Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 31. október 2012 Miðvikudagur
sonurinn Einangraðist
vEgna klámfíknarinnar
F
yrsta innrás klámsins í líf
sonar míns var þegar hann
var 12 ára,“ segir móðir átján
ára drengs sem er reglulegur
klámneytandi. Þar sem kon
an vill vernda drenginn fyrir óþægi
legu umtali vill hún ekki láta nafn
síns getið en við skulum kalla hana
Ragnheiði og son hennar Jón.
Ragnheiður féllst þó á að segja sögu
sína, söguna af því hvernig son
ur hennar ánetjaðist smám saman
klámefni á netinu og baráttu henn
ar sem móður gegn þessari þróun.
Eftir nokkurra ára ferli þar sem hún
hefur reynt allt sem henni hefur
hugkvæmst til að hjálpa honum af
þessari braut stendur hún nú eftir
ein og ráðalaus, hann er orðinn
átján ára, sjálfráða og engin úrræði
í boði.
Vakti hneykslun og forvitni
Hér á eftir birtum við brot úr bréfi
hennar til blaðamanns. Eins og
fyrr segir þá var Jón tólf ára þegar
hann sá klám í fyrsta sinn. „Þá
sendi bekkjarbróðir hans honum
link í vefpósti sem hann fór inn á.
Hann lét mig vita strax og við fórum
í gegnum upplifunina af því sem
hann sá,“ segir hún en drengurinn
virtist vera hneykslaður á því sem
hann sá en þó kviknaði líka hjá
honum forvitni. Ragnheiður hafði
samband við foreldra sendandans
og ræddi við drenginn um málið.
„Kynlíf var ekki feimnismál og var
rætt jafnvel við matarborðið og
hélst svo þar til hann var kominn á
fermingaraldurinn.
Auðvitað breyttust áherslurnar
og misjafnt hvað hægt er að ræða
við 12 ára gamalt barn og svo upp
úr, en ég var viss um að heilbrigði
hans og sjálfsmynd væru í lagi hvað
þetta varðaði. Lítið vissi ég. Hann
var ekki á góðum stað í félagslegum
samskiptum innan bekkjarins þar
sem hann lék það af hræðslu og
vanmætti að vera þagnaraðili og
áhorfandi að einelti í bekknum.
Líkast til vegna upplifunar sjálfur af
einelti um nokkurra mánaða skeið
á 6 ára aldri af hendi eldri drengs
í hverfinu. Léleg sjálfsmynd og
ósjálfstæði gæti verið þáttur í því að
krakkar leiti frekar á jaðarinn.“
Varnirnar dugðu ekki
Eftir fermingu eignaðist Jón tölvu.
„Hún var varin og í minni umsjón,“
segir Ragnheiður. „Allt gekk vel
og ég taldi mig hafa yfirsýn. Þarna
fékk hann fyrst tækifæri til að skoða
klám en hann segist ekki hafa gert
það fyrr en einu og hálfu ári síðar,“
segir Ragnheiður, en þá var Jón
fjórtán að verða fimmtán ára. Enn
grunaði móður hans ekki eitt.
Þegar hann var sextán ára bil
aði tölvan hans og hann fékk nýja.
„Þá setti hann inn nýtt lykilorð sem
ég vissi ekki og var fastur á því að fá
mig út úr eftirlitshlutverkinu sem
ég samþykkti því miður. En ég fór
á bak við hann eins og hann upp
lifði það og fór að gramsa í tölvunni.
Hann hafði eitt sinn gleymt að loka
fyrir aðganginn og sá ég þá að þær
varnir sem ég hélt í einfeldni minni
að dygðu gerðu það ekki. Núna veit
ég að bæði var það vanþekking af
minni hálfu en einnig að hægt er
að komast framhjá þeim. Það hef ég
fengið staðfest hjá öðrum mæðrum
síðan. Fyrir mig var þetta áfall.“
Ragnheiður segist hafa þurft
að glíma við sjálfsásakanir og
sektar kennd. „Grunnurinn sem
ég hafði byggt á hélt ekki vatni og
fannst mér það vera mín mistök
og samviskubitið yfir að vera ekki
að standa mig sem uppalandi var
nagandi og sárt.“
Skapsveiflur og einangrun
En það var ekki aðeins hún sem
glímdi við erfiðleika vegna þessar
ar stöðu sem nú var komin upp í
fjölskyldunni. Hún sá líka miklar
breytingar á Jóni. „Við notkun
efnisins varð breytingin á hans
karakter ansi mikil. Unglingsskap
sveiflur voru að mestu yfirgengnar
en nokkur einkenni gerðu vart við
sig á þessum tíma, eða um sext
án ára aldurinn, sem ég gat tengt
við klámnotkunina og höfðu ekki
verið til staðar áður.
