Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Page 3
Afskrifa tæplega 90 milljarða
Kröfuhafar eignarhaldsfélaga sem
tengjast fyrrverandi eigendum N1 hafa
nú þegar afskrifað í kringum 90 millj-
arða af skuldum þeirra en heildarskuld-
ir nema í kringum 150 milljarða króna.
Bjarni Benediktsson var stjórnarfor-
maður N1 og BNT. mynd RóbeRt Reynisson
Fréttir 3miðvikudagur 31. október 2012
Veðurstofan varar við vonskuveðri
n búast má við tólf metra ölduhæð, frosti og stormi
V
eðurstofan hefur varað við
vonskuveðri á norðanverðu
landinu næstu daga. Miklar
hamfarir hafa orðið vestanhafs
vegna stormsins Sandy sem fer nú yfir
Bandaríkin. Ekki er von á slíku veðri
hér á landi en búast má við norðanátt
og snjókomu með vindhraða á bilinu
þrettán til tuttugu metra á sekúndu.
Þá segir Veðurstofan í tilkynningu
sinni að búast megi við stormi, sem
er vindhraði upp á meira en tuttugu
metra á sekúndu, norðvestanlands
í dag, miðvikudag, og víða um land í
kvöld, miðvikudag.
Veðurstofan gerir þá einnig ráð fyr-
ir að búast megi við áframhaldandi
stormi á fimmtudag og föstudag með
ofankomu á norðanverðu landinu.
Á Suðurlandi verður hvasst og víða
mjög hvassar vindhviður við fjöll.
Þó er reiknað með því að það hald-
ist þurrt lengst af og að úrkoma verði
minniháttar. Búast má við allt að sex
gráða frosti.
Í tilkynningunni, sem einnig er birt
á vef Almannavarna, segir að mjög
slæmt ferðaveður verði næstu daga og
að ekki sé búist við að veður gangi nið-
ur fyrr en seint um helgina. Veðurstof-
an hvetur húsdýraeigendur til að koma
skepnum sínum í skjól ef kostur er.
Búast má við að ölduhæð geti
náð tólf metrum norður og austur af
landinu. Samfara hárri sjávarstöðu
gæti það valdi vandræðum á hafnar-
svæðum en þó sérstaklega fyrir norð-
an land. Veður stofan hvetur fólk til að
huga að bátum í höfnum og að hafa í
huga að ísing geti myndast og hlaðist
á báta á skömmum tíma.
adalsteinn@dv.is
Afskrifuðu 20 milljarða
hjá dótturfélagi N1
n Fasteignafélag N1 stefnir í gjaldþrot n Tæplega 90 milljarða afskriftir
K
röfuhafar Umtaks, fast-
eignafélags olíufélagsins
N1, afskrifuðu tæplega 20
milljarða króna af skuldum
félagsins á síðasta ári. Þetta
kemur fram í ársreikningi félags-
ins fyrir árið 2011 sem skilað var
til ríkis skattstjóra þann 12. október
síðastliðinn. Umtak var hluti af
fjárhagslegri endurskipulagningu
N1 sem var yfirtekið af kröfuhöfum
olíufélagsins í fyrra en félagið hélt
utan um eignarhald á öllum fast-
eignum olíufélagsins. Eigandi Um-
taks er Arion banki í dag. Stefnt er
að skráningu N1 á hlutabréfamark-
að á næsta ári.
N1 var búið til á grunni eigna
Esso og er stærsta olíufélag lands-
ins í dag með meira en hundrað
bensínstöðvar. Félagið rekur einnig
starfstöðvar eins og bifreiða- og
hjólbarðaverkstæði og annars kon-
ar þjónustu við bifreiðaeigendur.
Stærstu eigendur N1 fyrir hrun
voru bræðurnir Einar og Benedikt
Sveinssynir. Stjórnarformaður fé-
lagsins var Bjarni Benediktsson,
þingmaður og formaður Sjálfstæð-
isflokksins, sem er sonur Bene-
dikts. Bjarni var einnig stjórnar-
formaður móðurfélags N1, BNT.
Forstjóri N1 var Hermann Guð-
mundsson sem hætti í kjölfar fjár-
hagslegrar endurskipulagningar
N1.
eignirnar seldar til n1
Í ársreikningi Umtaks kemur fram
að eignir þess hafi verið seldar til
N1 fyrir 9,5 milljarða króna í fyrra
og langtímaskuldir þess afskrifað-
ar. „Félagið var hluti af fjárhagslegri
endurskipulagningu N1 hf. og
tengdra félaga. Á árinu voru eignir
félagsins seldar til N1 hf. á kr. 9.500
millj. og langtímaskuldir félags-
ins afskrifaðar.“ Eignir félagsins
eru bókfærðar á aðeins tæplega 27
milljónir króna í ársreikningnum.
Á milli áranna 2010 og 2011
fóru skuldir félagsins úr því að vera
rúmir 25 milljarðar króna og nið-
ur í að vera rúmur milljarður eftir
fjárhagslega endurskipulagningu
félagsins. Sú skuld er vegna tekju-
skattsskuldbindingar. Í yfirliti yfir
rekstrarhreyfingar Umtaks í fyrra
kemur svo fram eftirgjöf skulda
upp á tæplega 20 milljarða króna.
Félagið ekki rekstrarhæft
Í skýringum í lok ársreikningsins
kemur fram að Umtak sé ekki
rekstrarhæft eftir þessa fjárhags-
legu endurskipulagningu félagsins.
Af skýringunni að dæma stefnir fé-
lagið í gjaldþrot.
