Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Síða 2
G
ylfi Sigfússon, forstjóri Eim
skips, hefði verið kominn
með nærri 350 milljóna
króna hagnað af kauprétt
arsamningi sínum ef stjórn
Eimskips hefði ekki afturkallað
kaupréttaráætlun félagsins á síðasta
fimmtudag. Í útboðsgögnum Eim
skips kemur fram að laun hans með
öllum skuldbindingum hafi numið
um 70 milljónum króna árið 2011.
Það gera nærri sex milljónir króna á
mánuði sem er hærra en meðalárs
tekjur flestra Íslendinga.
Eins og kunnugt er ákvað stjórn
Eimskips að afturkalla kaupréttar
áætlunina eftir að nokkrir stór
ir lífeyrissjóðir gáfu það út að þeir
myndu ekki taka þátt í útboði á
hlutabréfum Eimskips ef kaup
réttaráætlun, sem myndi skila sex
stjórnendum Eimskips yfir 600
milljóna króna hagnaði, gengi eft
ir. Umræddur hagnaður miðast við
að stjórnendurnir ættu kauprétt á
bréfum á genginu 135 krónur en út
boðsgengi félagsins þegar það fer á
markað er 208 krónur. Þess skal þó
getið að Eimskip gerir upp í evrum.
Gaf verkefni frá Eimskip
Í maí árið 2009 flutti DV fréttir af
því að Gylfi hefði látið Eimskip
kaupa íslenska flutningsfyrirtækið
IceExpress, sem er með aðsetur á
JFKflugvelli í New York og Nor
folk í Virginíu og starfar við frakt
flugflutninga til og frá Íslandi. Sam
kvæmt heimildum DV er talið að
kaupverðið hafi numið um þrem
ur milljónum dollara. Fóru kaupin
fram í febrúar 2009 þegar Eimskip
var enn skráð á markað á Íslandi.
IceExpress var á þeim tíma í eigu
bræðranna Lárusar og Jóns H. Ís
feld.
Þegar Gylfi starfaði sem að
stoðarframkvæmdastjóri Eimskips
í Bandaríkjunum færði hann Ice
Express mikið af flutningsverkefn
um. Má þar nefna að í febrúar 2007
samdi hann um að IceExpress yfir
tæki flutningsmiðlun TVG Zimsen
í Bandaríkjunum en TVG Zimzen
er alfarið í eigu Eimskips. Í júlí 2007
stofnaði IceExpress landflutninga
rekstur í Bandaríkjunum og í fram
haldi af því, með samkomulagi
við Gylfa Sigfússon, fékk þessi nýi
rekstur IceExpress nánast alla heil
gámaflutninga Eimskips í Banda
ríkjunum. Í september 2007 gerði
Gylfi síðan samkomulag um að
IceExpress yfirtæki rekstur á vöru
húsi Eimskips í Norfolk og fengi
þjónustusamning við Eimskip um
alla hleðslu og tæmingu á gámum.
Þar með var IceExpress orðið stærsti
undirverktaki Eimskips í Bandaríkj
unum. Gylfi var gerður að fram
kvæmdastjóra Eimskips í Banda
ríkjunum á fyrri hluta árs 2008.
Gylfi sagði blaðamann „vaða reyk“
Mánuði eftir að IceExpress gekk
frá samkomulagi um yfirtöku á
vöruhúsarekstri Eimskips í Nor
folk, eða í október 2007, keypti Ice
Express síðan rekstrarleyfi Shop
USA fyrir eina milljón dollara. Þess
skal getið að Hildur Hauksdóttir,
eiginkona Gylfa, var einn af stofn
endum ShopUSA og átti á þessum
tíma 45 prósenta hlut í fyrirtækinu.
Var hún jafnframt starfandi fram
kvæmdastjóri. Heimildir DV herma
að IceExpress hafi þarna verið að
borga Gylfa til baka fyrir alla þá
samninga sem hann hafði fært frá
Eimskipi til IceExpress.
Í samtali við DV árið 2009 sagði
Gylfi Sigfússon að kona sín hefði
ekki fengið neitt greitt þegar Shop
USA var selt til IceExpress. „Þú ert
bara að vaða reyk,“ sagði Gylfi við
blaðamann aðspurður um sölu
Hildar á hlut sínum í ShopUSA.
Þess skal getið að ShopUSA Holding
ehf. á Íslandi var á þessum tíma
skráð til heimilis hjá tengdaföður
Gylfa, Hauki F. Leóssyni. Sat Hauk
ur í framkvæmdastjórn félagsins og
var jafnframt prókúruhafi þess.
