Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Qupperneq 14
Sandkorn Í Bandaríkjunum er til stjórnmála­ hreyfing sem afneitar sannreyndum vísindakenningum og neitar að trúa á þróunarkenninguna. Á Íslandi er hópur sem trúir ekki á efnahags­ hrunið og kallar það „svokallað hrun“. Kjarninn í stefnu beggja hópa er að koma í veg fyrir skattlagningu og út­ gjöld ríkisins, en ofurskuldir beggja ríkja eru afleiðingarnar af stefnu flokks þeirra. Bandaríska teboðið er öfgaarm­ ur í flokki Mitts Romney, sem er hluti af hópi þeirra sem telja 1 prósent ríkustu einstaklinga í landinu. Íslenska teboðið er hægrisinnaður hópur, mestmegnis í flokki Bjarna Benediktssonar, sem er í hópi 1 prósents ríkustu Íslending­ anna. Flokkur Mitts Romney stjórn­ aði Bandaríkjunum í átta ár samfleytt, lækkaði skatta á þá ríku og safnaði kæf­ andi skuldum í sameiginlegum sjóð­ um almennings. Flokkur Bjarna Bene­ diktssonar stjórnaði Íslandi í sautján ár samfleytt, allt þar til ríkasta 1 prósentið orsakaði efnahagshrun landsins og skildi reikninginn eftir hjá almenningi. Teboðshreyfingarnar beggja megin Atlantshafsins gera sérstaklega út á trú­ girni fólks í mörgum skilningi. Ungliðar í flokki Bjarna Benediktssonar sendu til dæmis frá sér tilkynningu á dögunum um að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar­ dóttur, sem tók við eftir efnahagshrunið sem varð eftir 17 ára valdatíð Sjálfstæð­ isflokks, væri versta ríkisstjórn í sögu Ís­ lands. Í Bandaríkjunum segja þeir aftur og aftur að Barack Obama sé múslimi og að bandarískur ríkisborgararéttur hans sé falsaður. Þeir vilja fá fólk til að trúa ótrúleg­ ustu hlutum með því að endurtaka þá sem oftast. Hér segja þau að þjóðar­ atkvæðagreiðsla um stjórnarskrá, sem var mótuð af almenningi með þjóð­ fundi og stjórnlagaþingi, sé ekki lýð­ ræðisleg. Þeir vilja að stjórnarskráin sé skrifuð í höfuðstöðvum flokks síns. Báðir hóparnir gera út á frelsi einstak­ lingsins, en vilja ekki alltaf að fólkið fái að velja sjálft. Bandaríska teboðshreyf­ ingin vill banna konum að fara í fóstur­ eyðingar. Íslenska teboðið vill senda þjóðina í fóstureyðingu til að kæfa stjórnarskrá fólksins í fæðingu. Báðar hreyfingarnar gera út á þjóð­ erniskennd og trúarbrögð. Bjarni Bene­ diktsson hneykslaðist nýlega á þeirri hugmynd að þingmenn gætu sleppt því að hlýða á prest predika í messu fyrir setningu Alþingis, en leiðtogar banda­ ríska teboðsins ganga svo langt að láta Guð stýra stjórnmálaákvörðunum sín­ um. Það er engin tilviljun að Bjarni Benediktsson og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sátu landsþing Repúblikanaflokksins fyrir nokkrum vikum. Þetta eru hliðstæður. Aðeins 2 prósent Íslendinga styðja Mitt Romney sem forseta Bandaríkj­ anna. En þrátt fyrir ástandið eftir valda­ tíð Sjálfstæðisflokksins og allt það sem komið hefur á daginn styðja nú 37% flokkinn. Þótt Íslendingar tortryggi banda­ rísku Teboðshreyfinguna skiptir hún miklu minna máli en sú íslenska. Kannski vegna þess að Bandaríkja­ menn létu þau ekki komast svona langt. George Bush var ekki gerður seðlabankastjóri. Vinur hans stund­ aði