Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Qupperneq 8
Áfall að greinast
með hvítblæði
8 Fréttir 31. október 2012 Miðvikudagur
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Þ
að var áfall að fá þessa grein-
ingu en ég ætla mér að kom-
ast í gegnum þetta og labba
frískur út héðan í mars,“
segir Ingólfur Júlíusson ljós-
myndari sem greindist með bráða-
hvítblæði fyrir um tveimur vikum.
Hann liggur nú á krabbameins-
deild Landspítalans þar sem hann
gengur undir lyfjameðferð. Ingólfur
hefur starfað víða sem ljósmyndari
og unnið til ýmissa verðlauna fyrir
störf sín. Hann er stór og sterkbyggð-
ur og áður en hann missti hárið
vegna veikindanna skartaði hann
miklum rauðum hármakka og síðu
skeggi. Hann líktist helst ógurlegum
berserk, enda stoltur meðlimur í
Víkingafélagi Íslands. En þeir sem
þekkja Ingó, eins og hann er kallaður,
vita að hann er maður með gullhjarta
sem vill helst ekki heilsa fólki án þess
að knúsa það fast og kyssa á kinn.
Var strax lagður inn
Ingólfur fór að finna fyrir slappleika
í ágúst, en kenndi um hefðbundinni
síðsumarsflensu. Lífið hélt áfram
sinn vanagang þar sem hann sinnti
börnum og búi ásamt ljósmynda-
verkefnum og víkingastörfum. Það
var ekki fyrr en hann áttaði sig á að
hann hafði lést um 17 kíló og að fyll-
ingar fóru að detta úr tönnunum að
hann ákvað að fara á læknavaktina
eitt kvöldið, grunlaus að sama kvöld
myndi hann leggjast inn á krabba-
meinsdeild. „Í ágúst þá fannst mér
ég vera eitthvað slappur og hélt að
ég væri með flensu. Svo fór ég að
grennast, það duttu úr mér fyllingar
og sár gréru ekki. Svo bara fannst
mér þetta orðið svo óþægilegt að ég
skellti mér á læknavaktina. Það var á
mánudagskvöldi. Þaðan var ég send-
ur niður á slysó þar sem var tekið úr
mér blóð og svo var bara farið með
mig hingað.“
Ætlar að semja tónlist
Hann segir það hafa verið mikið áfall
að greinast með bráðahvítblæði. „Ég
var að vonast til að þetta væri eitthvað
annað. En það er eiginlega erfiðast að
vera kippt út úr öllu og mega ekkert
gera. Þeir sem þekkja mig vita að ég
er alltaf á hlaupum og vinn brjálæðis-
lega mikið. Alltaf rosa gaman hjá mér,“
segir hann og brosir. „En nú er ég bara
kyrrsettur hérna á spítalanum.“
Ingó er í einangrun á deildinni og
fær takmarkaðar heimsóknir þar sem
ónæmiskerfið liggur niðri meðan á
lyfjameðferðinni stendur. Þrátt fyrir
veikindi og einangrunarvist lætur
Ingó sér ekki leiðast en hann er um-
kringdum bókum, tölvum og græjum
á sjúkrabeðinum. Meðan á heimsókn
blaðamanns stendur kemur frændi
hans og lætur hann fá lítið hljómborð.
Það lifnar yfir honum að sjá frænda
sinn og hljómborðið og hann rífur
það úr umbúðunum eins og spenntur
krakki á jólunum. „Jess,“ segir hann
og bætir við að hann ætli að tengja
hljómborðið við tölvuna og semja
tónlist. Hann segir líðan sína vera
misjafna. Sumir dagar eru verri en
aðrir. „Stundum ligg ég bara eins og
skata en aðra daga er ég bara hress.“
Álag á konunni
Hann segir aðspurður að líðan fjöl-
skyldunnar sé svona upp og niður.
