Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Síða 11
Fréttir 11Miðvikudagur 31. október 2012
Hættir í skugga
grófra ásakana
„Ég sver
af mér að
hafa misnotað
aðstöðu mína
hjá Landsbjörg
G
uðmundur Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri slysa
varnarfélagsins Landsbjargar,
hefur ákveðið að hætta
tímabundið sem æðsti stjórn
andi félagsins vegna Youtubemynd
bands þar sem fullyrt er að hann hafi
misnotað stöðu sína hjá félaginu til
að stunda peningaþvætti og gjald
eyrisbrask. Framkvæmdastjórinn tók
þessa ákvörðun í samráði við stjórn
félagsins á þriðjudagskvöldið.
Myndbandið var látið á You tube
á mánudaginn en var ekki lengur á
síðunni daginn eftir, að því er virðist
vegna þrýstings frá lögmanni Guð
mundar Arnar, samkvæmt honum. Í
myndbandinu er meðal annars spil
uð hljóðupptaka þar sem Guðmund
ur Örn ræðir um fjármagnsflutninga
upp á tugi milljóna króna við annan
mann og talað um persónulegan
hagnað þeirra af flutningunum. Ekk
ert í þessu samtali tengist þó Lands
björg þó myndbandið sé gert þannig
að áhorfandinn dragi þá ályktun að
slysavarnarfélagið tengist málinu,
meðal annars viðskipti þess með flug
elda frá Kína. „Ég sver af mér að hafa
misnotað stöðu mína hjá Landsbjörg.
Hvernig ætti ég að geta þvegið pen
inga í gegnum Landsbjörg? Þetta er
absúrd. Þetta mál tengist Landsbjörg
ekki neitt en samt er búið að draga
félagið inn í þetta. Ég er valinn sem
skotmark af því að ég er í viðkvæmu
starfi hjá þessum félagasamtökum,“
segir Guðmundur Örn.
Guðmundur Örn sendi tilkynn
ingu um málið til sjálfboðaliða
Landsbjargar á þriðjudagskvöld eft
ir að hafa rætt um málið við stjórn
félagsins síðdegis sama dag. Þar er
sjálfboðaliðum Landsbjargar greint
frá tímabundnum starfslokum Guð
mundar Arnar.
Guðmundur Örn segir að fast
eignasalinn Bóas Ragnar Bóasson,
sem er fyrrverandi viðskiptafélagi
hans, hafi birt myndbandið á
internetinu til að fá hann til að falla
frá kæru um skjalafals sem hann og
nokkrir aðilar, meðal annars maður
að nafni Sigurður Kolbeinsson, hafi
lagt fram á hendur honum til lög
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn sem Guðmundur Örn
heyrist ræða við í myndbandinu er
Bóas Ragnar, að sögn þess fyrrnefnda.
Guðmundur Örn segir að Bóas Ragn
ar hafi tekið upp samtal þeirra án
hans vitneskju.
Ótengt Landsbjörg
Ýmislegt í myndbandinu bendir
til að frjálslega sé farið með stað
reyndir en í því er meðal annars spil
uð upptaka frá samtali við Guðmund
Örn frá árinu 2010 þar sem látið er í
veðri vaka að hann lýsi aðstöðubraski
sínu í gegnum Landsbjörg. Sann
leikurinn er hins vegar sá að Guð
mundur Örn hóf störf hjá félaginu í
maí á þessu ári og hefði því ekki get
að misnotað aðstöðu sína sem fram
kvæmdastjóri Landsbjargar árið 2010.
Samt er myndbandinu stillt þannig
upp. Ekkert í myndbandinu sannar
því að nokkur misnotkun hjá Guð
mundi Erni hafi átt sér stað með fjár
muni Landsbjargar eða annarra aðila
í gegnum slysavarnarfélagið.
Ræðir ekki viðskiptin ítarlega
Aðspurður um viðskiptin sjálf sem
greint er frá í myndbandinu vill Guð
mundur Örn ekki fara ítarlega út í eðli
þeirra. Hann segist aldrei hafa verið
dæmdur fyrir lögbrot og sé með hreint
sakavottorð. „Það sem ég er reiðastur
út af eru ásakanirnar gagnvart Lands
björg. Það er fölsunin í dæminu. Hitt
er bara bisness sem menn geta litið
á hvernig sem er en þetta tengist
Landsbjörg ekki neitt. Þá var ég ekki
í starfi hjá slysavarnarfélaginu Lands
björg. Ég er ekki dæmdur maður og
hef ekki gert neitt ósiðlegt. Þetta eru
bara viðskipti sem voru á sínum tíma,
árið 2010,“ segir Guðmundur Örn.
Þráspurður um eðli viðskiptanna
segir Guðmundur Örn að hann vilji
ekki ræða það að svo stöddu. Blaða
maður segir þá að ásakanirnar í
myndbandinu séu grófar; hann sé
sakaður um peningaþvætti og gjald
eyrisbrask. „Það er eitthvað sem ég
held að ég vilji ekki fara inn á núna […]
En þetta eru fasteignaviðskipti sem er
um ræða; menn voru í fasteignabraski
á þessum tíma, bæði hér heima og er
lendis. Þannig að þetta á rætur sínar
að rekja þangað. Það ætluðu allir að
græða mjög mikið.“ Spurður hvort um
sé að ræða samtal um fjármagnsflutn
inga til og frá Íslandi segir Guðmund
ur að svo sé ekki í „þessu tilfelli“. „Ég
var bara minn eigin herra á þessum
tíma og stundaði viðskipti.“
Hvað svo sem líður persónulegum
viðskiptum Guðmundar Arnar virðist
ekkert á þessari stundu benda til þess
að þau tengist Landsbjörg með nein
um hætti.