„Ljóst er að hrun viðskipta-
bankanna og óvissa í efnahags-
lífinu hefur haft mikil áhrif á fjár-
hagsstöðu félagsins. Eigið fé í lok
ársins er neikvætt um kr. 1.286,7
millj. Stjórn félagsins hefur skoðað
áhrif breytinga í rekstrarumhverfi
félagsins á rekstrarhæfi þess. Það
er mat stjórnar félagsins að félagið
er ekki rekstrarhæft og er framsetn-
ing reikningsskilanna í samræmi
við það. Allar eignir félagsins hafa
verið færðar á upplausnarvirði.“
Miðað við eignastöðu félagsins
munu þessar tæplega 1.300 millj-
ónir króna sem félagið skuldar í
tekjuskatt bætast við þá tæplega 20
milljarða króna sem nú þegar hafa
verið afskrifaðir.
87 milljarða afskriftir
Afskriftirnar á skuldum Umtaks
gera það að verkum að afskriftir
vegna félaga sem tengjast þessum
fyrrverandi eigendum N1 nema nú
um 87 milljörðum króna. Heildar-
skuldir þessara félaga nema um 150
milljörðum króna. Meðal þessara
félaga er móðurfélag N1, BNT, sem
hefur fengið afskrifaða um 18 millj-
arða króna, Fjárfestingarfélagið
Máttur sem fékk ríflega 21 milljarð
afskrifaðan og Þáttur International
sem fékk 24 milljarða afskrifaða
eftir gjaldþrot. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Ljóst er að hrun
viðskiptabank-
anna og óvissa í efna-
hagslífinu hefur haft mikil
áhrif á fjárhagsstöðu
félagsins.
óveður í aðsigi Veðurstofan og Almannavarnir vara við vonskuveðri á landinu á miðviku-
dag, fimmtudag, föstudag og jafnvel um helgina. mynd sigtRygguR ARi
HAGNAÐUR GYLFA HEFÐI
ORÐIÐ UM 350 MILLJÓNIR
n Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, var með 70 milljónir í tekjur 2011
Í lok júní árið 2009 óskaði
Eimskip eftir nauðasamningum
og var félagið þá jafnframt tekið
af markaði í Kauphöll Íslands.
Um miðjan ágúst árið 2009 sam-
þykktu síðan allir kröfuhafar Eim-
skips nauðasamning félagsins.
Heimildarmaður sem DV ræddi
við segir að það hafi komið Gylfa
vel að Eimskip fékk samþykktan
nauðasamning við kröfuhafa.
Með því sé nánast ógerningur að
fara fram á riftun samninga, líkt
og kaup Eimskips á IceExpress,
eða að láta óháðan aðila kanna
hvort eitthvað misjafnt hafi verið
um að vera í rekstri félagsins.
Nauðasamningar séu ákjósanleg
leið til að hindra gagnrýna og
ítarlega skoðun á tilfæringum
innan fyrirtækja sem mögulega
geti talist vafasamar.
óljós staða gylfa
Heimildarmaður sem DV ræddi
við telur að staða Gylfa í forstjóra-
stóli Eimskips hafi veikst tölu-
vert vegna klúðurs við útboð fé-
lagsins. Líklegt verður að teljast
að skipt verði um forstjóra þegar
hluthafahópur Eimskips stækkar
eftir að félagið fer á markað. Líf-
eyrissjóðir á Íslandi eru í dag
stærstu kaupendur hlutabréfa á
markaði og því fylgir lítil lukka
því að fá þá upp á móti sér líkt og
gerðist í tilfelli Eimskips vegna
útboðs félagsins síðasta fimmtu-
dag.
Frumkvæði að kaupréttar-
áætlun félagsins hafi skilanefnd
Landsbankans hins vegar átt.
Þar sé Ársæll Hafsteinsson, fyrr-
verandi yfirlögfræðingur gamla
bankans, lykilmaður. Einnig
sé ljóst að stjórnendum Eim-
skips verði á einhvern hátt bætt
upp fyrir þá ákvörðun stjórnar
að afnema kauprétti stjórnenda
– hvernig liggur hins vegar ekki
ljóst fyrir. Erfitt getur reynst að
fela slíkt samkomulag án þess að
birta upplýsingar um það í árs-
reikningi félagsins.
Ráðningu gylfa bar brátt að
Ráðning Gylfa í forstjórastól
Eimskips í maí árið 2008 átti
sér mjög stuttan fyrirvara. Bald-
ur Guðnason lét af störfum sem
forstjóri félagsins í febrúar 2008
eftir að hafa verið við stjórn
þegar Eimskip fór í margar skuld-
settar yfirtökur erlendis í góð-
ærinu sem flestar hverjar teljast
hafa misheppnast. Stefán Ágúst
Magnús son tók þá við sem for-
stjóri í nokkra mánuði en hann
hafði áður starfað sem aðstoðar-
forstjóri og framkvæmdastjóri
fjármálasviðs.
Samkvæmt heimildum DV
var talað við Gylfa á sunnudegi
og hann beðinn að koma daginn
eftir til Íslands til að taka við for-
stjórastöðunni. Heimildarmaður
DV segir að Gylfi sé langt því frá
að vera afburðarekstrarmaður.
Þrátt fyrir að fjárhagslegri endur-
skipulagningu félagsins sé nú að
mestu lokið eftir mikinn barning
allt frá vorinu 2008 hefur Gylfi
aldrei þurft að reka félagið í eðli-
legum rekstri. Því þykir óvissa
ríkja um það hversu langan tíma
Gylfi fái enn að verma forstjóra-
stólinn – klúðrið við útboð fé-
lagsins síðasta fimmtudag geti
stytt þann tíma til muna. n