Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Síða 4
É
g kom til Íslands vegna þess að
ég var hræddur við það sem
stjórnmálamenn og voldugir
kaupsýslumenn gætu gert mér
líkamlega,“ segir Cristian Sima, rúm-
enski auðjöfurinn sem flúði til Ís-
lands á dögunum. DV greindi frá
máli hans fyrir skemmstu en hann
lét sig hverfa frá Rúmeníu í byrjun
október og hafði með sér gífurlegar
¬fjárhæðir í eigu viðskiptavina sinna.
Ekkert spurðist til Sima í tæpar tvær
vikur þar til rúmenskir fjölmiðlar
greindu frá því að hann hefðist við
í leiguíbúð í Reykjavík. Sima seg-
ist vera á flótta undan rúmenskum
aðilum, ekki ítölsku mafíunni.
Sima er einn þekktasti viðskipta-
mógúll Rúmeníu auk þess að vera
forseti næststærstu kauphallar
landsins, Sibex, sem sérhæfir sig í
afleiðuviðskiptum. Hann er með al
annars sagður hafa haft milljónir
evra af viðskiptavinum sínum í gegn-
um félagið WBS Holding sem skrá-
sett er á Bresku Jómfrúaeyjum.
Í viðtali í Kastljósi á þriðjudags-
kvöld segir Sima að ástandið hafi ver-
ið orðið eldfimt í Rúmeníu og því hafi
það verið það besta í stöðunni að láta
sig hverfa. Hann valdi Ísland minn-
ugur þess hvernig meðferð Bobby
Fischer fékk hér á landi og segir:
„Mér leist svo á að Íslendingar færu
mjög varlega í málum sem þessum.“
Þá segist hann ekki vera hræddur
hér á landi. Hann hefur aðgang að
húsi í Reykjavík. Hann segir að tveir
rúmenskir menn hafi reynt að leigja
íbúð af leigusala hans, en þegar
í ljós kom að þeir voru með fölsk
kreditkort létu þeir sig hverfa. Sima
segir líklegt að mennirnir hafi verið
að leita að sér.
Sima segir að í raun hafi enginn af
þeim sem hann átti viðskipti við hót-
að sér beint. Hann hafi þó fengið slík-
ar hótanir í gegnum milligönguaðila
sem hringdu og sendu honum skila-
boð. Það sé ekki ólíklegt að fólk sé
hrætt, enda hafi hann gríðarlega vit-
neskju um reikninga og viðskipti og
viti hvar peningar þeirra eru niður-
komnir. Þá hafi hann ekki tekið þátt í
ólöglegum viðskiptum, þó þau hafi ef
til vill verið siðlaus. n astasigrun@dv.is
4 Fréttir 31. október 2012 Miðvikudagur
Sima óttaðist ofbeldi
n Fjármunirnir á vísum stað að sögn rúmenska auðjöfursins
Fimm
dæmdir fyrir
Íbúðalána-
sjóðssvik
Fimm karlmenn sem ákærð-
ir voru fyrir þátttöku í tugmilljóna
svikum út úr Íbúðalánasjóði voru
dæmdir fyrir verknaðinn í Héraðs-
dómi Reykjaness á þriðjudag. Helgi
Ragnar Guðmundsson fékk þyngsta
dóminn en honum er gert að sæta
fangelsi í þrjú og hálft ár. Brot
mannanna áttu sér stað árið 2009
en talið er að það hafi tengst inn-
göngu Fáfnis í alþjóðlegu samtökin
Hells Angels.
Aðrir sem ákærðir voru í málinu
fengu misþunga dóma. Jens Tryggvi
Jensson var dæmdur í þriggja ára
fangelsi, Vilhjálmur Símon Hjartar-
son var dæmdur í fimmtán mánaða
fangelsi, Hans Aðalsteinn Helga-
son fékk níu mánaða fangelsis-
dóm, skilorðsbundinn til tveggja
ára, og Jón Ólafur fékk sjö mánaða
skilorðs bundinn dóm. Gæsluvarð-
hald yfir þeim kemur til frádráttar
refsingunni.