Haukur varð frægur fyrir að hafa
verið gert að hætta sem stjórnar
formaður Orkuveitu Reykjavík
ur haustið 2007 þegar REImálið
stóð sem hæst. Hann var auk þess
endurskoðandi Sjálfstæðisflokksins
og skrifaði upp á ársreikning flokks
ins fyrir árið 2006 eftir risastyrkina
frá FL Group og Landsbankanum.
Á heimasíðu ShopUSA kemur
fram að félagið Sæsvalan ehf. reki í
dag netsölufyrirtækið. Gylfi Sigfús
son var áður eigandi Sæsvölunn
ar og var jafnframt eigandi félags
ins. Árið 2009 vék hann hins vegar
úr stjórn félagsins og seldi hlut sinn
í því. Í dag sitja Bernhard Nils Boga
son, fyrrverandi yfirmaður skatta
og lögfræðisviðs FL Group, og
Anna Halldórsdóttir í stjórn félags
ins. Anna er eiginkona Hallgríms T.
Ragnarssonar, sem stofnaði Shop
USA og átti 45 prósenta hlut í fé
laginu fyrir söluna til IceExpress. Í
ársreikningi ShopUSA Holding árið
2009 kemur fram að félagið hafi þá
verið selt til Sæsvölunnar. Á þeim
tíma sátu Bernhard og Haukur F.
Leósson, tengdafaðir Gylfa, í stjórn
ShopUSA Holding. Þess skal getið
að Hildur Hauksdóttir, eiginkona
Gylfa starfar enn hjá ShopUSA.
Eimskip kaupir IceExpress
Við bankahrunið í október 2008
varð verulegur samdráttur á flutn
ingastarfsemi frá Bandaríkjun
um til Íslands. Eimskip fækkaði þá
skipaferðum til Bandaríkjanna og
dró saman samninga við undirverk
taka. IceExpress missti á þeim tíma
stóran hluta viðskipta sinna og við
skipti ShopUSA snarminnkuðu.
Samkvæmt heimildum DV jukust
skuldir IceExpress við Eimskip mik
ið á þeim tíma.
Í febrúar 2009 keypti Eimskip
síðan IceExpress – með í kaupun
um fylgdi hins vegar ekki ShopUSA
sem IceExpress hafði keypt á millj
ón dollara árið 2007. Gylfi sagði
við blaðamann Morgunblaðsins
að verðið væri trúnaðarmál en
það greiddist með hagræðingunni.
Samkvæmt heimildum DV var
kaupverðið um þrjár milljónir
dollara. Í samtali við DV árið 2009
vildi Gylfi ekki gangast við því.
„Við höfum ekki borgað krónu fyrir
IceExpress. Við tókum bara yfir fé
lagið,“ sagði hann.
Þess skal getið að Eimskip til
kynnti ekki Kauphöll Íslands um
kaupin og þá var heldur ekki gefin
út fréttatilkynning um þau. Það var
ekki fyrr en Morgunblaðið birti frétt
um kaupin sem þau voru gerð opin
ber. Svo virðist sem Eimskip og Gylfi
Sigfússon hafi viljað hafa hljótt um
þessa fjárfestingu. Þá kemur ekkert
fram um kaupin í ársreikningi Eim
skips fyrir árið 2009.
Gylfi ræður eiganda IceExpress
Eftir að Eimskip keypti IceExpress
árið 2009 var Lárus Ísfeld, fyrr
verandi eigandi IceExpress, gerð
ur að framkvæmdastjóra Eimskips
í Bandaríkjunum – Gylfi gegndi
því starfi áður en hann var gerður
að forstjóra Eimskips. Heimildir
DV herma að stjórn Eimskips hafi
ekki verið að fullu upplýst um við
komandi gjörninga, áhrif þeirra
á rekstur Eimskips og önnur fjár
hagsleg tengsl Gylfa Sigfússonar við
hlutaðeigandi.
2 Fréttir 31. október 2012 Miðvikudagur
Vigdís hvergi bangin:
Tekur framboði
Jónínu fagnandi
„Ég tel þetta bara styrkleikamerki
fyrir mig sem persónu og Fram
sóknarflokkinn í Reykjavík að það
sækist fleiri eftir því sæti sem ég
vann svo eftirminnilega í þingkosn
ingunum 2009,“ segir Vigdís Hauks
dóttir, þingkona Framsóknarflokks
ins, um þá baráttu sem framundan
er hjá henni um oddvitasæti flokks
ins í Reykjavík suður. Athafnakonan
Jónína Benediktsdóttir hefur gefið
kost á sér í fyrsta sætið og aðspurð
kveðst Vigdís fagna því.