ekki innherjaviðskipti í ráðu­ neyti fjármála ríkisins. Sonur hans var ekki gerður dómari á kostnað hæfari umsækjenda. Vinur hans og frændi voru ekki skipaðir í Hæsta­ rétt. Mitt Romney tók ekki þátt í við­ skiptafléttum sem áttu hlutdeild í að fella bandaríska efnahagslífið. Eigin maður Söru Palin fékk ekki 1900 milljóna króna kúlulán í stærsta banka landsins. George W. Bush er ekki ritstjóri Washington Post. Hann stýrir ekki einum helsta fjöl­ miðli landsins, eins og faðir íslensku Teboðshreyfingarinnar, launaður af sterkasta hagsmunahópi landsins, og berst gegn öllum tilraunum almenn­ ings til að hafa áhrif á samfélagið og veita 1 prósenti hinna ríkustu mót­ vægi, kallandi fólk „múg“ og „skríl“ fyrir það eitt að hafa mótmælt því að borga fyrir elítuna en ráða sama sem engu. Þrýst á Jóhann n Jóhann Hauksson, upplýs­ ingafulltrúi ríkisstjórnarinn­ ar, þykir hafa staðið sig vel í erfiðu starfi. Jóhann er ætt­ aður af Austurlandi þar sem rætur hans liggja. Nú heyrist að menn eystra vilji fá hann í framboð fyrir Samfylkinguna. Mun þrýstingur vera nokk­ ur. Leiðin að þingsætinu er þó vörðuð stórgrýti því fyrir á fleti er fjölmiðlamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson. Þá hefur fjölmiðlakonan Erna Indriðadóttir lýst yfir framboði sínu. Það þykir líklegra en ekki að Jóhann taki slaginn. Hælbítar Jóns n Viðtal Pressunnar við Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrver­ andi hæstaréttardómara, er um margt athyglisvert. Í við­ talinu rekur Björn Ingi Hrafns- son ritstjóri garnirnar úr Jóni Steinari sem lætur í ljósi hve erfitt hann átti uppdráttar í Hæstarétti. Þá kallar Jón Stein­ ar þá hælbíta sem gagnrýnt hafa skipan Ólafs Barkar Þor- valdssonar sem dómara. Telur hann Ólaf vera strangheiðar­ legan. Jón Steinar og Ólafur eiga sameiginlegt að hafa ver­ ið lágt metnir en skipaðir af pólitískum samherjum. Ásælast rokkrútuna n Kvikmyndagerðarmennirn­ ir Herbert Sveinbjörnsson og Gunnar Sigurðsson eru æv­ areiðir vegna þess að Borgara­ hreyfingin hefur hlunnfarið þá um laun upp á 1,4 millj­ ónir. Smugan segir frá því að ágreiningur sé um þetta þar sem hreyfingin telji sig hafa greitt allt „fyrir ekkert“. En nú er málið komið á það stig að tvímenningarnir hyggjast láta gera fjárnám hjá stjórn­ málahreyfingunni Dögun sem Borgarahreyfingin er nú hluti af. Og þeir upplýsa að fjár­ náminu verði beint að frægri rokkrútu sem geysist um landið við atkvæðaveiðar. Harkan eykst n Harkan í slag þeirra sem vilja efstu sætin hjá Sjálfstæð­ isflokknum í Reykjavík eykst með hverj­ um deginum. Í herbúð­ um turnanna Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur og Ill- uga Gunnars- sonar ríkir mikil spenna þar sem ósigur hvors þeirra um sig gæti markað enda­ lok á pólitískum ferli. Mik­ ill vilji er meðal stuðnings­ mannanna til að fá þau til að mynda bandalag um fyrsta og annað sætið og samein­ ast þá um að hreinsa listann af styrkjakónginum Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Þannig yrðu þau leiðtogar í báðum kjör­ dæmunum. Vandinn er sá að hvorugt vill sætta sig við ann­ að sætið og síðra kjördæmið. Ég er búinn að sjá ljósið Við höfum átt samstarf Gísli Sigurðsson Gröndal hefur staðið andspænis dauðanum. – DV Teitur Björn Einarsson um kosningastýruna og fyrrverandi kærustu, Hildi Sverrisdóttur.