Mennirnir áttu misjafnan þátt
í svikunum og þótti ekki sannað
að þeir hefðu allir haft ávinning af
brotunum.
Svikin námu á fimmta tug millj-
óna og er ekki enn búið að finna
peningana. Umfangsmiklar lög-
regluaðgerðir og rannsóknir voru
framkvæmdar í tilraunum yfirvalda
til að upplýsa svikin en það liðu tæp
þrjú ár frá því að brotin voru framin
þangað til málið var tekið fyrir í hér-
aðsdómi.
Setið fyrir
þjófunum
Þrettán hjólbarðar, sem stolið
var frá N1, hjólbarðaþjónustu
í Reykjanesbæ, fundust við
leit lögreglu á Krýsuvíkurvegi,
skammt frá Hafnarfirði. Um
var að ræða svokallaða „Low
Profile“-hjólbarða, sem hurfu
eftir að brotist hafði verið inn
í fyrirtækið. Öryggiskerfi fór í
gang og öryggisvörður tilkynnti
lögreglu að þar hefði verið brot-
ist inn. Fylgst var náið með um-
ferð í nágrenni fyrirtækisins, svo
og leiðum frá Reykjanesbæ, ef
þjófarnir skyldu ætla að koma
þýfinu úr umdæminu. Tveimur
dögum síðar fundust dekkin svo
þar sem þau höfðu verið skilin
eftir á Krýsuvíkurvegi.
Hænsnabóndi á götunni
L
andnámshænsnabóndinn Júlí-
us Már Baldursson þarf að yfir-
gefa bæinn Tjörn á Vatnsnesi
við Hvammstanga. Þar er Júlíus
með um 300 landnámshænsn
sem hafa gert býlið að afar vinsælum
áningarstað hjá ferðamönnum.
Í mars árið 2010 missti hann
landnámshænsnastofninn, um tvö
hundruð hænsn, í bruna en hef-
ur nú ræktað stofninn upp að nýju.
Bróðir hans hafði verið með leigu-
samninginn að landinu en sagði hon-
um upp eftir brunann. Júlíus sóttist
þá eftir að fá að taka yfir leigusamn-
ing bróður síns en landbúnaðarráðu-
neytið hafnaði því á sínum tíma og
tilkynnti Júlíusi að auglýsa ætti leigu-
samninginn og honum væri frjálst að
sækja um.
Tveimur árum eftir að
leigusamningi bróður Júlíusar var
rift auglýsti ráðuneytið jörðina og
sóttu nokkrir aðilar um. Júlíus varð
þó ekki fyrir valinu heldur ungt par
sem stefnir á sauðfjárrækt.
Hélt í vonina
„Ég hélt í þá von að vera hérna
áfram með landnámshænuna og
halda áfram að rækta hana upp.
Þeir gáfu mér alltaf þá von að vera
hérna áfram. Þeir hvöttu mig til að
sækja um ábúð og vera eftirlits-
maður með þeim eignum sem eft-
ir voru hérna. Ég hélt alltaf í þá von
að ég fengi að vera hérna áfram.
Svo auglýsa þeir jörðina og ákveða
að úthluta henni til annarra,“ segir
Júlíus.
Júlíus segist ekki hafa feng-
ið nein svör frá jarðadeild fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins
um ástæður þess að hann fékk ekki
jörðina en í svari fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins við fyrirspurn
DV kemur fram að enginn umsækj-
enda hafi óskað eftir rökstuðningi
fyrir valinu.
