Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Blaðsíða 18
7 ráð til langlífis
18 Lífsstíll 31. október 2012 Miðvikudagur
Helsta ástæða ertingar á augnlokum
n Ástæðan er ekki augnfarðinn
F
jölmargar konur hafa ein
hvern tímann fundið fyrir
kláða á augnlokum, sviða eða
jafnvel bólgu. Þá er skuldinni
að jafnaði skellt á augnfarða, svo
sem maskara og augnskugga.
Áður en konur henda alfarið
þessum snyrtivörum í ruslið þá er
vert að hafa í huga að ein algeng
asta orsökin fyrir þessum útbrotum
og kláða er exem eða ofnæmisvið
brögð.
Á wholeliving.com segir að það
sé þó ekki augnfarðinn sem sé aðal
sökudólgurinn heldur neglurn
ar. Þar er haft eftir Ahmet Altiner,
lækni við Weill Cornell Medical
College í New York, að naglalakk
innihaldi efni sem erta húðina og
sér í lagi viðkvæma húð eins og er
á augnlokunum. „Þegar þú snertir
augun geta þessi einkenni því
komið fram. Það er formaldehýð í
naglalakkinu sem á sökina á þessu
og því er ráð að prófa að vera án
naglalakks í nokkra daga og athuga
hvort einkennin hverfi.“ Það sakar
ekki að prófa þetta áður en mask
aranum og öðrum augnfarða er
hent í ruslið. n
Reyklausar
lifa 10 árum
lengur
Konur sem reykja meira og minna
allt sitt líf deyja að meðaltali
um 10 árum fyrr en konur sem
aldrei hafa reykt. Þetta er niður
staða rannsóknar í Bretlandi sem
náði til rúmlega einnar millj
ónar kvenna. Sagt er frá rann
sókninni á BBC, en niðurstöð
ur rannsóknanna voru kynntar í
læknatímaritinu Lancet. Vitað var
að ótímabær dauðdagi var líklegri
hjá konum sem reyktu en þeim
sem ekki höfðu reykt. „Að hætta
að reykja hefur ótrúlega góð áhrif
á heilsu kvenna. Reykingar drepa,
að hætta skiptir miklu máli og
því fyrr sem þú hættir, því betra,“
segir Richard Peto, prófessor við
Oxfordháskóla.
Kryddaður
matur gegn
kvefpestum
Kryddaður matur, sérstaklega
kryddaður með hvítlauk og chili
pipar, losar um stíflur. Radísur eru
einnig taldar góðar. Indverskir
réttir og mexíkóskir eru oft upp
fullir af sterku kryddi sem talið er
gott. Má nefna cayennepipar og
engifer ásamt framantöldu.
Giftir stunda
meira kynlíf
Stundum er því haldið fram að
hjónaband sé ávísun á kynlífs
þurrð. Rannsóknir í gegnum árin
hafa hins vegar sýnt fram á að sá
sem er í hjónabandi stundar alla
jafna miklu meira kynlíf en sá
sem er ekki giftur, jafnvel þó hann
eigi kærasta eða kærustu. Frá
þessu er greint á lífsstílsvefnum
nakedhealth.avvo.com. Þar segir
að 40 prósent kvæntra karlmanna
stundi kynlíf tvisvar í viku en að
eins 20 til 25 prósent einhleypra
og þeirra sem eiga kærustur státi
af þeirri tölfræði.
Naglalakk Getur ert augu og augnlok.
G
rískur karlmaður, Stamatis
Moraitis, búsettur í Banda
ríkjunum ákvað að snúa
aftur til eyjunnar sinnar,
Ikaríu. Hann var fárveikur
af lungnakrabbameini og átti 9
mánuði ólifaða. Á eyjunni læknað
ist hann af krabbameininu.
Saga þessa gríska manns sem
sneri aftur í von um bata er goð
sögn á þessari grísku eyju, þar sem
sögur af heilsuhreysti hafa verið
sagðar í margar aldir. Rannsóknir
gefa goðsögnunum byr undir báða
vængi. Íkaríubúar lifa lengur, halda
heilsunni lengur – bæði andlegri
og líkamlegri. Eyjan gríska er í
NorðurEyjahafi og þar verður
þriðji hver eyjaskeggi eldri en 90
ára.
Blaðamaður New York Times
Magazine, Dan Buettner, heim
sótti eyjuna fyrir nokkrum árum
og skrifaði um heimsókn sína. Í
umfjölluninni rýndi hann í lífsstíl
eyjaskeggja og spurði sérfræðinga
á sviði heilsu hvað aðrir jarðarbú
ar gætu lært af þeim. Dr. Ioanna
Chinou, sérfræðingur í virkum
efnum í jurtum til lækninga, og dr.
Christina Chrysohoou, sérfræðing
ur í hjartasjúkdómum, voru Dan
til halds og trausts. Dan heimsótti
einnig Stamatis sem var við góða
heilsu.
1 Drekktu geitamjólk Eyjaskeggjar drekka mikið af
geitamjólk en kostir hennar eru
vel þekktir. Það er til að mynda
þrefalt meira af bakteríuhemj
andi efni (laktóferini) í geitamjólk
en kúamjólk. Það stöðvar jafnvel
vöxt á þeim bakteríum sem valda
magasári sem enn og aftur gerir
það að verkum að það er ekki þörf
á að gerilsneyða hana. Einnig lítur
út fyrir að geitamjólkin hafi góð
áhrif gegn of háum blóðþrýstingi.
2 Búðu hátt til fjalla Að búa í fjalllendi leiðir sjálfkrafa til
meiri hreyfingar og útivistar – og
hreinna lofts. Eyjaskeggjar eru í
mjög góðu formi fram eftir aldri.
3 Borðaðu eins og eyja-skeggi Mikið af baunum,
grænmeti, ólífuolíu, heimaræktuðu
grænmeti, kaffi, hófleg víndrykkja,
lítið af kjöti og mjólkurvörum (nema
geitamjólk). Hveiti og brauðmeti og
sykur fyrirfinnst ekki á Íkaríu.
4 Drekktu jurtate Íkaríubúar drekka mikið af tei með mintu
og sjóða fíflablöð og drekka með
sítrónu. Þá drekka þeir te bruggað úr
ýmsum fjallagróðri, svo sem rósmar
ín, marjoram og salvíu, sem lækkar
blóðþrýsting.
5 Blundur og kynlíf Íkaríubúar blunda reglulega yfir daginn.
Þeir leggja einnig töluverða áherslu
á að stunda innilegt kynlíf, sem oft
ast!
6 Hentu klukkunum Margir Íkaríubúar nota ekki arm
bandsúr og eru ekki með klukkur á
heimili sínu. „Okkur stendur á sama
hvað tímanum líður,“ sagði einn
Íkaríubúa.
7 Eigðu náin samskipti Íkaríubúar elska að safnast
saman og ræða málin yfir tesopa.
Þeir eru félagslyndir og halda há
tíðir sínar saman. Einstæðingum er
hjálpað að vera í samneyti við aðra.
kristjana@dv.is
n Á grísku eyjunni Íkaríu lifa eyjaskeggjar vel og lengi
Langlífir Íkaríubúar
Á eyjunni Íkaríu nær
þriðji hver eyjaskeggi 90
ára aldri. MyNd daN BuettNer