til skútunnar um tíma þegar .
það var nærri Suðurskauts
landinu. Skipið hafði skemmst
lítillega og glímdi við mikla ís
ingu. Létu áhafnarmeðlimir þó
vita af sér fyrir rest en skipið
stefnir á hringferð um jörðina,
pólanna á milli. DV er ekki
kunnugt um hvenær skipið
leggur úr höfn.
Drukku og óku
Þrjátíu og fjórir ökumenn voru
teknir fyrir ölvunar og fíkni
efnaakstur á höfuðborgarsvæð
inu um verslunarmannahelgina.
Tuttugu og níu þeirra voru
stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í
Kópavogi og einn í Hafnarfirði.
Tíu voru teknir á laugardag,
fjórtán á sunnudag og tíu á
mánudag. Þetta voru þrjátíu
karlar á aldrinum 18–67 ára og
fjórar konur, 19–30 ára. Sjö
þessara ökumanna höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi.
Ekið á sjö
ára dreng
Lögreglunni í Árnessýslu var til
kynnt um átta slys um helgina,
öll í sumarbústaðabyggðum eða
nágrenni þeirra. Í fjórum tilvik
um var um ung börn að ræða.
Tveggja ára barn féll aftur
fyrir sig á hnakkann og annað á
sama aldri slasaðist á róluvelli.
Fimm ára barn féll tvo metra úr
koju niður á gólf í sumarbústað.
Þá var ekið á sjö ára dreng á
Flúðum og ellefu ára stúlka fót
brotnaði eftir stökk úr þriggja
metra hæð ofan í Litlu Laxá við
Flúðir.