Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Qupperneq 16
Eins og að hjóla í KöbEn
16 Neytendur 31. október 2012 Miðvikudagur
Air Berlin flýgur til Íslands næsta sumar
n Verður áfram umsvifamesta erlenda flugfélagið á sumrin
Á
ttunda árið í röð ætlar Air
Berlin að fljúga hingað til
lands yfir sumartímann.
Næsta sumar mun áfanga
stöðum flugfélagsins þó fækka
þegar hætt verður að fljúga héð
an til Stuttgart. Þetta kemur fram
á turisti.is en þar segir að flug
félagið muni fljúga til Berlínar
fjórum sinnum í viku, þrisvar til
Dusseldorf og München og tvisvar
til Hamborgar. Samtals verði ferð
irnar því tólf á viku sem sé meira en
önnur erlend félög bjóða upp á hér
á landi yfir sumarmánuðina. Það
verði því aðeins German Wings og
WOW air sem bjóði upp á ferðir til
Stuttgart sem er sjötta stærsta borg
Þýskalands.
Túristi ræddi við Jönu
Andresen, talskonu Air Berlin,
sem segir forsvarsmenn félags
ins ánægða með undirtektirnar
sem flugið til Íslands hefur feng
ið. Hún segir þó mikinn meirihluta
farþeganna vera Þjóðverja. Að
spurð hvort Air Berlin íhugi flug
til Íslands yfir veturinn segir hún
að leiðakerfi félagsins sé sífellt
til endurskoðunar en á næsta ári
verði aðeins í boði flug yfir aðal
ferðamannatímann.
gunnhildur@dv.is
Algengt verð 251,6 kr. 260,7 kr.
Algengt verð 251,4 kr. 260,5 kr.
Höfuðborgarsv. 251,3 kr. 260,4 kr.
Algengt verð 251,6 kr. 262,7 kr.
Algengt verð 253,9 kr. 260,7 kr.
Melabraut 251,4 kr. 260,5 kr.
Eldsneytisverð 30. október
Bensín Dísilolía
Vel útilátið
á góðu verði
n Lofið fær söluturninn Stopp á
Selfossi. „Fórum þangað nokkur
eitt kvöldið og keyptum fjölskyldu
tilboð. Tilboðið var vel útilátið á
góðu verði. Þjónustan var alveg frá
bær og afgreiðslustúlkan gaf
okkur öllum súkkulaði
með tilboðinu þrátt
fyrir að það væri ekki
auglýst með því og bætti
meira segja einu
auka við fyrir
barnið sem var
með okkur. Við
fengum ham
borgarana mjög
fljótt og allir voru
mjög ánægðir,“ segir
ánægður viðskiptavinur.
Gert upp á milli
vildarvina
n Lastið fær Stöð 2 en áskrifandi
sendi eftirfarandi: „Við höfum lengi
verið áskrifendur og erum svokall
aðir vildarvinir. Nú fylgir frítt Popp
TV með og hellingur af dagskrár
liðum sem áður voru á Stöð 2 hafa
nú verið færðir þangað. Málið er
að við sem erum ekki tengd ljós
leiðara náum ekkert Popp TV né
þeim 50 til 60 rásum sem fjölvarpið
býður upp á, þar sem við búum úti
á landi. Mér finnst því verið að gera
upp á milli vildarvina. Ég hef haft
samband við Stöð 2 og þeir segjast
ekkert geta gert því Vodafone eigi
dreifikerfið. Ég skil það en finnst að
við sem náum ekki rásunum ættum
að fá afslátt eða aðrar stöðvar í stað
inn sem við náum. Eins og er erum
við að borga jafn mikið og aðrir fyrir
minni þjónustu.“
Pálmi Guð
mundsson, fram
kvæmdastjóri
sjónvarpssviðs hjá
365 miðlum, segir
að símafyrirtækin
séu með ólíka
dreifingu um landið.
„Það er því mismunandi
hve margar stöðvar nást
á hverjum stað, því miður.
