Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Síða 12
12 Erlent 31. október 2012 Miðvikudagur
Tónlistarmenn
fangelsaðir
Tveir tónlistarmenn í Víetnam
hafa verið dæmdir í sex og
fjögurra ára fangelsi fyrir að
dreifa áróðri með tónlist sinni.
Mennirnir, Tran Vu Anh Binh
og Von Minh Tri, voru sakfelld-
ir fyrir dómi í Ho Chi Minh-
borg fyrir að gagnrýna yfirvöld
í Víetnam. Mannréttindasam-
tökin Amnesty International
hafa gagnrýnt dóminn harðlega
og benda á að réttarhöld yfir
mönnunum hafi einungis tekið
fimm klukkustundir. „Þeir eru
samviskufangar sem eru fang-
elsaðir fyrir að nýta sér óskor-
aðan rétt til tjáningarfrelsis. Það
ætti að sleppa þeim úr haldi,“
sögðu mannréttindasamtökin í
yfirlýsingu.
Mótmæli
bönnuð
Yfirvöld í Barein hafa bannað
öll mótmæli og allar fjölda-
samkomur í landinu í kjölfar
pústra á milli lögreglu og mót-
mælenda gegn stjórnvöldum.
Innanríkisráðherra Barein, Ras-
hid Al Khalifah, segir að „endur-
tekin misnotkun“ á tjáningar-
frelsinu verði ekki liðin lengur.
Ráðherrann segir að mótmæli
verði leyfð um leið og jafn-
vægi kemst á í landinu en óvíst
hvenær það verður. Mótmæli
voru bönnuð í landinu síðast
árið 2011 og stóð bannið þá yfir
í þrjá mánuði í kjölfar þess að 35
létu lífið, þar á meðal 5 lögreglu-
þjónar, í mótmælum.
Gullgrýti
sökk í sæ
Flutningaskip með um 700
tonn af gullgrýti innanborðs
er talið hafa sokkið í sæ undan
Kyrrahafsströnd Rússlands á
mánudag. Níu manns voru í
áhöfn skipsins sem hafði sent
frá sér neyðarkall áður en það
hvarf. Það var á leið frá hafnar-
bænum Neran til Feklistov- eyjar
í Okhotsk-hafi þar sem til stóð
að vinna gullgrýtið. Veður á
þessum slóðum var slæmt þegar
neyðarkallið barst frá skip-
inu. Gull er, eins og nafnið gef-
ur til kynna, unnið úr gullgrýti.
Talsmenn námufyrirtækisins
Polymetal, sem höfðu leigt skip-
ið, sögðust á þriðjudag ekki geta
áætlað heildarverðmæti farms-
ins sem sökk. Leit að skipinu
hefur engan árangur borið.
F
ellibylurinn Sandy hefur
valdið stórkostlegu tjóni á
stóru svæði vestan Atlants-
hafs. Sandy átti upptök sín
í Karíbahafinu fyrir um það
bil viku og olli þar mannfalli og
mikilli eyðileggingu. Fellibylurinn
náði hámarki sínu er hann skall
á austurströnd Bandaríkjanna en
nú hefur ofviðrinu slotað og flokk-
ast Sandy ekki lengur sem fellibyl-
ur heldur sem leifar af hitabeltis-
stormi.
Ljóst er að Sandy hefur þegar
valdið mun meira tjóni en felli-
bylurinn Irene sem gekk yfir sama
svæði í fyrra en nú er talið hugsan-
legt að Sandy verði fimmti versti
fellibylur Bandaríkjanna frá upp-
hafi. Samkvæmt BBC er Sandy
mesti fellibylur sem gengið hefur
yfir Atlantshafið á okkar tímum.
Gríðarleg eyðilegging
Tugir manna létu lífið á eyjum Karíba-
hafsins vegna óveðursins og hátt í
þrjátíu manns hafi farist í Bandaríkj-
unum þegar þetta er skrifað. Þá hafa
mörg hundruð þúsund manns neyðst
til að flýja heimili sín og talið er að raf-
magnsleysi hafi haft áhrif á sautján
milljónir manna í þrettán ríkjum
Bandaríkjanna. Í Queens í New York
urðu að minnsta kosti áttatíu hús eldi
að bráð í kjölfar þess að rafmagni sló
út.
Tjónið af völdum Sandy hleypur
á milljörðum Bandaríkjadala.
Tryggingafyrirtæki meta tryggingatjón
á bilinu fimm til tíu milljarða Banda-
ríkjadala og áhrif ofsaveðursins á
bandarískt efnahagslíf á bilinu tíu til
tuttugu milljarða dala eða 1.300 til
2.500 milljarða íslenskra króna. Þó er
ekkert útséð í þeim efnum.
Ástandið verst í New York
Nær öll ríki austurstrandar Banda-
ríkjanna hafa orðið fyrir barðinu
á ofviðrinu en einna verst var
ástandið í New York. Bílar flutu um
fjármálahverfi Manhattaneyju og
göng neðanjarðarlestarkerfisins
fylltust af vatni. Þar var rafmagns-
laust um nokkra hríð auk þess sem
allar almenningssamgöngur borg-
arinnar hafa legið niðri og búist
er við að neðanjarðarlestarkerfið
verði í lamasessi í fjóra daga hið
minnsta. Öllu flugi til og frá New
York var aflýst um óákveðinn tíma.
Þá var að minnsta kosti tveimur
kjarnorkuverum lokað í New York
og New Jersey en engin hætta er
talin stafa af þeim.
Kosningar í næstu viku
Forsetakosningar fara fram í Banda-
ríkjunum þann 6. nóvember og
hefur Sandy þegar sett mark sitt á
þær. Barack Obama Bandaríkjafor-
seti hefur sett kosningabaráttu sína
á ís og stjórnar neyðaraðgerðum
frá Washingtonborg. Keppinautur
forsetans, Mitt Romney, hefur að
sama skapi aflýst fyrirhuguðum
viðburðum á vegum framboðs síns
í samúðarskyni með þeim sem eiga
um sárt að binda vegna óveðursins.
„Kosningarnar munu sjá um sig
sjálfar í næstu viku,“ sagði Obama við
fréttamenn á þriðjudaginn. „Núna
setjum við það í forgang að bjarga
mannslífum og við munum bregð-
ast eins hratt við og við getum til að
koma efnahag ríkjanna aftur í samt
lag.“ n
Algjör eyðilegging Tugir íbúðahúsa í
Queens í New York urðu eldi að bráð í kjölfar
rafmagnsleysis vegna ofsaveðursins.
Brimrót Mikil flóð hafa fylgt fellibylnum Sandy.
Sandy olli tugmilljarða tjóni
n Fellibylurinn Sandy er einn sá versti í sögu Bandaríkjanna n Hátt í hundrað manns hafa týnt lífi í óveðrinu
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Borgin sem aldrei sefur Myrkrið grúfir sig yfir Manhattan-
eyju. Þegar Sandy lét hvað verst varð víða rafmagnslaust á
austurströnd Bandaríkjanna. Talið er að rafmagnsleysið hafi
haft áhrif á sautján milljónir manna í þrettán ríkjum.