Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Side 20
Þrír þokkalegir
Dwayne Wade,
LeBron James og
Chris Bosh unnu
titilinn með Heat
í fyrra. Þeir eru
líklegir til að verja
titilinn. Myndir reuters
20 Sport Miðvikudagur
„MiaMi Heat er liðið
seM allir vilja vinna“
n NBA-deildin rúllar af stað n Svali Björgvins spáir í spilin n Miami Heat líklegt
M
iami Heat er klárlega
liðið til að vinna. Þeir eru
búnir að ná þessum sigri
sem þeir þurftu og þar af
leiðandi verður álagið á
þá minna í vetur. Þeir eru liðið sem
allir vilja vinna,“ segir körfubolta-
sérfræðingurinn Svali Björgvins-
son. NBA-deildin hófst í gærkvöldi
með þremur leikjum og fékk DV
Svala til að spá í spilin fyrir komandi
leiktíð. Óhætt er að segja að margir
hafi beðið deildarinnar með eftir-
væntingu enda var tímabilið í fyrra
litað af verkfalli leikmanna sem stóð
fram eftir vetri. Ekkert slíkt er uppi á
teningnum að þessu sinni og ekkert
sem bendir til annars en að tímabil-
ið verði jafnt og spennandi. Svali seg-
ir að ríkjandi meistarar, Miami Heat,
séu líklegir til afreka í vetur, önnur lið
muni hins vegar veita Miami-liðinu
harða keppni.
Afleitt undirbúningstímabil
Fyrir utan Miami Heat munu augu
margra eflaust beinast að Kobe
Bryant og félögum hjá Los Angeles
Lakers. Liðið hefur styrkt sig ágæt-
lega í sumar og fékk til að mynda hinn
stóra og stæðilega Dwight Howard frá
Orlando Magic. Þá gekk hinn gamal-
reyndi Steve Nash í raðir Lakers frá
Phoenix. Þrátt fyrir stjörnum prýtt
lið gekk Lakers afleitlega á undirbún-
ingstímabilinu og tapaði öllum átta
leikjum sínum. Það segir ekki alla
söguna um liðið enda voru lykilmenn
fjarri góðu gamni. „Þeir eru með
svakalegan hóp og ef Howard verður
heill í bakinu og Kobe sömuleiðis
verður þetta suddalegt lið,“ segir Svali.
Aðspurður hvort samvinna Steve
Nash og Kobe Bryant verði eftirtekt-
arverð segir hann að þeir séu leik-
menn sem geti vel bætt hvorn annan
upp. „Nash er náttúrulega ekki ein-
hver skrautfjöður með athyglisþörf.
Ef hann helst heill á hann að geta
hjálpað Kobe verulega og öfugt,“ segir
Svali og bætir við að mest spennandi
verði þó að fylgjast með Paul Gasol
og Dwight Howard inni í teignum og
hvernig samvinna þeirra gengur. „Ég
á ekki von á að Lakers geri miklar rós-
ir á tímabilinu. Þeir munu stíla inn á
það að vera heilir í úrslitakeppninni,“
segir Svali um Lakers-liðið.
Munu sakna Harden
Annað lið sem gæti blandað sér í bar-
áttuna er Oklahoma City Thunder.
Liðið fór alla leið í úrslit í fyrra en átti
ekki roð í Miami Heat sem vann auð-
veldan 4–1 sigur í úrslitaeinvíginu.
Liðið mun sakna verulega James
Harden sem fór til Houston Rockets
á dögunum. Hann var valinn besti
sjötti maður deildarinnar í fyrra og
skilaði tæpum 17 stigum í leik að
meðaltali.
Chicago Bulls var með besta
vinningshlutfallið í deildinni í fyrra
ásamt San Antonio Spurs. Derrick
Rose, einn besti leikmaður deildar-
innar, sleit krossbönd á ögurstundu í
fyrra og átti Chicago í miklum erfið-
leikum í kjölfarið og datt út í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar gegn
Philadelphia. „Það er spurning
með Chicago og hvernig og hvenær
Rose kemur til baka. Hann varð fyrir
slæmum meiðslum og þarf að koma
mjög sterkur til baka,“ segir Svali um
möguleika Bulls í vetur.
Lið sem gætu komið á óvart
Aðspurður hvaða lið gætu komið
á óvart segir Svali að vissulega
sé alltaf erfitt að spá einhverju
óvæntu. „En ég geri ráð fyrir að
San Antonio Spurs verði áhuga-
verðir. Ég held að Philadelphia
komi á óvart og að mínir menn í
New York Knicks komi enn og aftur
á óvart fyrir að vera lélegir. Clipp-
ers er líka með betra lið en í fyrra,“
segir hann. Aðspurður hvort tími
Dallas Mavericks sé liðinn seg-
ir Svali að erfitt sé að spá um það.
Dirk Nowitzki sé meiddur og hann
hafi hvort sem er verið slakur í
fyrra og virkað saddur eftir titilinn
sem liðið vann vorið 2011. „Tími
Boston átti að vera liðinn í fyrra
en þeir spiluðu vel,“ segir hann
en Boston komst alla leið í úrslit
Austur deildarinnar þar sem liðið
tapaði 4–3 fyrir Miami sem fór í úr-
slit deildarinnar. n
Hvað segja veðbankarnir?