– DV Íslenska teboðið S kyldi vera hættulegt að opna glugga á reykfylltum bakher­ bergjum? Skyldi vera varasamt að hljóðrita það sem ráðherrar segja í vinnu sinni á ríkisstjórnarfundum? Væri ekki öruggara að hætta hljóð­ upptökum og beinum sjónvarps­ útsendingum frá fundum Alþingis og leyfa þinginu að starfa í kyrrþey – og upplýsa þjóðina um störf sín gegnum blaðafulltrúa og með fréttatilkynning­ um? Á almenningur einhvern rétt á því að hafa eftirlit með ráðherrum og ríkis­ stjórnum? Hvernig á þjóð að geta lært af sögu sinni ef stjórnvöld telja það vera starfi sínu beinlínis skaðlegt að varðveita upp­ lýsingar um fasta liði eins og ríkisstjórn­ arfundi? Er ekki kappnóg fyrir sagnfræðinga og einhverja nörda á næstu öld að fræð­ ast um stjórnarhætti í byrjun 21tu ald­ ar án þess að til séu sérstakar heimildir um prívat spjall ráðherra á ríkisstjórnar­ fundum. Það vöknuðu ýmsar spurningar um átök milli leyndarhyggju og opins lýð­ ræðis við lestur greinar í Fréttablaðinu. Í þessari grein eftir prófessor Róbert R. Spanó kom fram að hún væri að hluta til unnin upp úr álitsgerð „sem höfund­ ur vann að beiðni forsætisráðherra“ um tiltekna klausu í Stjórnarráðslögunum (2011 nr. 115 23. september) sem hljóð­ ar svo: „Allir fundir ríkisstjórnarinnar skulu hljóðritaðir og afrit geymt í vörslu Þjóð­ skjalasafns. Hljóðritanir þessar skulu gerðar opinberar að 30 árum liðnum frá fundi.“ Orðin um álitsgerðina „sem höfund­ ur vann að beiðni forsætisráðherra“ rifjuðu upp varnaðarorð míns gamla kennara í óháðri blaðamennsku, Jónas­ ar Kristjánssonar ritstjóra sem lesa má á vefsetri hans, jonas.is: „Aðvörunarbjöllur klingja í hvert sinn, sem lögð er fram greinargerð í máli. Fyrst spyrja menn: Er það lög­ fræðistofa eða endurskoðun eða hag­ fræðistofa, sem gefur álitið? Sé svo, væla brunalúðrarnir. Ekki er nokkur minnsta ástæða til að taka mark á neinu, sem kemur frá slíkum stofnunum. Þær taka ævinlega afstöðu með umbjóðanda sín­ um...“ (19.05.2012) Það fylgir sögunni að gildistöku þessarar lagaklausu um að hljóðrita ríkis stjórnarfundi var frestað þegar Stjórnarráðslögin voru á síðasta ári og fresturinn rennur út 1. nóv. nk. Ég hef þrátt fyrir að vera tæknilega séð í stjórnarandstöðu þegar ég kom á þing stutt ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar­ dóttur og varið hana vantrausti, jafnvel þótt ég sjálfur hefði viljað sjá stjórnina gera ýmislegt með öðrum hætti. Þetta hef ég gert vegna þess að ég er sannfærður um að félagshyggjustjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur unnið gíf­ urlegt afrek við að bjarga íslensku þjóð­ félagi úr þeim rústum sem frjálshyggj­ an skildi eftir sig. Fyrir það afrek vil ég gjarna styðja hana og hennar föruneyti allt til enda kjörtímabils þótt ekki sé hún óskeikul eins og stíf andstaða við þessa litlu lagaklausu gefur til kynna. En þrátt fyrir verndunarsjónarmið varðandi stjórnarhætti