Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Síða 23
Fólk 23Miðvikudagur 31. október 2012
Öðruvísi kikk en í rokkinu
n Snyrtur Smári tarfur spilar þjóðlagapopp með Ylju
É
g leit alltaf svo hræðilega út, og
barði reyndar gítarinn eins og
óður væri – þess vegna fékk fólk
sjálfsagt fremur tryllingslega til-
finningu fyrir mér. Ég hef samt alltaf
spilað hitt og þetta, þótt það hafi lengi
vel farið mest fyrir rokkinu, segir tón-
listarmaðurinn Smári tarfur Jósepsson
úr hljómsveitinni Ylju.
Smári tarfur er líklega þekktastur
sem rokkari en með Ylju spilar hann
fallegt þjóðlagapopp. Sveitina skipa
þær Bjartey Sveinsdóttir og Guðný
Gígja Skjaldardóttir, auk Smára sem
gekk til liðs við stelpurnar fyrir ári.
Smári hefur verið þekktur fyrir sítt
og mikið skegg og rokkað útlit en hefur
nú látið skeggið fjúka. Hann viður-
kennir að fyrir vikið séu margir sem
þekki hann ekki úti á götu. „Ég var bú-
inn að vera með svona mikið skegg frá
því að ég var 18 ára. Á Patró var ég líka
alltaf síðhærður en svo rakaði ég allt af
og þurfti ekki að kaupa mér sjampó-
brúsa í áratug. Helvíti næs. Núna
fannst mér aftur upplagt að breyta til.
Ég þarf ekkert að bera rokkið utan á
mér. Það er nógu mikið af því þarna
inni.“
Plata Ylju kemur út um miðjan
nóvember en sveitin tekur virkar þátt í
Airwaves-tónlistarhátíðinni. „Við spil-
um í Kaldalóni í kvöld og spilum alls
sjö eða átta sinnum. Sjálfur ætla ég að
reyna að sjá eins mikið og ég mögu-
lega get fyrir utan það. Helst vil ég
sjá eitthvað gott þungarokk – eins og
Momentum, Angist eða Gone Postal til
dæmis. Það væri gaman. Annars læt ég
bara kylfu ráða kasti og dett vonandi
inn á eitthvað skemmtilegt.“
indiana@dv.is
n Sameiginleg ákvörðun að hennar sögn
F
jölmiðlakonan Friðrika
Hjördís Geirsdóttir, bet-
ur þekkt sem Rikka, og
Stefán Hilmar Hilmars-
son, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs 365, hafa slitið
samvistir. Það var Smartland
sem greindi frá þessu. Í sam-
tali við vefinn sagði Rikka að
ákvörðunin hefði verið sam-
eiginleg og tekin í vinsemd.
Saman eiga Rikka og Stefán tvo
drengi, sex og fjögurra ára.
Rikka er einn dómara í þátt-
unum Master Chef sem fara í
loftið á Stöð 2 í nóvember, en
tökum á þeim er nýlokið.
Hún vildi lítið tjá sig um
hvað væri framundan hjá sér
í samtali við Smartland, en
sagðist nú vera að einbeita sér
að því að taka upp úr kössum
og finna fallegum hlutum sín-
um stað á nýju heimili.
Töluvert hefur gengið á hjá
Stefáni síðustu misserin en
hann hefur staðið í ströngu
fyrir dómstólum vegna ým-
issa mála. Hann var úrskurð-
aður gjaldþrota sumarið 2010
vegna skulda sinna við Arion
banka, áður Kaupþingi. Eign-
ir hans gengu upp í skuldir við
kröfuhafa en þau hjónin fengu
þó að halda eftir persónuleg-
um munum sem þurfti til að
„halda látlaust heimili“, eins
og það er orðað í gjaldþrota-
lögum. Þau bjuggu í glæsi-
legu húsi við Laufásveg 68 sem
Stefán seldi eignarhaldsfélagi
í eigu móður sinnar haustið
2008, eða rétt fyrir efnahags-
hrunið. Fjölskyldan bjó þó
áfram í húsinu. Sá gjörningur
var eitt þeirra mála sem sem
skiptastjóri þrotabús Stefáns
vildi láta rifta fyrir dómstólum,
en sjálfur flutti Stefán lög-
heimili sitt til Lúxemborgar
í byrjun síðasta árs.