Fólk sér uppáhaldsþættina sína
alls staðar þar sem er netsamband
með netfrelsinu. Það er viðbót
sem á að mæta þessu. Við bættum
svo inn þessum nýju stöðvum til
að bæta þjónustuna og jafnframt
er það markmið okkar að ná sem
víðast,“ segir Pálmi.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
air Berlin Flug-
félagið fækkar
áfangastöðum
næsta sumar.
Þ
að kostar hjólreiðamann
sem býr 10 kílómetra frá
vinnu um fimm krónur á
dag að notast við rafhjól til
að komast til og frá vinnu.
Mengunin er lítil sem engin og hjól
reiðarnar verða leikur einn, jafnvel
fyrir einstakling sem er ekki í góðu
formi. Þetta er niðurstaða blaða
manns eftir að hafa prófað að hjóla
á rafhjóli, til og frá vinnu, í eina
viku.
„Það er eins og einhver sé að ýta
manni áfram,“ sagði vinur blaða
manns sem prófaði hjá honum raf
hjól sem hjólreiðaverslunin Örninn
lánaði honum. Rafhjól eru hjól með
rafmótor sem auðvelda hjólreiðarn
ar til muna, sérstaklega þegar á móti
blæs eða í brekkum. Enn sem kom
ið er eru þessi hjól fremur dýr í inn
kaupum. Hjólið sem blaðamað
ur fékk að láni hjá Erninum kostar
353.000 kr. Og vinurinn hefur rétt
fyrir sér. Að hjóla á rafhjóli, eins og
því sem blaðamaður prófaði, er eins
og hjóla alltaf á jafnsléttu eða jafnvel
niður brekku.
Hjálpin er stillanleg
Undirritaður er rúm 100 kíló að
þyngd og í sannleika sagt ekki í
góðu líkamlegu formi. Hann hefur,
þvert á ýmis og misháleit áform þar
um, ekki stundað reglulega hreyf
ingu um skeið. Því var viðbúið
að sú ákvörðun að hjóla úr Efra
Breiðholti niður í miðbæ, hvað þá
úr miðbænum og heim að vinnu
degi loknum, myndi draga dilk á
eftir sér í formi heiftarlega harð
sperra og örmögnunar.
Rafhjólið sem blaðamaður
fékk að láni er með innbyggðan
rafmótor sem er á milli pedalanna.
Með lítilli tölvu sem fest er við stýrið
má stilla hversu mikil hjálp fæst við
hjólreiðarnar. Velja má um margar
mismunandi stillingar. Eftir því sem
hjálpin er meiri þeim mun skemur
endist hleðslan á rafhlöðunni. Hjól
ið er nokkru þyngra en venjulegt
reiðhjól, aðallega vegna þess að
rafhlaðan er nokkur kíló að þyngd.
Að öðru leyti er erfitt að sjá mun á
venjulegu reiðhjóli og rafhjóli.
Blaðamaður, í formleysi sínu,
stillti á þá stillingu sem mest hjálp
ar til og hjólaði í vinnuna á mánu
dagsmorgni. Ferðin vonum framar.
Blaðamaður hjólaði niður Elliðaár
dalinn, undir Reykjanesbrautina,
yfir Miklubrautina og á nýja hjól
reiðastíginn sem liggur meðfram
Suðurlandsbraut langleiðina nið
ur á Hlemm. Við Fíladelfíukirkj
una beygði hann niður Höfðatúnið
og yfir Sæbraut. Með Sæbrautinni
hjólaði hann fram hjá Hörpu og
Reykjavíkurhöfn þar til komið var
að enda Tryggvagötu þar sem DV er
til húsa.
110 kílómetrar á viku
Ef blaðamaður sparaði sér akstur
í vinnu og heim, fljótlegustu
leiðina í vinnuna, á bíl sem eyddi
10 lítrum á hundraðið í innanbæj
arakstri, tæki tvö ár og tvo mánuði
að borga upp hjólið. Undirritaður
býr upp í EfraBreiðholti og ef hann
fer um Sæbraut, sem er fljótförn
ust á þeim tíma sem blaðamaður
mætir til vinnu, ekur hann 22 kíló
metra báðar leiðir á hverjum degi.
