Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Side 13
Fréttir 13Miðvikudagur 31. október 2012
Ástralir
þyngjast
Tveir þriðju hlutar áströlsku
þjóðarinnar teljast nú of þungir
eða of feitir, samkvæmt niðurstöð-
um umfangsmikillar rannsóknar
þar í landi. Ástralir hafa fitnað um-
talsvert á undanförnum þrátt fyrir
að aðrar rannsóknir hafi bent til
þess að fleiri lifi nú heilbrigðara lífi
en áður; drekki minna af áfengi og
reyki minna. Samkvæmt niður-
stöðunum nú hefur of þungum
eða of feitum fjölgað um tvö pró-
sentustig í Ástralíu á undanförnum
fjórum árum. Árið 1995 voru 56,3
prósent Ástrala of þung eða of feit
og ljóst að hlutfallið hefur hækkað
verulega á undanförnum árum.
Tölfræðingurinn Paul Jelfs
hefur haft yfirumsjón með rann-
sókn á hlutfalli of þungra Ástrala.
Notast var við svokallaðan BMI-
þyngdarstuðul, sem hægt er að
finna út á einfaldan hátt með því
að deila í þyngd þína í kílóum með
hæðinni í metrum í öðru veldi.
Tekið skal fram að stuðullinn tek-
ur ekki tillit til mismunandi lík-
amsbyggingar fólks. Þannig geta
mjög vöðvamiklir einstaklingar
talist of þungir eða feitir sam-
kvæmt stuðlinum þó þeir séu
það ekki.
Samkvæmt tölum OECD eru
Ástralir í fimmta sæti yfir feitustu
þjóðir heims. Á undan þeim eru
Bandaríkin, Mexíkó, Nýja-Sjáland
og Chile.
Þrátt fyrir að niðurstöður rann-
sóknarinnar hafi verið neikvæðar
hvað ofþyngd og offitu varðar
voru þær góðar að öðru leyti. Til
dæmis hefur reykingafólki fækk-
að um þrjú prósentustig á fjórum
árum og reykja nú 16,3 prósent
fullorðinna Ástrala daglega. Hlut-
fallið var 18,9 prósent árin 2007 og
2008 og 22,4 prósent árið 2001.
Töluvert mannfall Sandy átti upptök sín í Karíbahafinu og gekk meðal annars yfir
Jamaíku, Haítí, Bahamaeyjar og Kúbu, þar sem þessi mynd er tekin. Tugir manna létu
lífið á
eyjum Karíbahafsins vegna ofsaveðursins, flestir á Haítí.
Hamstra matvöru Mikil örtröð varð í
matvöruverslunum vestanhafs þegar ljóst var
hvert stefndi. Fólk hamstraði matvöru eins og
sjá má á þessari mynd úr Wal-Mart-verslun í
New York.
Sandy olli tugmilljarða tjóni
n Fellibylurinn Sandy er einn sá versti í sögu Bandaríkjanna n Hátt í hundrað manns hafa týnt lífi í óveðrinu
Geipilegt óveður Hér má sjá loftmynd af Sandy þegar óveðrið
skall á austurströnd Bandaríkjanna. Stormurinn átti upptök sín í
Karíbahafinu.