hinna reykfylltu bakher­ bergja og yfirvofandi vöggudauða lítillar lagaklausu mun þjóðin varðveita minn­ ingu Jóhönnu Sigurðardóttur löngu eftir ég og aðrir minniháttarþátttakendur í stjórnmálum erum öllum gleymdir. Ég sé engan tilgang í því andmæla soldið borginmannlegum fullyrðingum og skoðunum prófessors Róberts R. Spanó í þessum skrifum og allra síst hinni varfærnislega orðuðu niðurstöðu að það „virðist þó mega draga í efa“ [sic] „að nægileg rök“ hafi verið sett fram fyrir þessu fyrirkomulagi (að varðveita óbrenglaðar heimildir frá ríkisstjórnar­ fundum með hljóðritun). Þetta er hans álit og breytir ekki því að ekkert í lögum eða stjórnarskrá bannar Alþingi að setja lög um skyldu framkvæmdavaldsins til varðveislu heimilda. Við lesturinn hringdu í mínum huga þær aðvörunarbjöllur sem Jónas Krist­ jánsson talar um í sambandi við aðkeypt álit fræðimanna. Sá klukknahljómur ómar nú í eyrum mér sem líkhringing við fyrirhugaða útför þessarar litlu laga­ greinar. Ég heyri holan hljóm þegar ég les það álit Róberts Spanó að „nægileg rök“ hafi ekki komið fram við lagasetn­ inguna. Hugtakið „nægileg rök“ þekki ég ekki sem viðtekna mælieiningu. Sam­ kvæmt mínum málskilningi hefur orða­ lagið „nægileg rök“ huglæga merkingu handan allrar rökfræði og svoleiðis rök­ fræði hafa gamansamir menn stundum kallað hundalógík. Þessi grein segir mér ekkert nýtt sem ekki kom fram í umræðu um Stjórnar­ ráðslögin á sínum tíma. Það eina sem hún segir mér er að láta mér ekki bregða þótt vöggudauði hrifsi burt litla laga­ grein sem taka átti gildi 1. nóvember næstkomandi. Og það kæmi mér ekki á óvart þótt á legsteininn verði klöppuð sú kauðska málamiðlun sem prófessor Róbert leggur til. Sem sé að í stað hljóð­ ritunar komi loðin fyrirmæli um að pára niður einhverjar heimildir um ríkis­ stjórnarfundi í formi fundargerða eins og alsiða var í félagsstarfi allt fram á nítjándu öld. Sem var auðvitað löngu áður en nokkurn mann óraði fyrir því að árið 2012 myndu svo gott sem allir Ís­ lendingar ganga með prýðilegan búnað til hljóðritunar og kvikmyndatöku (auk margvíslegra fjarskipta) í vasa sínum. Að lokum er þó rétt að benda á að allir sem telja „nægileg rök“ fyrir því að varasamt sé og ótímabært að draga úr leyndarhyggjunni ættu þá samkvæmt því að benda á besta ráðið til að forðast þær hættur sem fylgja opinni stjórn­ sýslu er augljóslega að auka frekar við leyndarhyggjuna og hverfa jafnvel aftur til fortíðar þegar menntuð og umhyggju­ söm yfirstétt forðaðist að trufla almúg­ ann með upplýsingaflóði. Þey, þey og ró Leiðari Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 8. október 2012 Mánudagur Kjallari Þráinn Bertelsson „Ég heyri holan hljóm þegar ég les það álit Róberts Spanó að „nægi- leg rök“ hafi ekki komið fram við lagasetninguna. Davíð Þorláksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðis- manna Hann og félagar hans sendu frá sér yfirlýsingu um að núverandi ríkisstjórn væri sú versta í sögunni, og að hún hefði gert lífskjör á Íslandi verri, ásamt því að hrekja Íslendinga út í landflótta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.