Ýmsar kjaftasögur hafa
á síðustu árum gengið um
Rikku og samskipti hennar
við aðra karlmenn en Stef-
án. Svaraði hún fyrir ein-
hverjar þeirra í viðtali við
Lífið, fylgirit Fréttablaðsins,
í febrúar síðastliðnum. „Sú
lífseigasta núna held ég að
sé um það að ég sé ólétt eft-
ir alla aðra mögulega karl-
menn en manninn minn,
í það minnsta hafa vinir
mínir sagt mér að þeir heyri
það oftast þessa dagana. Ég
hef líka átt að vera skilin
við Stefán af ótal ástæðum
og guð má vita hvað,“ sagði
Rikka meðal annars. Í dag
er skilnaðurinn þó stað-
reynd. indiana@dv.is
Þessa dagana er í gangi gjörningur á
Facebook þar sem fólk birtir mynd-
ir af sér með spjald sem ritað er á af
hverju viðkomandi þarfnist femín-
isma.
Atli Geir Grétarsson, bróðir Jak-
obs Bjarnars Grétarssonar blaða-
manns, er einn þeirra sem tekur
þátt í gjörningnum og birtir mynd af
sér á Facebook-síðu sinni þar sem
hann heldur á spjaldi sem á stend-
ur: „Ég þarfnast femínista vegna
þess að þá er bróðir minn að bögg-
ast í einhverjum öðrum en mér.“
En Jakob Bjarnar er þekktur fyrir
að liggja ekki á skoðunum sínum
og á það stundum til að vera ansi
óvæginn í garð annarra.
„Helvítis melurinn þinn!“ ritaði
Jakob Bjarnar undir mynd bróður
síns. Í samtali við DV segir Atli þó
að það sé allt í góðu á milli þeirra
bræðra. Þetta hafi eingöngu verið
létt grín.
„Þetta var skot í margar áttir og
svo bara ræður fólk hvernig það
tekur því.“
„Helvítis
melurinn
þinn!“
n Bróðir Jakobs
Bjarnars skýtur á
hann á Facebook
Sigurður
Blöndal
á vinninginn
n Dagur B. Eggertsson tók mynd
af félögum sínum í Ráðhúsinu
Dagur B. Eggertsson tók mynd
af félögum sínum stuttu fyr-
ir blaðamannafund þar sem
kynnt var frumvarp til fjárhags-
áætlunar 2013 og fimm ára
áætlun 2013–2017. Myndin þótti
honum svo kostuleg að hann
setti hana inn á Facebook-síðu
sína þar sem hún hefur vak-
ið mikla athygli. „Það er svo
margt að gerast á þessari mynd,“
segir Dagur og skellir upp úr.
„Ef að vel er gáð, sést Auður á
myndinni, svo er Óttar Proppé á
henni líka, hann er í hvarfi á bak
við borgarstjórann. Flestir eru
með á sér alveg hreint óborgan-
legan svip og það er hann Sig-
urður Blöndal sem á held ég
vinninginn.“
Fleira vakti athygli gárunga
þennan daginn en Hanna Birna
Kristjánsdóttir hóf mál sitt í
umræðum um fjárhagsáætl-
un borgarinnar á því greina
frá þeirri skoðun sinni að Lady
Gaga hefði ekki lýst sömu
hrifningu á borgarstjóranum í
Reykjavík ef hún þyrfti að borga
útsvar í Reykjavík.
Rikka og
Ylja Sveitina skipa
Smári tarfur, Bjartey
og Guðný Gígja.
Sjónvarpskokkur
Rikka er einn dómara í
þáttunum Master Chef
en sýningar á þeim
hefjast nú í nóvember.
Skilin! Rikka og Stefán
hafa slitið samvistir en
hún er nú að koma sér
fyrir á nýju heimili.
Stefán Skilin