„Það er mikið álag á frúnni en hún
stendur sig vel sú gamla. Við höfum
fundið fyrir miklum stuðningi og
hann er okkur ómetanlegur. Það er
líka alveg ótrúlega gott starfsfólk
hérna á spítalanum og maður fær
alveg ótrúlega góða þjónustu,“ segir
Ingó og vill koma á framfæri þakklæti
til lækna, hjúkrunarfólks og annarra
sem hafa styrkt fjölskylduna á einn
eða annan hátt.“
Þrátt fyrir að hann beri sig vel er
greinilegt að veikindin reyna mikið
á hann. Heima eru stelpurnar hans
tvær ásamt eiginkonu og hundinum
Betu. Hann hefur áhyggjur af fram-
tíðinni. „En ég ætla að komast í
gegnum þetta og ég ætla að labba
heilbrigður héðan út í mars, fitt og
flottur. Þetta er ekki versta tegundin
af hvítblæði, það á að vera hægt að
lækna þetta.“ n
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n „Ætla að komast í gegnum þetta n Þakklátur fyrir allan stuðninginn
Víkingur Ingólfur er í víkingasamtökum.
Hér er hann í fullum skrúða en myndin er
tekin daginn áður en hann var lagður inn á
spítala.
„Svo fór ég að
grennast, það
duttu úr mér fyllingar
og sár gréru ekki
Berst við krabbamein Ingólfur Júlíusson ljósmyndari
greindist með bráðahvítblæði í lok ágúst síðastliðinn.
Hann er staðráðinn í því að sigrast á meininu og ganga
heilbrigður út af spítalanum í mars. Mynd sigtryggur ari
Umdeild
skýrsla lítur
dagsins ljós
Ríkisendurskoðun birti á þriðju-
dag skýrslu sína um fjárhags- og
mannauðskerfi ríkisins. Skýrslan
hefur þegar valdið miklu fjaðrafoki
að undanförnu þrátt fyrir að hafa
verið birt fyrst á þriðjudag. Hún
var unnin frá grunni á þremur
vikum samkvæmt upplýsingum á
vef stofnunarinnar en áður hafði
skýrslan verið í vinnslu hjá emb-
ættinu síðan árið 2004.
Kastljós fjallaði fyrir skemmstu
um drög Ríkisendurskoðunar
að skýrslunni sem hafði verið í
vinnslu um margra ára skeið án
þess að vinnu væri lokið. Í niður-
stöðum Ríkisendurskoðunar
kemur fram að stofnunin telji
að áætlanagerð vegna kaupa og
innleiðingar á nýju fjárhags- og
mannauðskerfi fyrir ríkið hafi
verið ábótavant.
Stofnunin telur að bæði hafi
innleiðingartími verið vanáætlað-
ur og stofnkostnaður kerfisins. Þá
er sérstaklega bent á að heildar-
kostnaður kerfisins hafi ekki ver-
ið metinn. Í skýrslunni kemur
fram að heildarkostnaður ríkis-
ins vegna kerfisins hafi numið 5,9
milljörðum króna á tímabilinu
2001 til 2011. Þá kemur einnig
fram að rekstrarkostnaður kerf-
isins hafi numið samtals um 4,3
milljörðum króna á tímabilinu.
Of drukknir
til að fljúga
För tveggja flugfarþega í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar var stöðv-
uð nýverið, því þeir voru svo
ölvaðir að þeir voru ekki tald-
ir ferðafærir, og þeir færðir á
lögreglustöð. Í tilkynningu frá
lögreglunni á Suðurnesjum
kemur fram að sá fyrri hefði
haft í hótunum við annan flug-
farþega í verslun í Leifsstöð, auk
þess að sýna af sér aðra slæma
hegðun. Þegar lögreglumenn á
Suðurnesjum komu á vettvang
og vildu ræða við manninn
brást hann illa við. Í lögreglu-
bifreið á leiðinni á lögreglustöð
varð hann svo verulega æstur
og illviðráðanlegur svo kalla
varð til liðsauka.
Hinn maðurinn var einnig
færður á lögreglustöð vegna
ölvunarástands síns.