Hann einangraði sig frá fjöl
skyldunni, fékk miklar skapsveiflur
sem hræddu systur og sveiflurnar
voru meiri en þær sem fylgt höfðu
hormónabreytingunum hingað til.
Ljótur munnsöfnuður og haturs
orðræða gagnvart fólki og sínum
nánustu.“
Allt í boði
Á dögunum kom kona að nafni
Gail Dines til landsins til að ræða
klám og hélt því fram að klámefnið
sem nú á dögum er hægt að nálgast
mjög auðveldlega á netinu sé alltaf
að verða grófara, ofbeldisfyllra og
ágengara. Við skoðun blaðamanns
kom í ljós að inni á vinsælum
klámsíðum eru mjög ofbeldisfull
myndbönd, sum hver virðast helst
vera af nauðgunum og það mjög
grófum, og rata jafnvel inn á lista
yfir þau myndbönd sem fá hæstu
einkunn og mest er horft á.
Enda segir Ragnheiður að það
hafi verið mjög sláandi að sjá efnið
sem Jón var að horfa á. Það hafi því
ekki verið skrýtið að persónuleik
inn hefði tekið breytingum. „Efnið
sem hann var að horfa á var hræði
legt. Ég gat ekki farið í gegnum all
ar síður vegna líkamlegra og til
finningalegra einkenna sem komu
upp við viðbjóðinn sem blasti við
mér. Niðurlægingin og ofbeldið
sem troðið var inn í og upp á ungar
konur var átakanlegt. Allt var í
boði. Leikið var með barnagirnd,
ein síðan var um fjölskyldusex þar
sem pabbinn þjösnaðist á dóttur
og hennar móður.
Barnið mitt var neytandi svo
hrikalega ofbeldisfulls efnis að
það var engin furða þótt karakter
breytingar hefðu orðið á persónu
hans, persónu sem enn var að mót
ast og heilinn ekki búinn að taka út
sinn þroska.“
Leitaði sér aðstoðar
Hún segist ekki hafa hugmynd um
það hversu oft hann leitaði í klám
efnið. Síðast þegar hún komst í
tölvuna áður en það var lokað fyrir
það liðu mest þrír dagar á milli
þess sem hann neytti kláms.
Frá því að þetta kom fyrst upp
hefur Ragnheiður leitað allra
leiða til þess að finna hjálp fyrir
drenginn, leiðir til þess að spyrna
við þessari klámnotkun. „Það tók
mig nokkra daga að taka mig til
og tala við hann. Þá var ég búin
að liggja í upplýsingasöfnun um
fyrstu hjálp fyrir mig og unglinginn
en fann einungis forvarnir.
Ég brá á það ráð að fá aðstoð frá
fagfólki en fékk Jón einungis með
mér í eitt skipti. Þar fékk ég þó að
stoð þannig að ég gat tekið á mig
rögg til að fara í prógramm þar sem
tölvan var alltaf í opnu rými og
nettíminn skammtaður. Eftir ein
hverja mánuði fórum við að slaka
á og leyfa honum að vera aðeins
lengur og smátt og smátt fórum
við að leyfa honum að fá tölvutíma
inni í sínu herbergi.
Fíknin var þó enn til staðar og
eftir að hann varð 18 ára og kom
inn með nýjan snjallsíma var
hann enn og aftur kominn af stað
í klámið. Þá var í raun bara eitt
eftir og það var að útiloka hann af
nettengingunni heima.“
Fórnarlamb klámfíknar
Allt þetta ferli hefur verið erfitt og
sárt en Ragnheiður áfellist ekki
son sinn. „Hann er fórnarlamb,“
segir hún. „Hann hefur sýnt að
hann hefur samvisku, kannski
einna helst með því viðurkenna
að hann viti af því að þetta sé ekki
kynlíf heldur ofbeldi, en á samt
erfitt með að hætta að horfa á þetta
þar sem hann er greinilega fíkill.
Ég segi að hann sé fíkill vegna þess
að þrátt fyrir að talað sé um fyrir
honum með góðu, í hreinskilni og
þar sem hann fær fræðslu, og þrátt
fyrir að hart sé tekið á málinu þá
getur hann ekki hætt.
Sorgin er enn til staðar því góða
tengingin og samtölin um allt sem
gat hugsast eru fyrir bí. Hann er
ekki viljugur að tala um þetta og
sjálfsagt er það vegna þess að hann
er enn að nota klám.