Í fimm daga vinnuviku keyrir hann
110 kílómetra á viku til og frá vinnu
og borgar fyrir það 2.761 krónu í
bensín á núverandi verðlagi.
En það er fleira en bensín
kostnaðurinn sem telur. Rekstr
arkostnaður nýs bíls, sem ekið er
15 þúsund kílómetra á ári, nem
ur um 1,3 milljónum króna sam
kvæmt útreikningum Félags ís
lenskra bifreiðaeigenda og nálgast
má á heimasíðu félagsins. Þá er
gert ráð fyrir bensíni, hjólbörðum,
tryggingum, skoðun, verðrýrnun,
viðgerðum og fleiru. Ef sá sem fengi
sér rafhjól gæti losað sig við bílinn,
og þar af leiðandi rekstrarkostnað,
myndi hjólið borga sig upp á rúm
um þremur mánuðum.
svipaður tími og á bíl
Á mánudeginum, fyrsta daginn, tók
hjólreiðaferð blaðamanns um 30
mínútur en tekið skal fram að hálka
var í Elliðaárdalnum og blaðamað
ur var ekki alveg viss um hvaða leið
væri fljótlegust. Að vinnudegi lokn
um lagði hann af stað heim á leið,
með svolítinn kvíðahnút í magan
um. Hann bað konuna um að vera
á bakvakt og óttaðist þá skömm sem
myndi fylgja því að þurfa að láta
sækja sig á fyrsta degi, og segja frá
því í DV, að 29 ára karlmaður gæti
ekki hjólað heim til sín.
En raunin varð önnur. Heim
ferðin upp eftir tók skemmri tíma
en um morguninn og sú varð reynd
ar líka raunin daginn eftir. Án þess
að svitna gat undirritaður hjólað
til og frá vinnu, rétt ríflega 10 kíló
metra leið, á mun skemmri tíma en
það tekur að taka strætó.
Á síðasta deginum, þegar besta
leiðin hafði verið fundin út, tók það
blaðamann 24 mínútur að hjóla
úr Vesturbergi í Breiðholti niður í
Tryggvagötu, að höfuðstöðvum DV.
Það tók litlu lengri tíma að hjóla
heim síðdegis og meðalhraðinn
báðar leiðir var um 26 km/klst. Raf
magnsmótorinn, sem fer í gang
þegar pedölunum er snúið, hjálpar
hjólreiðamanninum að komast upp
í 25 kílómetra hraða á klukkustund,
óháð því hvort hjólað er á jafnsléttu
eða upp í móti. Erfitt er að fara
hraðar því mótorinn slær út þegar
hjólið nær 25 km/klst. af öryggis
ástæðum. Ekki er leyfilegt að hjóla
mikið hraðar á stígum sem ætlaðir
eru gangandi vegfarendum.
Með því að hjóla á rafhjóli fæst
því fín hreyfing og útivera án þess
að mótvindur eða brekkur geri það
að verkum að hjólreiðatúrinn verði
að erfiðri líkamsrækt. Þetta er svo
lítið eins og að hjóla í Köben.
Jafn fljótlegt og á bíl
Eins og áður segir tók það blaða
mann 24 mínútur að hjóla tíu kíló
metra leið til eða frá vinnu. Til sam
anburðar má nefna að samkvæmt
heimasíðu Strætó tekur minnst
38 mínútur á morgnana að kom
ast niður í bæ en 44 mínútur að
n Jafn fljótur og á bíl n Rafhjól getur borgað sig upp á skömmum tíma n Minni mengun og betri heilsa n Rafhjól eru enn frekar dýr
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Á fleygiferð Ökumenn voru
oftast vel á varðbergi gagnvart
hjólandi vegfarenda þessa viku
sem blaðamaður var hjólandi.
lJósMynDari: sigtryggur ari
„Ef sá sem
fengi sér raf-
hjól gæti losað sig
við bílinn myndi
hjólið borga sig upp
á rúmum þremur
mánuðum