Samkvæmt Betsson er Miami Heat líklegasta liðið til að landa NBA-titlinum í vetur. Hér að
neðan má sjá hvaða lið eru líkleg til afreka í ár og þau lið sem eiga litla von, eins og til dæmis
Charlotte Bobcats sem á nánast enga möguleika í vetur. Líkurnar eru innan sviga fyrir neðan.
1 Miami Heat (21/10)
2 Los Angeles Lakers (5/2)
3 Oklahoma City Thunder (18/5)
4 San Antonio Spurs (10/1)
5 Chicago Bulls (33/2)
6 Boston Celtics (37/2)
7 Los Angeles Clippers (24/1)
8 Brooklyn Nets (29/1)
9 Dallas Mavericks (29/1)
10 New York Knicks (34/1)
11 Indiana Pacers (34/1)
12 Memphis Grizzlies (34/1)
13 Philadelphia 76ers (54/1)
14 Denver Nuggets (54/1)
15 Houston Rockets (89/1)
16 Atlanta Hawks (89/1)
17 Utah Jazz (89/1)
18 Minnesota Timberwolves (99/1)
19 Portland Trail Blazers (124/1)
20 Orlando Magic (149/1)
21 Milwaukee Bucks (149/1)
22 New Orleans Hornets (149/1)
23 Golden State Warriors (174/1)
24 Phoenix Suns (174/1)
25 Washington Wizards (249/1)
26 Detroit Pistons (249/1)
27 Cleveland Cavaliers (249/1)
28 Toronto Raptors (249/1)
29 Sacramento Kings (249/1)
30 Charlotte Bobcats (749/1)
Fylgstu með
Fullt nafn: Anthony Davis Jr.
Fæddur: 11. mars 1993
Háskóli: Kentucky
staða: Kraftframherji
Það kom fáum
á óvart að New
Orleans Hornets
skyldi nýta sér
fyrsta valrétt til að
krækja í Anthony
Davis í nýliðavalinu
í júní síðastliðnum.
Davis er 208 sentí-
metra hár kraftframherji frá Kentucky-
háskólanum. Á síðasta tímabili skoraði
hann 14,2 stig að meðaltali í leik og
blokkeraði tæplega fimm skot í leik að
meðaltali. Hann fékk eldskírn sína með
bandaríska landsliðinu á Ólympíuleik-
unum í sumar. Svali Björgvinsson segir
að hann sé leikmaður sem vert sé að
fylgjast með í vetur. „Hann fékk lítið
að spila á Ólympíuleikunum en hann
er auðvitað frábær leikmaður. Hann
er stærsta nafnið af þessari unglinga-
kynslóð í NBA-deildinni.“
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Alltaf líklegur Þegar lið er með mann eins
og Kobe Bryant innanborðs getur allt gerst.
Lakers er spáð velgengni í vetur.
Ísland mætir Hvíta-rússlandi:
Fyrsti leikur
Arons
Íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta mætir Hvíta-Rússlandi í
Laugardalshöllinni í kvöld, mið-
vikudag, í fyrsta leik liðsins í
undankeppni EM. Um er að ræða
fyrsta leik landsliðsins undir stjórn
Arons Kristjánssonar sem tók við
keflinu af Guðmundi Guðmunds-
syni í lok sumars. Auk Hvíta-Rúss-
lands er Ísland í riðli með Rúm-
eníu og Slóveníu. Ísland mætir
Rúmeníu á útivelli á sunnudag.
Ísland verður án Arnórs Atla-
sonar í leikjunum tveimur og þá er
Björgvin Páll Gústavsson enn frá
vegna veikinda. Ólafur Stefánsson
lagði sem kunnugt er landsliðs-
skóna á hilluna eftir Ólympíuleik-
ana í London og verður forvitni-
legt að sjá hvernig liðinu reiðir af
án hans. Leikurinn gegn Hvít-
Rússum hefst klukkan 19.30.
Richards frá
í langan tíma
Micah Richards, leikmaður
Manchester City, verður frá í allt
að sextán vikur vegna meiðsla sem
hann varð fyrir í 1–0 sigurleiknum
gegn Swansea um liðna helgi.
Richards var borinn af velli eftir að
hafa meiðst á hné þegar skammt
var eftir af leiknum. Óhætt er að
segja að útlitið hafi verið svart
enda fékk Richards súrefni og
virtist sárþjáður. Leikmaðurinn
gekkst undir aðgerð í Manchester
á mánudag og mun hann missa af
mikilvægum leikjum í Meistara-
deild Evrópu og sömuleiðis í
deildinni þar sem City er í harðri
toppbaráttu við Chelsea og
Manchester United.
Messi hefur ekki
áhuga á PSG
Besti knattspyrnumaður heims,
Lionel Messi, hefur lítinn áhuga á
að yfirgefa herbúðir Barcelona til
að ganga til liðs við hið moldríka
franska félag Paris St. Germain.
„Ég spila með bestu leikmönnum
í heimi. Við berjumst um titil á
hverri einustu leiktíð. Í hrein-
skilni sagt sé ég ekki fyrir mér
að ég muni yfirgefa Barcelona,“
segir Messi sem náði þeim merka
áfanga um helgina að skora þrjú
hundraðasta mark sitt á ferlinum.
Um Parísarliðið hefur Messi þetta
að segja: „Ég veit ekki hvort þeir
geti barist við bestu liðin í Meist-
aradeild Evrópu. Ég held að þeir
geti unnið frönsku deildina en það
tekur tíma að búa til lið.“