„Of mikið af kjöti“
„Þetta er eina landnámshænsnabú
landsins þar sem fer fram mikil rækt-
un og mikil kynning. Það er mikill
ferðamannastraumur hérna út af bú-
inu á sumrin. Þetta er eina bú lands-
ins og það á að henda því út á götuna
fyrir eitt sauðfjárbúið enn. Ég er ekki
á móti bændum og sauðfjárbændum
en mér finnst ekki vanta meira af
niðurgreiddu lambakjöti fyrir ís-
lenska skattgreiðendur til að flytja út.
Það er of mikið af kjöti í landinu nú
fyrir, það er mín skoðun,“ segir Júlí-
us sem segist þurfa að finna sér nýjan
stað fyrir landnámshænurnar. „Það
er annaðhvort að finna sér eitthvað
til að fara þar sem ég get haft fuglana
eða bara fara til Reykjavíkur og ekki
get ég verið með 300 fugla þar.“
Ævistarfið fór í bruna
Júlíus segist hafa misst nærri því allt
ævistarf sitt í brunanum árið 2010 en
þar urðu 230 hænur, 35 hanar, yfir
900 egg og 150 tveggja mánaða ungar
eldi að bráð. Hann hafði unnið að því
hörðum höndum að fjölga í land-
námshænsnastofninum um þriggja
áratuga skeið og var því ekki aðeins
um umtalsvert fjárhagslegt tjón að
ræða, heldur einnig tilfinningalegt.
Síðan þá hefur Júlíus haft umsjón
með jörðinni fyrir hönd ráðuneyt-
isins og í staðinn fengið að búa þar
tímabundið leigulaust en þurft að
greiða fyrir rafmagn og annan rekstr-
arkostnað.
Fimmtán sóttu um
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn
DV kemur fram að fimmtán manns
hafi sótt um leigu á Tjörn á Vatns-
nesi. Val á leigjendum sé vandasamt
verk en ráðuneytið hafi stuðst við al-
mennar reglur sem finna má á vef-
síðu ráðuneytisins. Þar hafi landbún-
aðarmenntun og reynsla mikið vægi.
Fram kemur að að ráðuneytið
geri sér grein fyrir vanda Júlíus-
ar. „Ráðuneytið gerir sér grein fyrir
að mikil vinna bíður Júlíusar við að
flytja burt lausafé og bústofn (land-
námshænur) og taka til, þannig að
viðskilnaður verði fullnægjandi.
Vegna þessa hefur honum verið sent
bréf og þar er spurt hvort hann hafi
sérstakar óskir varðandi væntanlega
brottför og skil á húsakosti jarðar-
innar.“ n
„Ég hélt í þá von að
vera hérna áfram
með landnámshænuna
og halda áfram að rækta
hana upp.
n Ríkið leyfir honum ekki að vera á bænum n Missti allt í bruna
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
Á götunni Júlíus sér fram á
að flytja til Reykjavíkur ef hann
finnur ekki nýjan stað undir hæn-
urnar og segist ekki geta haldið
þeim ef hann flytur suður.
Rannsókn á
dauðsfalli
Heilbrigðisnefnd Suðurlands sam-
þykkti á síðasta fundi sínum að
kæra mál til lögreglunnar sem
snertir sundlaugina í Þjórsárdal
en dauðsfall var þar í sumar. Á
fundi nefndarinnar var lagt fram
minnisblað, sem er samantekt
yfir upplýsingar og samskipti milli
forsvarsmanna Þjórsárdalslaugar
og nefndarinnar í ljósi upplýsinga
um rekstur laugarinnar í sumar. „Í
ljósi þess að fyrir lá ítrekuð afstaða
HES um starfsleyfisskyldu og úttekt
áður en starfsemi hæfist og villandi
upplýsingar frá forsvarsmönn-
um laugarinnar er lagt til að málið
verði kært til lögreglu vegna brota
á starfsleyfisskyldu,“ segir orðrétt í
bókun. DFS greinir frá.
Veit hvar peningarnir eru Sima segist búa yfir mikilli vitneskju um volduga kaupsýslu-
menn og stjórnmálamenn.