Eftir á að hyggja voru verstu
stundirnar það þegar ég upplifði
tilfinningakulda gagnvart mínu
eigin barni fyrst eftir áfallið. Að af
tengjast og fyrirlíta sitt eigið barn
er nokkuð sem ég veit að kemur
oft upp hjá foreldrum, til dæmis
þegar við fíkniefnavanda er að etja
og sem betur fer er það ekki við
varandi ástand heldur tengt streitu
og sektarkennd eða tilfinningunni
um vanhæfi sem uppalandi.“
Vonast eftir úrræðum
Að lokum segist Ragnheiður von
ast eftir úrræðum fyrir fjölskyldur
sem lenda í þessari stöðu. „Ég
vona að fullorðinsfræðsla og eins
klámfræðsla í skólum geti orðið að
veruleika því fræðsla er nauðsyn
leg, ásamt harðari aðgerðum. Mér
finnst ekki spurning að loka eigi
fyrir leið þessa efnis á netinu inn í
landið eins og hægt er. Frelsi full
orðinna má ekki vera meinsemd
fyrir börn.
Þeir sem framleiða þvílíkt efni
eru auðvitað, líkt og almenningur
þekkir betur í dag, gráðugir og sið
blindir. En af hverju er framleiðsla
þvílíkra einstaklinga svona algeng?
Það að vera einn í stríði við of
beldi af þeim toga sem finnst í
klámheimum er yfirþyrmandi og
ætti ekki að vera staðan sem flestir
foreldrar eru í.“ n
Klámnotkun ungmenna
Á Internet Pornography Statistics má sjá áhugaverðar tölur varðandi börn og klám á
netinu. Þar kemur meðal annars fram að:
n 11 ára er meðalaldur barna þegar þau sjá klámefni á internetinu í fyrsta sinn.
n 80% 15–17 ára barna hafa oft séð gróft klámefni á internetinu.
n 90% 11–16 ára barna hafa horft á klám á internetinu – flest á meðan þau voru að læra.
n Nöfn 26 þekktra karaktera sem eru ætlaðir börnum eru tengdir þúsundir klámlinka,
þeirra á meðal eru Pokemon og Action Man.
Hér á landi hafa einnig verið gerðar rannsóknir á klámnotkun ungmenna. Árið 2006 kom
út rannsókn um ungmenni á Íslandi og klám. Þar voru ungmennin meðal annars beðin
um að skilgreina klám. Flestir töldu myndir af nöktu fólki að snerta sig klámfengnar, auk
þess sem flestum þótti myndir af kynfærum klámfengnar. Athygli vakti að ef ekki sáust
myndir af kynfærum þótti ungmennunum efnið ekki klámfengið.
Bæði kynin horfðu oftast á klám heima hjá sér, en stúlkur voru talsvert líklegri en strákar
til að horfa á það heima hjá kærasta eða vini.
Í þessari rannsókn kom einnig fram að:
n 81% þátttakenda fannst klám mjög aðgengilegt.
n 9 af hverjum 10 höfðu séð klám.
n 8% drengja horfa á klám daglega og 1,2% stúlkna samkvæmt sömu rannsókn.
n 14% drengja horfa á klám nokkrum sinnum í viku og 5,3% stúlkna.
n 11,8 % drengja horfa á klám nokkrum sinnum í mánuði og 14% stúlkna.
n 28,8% drengja sögðust nota klám einir, en 28,2% stúlkna sögðust nota það með
kærasta, vini eða vinkonu.
Spurð út í viðhorf sín gagnvart klámi og áhrifum þess sögðu:
n 39% ungmenna að klám væri skemmtilegt.
n 48% ungmenna að klám væri framleitt fyrir karlmenn.
n 23,5% að klám leiddi til nauðgana og sama hlutfall sagði það leiða til vændis.
Nýrri samnorræn rannsókn frá árinu 2009 sýnir hins vegar að:
n 20% drengja á aldrinum 16–19 ára horfa á klám daglega, eða næstum daglega og 23,3%
horfa á klám nokkrum sinnum í viku. Samanlagt er það tæpur helmingur unglingsdrengja.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
n Sonurinn sá fyrst klám 12 ára og var orðinn klámfíkill 18 ára n Fá úrræði í boði
„Barnið
mitt
var neytandi
svo hrika-
lega ofbeld-
isfulls efnis
Reyndi allt Konan leitaði allra leiða til þess að hjálpa syni sínum af þessari braut.
Hún sá að klámfíknin hafði slæm áhrif á persónuleika hans, hann einangraðist, fékk
skapgerðasveiflur og notaði hatursorð gagnvart sínum nánustu og það var mjög sárt.
SV
ið
Se
t
t
M
y
n
d