Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2012, Page 20
Lyftingar gegn sykursýki n Þeir sem þola ekki þolfimi hafa nú valmöguleika Þ að að lyfta lóðum getur kom- ið í veg fyrir týpu tvö af sykur- sýki, ef marka má nýja rann- sókn. Vísindamenn við Harvard háskóla og háskóla í Danmörku komust að því að reglu- legar lyftingar geta minnkað líkurnar á sjúkdómnum um einn þriðja hluta. Rannsóknin, sem var framkvæmd á yfir 32 þúsund karlmönnum, birtist í tímaritinu Archives of Internal Med- icine Journal. Það að regluleg líkamsrækt hjálpi til við að koma í veg fyrir sjúkdóm- inn er ekki nýtt af nálinni en hing- að til hefur verið talið að best til þess væri að þjálfa þolið. Niðurstöðurnar eru því góðar fyrir þá sem kjósa frekar að svitna í lóðarsalnum heldur en á hlaupabrettinu. Fylgst var með karlmönnunum á yfir 18 ára tímabili en á þeim tíma þró- uðu tæplega 2.300 þátttakendur með sér sjúkdóminn. Í ljós kom að þeir sem lyftu lóðum í 30 mínútur á dag, fimm sinnum á viku, gátu minnkað líkurnar á sykursýki um 34 prósent. Einnig kom í ljós að minni hreyfing, eins og klukkutími á viku, hefur góð áhrif og getur jafnvel minnkað líkur á sjúkdómnum um 12 prósent. Sam- kvæmt niðurstöðunum er best að æfa þolið og lyfta lóðum til skiptis. „Margir eiga erfitt með að koma sér af stað á hlaupabretti og hafa ekki áhuga á að skrá sig í eróbikk-tíma. Þessar nýju niðurstöður gefa til kynna að lóðalyft- ingar geta verið annar valmöguleiki fyrir þennan hóp,“ sagði talsmaður rannsóknarinnar, Anders Grontved. Ekki er enn vitað hvort sömu niður- stöður eigi einnig við um konur. 20 Lífsstíll 8. ágúst 2012 Miðvikudagur Borða fyrir hlaup Mikilvægt er að borða fyrir morgunhlaupið að sögn Christine Rosenbloom,  næringarfræðings við Georgia State-háskólann. Margir fara í morgunhlaup án þess að vera búnir að borða en Christine segir afar mikilvægt að fá sér létt snakk áður til þess að fá sem mest út úr hlaupinu. Maginn er tómur eftir nóttina og til þess að geta byrjað að brenna þarf hann að fá eitthvað. Hún segir best að fá sér að borða 15–30 mínútum fyrir hlaup og smá skammtur af hafra- graut, einn bolli af þurru morgun- korni eða lítil beygla er gott fyrir hlaupið og vatn með. Saltið er lykilatriði Um þessar mundir eru margir að taka upp kartöfluuppskeru ársins. Nýjar kartöflur eru hið mesta lostæti og margir sem vita ekkert betra. Það skiptir þó miklu máli að elda þær rétt til þess að þær bragðist sem allra best. Best er að setja salt út í pottinn, um það bil tvær teskeiðar sé eldað fyrir fjóra, láta suðuna koma upp og um það bil 10 mínútum eftir það á að hella vatninu af og láta kartöflurnar standa í pottinum með lokið yfir. Svo má bæta smá smjöri við fyrir alvöru sælkera. Vínrautt í vetur Nú streyma haustfötin í búðirnar enda styttist í sumarlok. Heitasti liturinn í haust- og vetrartískunni virðist vera vínrauður. Hann má sjá víða í búðum og gildir þar einu hvort um er að ræða kjóla, jakka, buxur, peysur, skó, skartgripi eða hvað annað sem er; vínrautt er málið. Liturinn gengur vel með öðrum dökkum litum, svo sem brúnu og svörtu. En hann er líka fallegur með bjartari litum. Lyftingar Best er að blanda saman lyftingum og þolæfingum. Sex reglur um góða næringu n Samantekt menshealth.com n Borða börnin þín rétt? 1 Aldrei sleppa morgunmat Ef stressið er of mikið á morgn- ana láttu þá vekjaraklukkuna hringja fyrr. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að morgunmatur sé mik- ilvægasta máltíð dagsins. Í úttekt Mens Health er vísað í 48 rannsóknir um morgunmat og þar kemur ým- islegt fram. Þeir sem sleppa því að borða morgunmat eru samkvæmt þeim líklegri til að byrja reykja og drekka, ólíklegri til að stunda lík- amsrækt og líklegri til að stunda megrunarkúra eða treysta á aðrar skyndilausnir. Þeir sem borðuðu kjarngóðan morgunmat voru allt að 30 prósentum ólíklegri til að vera of þungir. 2 Vitræn millimál Það er mik-ill munur á því að vera sífellt að narta og að snæða skynsam- lega á milli mála. Sé það gert ertu að festa í sessi góðan vana, tryggja að brennslan haldist mik- il og að hungrið sé ekki orðið óseðjandi þegar að stóru máltíðun- um kemur. Þetta er sérstaklega mikil- vægt þegar kemur að börnunum okkar en það er staðreynd í nú- tímasamfélagi að börn hafa of greitt aðgengi að snakki, sælgæti og gosi á milli mála. Á síðustu 20 árum hafa skammtastærðir á söltu snakki aukist um 96 hitaeiningar og skammtastærðir gosdrykkja um 49 hitaeiningar. 3 Veldu réttan skammt Skammtastærðir á mat hafa aukist mikið undanfarna ára- tugi. Samkvæmt Nationwide Food Consumption Survey hefur með- al hamborgarinn í Bandaríkjunum hlaðið á sig 97 auka hitaeiningum frá árinu 1977, skammtur af frönsk- um 67 hitaeiningum og mexíkóskur matur um 133 hitaeiningum. Sam- kvæmt rannsókn American Journal of Preventive Medicine sem náði til 63.380 einstaklinga jókst gosneysla barna að meðaltali úr 0,38 lítrum á dag árið 1977 í 0,55 lítra 1996. Hver segir að hálfur líter af gosi sé eðlilegur skammtur? Dæmi eru um að börn séu að fá allt að þriðj- ungi of mikið af hitaeiningum í einu vegna of stórra skammta. 4 Ábyrg drykkja Margir hugsa þokkalega um hvaða mat þeir setja ofan í sig en leyfa sér gos- neyslu meðfram því. Samkvæmt rannsókn Háskóla Norður Kar- ólínu innbyrða Banda- ríkjamenn allt að 25 prósent af daglegum hitaeiningum með drykkjum. Þá kom einnig í ljós að hjá börnum í fjórða til sjötta bekk voru sykraðir drykkir um 51 pró- sent af öllum vökva sem neytt var. Hjá þeim nemendum þar sem sykraðra drykkja var neytt hvað mest tóku þau inn auka 330 hita- einingar á dag. Á sama tíma átu þau um helmingi minna af ávöxt- um en samnemendur þeirra sem drukku minna gos. Það er algeng- ur misskilningur hjá mörgum að djús sé alltaf hollur og því drekka börn oft mikið magn af honum. Staðreyndin er sú að djús get- ur innihaldið jafn mikið eða meira magn af sykri en gos. Gott ráð til að fá börn til að drekka meira vatn er að vera með vatnskönnu inn í ísskáp sem búið er að setja nokkrar sneiðar af appelsínu, límónu, jarðarberjum eða öðr- um ávöxtum út í. 5 Borðaðu ferskt Það er ágæt-is þumalputtaregla að því lengri sem innihaldslýsingin er því óhollari er varan. Óhollasti matur sem Mens Health hefur fundið í umfjöllun sinni er Baskin-Robb- ins Health Shake sem inniheld- ur 73 efni og hráefni. Drykkurinn inniheldur 2.310 hitaeiningar og þriggja daga skammt af mettaðri fitu. Samkvæmt mælingu land- búnaðarráðuneytis Bandaríkj- anna kemur 77 prósent af salt- neyslu landsmanna úr matvælum sem fæðuframleiðendur hafa bætt salti í. Það er þekkt staðreynd eftir margar viðamiklar krabbameins- rannsóknir að engin matvæli teljast eins krabbameinsvaldandi og unn- ar kjötvörur. 6 Leggðu á borð Ein besta að-ferðin til þess að fræða börn um heilsusamlega matarmenningu og kenna þeim að tileinka sér hana er að fjölskyldan borði saman. Leggi á borð og eldi góðan mat. Nemendur í bandarískum gagn- fræða- og framhaldsskólum sem borðuðu bara einu sinni eða tvisvar sinnum með fjölskyldum sínum í viku voru allt að helmingi líklegri til að þróa með sér offituvandamál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.