170 milljóna viðskipti
Guðmundur Örn segir jafnframt að
þessi viðskipti sem þeir Bóas Ragnar
heyrast ræða um í myndbandinu
tengist þó ekki þeim viðskiptum sem
kæran til lögreglunnar snérist um.
„Þetta er ekki þessi díll sem við rædd
um um. Þetta eru allt önnur viðskipti.
Þetta eru óskyld mál.“
Að sögn Guðmundar Arnar var
Bóas Ragnar kærður vegna þess að
hann og nokkrir aðrir aðilar hefðu látið
hann fá samtals 170 milljónir króna
í formi lána til að stunda fasteigna
viðskipti í Los Angeles. Sjálfur lagði
Guðmundur sex milljónir króna í við
skiptin sem hann tapaði á endanum.
Fjárfestarnir áttu að fá ávöxtun upp
á 40 prósent á ári, segir Guðmundur
Örn. „Þetta voru lánasamningar sem
við skrifuðum upp, þar sem okkur var
boðin mjög góð ávöxtun. Hann var
með ákveðna díla sem hann kynnti
fyrir okkur og sagðist vanta fjármagn í
þá. Við lítum svo á að þetta hafi verið
Ponzisvikamylla.“
Peningarnir hafa hins vegar ekki
skilað sér aftur til þeirra sem lögðu fé
í fjárfestingarnar að sögn Guðmundar
Arnar. „Þetta virkaði hjá honum af því
að hann byrjaði á því að greiða okkur
vexti af lánunum í eitt skipti. Þetta er
bara „the oldest trick in the book“.
Þetta átti svo að greiðast til okkar
allt saman, ásamt vöxtum, í febrúar
á þessu ári en við fengum ekkert til
baka.“
Eftir þetta fóru þeir að grennslast
fyrir um viðskipti Bóasar Ragnars, að
sögn Guðmundar Arnar, og komust
þeir þá að því að ýmislegt í fasteigna
viðskiptunum virðist hafa verið fals
að, meðal annars bankayfirlit og
skjáskot með myndum af tölvugögn
um sem sýna áttu góða stöðu við
skiptanna. „Við kærðum hann til lög
reglunnar og svo býr hann til þetta
myndband. Ég stend frammi fyrir
því núna að þurfa að hætta störfum
vegna hagsmuna Landsbjargar. Það
er mikilvæg fjármögnun framund
an hjá félaginu (sala á Neyðarkarlin
um, innskot blaðamanns) sem ég hef
séð um að skipuleggja. Félagið þarf að
halda haus í gegnum hana.“
Guðmundur Örn segir að lög
reglurannsóknin á hendur Bóasi
Ragnari vegna kærunnar muni halda
áfram og að hann muni í kjölfarið
skoða stöðu sína gagnvart honum.
Segir málið „harmleik“
Formaður stjórnar Landsbjargar,
Hörður Már Harðarson, segir sam
tökin ekki hafa neina aðild að málinu
og að það sé „harmleikur“. ,,Við eig
um enga aðild að þessu máli; þetta
er bara einhver harmleikur sem við
erum dregnir inn í á versta tíma. Þetta
er persónuleg deila á milli manna sem
kemur okkur ekkert við. Hann Guð
mundur Örn er búinn að vera hérna
í skamman tíma og þetta samtal átti
sér stað löngu áður en hann byrjaði
hérna.“
Hörður segir að starf þúsunda
sjálfboðaliða sé undir í málinu:
„Ég ætla ekki að taka afstöðu með
einstaklingunum í þessu deilumáli en
ég ætla að taka afstöðu með félaginu.
Það eru þúsundir sjálfboðaliða sem
liggja á bak við starfsemi félagsins og
við þurfum á öllum okkar peningum
að halda nú þegar við erum að byrja
að selja Neyðarkarlinn. Við berjumst
í bökkum til að ná endum saman
því við vörðum svo miklu í óveðrið á
Norðurlandi. Okkar einingar þurfa
á peningum að halda, meðal annars
til að geta brugðist við hugsanlegum
jarðskjálfta á Norðurlandi.“
Hörður Már segir að allir reikningar
félagsins séu opinberir og að það hafi
ekkert að fela. „Allir okkar reikningar
liggja opnir fyrir öllum; við erum með
löggiltan endurskoðanda og einnig fé
lagslega endurskoðendur. Viðskipti
okkar við aðila í Kína ná langt aftur í tí
mann. Þau fara í gegnum bankastofn
anir og þola alla þá skoðun sem til er.
Ég trúi því að hið sanna muni koma í
ljós í þessu máli. Ég veit að þjóðin mun
standa með okkur,“ segir Hörður en
ásamt flugeldasölu samtakanna í lok
hvers árs er salan á Neyðarkarlinum
einnig mikilvæg fjáröflunarleið fyrir
þau. n
n Framkvæmdastjóri Landsbjargar vændur um aðstöðubrask á Youtube
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Stígur til hliðar
Guðmundur Örn
Jóhannsson hefur
stigið til hliðar sem
framkvæmdastjóri
Landsbjargar
vegna ásakana
gegn honum í
myndbandi sem
birt var á Youtube
á mánudaginn.