„Ég fagna lýðræðinu og það á
enginn neitt í pólitík og ég hef þurft
að berjast fyrir mínu, bæði í einka
lífinu og í stjórnmálum, þannig að
þetta er mjög eðlilegt allt saman,“
segir þingkonan í samtali við DV.
Hún segir komandi baráttu við
Jónínu vera áskorun.
„Og hún á bara eftir að styrkja
mig því þingmenn eru ráðnir til
fjögurra ára í senn og svo þurfum
við að endurnýja umboð okkar
bæði gagnvart flokksmönnum og
kjósendum.“
Vigdís rifjar upp frækinn sigur
sinn í kosningunum 2009: „Fram
sóknarmenn í Reykjavík voru þing
mannslausir þegar ég fór í framboð
og vann sætið sem kjördæmakjör
inn þingmaður.“
Aðspurð segir Vigdís að Fram
sókn ætli að ná inn fjórum þing
mönnum í Reykjavík í næstu kosn
ingum svo hún sé ekki uggandi
um sinn hag.
Husky-hundur
drap kindur
Þrjár kindur lágu í valnum eftir
að huskyhundur réðst á þær á
Suðurnesjum í vikunni. Í tilkynn
ingu frá lögreglu kemur fram að
fjáreigandi hefði tilkynnt lögreglu
að hann væri með hundi í haldi,
sem hefði verið að atast í sauðfé. Í
ljós kom að hundurinn hafði ráð
ist á kindur mannsins með þeim
afleiðingum að þrjár lágu í valn
um sem fyrr segir. Hundafangari
tók hundinn og fór með hann til
heilbrigðiseftirlits Suðurnesja
eins og gert er í slíkum tilvikum.
Þar kom í ljós að enginn eigandi
var skráður fyrir hundinum og
var hann ótryggður. Málið er í
rannsókn hjá lögreglu.
Katrín vill
fyrsta sætið
Katrín Jakobsdóttir hefur ákveðið að
taka þátt í forvali Vinstrihreyfingar
innar græns framboðs í Reykjavík
sem fram fer þann 24. nóvember og
gefur kost á sér í fyrsta sæti í öðru
hvoru Reykjavíkurkjördæminu.
Katrín hefur setið á þingi síðan
2007 og gegnt embætti mennta
og menningarmálaráðherra síðan
2009. „Verkefnið sem nú blasir við
er að halda áfram uppbyggingu
landsins og mín sannfæring er sú
að það verði best gert undir merkj
um jöfnuðar, réttlætis og sjálfbærni.
Ég vil gjarnan halda áfram að taka
þátt í þeirri vinnu og mun gera það
af krafti ef kjósendur treysta mér
til þess,“ segir Katrín í framboðs
tilkynningu.
HAGNAÐUR GYLFA HEFÐI
ORÐIÐ UM 350 MILLJÓNIR
n Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, var með 70 milljónir í tekjur 2011
Laun og kaupréttir
Gylfa 2011–2012
Laun árið 2011: 70 milljónir króna
Laun á mánuði 2011: 5,843 milljónir króna
Kaupréttur 2012: 4,66 milljónir hluta
Verð kaupréttar: 4,66 x 135 kr. = 629 milljónir króna
Verð söluréttar: 4,66 x 208 kr. = 969 milljónir króna
Áætlaður hagnaður: 969 – 629 = 340 milljónir króna
*Stjórn EIMSKIpS hættI VIð KaupréttarÁætLun 26.10.2012
tugir milljóna
Gylfi var með 70 milljónir
í tekjur í fyrra. Komið
var í veg fyrir hundruð
milljóna hagnað hans af
kauprétti í síðustu viku.
Kaupréttur allra 6
stjórnenda Eimskips 2012
Kaupréttur 2012: 8,44 milljónir hluta
Verð kaupréttar: 8,44 x 135 kr. = 1.140 milljónir króna
Verð söluréttar: 8,44 x 208 kr. = 1.755 milljónir kr.
Áætlaður hagnaður: 969 – 629 = 615 milljónir króna
*Stjórn EIMSKIpS hættI VIð KaupréttarÁætLun 26.10.2012
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is